30 maí 2025

/

Mál nr. 193/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 193/2025

Föstudaginn 30. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 26. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. 

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 26. mars 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 2. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að kæra hefði borist að liðnum kærufresti og honum gefinn kostur á að koma að athugasemdum og/eða gögnum, teldi hann að skilyrði sem fram kæmu í 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 gætu átt við í málinu. Svar barst frá kæranda 16. apríl 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 29. arpíl 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna hinnar kærðu ákvörðunar. Umbeðin gögn bárust 6. maí 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hann hafi ráðfært sig við fulltrúa Vinnumálastofnunar og þeir sammælst um að það hefði verið eðlilegast fyrir kæranda, í ljósi þeirra skýringa sem hann hafi lagt fram, að fá að hætta í Frumkvæði en halda bótum. Viðurlögin, tveir mánuðir án bóta, hafi gert kæranda og fyrirtæki hans erfitt fyrir. Því fari kærandi fram á að hann fái greiddar þær atvinnuleysisbætur sem honum hafi verið meinað um í þessa tvo mánuði.

Í skýringum kæranda vegna kærufrestsins kemur fram að hann hafi verið og sé að koma á legg fyrirtæki án utanaðkomandi fjárfestinga og hafi því reitt sig á innkomu frá Vinnumálastofnun í gegnum úrræðið Frumkvæði. Þar sem kærandi hafi verið settur á viðurlög í stað þess að vera hleypt úr úrræðinu hafi hann orðið fyrir tekjutapi í tvo mánuði. Tekjutapið hafi sett mikla pressu á kæranda og því hafi hann ekki getað gefið sér tíma í nokkuð annað en vinnu til að reyna að brúa bilið, þar sem hann sé einnig með þrjú börn á heimilinu. Kærandi voni að aðstæður hans verði teknar gildar fyrir því að kæran hafi borist örfáum dögum of seint.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Hin kærða ákvörðun var tilkynnt kæranda með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 20. desember 2024, en ákvörðunin var kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála með kæru, móttekinni 26. mars 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.

Fyrir liggur að kæranda var í hinni kærðu ákvörðun leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að hin kærða ákvörðun hafi verið efnislega röng. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir