30 maí 2025

/

Mál nr. 164/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 164/2025

Föstudaginn 30. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 13. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til hennar.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 26. apríl 2024 og var umsóknin samþykkt 23. maí 2024. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, var kæranda tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur í maí 2024 sem innheimtar yrðu án álags samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 13. mars 2025. Með bréfi, dags. 18. mars 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. apríl 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa fengið tvö skilaboð, annars vegar um að skýringar hennar hafi verið taldar jákvæðar og hins vegar að hún skuldi 318.615 kr. Í tölvupósti hafi kærandi útskýrt ástandið og að hún hefði ekki gert neitt ólöglegt. Vinnumálastofnun hafi samþykkt umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur og hún skilji ekki hvers vegna hún skuldi stofnuninni.

 

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysistrygginga þann 26. apríl 2024. Með erindi, dags. 23. maí 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar hafi komið í ljós að kærandi hafi verið með óútskýrðar tekjur í maí 2024 frá B og með erindi, dags. 27. febrúar 2025, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar vegna umræddra tekna auk afrits af launaseðlum.

Afrit af launaseðli kæranda hafi borist í kjölfarið þar sem fram hafi komið að umræddar tekjur væru meðal annars uppgjör á áunnum réttindum, það er orlofsuppbót. Þá hafi einnig verið tilgreind á launaseðlinum greiðsla vegna 160 klukkustunda dagvinnu á tímabilinu 1. til 31. maí 2024, samtals 423.200 kr. Kæranda hafi verið tilkynnt með erindi, dags. 13. mars 2025, að þar sem hún hefði ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta þann tíma sem hún hefði verið í vinnu bæri henni að endurgreiða þær til baka. Umræddur launaseðill hafi verið túlkaður á þann veg að hún hefði verið í fullri vinnu í maí 2024. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum í máli hennar hefði hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur, samtals að fjárhæð 318.615 kr., sem yrðu innheimtar án álags samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laganna, með skuldajöfnuði af síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum. Kæranda hafi ekki verið gert að sæta viðurlögum vegna ótilkynntra tekna. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 36. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 13. mars 2025. Kærandi beri við að hún hafi ekki gert neitt rangt. Vinnumálastofnun hafi samþykkt umsókn hennar um atvinnuleysisbætur og skilji því ekki af hverju hún þurfi að endurgreiða atvinnuleysisbætur frá því í maí 2024.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Kærð sé ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, þess efnis að kærandi skuli endurgreiða þær atvinnuleysisbætur að fullu sem hún hafi fengið greiddar í maí 2024.

Mál þetta varði almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum, sbr. III. kafla laga um atvinnuleysistryggingar. Í 13. gr. laganna segi að eitt helsta skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit. Nánari skilgreining á hugtakinu „virk atvinnuleit“ sé að finna í 14. gr. laganna. Í því ákvæði komi fram að sá sem teljist í virkri atvinnuleit hafi meðal annars frumkvæði að starfsleit, sé reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, sé reiðubúinn að taka starfi óháð starfshlutfalli og eigi ekki rétt á launum eða öðrum greiðslum í tengslum við störf á vinnumarkaði þann tíma sem hann teljist vera í virkri atvinnuleit nema 17. eða 22. gr. laganna eigi við.

Af fyrirliggjandi gögnum í máli þessu sé ljóst að kærandi hafi ekki verið í virkri atvinnuleit í maí 2024. Samkvæmt launaseðli hafi kærandi verið í fullu starfi í maí 2024 hjá . Fyrir liggi að kærandi hafi ekki upplýst Vinnumálastofnun um tekjur sínar frá B í maí 2024. Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé rík áhersla lögð á upplýsingaskyldu atvinnuleitanda gagnvart Vinnumálastofnun. Atvinnuleitanda beri þannig meðal annars að tilkynna stofnuninni um allar breytingar á aðstæðum sem gætu haft áhrif á rétt viðkomandi til greiðslu atvinnuleysisbóta, sbr. 2. mgr. 14. gr. laganna. Í 3. mgr. 9. gr. sé sérstaklega kveðið á um skyldu atvinnuleitanda til að tilkynna stofnuninni um tekjur vegna tilfallandi vinnu. Þar segi orðrétt:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Vinnumálastofnun vilji árétta að upplýsingaskylda atvinnuleitanda sé ítrekuð á öllum stigum umsóknarferlis um atvinnuleysisbætur. Við upphaf umsóknar séu atvinnuleitendum kynnt margvísleg atriði er varði réttindi og skyldur, þar á meðal upplýsingaskyldu. Í lok umsóknarferlis staðfesti allir atvinnuleitendur að þeir hafi kynnt sér þau atriði. Þá sé á heimasíðu Vinnumálastofnunar að finna ítarlegar upplýsingar til handa atvinnuleitendum um skyldur þeirra sem hafi þegið tekjur samhliða greiðslu atvinnuleysisbóta og hvernig eigi að skrá slíkar tekjur.

Það sé ein meginskylda atvinnuleitanda að tilkynna stofnuninni um allar þær tekjur sem viðkomandi þiggi á meðan hann fái greiddar atvinnuleysisbætur. Á heimasíðu Vinnumálastofnunar megi finna ítarlegt kennslumyndband um hvernig tilkynna beri tekjur til stofnunarinnar, en þar sé meðal annars tiltekið að tilkynna skuli stofnuninni um tekjur með minnst dags fyrirvara og að skrá skuli fjárhæð tekna inn á ,,Mínum síðum“. Kærandi hafi ekki greint frá því að hún hafi starfað hjá B í maí 2024. Eðli máls samkvæmt geti atvinnuleitandi ekki þegið óskertar atvinnuleysistryggingar samhliða launuðum störfum. Kærandi hafi verið upplýst um skyldu sína til að upplýsa um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur, eða fjármagnstekjur við upphaf vinnslu umsóknar hennar og með tölvupósti, dags. 26. apríl 2024. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kæranda hefði mátt vera fulljóst að henni bæri að tilkynna stofnuninni um upphaf og lok vinnu sinnar, auk þeirra tekna sem hún hafi aflað sér.

Með umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, dags. 26. apríl 2024, hafi komið fram að kæranda hefði verið sagt upp störfum hjá B vegna samdráttar/skipulagsbreytinga. Í umsókn sinni hafi hún tilgreint að starfslok hennar hjá B væru 30. apríl 2024 og að hún væri að fullu atvinnulaus frá og með 1. maí 2024. Þá hafi kærandi sagst ekki eiga áunnið orlof við starfslok eða önnur réttindi hjá fyrrverandi atvinnurekanda sínum. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt með það fyrir augum og henni greiddar óskertar atvinnuleysisbætur fyrir maí 2024.

Kærandi hafi þegið laun í maí 2024 frá B. Umræddar tekjur kæranda hafi numið 668.933 kr. í maí 2024. Samkvæmt fyrirliggjandi launaseðli hafi tekjur kæranda í maí 2024 verið greiðsla á áunnum réttindum, það er orlofsuppbótar, samtals 58.000 kr., sem komi ekki til skerðingar þegar greiddra atvinnuleysisbóta. Í umræddum launaseðli sé tilgreind greiðsla vegna 160 klukkustunda vinnu í mái 2024 en á því tímabili hafi kærandi verið skráð atvinnulaus í kerfum Vinnumálastofnunar og fengið greiddar atvinnuleysisbætur á því tímabili. Því verði ekki horft fram hjá þeirri staðreynd að kærandi hafi ekki verið atvinnulaus í maí 2024 og hafi fengið, eðli málsins samkvæmt, ofgreiddar atvinnuleysisbætur og því hafi myndast skuld við stofnunina, samtals að fjárhæð 318.615 kr.

Í 2. mgr. 39. gr. sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða ofgreiðslunnar hafi með öðrum orðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem hafi verið ofgreidd. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálstofnun telji ekki tilefni til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með álagi.

Heildarskuld kæranda sé nú 308.308 kr. að teknu tilliti til skuldajöfnunar.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að máli kæranda og henni beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til kæranda.

Í 36. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er kveðið á um frádrátt frá atvinnuleysisbótum vegna tekna hins tryggða. Þar segir í 1. mgr.:

„Þegar samanlagðar tekjur af hlutastarfi hins tryggða, sbr. 17. eða 22. gr., og atvinnuleysisbætur hans skv. 32.–34. gr. eru hærri en sem nemur óskertum rétti hans til atvinnuleysisbóta að viðbættu frítekjumarki skv. 4. mgr. skal skerða atvinnuleysisbætur hans um helming þeirra tekna sem umfram eru. Hið sama gildir um tekjur hins tryggða fyrir tilfallandi vinnu, elli- eða örorkulífeyrisgreiðslur samkvæmt lögum um almannatryggingar, um elli- og örorkulífeyrisgreiðslur úr almennum lífeyrissjóðum, greiðslur úr sjúkrasjóðum stéttarfélaga sem eru komnar til vegna óvinnufærni að hluta, fjármagnstekjur hins tryggða og aðrar greiðslur sem hinn tryggði kann að fá frá öðrum aðilum. Eingöngu skal taka tillit til þeirra tekna sem hinn tryggði hefur haft á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur, sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum.“

Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar er sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunna að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er þannig fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.

Fyrir liggur að kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um tekjur sem hún fékk greiddar í maí 2024 og fékk hún því greiddar óskertar atvinnuleysisbætur í þeim mánuði. Það leiddi til þess að kærandi fékk greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hún átti rétt á, eða að fjárhæð 318.615 kr. Kæranda ber í samræmi við framangreint ákvæði 2. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006 að endurgreiða þá fjárhæð.

Í máli þessu hefur ekkert álag verið lagt á skuld kæranda og er því ekki ágreiningur um það atriði. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 13. mars 2025, um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur til A, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir