30 maí 2025

/

Mál nr. 236/2025 Úrskurður

 

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 236/2025

Föstudaginn 30. maí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk greiddar atvinnuleysisbætur frá Vinnumálastofnun á árinu 2023. Með greiðsluseðlum Vinnumálastofnunar, dags. 31. júlí og 31. ágúst 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 336.949 kr. Þann 2. febrúar 2025 var kæranda tilkynnt að ógreidd krafa vegna ofgreiddra atvinnuleysisbóta hefði verið áframsend til frekari meðferðar hjá Innheimtumiðstöð.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. apríl 2025. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 16. apríl 2025, var óskað eftir gögnum frá Vinnumálastofnun vegna kærunnar. Umbeðin gögn bárust 28. apríl 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hann telji að Vinnumálastofnun hafi ekki sinnt leiðbeiningarskyldu sinni. Stofnunin hafi ekkert haft samband við kæranda frá ágúst 2023 þar til í febrúar 2025 þegar skuld hans hafi verið send í innheimtu.

III.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Með greiðsluseðlum, dags. 31. júlí og 31. ágúst 2023, var kæranda tilkynnt um skuld við Vinnumálastofnun, samtals að fjárhæð 336.949 kr. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. apríl 2025. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.

Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða

2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Með vísan til þess að kæra í máli þessu barst meira en ári eftir að ákvörðun var tilkynnt kæranda er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir