30 maí 2025
/
Nr. 453/2025 Úrskurður
Hinn
úrskurður nr.
í stjórnsýslumálum nr.
Kæra
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur og börn þeirra eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá
Kærendur komu til viðtals hjá Útlendingastofnun
Kærendur kváðust tilheyra minnihlutahópi í heimaríki vegna stjórnmálaskoðana. Greindi M frá því að hann hafi ákveðið að ganga til liðs við stjórnmálaflokkinn Primero Justicia árið 2016 vegna þeirra erfiðleika sem þau hafi upplifað vegna fötlunar A. Hann hafi verið virkur í þágu flokksins með því að hafa tekið þátt í öllum mótmælum og samkomum. Hann hafi einnig flutt fólk á milli staða og fengið greitt fyrir það. K kvaðst ekki hafa verið aðili að stjórnmálaflokki í heimaríki en hún hafi stutt M í hans aðgerðum. Hún hafi sýnt honum stuðning með því að hafa samband við fólk um staðsetningu strætósins til þess að þau gætu fengið far á mótmæli gegn ríkisstjórninni. Hún hafi ekki verið skráð í flokkinn formlega en hafi einnig sýnt flokknum stuðning með því að vera viðstödd mótmæli og vera til staðar. Greindi M einnig frá því að ráðist hafi verið á mótmælendur í mótmælum með lögreglukylfu og hann hafi verið með mikið mar á fótunum eftir slíkt högg. Hann hafi ekki farið til læknis. Kvað K M hafa lent í ágreiningi við lögregluna í mótmælum og þeir hafi gefið honum högg á lærið með lögreglukylfu.
Aðalástæðu flótta kærenda frá Venesúela kvað M hafa verið hótanir um ofbeldi og líflát sem hann og fjölskylda hans hafi orðið fyrir. Hótanirnar hafi stafað frá aðilum beintengdum ríkisstjórn Venesúela, lögreglu- og rannsóknarlögreglumönnum, sérsveitinni og Colectivos. Allt hafi byrjað þegar M hafi keypt strætisvagn árið 2022. Í Venesúela væru andstæðingar ríkisstjórnarinnar ekki velkomnir í opinber störf, svo sem störf á vettvangi almenningssamgangna. Almenningssamgöngum væri aðallega stjórnað af borgarstjóra og fylkisstjóra sem hafi ekki verið ánægðir með það að M, meðlimur í stjórnmálaflokki á móti ríkisstjórninni, væri byrjaður að sinna slíkum störfum. Kvað hann þá oft hafa sent lögregluna til þess að stoppa sig, þegar hann hafi verið að keyra umræddan strætisvagn, og halda honum gegn vilja hans í marga klukkutíma á vinnutíma. Framangreint hafi haft áhrif á rekstur M og haft það markmið að hann myndi hætta störfum. Þar sem M hafi ekki látið undan hafi áreitið haldið áfram.
Kvað K allt hafa byrjað þegar M hafi gengið til liðs við Primero Justicia en áreitið hafi þó ekki verið jafn mikið á árunum 2017 til 2022. Áreitið hafi byrjað af alvöru eftir að M hafi fest kaup á strætisvagni, hafið að vinna á vettvangi almenningsamgangna og flytja fólk á mótmæli. M hafi verið sá eini, í þeim almenningssamgönguhópi sem hann hafi starfað við, sem ekki hafi stutt ríkisstjórnina. Kvað hún meðlimi hópsins ekki hafa verið ánægða með þá afstöðu M og hafa gert ýmislegt til þess að reyna að fá M til þess að hætta störfum. Almenningssamgönguhópurinn hafi að sögn K treyst á að lögreglan myndi stöðva strætisvagninn. Nefndi hún að í Venesúela fái allir bensíni úthlutað frá ríkisstjórninni og þegar M hafi komið að sækja bensín hafi hann fengið að heyra að bensínið væri búið og ekki fengið að koma inn. Þrátt fyrir framangreint kvað hún þau hafa haldið sínu striki, ekki hlustað á þá og ekki ögrað þeim. Aðspurð um það hverjir hafi haft uppi hótanir gegn kærendum kvað K það aðallega hafa verið meðlimi framangreinds almenningssamgönguhóps í borg þeirra.
Kærendur greindu frá því að í maí 2023 hafi M lent í bílslysi er hann hafi verið að keyra strætisvagninn. Kvaðst M hafa misst stjórn á vagninum og keyrt á lítið berg. Kærendur telji að átt hafi verið við bremsurnar þar sem þær hafi farið, þrátt fyrir mjög gott viðhald á vagninum. Þau hafi hins vegar ekki sönnun fyrir því eða viti hverjir hafi verið þar að baki. Farþegar strætisvagnsins hafi slasast lítillega og verið sammála um að leggja hvorki fram kæru né fara fram á bætur. Farþegarnir hafi einnig beðið lögregluna um að skipta sér ekki af málinu og staðið með M. Kvað hann lögregluna í Venesúela vera mjög spillta. Lögreglan hafi mætt á staðinn og gert skýrslu sem M eigi ekki afrit af. Lögreglan hafi jafnframt krafið M um fégreiðslur til þess að vagninn yrði ekki tekinn af honum. Greindi M einnig frá því að það væru ákveðnir staðir þar sem ráðist væri á vagna og partar teknir. Aðspurður kvaðst M oft hafa verið krafinn um fégreiðslur af hálfu lögreglumanna sem hafi beitt fjárkúgunum. Framangreindir aðilar geti einnig leitað að og drepið einstaklinga sem þeir vilji að hverfi. Strætisvagninn kvað M hafa verið óökuhæfan eftir slysið. Hann hafi gert við vagninn sjálfur í samvinnu við bifvélavirkja en það hafi tekið þrjá mánuði að vegna skorts á peningum og vegna ástandsins í Venesúela. M hafi fengið aðstoð frá fjölskyldu sinni til þess að gera við vagninn.
Í ágúst 2023 hafi strætisvagninn verið kominn í lag en þegar M hafi mætt aftur í vinnuna hafi honum verið sagt að hann ætti ekkert erindi þangað. Kvaðst hann þá hafa verið búinn að vera í þrjá mánuði að gera við vagninn og þetta hafi verið leiðin til þess að losna við hann úr almenningssamgöngubransanum. Kvað K að þegar M hafi mætt á ný á skrifstofu almenningssamgangna í ágúst 2023 hafi honum verið tjáð að hann mætti ekki vinna þar lengur því hann hafi ekki mætt í vinnuna í langan tíma. Kvaðst M hafa haldið áfram að reyna að fá að koma til starfa á ný en verið neitað. Hann hafi leitað til þriggja aðila til þess að kvarta en neitað hafi verið að taka við kvörtunum hans einnig hefði honum verið neitað að koma fram í útvarpi og ekki hafi verið hlustað á hann. M hafi þá byrjað að tjá sig á samfélagsmiðlum. Þá hafi hann byrjað að fá hótanir símleiðis. Í símtölunum hafi honum verið tjáð að þetta yrði verra fyrir M og fjölskyldu hans ef hann hætti ekki. Kvað hann það hafa farið í taugarnar á þeim að M hafi mótmælt því sem hafi verið að gerast og að hann léti rödd sína heyrast á samfélagsmiðlum. Hann hafi nýtt sér samfélagsmiðilinn WhatsApp til þess að koma skoðunum sínum á framfæri og tjáð skoðanir sínar innan ýmissa hópa samfélagsins í Puerto Cabello á miðlinum. Búið sé að eyða þeim færslum og hann sé ekki með skjáskot eða staðfestingu á umræddum færslum. M hafi síðan fengið verri skilaboð og honum verið hótað lífláti ef hann hætti ekki. Grófum hótunum hafi einnig verið beint að fjölskyldu hans og dætrum.
Að sögn K hafi kærendur látið rödd sína heyrast þegar M hafi verið neitað um að hefja störf að nýju í ágúst 2023 og leitað til skrifstofu borgara, skrifstofu almenningssamgangna, til neytendasamtaka og fleiri stofnana til þess að sýna fram á óréttlætið sem beinst hafi að þeirra atvinnustarfsemi. Framangreindar stofnanir hafi átt að gæta hagsmuna almennings en kærendur hafi alltaf fengið sama svarið og verið hótað ef þau myndu ekki hætta. Þau hafi þá farið að láta í sér heyra á samfélagsmiðlum og greint vinum sínum og fjölskyldumeðlimum frá því hversu ósanngjarnt það væri að M fengi ekki að vinna. Kvaðst K hafa tjáð skoðanir sínar á samfélagsmiðlinum Whats App ásamt Facebook og Instagram. Í kjölfarið hafi hótanirnar orðið grófari og aðilar hafi byrjað að mæta fyrir utan heimili kærenda og öskra ljóta hluti. Kvað K M einnig hafa fengið símtöl þegar hann hafi verið að labba úti á götu með hótunum þess efnis að ef hann myndi ekki hætta myndu þau láta hann hverfa. Þá hafi kærendur stundum verið að sinna erindum og keyra strætisvagninn þegar lamið hafi verið í hliðarnar á vagninum, hrópað að þeim ókvæðisorðum, að þau séu óvelkomin og eigi að fara burt. Auk þess hafi kærendur orðið fyrir áreiti þar sem þau væru mormónar. Varðandi framangreindar hótanir útskýrði M nánar að um hafi verið að ræða símtöl en einnig hafi fólk öskrað alls konar hótunum að þeim. Til viðbótar hafi Colectivos ýtt þeim á götu úti og hótað M persónulega á þeim tíma sem hann hafi tjáð sig á samfélagsmiðlum. Kvað M aðilana hafa haldið áfram að hóta sér stanslaust, daglega þar til hann hafi fengið boðun frá dómsmálaráðuneytinu í ágúst 2023. Kvað M aðra í sömu stjórnmálahreyfingu einnig hafa fengið hótanir og að allir sem láti rödd sína heyrast hafi fengið hótanir. Ástandið kvað K hafa versnað þegar M hafi fengið fyrrnefnda boðun frá dómsmálaráðuneytinu.
Í ágúst 2023 hafi kærendum borist skilaboð frá dómsmálaráðuneytinu þess efnis að M þyrfti að mæta fyrir dóm og bera vitni. Kvaðst hann ekki hafa farið heldur hafi boðunin verið gildra, afsökun til þess að senda M í fangelsi og hann væri til rannsóknar í Venesúela vegna þess að hann styðji stjórnarandstöðuna þar í landi. Greindi M frá því að eftir boðunina hafi fjölskyldan verið í felum heima hjá sér í fjóra mánuði og A og B hafi hætt að fara í skóla. Á þeim tíma sem kærendur hafi verið í felum hafi þau oft séð skrýtið fólk í kringum hús þeirra sem hafi sagt slæma hluti við kærendur. M hafi ekki verið virkur innan stjórnmálaflokksins Primero Justicia á þeim tíma. Í desember 2023 hafi M náð að selja strætisvagninn og kaupa miða til Íslands. Seinustu fjóra mánuðina kvað hann hafa verið ruglingslega og hann hafi verið orðinn veikur af streitu. Þá hafi fjölskyldan flutt á milli vinafólks og ættingja og hafi A og B farið út á þeim tíma hafi það verið í fylgd fjölskyldumeðlima. Kvað K vini þeirra, félaga M í almenningssamgöngum, samstarfsfólk M og vini úr stjórnmálaflokknum hafa verið sammála um að kærendur þyrftu að fela sig og flýja úr landi um leið og þau gætu. M hafi þá að mestu verið í felum á heimili kærenda og ekki getað aflað tekna.
Hótununum hafi einnig verið beint að A. Dag einn þegar K hafi fylgt A í skólann hafi tveir menn á mótorhjóli komið að þeim og sagt þeim að ef þau þegðu ekki myndu þeir hefna sín á dætrum þeirra. K hafi leitað á lögreglustöð í nágrenni heimilis þeirra en lögreglan styðji ríkisstjórnina og hún hafi ekki fengið aðstoð heldur verið tjáð að þau ættu að slappa af og hætta að tala illa um ríkisstjórnina, þá yrðu þau látin vera. Aðspurð um hvort þau hafi lagt fram kæru kvað hún svo ekki vera því þegar þau hafi ætlað að leggja fram kæru hafi framangreind boðun frá dómsmálaráðuneytinu verið komin. Hefði M gefið vitnisburð hefði hann sjálfkrafa verið settur í fangelsi. Þá væri ekki hægt að vita hvort sá sem tæki við kæru myndi aðstoða eða standa með ríkisstjórninni. Aðspurður um hvort M hafi á einhverjum tímapunkti leitað til lögreglunnar í Venesúela greindi hann frá því að það að leita eftir aðstoð lögreglunnar væri líkt og að gefa sig fram við lögregluna.
Snúi kærendur aftur til Venesúela verði þau í slæmum málum, M og fjölskyldu hans yrði hótað og þeim stjórnað með hótunum og pyndingum. M yrði tekinn snúi hann aftur til Venesúela og vísaði hann til þess að lögreglan hafi beðið eftir einstaklingum sem sendir hafi verið til Venesúela frá Íslandi og ákært þá fyrir að vera svikarar. Beðið yrði eftir kærendum að sögn K og enn meira hatri beint gagnvart þeim snúi þau aftur til Venesúela. Hún hafi rætt við nágranna sem hafi sagt henni að búið væri að spyrja eftir kærendum þannig að það væri fylgst með þeim. Kvað hún ríkisstjórnina vita að kærendur væru andstæðingar ríkisstjórnarinnar og þau hafi sem dæmi ekki fengið matarkörfur sem aðrir fái einstaka sinnum. Kváðust kærendur ekki geta búið annars staðar í Venesúela.
Þá kváðust kærendur vera mormónatrúar og kvað M þau tilheyra minnihlutahópi í heimaríki vegna þess. Kvað hann trú þeirra hafa haft þau áhrif að fjölskyldan hafi verið útskúfuð og dætur þeirra lagðar í einelti í skólanum frá bæði nemendum og kennurum. Ekki hafi verið hlustað á álit M í vinnu hans og talað niður til hans vegna trúarinnar. Kvað K kærendur hafa orðið fyrir miklu áreiti í Venesúela fyrir það að vera mormónatrúar. Árið 2018 hafi skólafélagi B kastað stein í höfuð hennar Við það hafi B höfuðkúpubrotnað. Framangreint atvik hafi kærendur rætt við skólastjórann sem hafi álasað kærendum fyrir að hafa valið að skrá B í kaþólskan skóla. Sá sem kastað hefði steini í B hafi verið tekinn úr skólanum í þrjá daga. Þá aðstoð sem kærendur hafi fengið fyrir A hafi komið erlendis frá í gegnum aðila sem styrki þau í gengum mormónatrúna. Aðspurð kvað hún samfélag mormóna í Venesúela stórt.
Andlega og líkamlega heilsu sína kváðu kærendur góða. Þau hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í heimaríki og þurft að greiða fyrir þjónustuna. Kvað M það hafa verið erfitt og K kvað þau ekki alltaf hafa getað greitt fyrir þjónustuna. Kvað M A og B ekki geta fengið læknisaðstoð í Venesúela eða nærliggjandi löndum vegna veikinda þeirra, þurft hafi að setja plötu í höfuð B eftir ofangreint höfuðkúpubrot og A sé lögblind. Kærendur hafi þurft að stöðva meðferð A í Venesúela vegna þess að þar væru ekki til lyf eða annað til þess að sinna meðferð hennar. Þau hafi farið með A í aðgerðir erlendis sem hafi gengið vel en þekkingin fyrir þeim aðgerðum væri ekki til staðar í Venesúela og þau hafi enga aðstoð fengið í Venesúela vegna heilsu A sökum ástands heilbrigðiskerfisins þar í landi. A hafi hitt lækna vegna sjónarinnar í Venesúela og kærendur hafi þurft að greiða fyrir læknisþjónustu hennar þar í landi, sem þau hafi getað þegar þess hafi verið þörf. A hafi hins vegar ekki fengið meðferð í Venesúela og þær aðgerðir og meðferðir sem hún hafi farið í hafi ekki verið gerðar þar. Aðspurð um hvort kærendur hafi sótt um blindrastaf fyrir A kvað K slíkt ekki vera til staðar í Venesúela. Þá aðstoð sem þau hafi fengið vegna sjónar A, hafi komið erlendis frá í gegnum aðila sem styrkt hafi kærendur í gegnum trú þeirra. Hún viti til þess að aðrir með sambærilega fötlun og A fái þjónustu frá ríkinu en aðspurð kvað hún þá sem styðji ríkisstjórnina fá þjónustu. Nefndi hún að þegar þau hafi farið með A til Kína hafi þar verið önnur fjölskylda í sambærilegum aðstæðum sem hafi fengið allt greitt.
Börn kærenda mættu til viðtala hjá Útlendingastofnun
Greindi B frá því að síðustu mánuðirnir í Venesúela hafi verið óþægilegir, foreldrar hennar hafi verið í erfiðri stöðu og henni hafi þótt erfitt að horfa upp á hvað þeim leið illa. Hún hafi verið í skóla þar til í júlí 2023. Hún hafi verið lögð í einelti og grjóti kastað í höfuðið á henni í skólanum árið 2018. Frítíma sínum hafi hún eytt heima og foreldrar hennar hafi ekki leyft henni að fara út vegna ástandsins og stöðunnar sem þau hafi verið í. Áður en foreldrar hennar hafi lent í þeirri stöðu hafi hún fengið að fara út að leika. Hún væri almennt heilsuhraust en hafi ekki beinlínis haft aðgang að heilbrigðisþjónustu og allt sem þyrfti að nota hjá lækni hafi þau þurft að kaupa sjáf. Hún hafi ekki þurft læknisaðstoð eftir slysið sem hún hafi lent í. Hún þjáist reglulega af höfuðverkjum og verk í hrygg í kjölfar höfuðkúpubrotsins. Ástæðu flóttans kvað B vera þátttöku M í stjórnmálaflokki í heimaríki. Hann hafi fengið hótanir fyrir það starf hans.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og börnum
þeirra synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um
útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann
til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests
sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Börnum
kærenda var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til
kærunefndar
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst. Þar kemur m.a. fram
að
Í greinargerð kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Kærendur byggja m.a. á því að Útlendingastofnun hafi í mörgum tilvikum ekki vísað til nýrra eða uppfærðra landaupplýsinga. Vísa kærendur einnig til mats kærunefndar útlendingamála á aðstæðum í Venesúela í nýlegum úrskurðum nefndarinnar er varða Venesúela og gagnrýna kærendur mat kærunefndar um bætt ástand mála í Venesúela. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Byggja kærendur m.a. á því að frásagnir þeirra hafi verið skýrar, ítarlegar og trúverðugar ásamt því að samræmi hafi verið í hverri frásögn og á milli frásagna. Kærendur byggja á því að rannsókn Útlendingastofnunar hafi verið háð miklum og alvarlegum annmörkum í skilningi 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga og vísa m.a. til þess að mat stofnunarinnar á stöðu og stuðningsþörfum A hafi verið verulega ábótavant. Í hinum kærðu ákvörðunum sé hvergi að finna persónubundna umfjöllun um fötlun A eða persónulega stöðu hennar með annars vegar tilliti til greininga lækna og hins vegar til stuðningsþarfa hennar komi til endursendingar til Venesúela. Byggja kærendur á því að stjórnvöld geti ekki metið stöðu A í Venesúela með því einu að taka fram að hún sé lögblind. Ekki sé hægt að fullyrða að hún fái notið þeirra réttinda sem hún hafi tilkall til þegar ekki liggi fyrir hvaða stuðning hún þurfi. Um sé að ræða alvarlega annmarka á hinum kærðu ákvörðunum sem kærunefnd geti ekki bætt úr á kærustigi. Framlögð læknagögn hafi ekki verið reifuð og vísa kærendur til þess að í þeim læknagögnum sem þau hafi lagt fram frá Venesúela komi m.a. fram að A standi ekki til boða í heimaríki sú meðferð sem læknar ráðleggi fyrir hana, n.t.t. segulörvunarmeðferð eða TMS meðferð. Vísa kærendur einnig til bréfa frá stofnun á Íslandi þar sem fram komi að A hafi ekki fengið kennslu við hæfi í Venesúela og engin hjálpartæki eða séraðlögun hafi verið í boði. Þá segi í bréfi frá grunnskóla hér á landi þrátt fyrir að A sé [...] ára sé hún í rauninni núna fyrst að læra að lesa og skrifa og að bjarga sér í daglegu lífi. Hún þurfi sértækan stuðning til þess að nýta námsgetu sína og læra að lifa sjálfstætt. Af framangreindu megi vera ljóst að A hafi hvorki fengið nauðsynlega læknismeðferð í Venesúela né lágmarksaðstoð og hjálpartæki til þess að geta lifað eðlilegu lífi. Hennar heilsutjón sem ung kona yrði óbætanlegt yrði henni gert að snúa aftur til Venesúela. Telji kærunefnd útlendingamála sér fært að líta fram hjá framangreindum annmörkum á málsmeðferð Útlendingastofnunar byggja kærendur á að það verði að leggja til grundvallar að A sé sérstaklega viðkvæm í skilningi 6. tölul. 3. gr. laga um útlendinga og hún hafi þörf fyrir vernd á grundvelli heilbrigðisástæðna í skilningi 1. mgr. 74. gr. sömu laga. Gagnrýna kærendur einnig málsmeðferð, rannsókn og rökstuðning Útlendingastofnunar í máli M og telja málsmeðferðina að mestu hafa verið til málamynda. Stofnunin hafi ekki lesið þau stuðningsbréf sem hann hafi lagt fram en M hafi verið mun meira en stuðningsmaður flokksins, hann hafi verið einn af leiðtogum hans. Þá er þeirri ályktun Útlendingastofnunar að ekki verði talið að kærendum standi ekki til boða vernd og aðstoð lögreglu og yfirvalda í heimaríki mótmælt þegar haft sé í huga að yfirvöld séu að rannsaka M vegna stjórnmálaþátttöku hans.
Þá vísa kærendur til þess að fötluðu fólki sé veittur skýlaus réttur til aðstoðar réttindagæslumanns í 6. og 7. gr. laga nr. 88/2011 um réttindagæslu fyrir fatlað fólk en A njóti enn ekki þjónustu réttindagæslumanns.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og börnum þeirra
verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr.
laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til
vara að þeim og börnum þeirra verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan
til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur
þess að þeim og börnum þeirra verði veitt dvalarleyfi á grundvelli
mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærendur krefjast þess til þrautaþrautavara að hinar kærðu ákvarðanir í málum þeirra verði felldar úr gildi og mál þeirra send til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun vegna meintra brota stofnunarinnar gegn 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 sem og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga við meðferð málanna. Slíkir vankantar séu á málsmeðferð Útlendingastofnunar að kærunefnd geti ekki bætt úr þeim á kærustigi án þess að svipta þau því réttaröryggi að fá efnislega rétta umfjöllun um umsóknir á tveimur stjórnsýslustigum. Byggja kærendur á því að Útlendingastofnun hafi ekki framkvæmt mat á bestu hagsmunum A heldur hafi umfjöllun stofnunarinnar um sjónarmið varðandi börn í Venesúela verið yfirborðskennd og að stærstu leyti óviðkomandi aldri, stöðu og aðstæðum A. Framlögð gögn hafi ekki verið metin af Útlendingastofnun en þau sýni fram á að M hafi verið leiðtogi í Primero Justicia og fyrir vikið leiðtogi innan stjórnarandstöðunnar. Þau sýni einnig fram á að hann sæti nú rannsókn yfirvalda í Venesúela fyrir landráð og glæpi gegn forseta Venesúela. Kærendur eigi rétt á vandaðri málsmeðferð á tveimur stjórnsýslustigum og samkvæmt framangreindu verði að vísa málum þeirra aftur til Útlendingastofnunar til nýrrar málsmeðferðar.
Kærendur krefjast þess til þrautaþrautaþrautavara að hinar kærðu ákvarðanir í málum þeirra verði felldar úr gildi hvað varðar brottvísanir og endurkomubönn og þeim verði ekki gert að sæta slíku. Það gangi gegn meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga og réttmætisreglu íslensks stjórnsýsluréttar. Þá gangi það gegn bestu hagsmunum A verði henni gert að sæta brottvísun og endurkomubanni frá Íslandi. Benda kærendur sérstaklega á að samkvæmt 1. mgr. 10. gr., sbr. d-lið 2. mgr. 11. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk sé með afar takmörkuðum undanþágum öll beiting nauðungar í samskiptum við fatlað fólk bönnuð en undir það falli m.a. þegar fatlaður einstaklingur væri fluttur milli staða gegn vilja sínum. A byggir á því að undir framangreint bann falli þvingaður flutningur milli landa. Með hliðsjón af málsatvikum, að kærendur hafi leitað til Íslands í neyð og umsóknir þeirra séu ekki bersýnilega tilhæfulausar og með tilliti til þess að þau eigi fjölskyldu í Evrópu telja kærendur að þeim skuli ekki ákveðin brottvísun.
Með endursendingu kærenda og barna þeirra til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna. Við ofangreint mat sé afar mikilvægt að mati A að höfð sé í huga grundvallarregla barnaréttar um bestu hagsmuni barnsins og alþjóðlegar skuldbindingar ríkisins þegar kemur að kyni K, A og B. Í því sambandi þurfi m.a. til samnings Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gagnvart konum og samnings Evrópuráðsins um forvarnir og baráttu gegn ofbeldi á konum og heimilisofbeldi.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi
verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvörðun
Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar
kærðu ákvarðanir brjóti gegn
Kærunefnd hefur með málsmeðferð sinni bætt úr umræddum annmörkum og þykir því ekki ástæða til að ógilda ákvarðanir Útlendingastofnunar af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er
viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda
fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða
annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á
réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um
einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna
á sér deili hafi kærendur framvísað
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 21. maí 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 26. maí 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 22. maí 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt nýlegum heimildum, m.a. af vefsíðu Insight Crime, þá hafi Tren de Aragua verið valdamestu og stærstu glæpasamtök í Venesúela og teygt anga sína til fjölda landa í Suður-Ameríku, m.a. Kólumbíu, Ekvador, Perú, Bólivíu og Síle. Helsti stjórnandi samtakanna sé Héctor Guerrero, sem hafi liðþjálfa sér til aðstoðar til að stjórna starfsemi þeirra. Helsta brotastarfsemi samtakanna felist í ólöglegri námuvinnslu, ólöglegum viðskiptum með fíkniefni og vopn, mansal, mannrán, fjárkúgun, þvingaðar nýliðaskráningar, dráp og rán. Samtökin fái einnig staðbundna glæpahópa til að framkvæma tiltekin afbrot fyrir glæpasamtökin eða leyfi glæpahópum að nota nafn samtakanna í sinni starfsemi. Þungamiðja stjórnar samtakanna hafi áður verið í Tocorón fangelsinu í Aragua fylki en í september 2023 hafi stjórnvöld í Venesúela tekið yfir stjórn fangelsisins aftur. Samtökin hafa einnig haft viðveru í fimm öðrum ríkjum í Venesúela, fylkjunum Carabobo, Sucre, Bolívar, Guárico og Lara. Samstilltar aðgerðir yfirvalda í nokkrum ríkja Suður-Ameríku, m.a. í Tocorón fangelsinu og handtökur á yfir 100 meðlimum samtakanna, hafi veikt stöðu þeirra og dregið úr áhrifum þeirra á svæðinu.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum, séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021 kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanada og Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins um trúfrelsi frá 2023 er talið að u.þ.b. 168.500 einstaklingar, eða 0,5% af íbúafjölda Venesúela, tilheyri mormónakirkju Jesú Krists hinna síðari daga heilögu (e. The Church of Jesus Christ of Latter-day Saints).
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau hafi orðið fyrir ofsóknum,
hótunum og áreiti í Venesúela vegna stjórnmálaskoðana. Þau tilheyri
minnihlutahópi þar í landi vegna stjórnmálaskoðana þeirra og trúar. Til
viðbótar hafi A ekki haft kost á fullnægjandi heilbrigðisaðstoð eða stuðningi í
Venesúela.
Mat á trúverðugleika frásagnar kærenda er byggt á endurritum af viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki þeirra.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að M hafi verið virkur í þágu stjórnmálaflokksins Primero Justicia í heimaríki. Áreiti í garð kærenda hafi byrjað í kjölfar þess að M hafi keypt strætisvagn í maí 2022, hafið störf á vettvangi almenningssamgangna og flutt fólk á mótmæli og á milli staða fyrir Primero Justicia. K hafi stutt M í hans aðgerðum og m.a. séð um að upplýsa farþega um staðsetningu vagnsins til þess að farþegar kæmust með vagninum á mótmæli. Hún hafi verið viðstödd aðgerðir flokksins og mótmæli.
Í greinargerð kærenda kemur m.a. fram að framlögð gögn sýni að M hafi verið leiðtogi innan Primero Justicia og fyrir vikið verið leiðtogi innan stjórnarandstöðunnar.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e.-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá kærunefnd greindi M frá því hann hafi gengið til liðs við Primero Justicia árið 2017 og keypt umræddan strætisvagn í maí 2022. Aðspurður um þátttöku hans í framangreindum flokki fram að kaupum á umræddum strætisvagni kvaðst hann hafa verið virkur, mætt á fundi, safnað nýliðum fyrir kröfugöngur og séð um skipulag viðburða. Eftir að hafa fest kaup á umræddum strætisvagni í maí 2023 hafi hann áfram verið virkur og hafi hafi þá flutt fólk á milli staða, á fundarstaði. Aðspurður um hvort hann hafi haft sérstaka stöðu innan flokksins kvaðst hann hafa sinnt stöðu skipuleggjanda stjórnmálalegra aðgerða (e. coordinador of political activities). Í stöðunni hafi falist að safna saman fólki, flytja þau á milli staða, ræða við þau til þess leiðbeina þeim um hvað skyldi gera og útskýra fyrirkomulagið fyrir þeim. Hann hafi mætt heim til fólks, flutt það á skrifstofur stjórnmálaflokksins og þar hafi þau samstillt það sem þurfti áður en þau hafi farið á þann stað sem hittast ætti á. Í hlutverkinu hafi ekki falist að ræðumennska (e. public speaking). Þá hafi aðrir innan flokksins sinnt sambærilegum stöðum og M.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram ýmis gögn varðandi stjórnmálaþátttöku M. Þar á meðal afrit tveggja yfirlýsinga dags. 20. ágúst 2022 ásamt afriti yfirlýsinga dags. 27. ágúst 2023, 12. september 2023, 4. febrúar 2024 og 21. september 2024. Bera framangreindar yfirlýsingar með sér að stafa frá aðilum innan Primero Justicia og að M hafi tekið þátt í viðburðum á vegum flokksins frá árinu 2017. Ber önnur framangreindra yfirlýsinga dags. 20. ágúst 2022 með sér að M hafi verið grundvallarþátttakandi í framkvæmd ýmissa stjórnmálalegra og félagslegra starfa fyrir Primero Justicia. Bera framangreindar yfirlýsingar með sér að M hafi gengið til liðs við flokkinn 7. apríl 2017 og sinnt hlutverki samhæfingaraðila aðgerða í Carabobo (s. Coordinator de Activismo de Carabobo). Hlutverkið hafi m.a. falist í að öflun nýliða, samhæfingu, virkjun og þjálfun flokksmeðlima fyrir viðburði á vegum flokksins auk aðgerða í mótmælum. Bréfritarar fjalla m.a. um að M hafi orðið fyrir áreiti vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. Umrætt áreiti hafi m.a. verið að völdum Tupamaros, vopnaðra hópa, nafngreindra leiðtoga PSUV og þjóðvarðliða. Samhliða framangreindum gögnum lögðu kærendur fram afrit af ódagsettri yfirlýsingu varðandi útgáfu flokksskírteinis M sem inniheldur mynd af flokksskírteini M. Hafa kærendur einnig lagt fram afrit af viðurkenningu á vegum flokksins til M sem dagsett er í júlí 2022. Aðspurður kvað M í viðtali hjá kærunefnd viðurkenninguna hafa verið gefna út af höfuðstöðvum Primero Justicia. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram yfirlýsingu, dags. 27. janúar 2025, sem ber með sér að stafa frá fyrrverandi þingmanni í Venesúela. Viðkomandi greini m.a. frá því að M hafi verið virkur þátttakandi í Primero Justicia frá 7. apríl 2017 og orðið fyrir áreiti í Venesúela vegna þátttöku hans í flokknum.
Upplýsingar í framlögðum gögnum styðja við frásögn kærenda um stjórnmálaþáttöku M. Með tilliti til frásagnar kærenda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að M hafi verið virkur í þágu Primero Justicia frá 2017. Framangreind gögn bera þó með sér að vera framburðarskýrslur bréfritara og ekkert sem þar kemur fram staðfestir að M eða kærendur hafi orðið fyrir ofsóknum vegna stjórnmálaþáttöku M eða að hann hafi verið leiðtogi innan flokksins. Líkt og fram hefur komið greindi M frá því í viðtali hjá kærunefnd að hafa sinnt stöðu skipuleggjanda stjórnmálalegra aðgerða. Aðrir flokksmeðlimir hafi gegnt sambærilegum stöðum og í hlutverki M hafi ekki falist ræðumennska á vegum flokksins. Þá kvaðst kærandi aðeins hafa séð um skipulagningu flutnings fólk á mótmæli eftir að hann hafi keypt strætisvagninn en ekki komið að öðrum þáttum innan flokksins. Verður samkvæmt framangreindu ekki lagt til grundvallar að M hafi verið sérstakur leiðtogi innan flokksins.
Kærendur greindu í viðtali hjá Útlendingastofnun frá því að áreiti gagnvart þeim hafi byrjað af alvöru þegar M hafi keypt strætisvagn í maí 2022, hafið störf á vettvangi almenningssamgangna og hafið að flytja fólk á mótmæli og á milli staða fyrir Primero Justicia. Vísuðu kærendur til þess að þeir sem stjórnað hafi vettvangi almenningssamgangna hafi verið ósáttir við það að M, stjórnarandstæðingur, hafi sinnt því opinbera starfi. Þeir hafi því oft sent lögregluna til þess að stöðva vagninn og halda M gegn hans vilja. M hafi einnig verið neitað um að taka bensín. Í maí 2023 hafi M lent í bílslysi við aksturs umrædds strætisvagns. Kærendur telja að átt hafi verið við bremsur vagnsins en þau geti hvorki sýnt fram á það né hverjir hafi verið þar að baki. Þegar M hafi verið búinn að gera við strætisvagninn og ætlað að mæta til vinnu á ný í ágúst 2023 hafi honum verið tjáð að hann ætti ekki erindi þangað. Kærendur hafi því leitað til nokkurra opinberra aðila sem hafi neitað að taka við kæru M og sagt þeim að þau skyldu hætta að gagnrýna stjórnvöld, þá myndi áreitið hætta. M hafi einnig leitað til útvarpsstöðvar sem hafi neitað honum um að tjá sig. Þá hafi þau farið að tjá sig á samfélagsmiðlum. Í kjölfarið hafi M byrjað að fá hótanir símleiðis. Grófum hótunum hafi einnig verið beint að K, A og B. Í eitt sinn hafi menn á mótorhjóli komið að K og A og hótað þeim. Hótanirnar hafi að hans sögn stafað frá aðilum beintengdum ríkisstjórn Venesúela, n.t.t. lögreglumönnum, rannsóknarlögreglumönnum, sérsveitinni og Colectivos. Að sögn K hafi hótanirnar aðallega stafað frá meðlimum þess almenningssamgönguhóps sem M hafi starfað við. Hótanirnar hafi verið stanslausar og daglegar þar til M hafi fengið skilaboð og boðun frá dómsmálaráðuneytinu í ágúst 2023. Hótanirnar hafi að sögn M verið aðalástæða flótta kæranda.
Í viðtali hjá kærunefnd kvað M hótanir í hans garð hafa stafað frá meðlimum Colectivos og Tren de Aragua. Aðspurður um hvernig hann viti að um hafi verið að ræða meðlimi framangreindra gengja kvað hann það vera vegna þess að það væri þannig sem framangreind gengi starfi. Framangreint kvaðst hann vera alveg viss um því starfshættir Colectivos og Tren de Aragua væru þannig. Aðspurður um það hverju honum hafi verið hótað kvað hann framangreinda aðila hafi hótað M og fjölskyldu hans ofbeldi og lífláti ef hann hætti ekki að gagnrýna stjórnvöld. Hann ætti að hætta að reyna að fá starf sitt til baka. Hótanirnar kvað hann hafa orðið stanslausar og daglegar nánast um leið og hann hafi byrjað að tjá sig á samfélagsmiðlum. Hótanirnar símleiðis kvað hann hafa hafist í júlí 2023, eftir að hann hafi farið að tjá sig á samfélagsmiðlum og ekki hafa hætt. Honum hafi borist símtöl úr mismunandi númerum. Aðspurður um hvenær seinasta hótunin hafi borist honum símleiðis kvað hann símtölin hafa hætt þegar hann hafi skipt um símanúmer. Aðilarnir hafi þá ekki vitað hvernig ná ætti sambandi við M. Símtölin hafi stafað frá Colectivos og Tren de Aragua. Áreitið kvað hann þó hafa haldið áfram og aðilar hafi haldið áfram að mæta að heimili kærenda í Puerto Cabello.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram þrjár myndir af skemmdum á bifreið til fólksflutninga. Framlagðar myndi hafa takmarkað sönnunargildi í málinu en af þeim verður ástæður þess slyss.
Með áðurnefndu tölvubréfi dags. 7. maí 2025 óskaði kærunefnd upplýsinga um það til hverra M hafi verið að vísa til að hafi neitað að taka við kæru hans, hleypa honum í útvarp og að hlusta á hann. Kváðust þau hafa verið að vísa m.a. til þriggja opinberra stofnana í Venesúela sem á spænsku nefnast Inspectoría del Trabajo, Defensoria del Pueblo og Fiscalía del ministerio público. Varðandi það hvenær M hafi reynt að leggja fram kæru og hvað hann hafi ætlað að kæra svöruðu kærendur að það hafi verið í júlí 2023 og hann hafi viljað kvarta undan því að hann hafi verið útilokaður frá því að keyra strætisvagninn vegna stjórnmálaskoðana sinna.
Í viðtali hjá kærunefnd kvaðst M hafa hafið störf við farþegaflutninga í maí 2022. Þegar honum hafi verið tjáð af yfirmönnum hans að hann mætti ekki lengur vinna hafi það verið munnlega, hann hafi krafist skriflegrar staðfestingar á því en ekki fengið. Var M jafnframt spurður hvers vegna, að hans mati, hann hafi fengið opinbert starf í maí 2022 þótt yfirvöld hafi að hans sögn vitað að hann væri stjórnarandstæðingur og hvers vegna hann hafi ekki fengið að hefja störf á ný í ágúst 2023, þrátt fyrir að hafa fengið sama starf rúmu ári fyrr. Svaraði M að þegar hann hafi sótt um árið 2022 hafi hann verið með reynslu, greitt fyrir starfsleyfi og fengið úthlutað án þess að nákvæm rannsókn á honum hafi farið fram. Skömmu eftir að hann hafi hafið störf hafi honum verið sagt hreint út að stjórnvöld vilji ekki hafa hann í því starfi og hann verið áreittur af lögreglunni. Lögreglan hafi margoft stöðvað strætisvagninn frá því að hann hafi keypt vagninn í maí 2022 þar til hann hafi lent í umræddu bílslysi ári síðar. Aðspurður kvað hann ástæður þar að baki hafa verið fjárkúgun. Hann hafi verið stöðvaður og ekki sleppt fyrr en hann hafi greitt eða lofað að greiða. Slíkt hafi einnig gerst þegar hann hafi starfað við vöruflutninga. Kvað hann jafnframt marga yfirmenn og samstarfsmenn hafa verið ánægða með sig í starfinu. Aðspurður um það hvort eitthvað annað en að lögreglan hafi stöðvað strætisvagninn og að honum hafi verið neitað um bensín hafi gerst á tímabilinu maí 2022 til maí 2023 greindi hann frá áðurnefndu bílslysi í maí 2023. Kvaðst hann hafa verið beðinn um að ferja fólk á viðburð (e. march) á vegum yfirvalda, sem hann hafi neitað að gera og haldið áfram að vinna. Skömmu síðar hafi hann lent í umræddu bílslysi sem hann kvað hafa verið vegna þess að skorið hafi verið á bremsur strætisvagnsins. Kvað hann áreitið ekki hafa breyst á þeim tíma sem strætisvagninn hafi verið óökufær. Þá kvaðst M ekki hafa orðið fyrir ofbeldi af þeim sem hafi ógnað honum heldur einungis stanslausum hótunum. Umrætt bílslys hafi átt sér stað í byrjun maí 2023.
Í viðtali hjá kærunefnd greindi M frá því að þær stofnanir sem hann hafi leitað til hafi ekki tekið við kvörtunum M þar sem þær taki að hans sögn ekki við kvörtunum gegn fulltrúum stjórnvalda (e. civil servants). Einhverjir innan þeirra stofnana hafi tjáð M að hann hafi rétt fyrir sér en þau hafi ekki getað tekið við kvörtun hans vegna framangreinds. Á útvarpsstöðinni sem hann hafi leitað til hafi yfirmenn stöðvarinnar ekki leyft honum að tjá sig þar sem stöðin hafi ekki getað hætt á að gagnrýna stjórnvöld. Þeim færslum sem hann hafi sett inn á samfélagsmiðla hafi verið eytt af umráðamönnum þess samfélagsmiðlahóps sem hann hafi tjáð sig innan nánast um leið og hann hafi sett þær inn á hópinn.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram frekari gögn og ljósmyndir varðandi atvinnustarfsemi M ásamt tilkynningu til M dags. 21. ágúst 2023 þess efnis að hann tilheyri ekki lengur félagi bifreiðastjóra vegna þess að hann hafi ekki starfað við fólksflutninga í meira en sex mánuði. Kærendur kváðust ekki geta lagt fram gögn til þess að styðja við frásögn þeirra af því að þau hafi leitað til opinberra aðila til þess að kvarta yfir því að M hafi ekki fengið að hefja störf við almenningssamgöngur á ný. Þá gátu þau ekki lagt fram gögn sem styðja við tjáningu þeirra á samskiptamiðlum. Með tilliti til framburðar kærenda og framlagðra gagna verður lagt til grundvallar að M hafi keypt strætisvagn og hafið störf við farþegaflutninga á árinu 2022 og að hann hafi lent í bílslysi við akstur strætisvagnsins ári síðar, í maí 2023. Kærendur hafa þó ekki leitt líkum að því að M hafi verið neitað um starf við aksturs strætisvagns fyrir stjórnvöld vegna stjórnmálaskoðana hans og þá verður ekki lagt til grundvallar að aðilar á vegum stjórnvalda hafi verið valdir að framangreindu bílslysi.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram afrit skjals sem vísað er til sem tilkynning um sakamálarannsókn, dags. 23. ágúst 2023. Ber skjalið með sér að tilkynnt sé um rannsókn sakamáls og M sæti stöðu sakbornings fyrir landráð, hvatningu til haturs gegn forseta lýðveldisins, röskun á allsherjarreglu og þátttöku í glæpastarfsemi. Óskað sé eftir samstarfi M og að hann mæti á þá skrifstofu sem útgefið hafi bréfið. Ekki er tekið fram hvenær hann skuli mæta. Númer sakamáls kemur fram í skjalinu. Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst M vera til rannsóknar í Venesúela vegna þess að hann styðji stjórnarandstöðuna þar í landi. Í ágúst 2023 hafi kærendum borist skilaboð frá dómsmálaráðuneyti Venesúela þess efnis að M þyrfti að mæta fyrir dóm og bera vitni. Hann hafi ekki mætt þar sem umrædd boðun hafi verið gildra til þess að handsama M. Fjölskyldan hafi að sögn M farið í felur í kjölfar framangreindrar boðunar. Á þeim fjóru mánuðum sem kærendur hafi verið í felum hafi þau séð skrýtið fólk í kringum hús þeirra sem hafi sagt slæma hluti við þau.
Með tölvubréfi dags. 7. maí 2025 óskaði kærunefnd upplýsinga um það hvenær, hvernig og með hvaða hætti framangreind skilaboð frá dómsmálaráðuneytinu hafi borist M í ágúst 2023. Í svari kærenda kemur m.a. fram að M hafi fengið boðunina síðla ágústmánaðar 2023 en þau muni ekki nákvæma dagsetningu. Skjalið hafi verið birt K á heimili fjölskyldunnar af aðilum á vegum ráðuneytisins. Óskaði nefndin einnig upplýsinga um það hvort framangreindri boðun hafi verið fylgt eftir á einhvern hátt og hvort M hafi orðið fyrir einhverjum afleiðingum þess að hafa ekki mætt til yfirheyrslu. Í svari kærenda kemur fram að M hafi farið í felur eftir að hafa fengið boðunina og ekki fengið frekari boðanir frá ráðuneytinu. Kærendur hafi viljað bæta við að M hafi átt að mæta til Valencia í Carabobo fylki. Varðandi það hvort kærendur hafi orðið fyrir einhverjum afleiðingum þess að M hafi ekki mætt til yfirheyrslu kom fram í svari kærenda að á meðan hann hafi verið í felum hafi hann og fjölskyldan verið ofsótt af yfirvöldum og Colectivos sem starfi með stjórnvöldum, sérstaklega Tren de Aragua. Þeir aðilar hafi verið að spyrjast fyrir um fjölskylduna í hverfinu þeirra, heimsækja heimili þeirra og ofsækja kærendur. M telji afar líklegt að hans bíði handtökuskipun í Venesúela.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur m.a. fram afrit af boðun beint að M, þess efnis að honum beri að mæta til yfirheyrslu þann 29. janúar 2025. Ber skjalið með sér að vera stefna (s. boleta de citación) og að M skuli mæta til CICPC lögreglunnar 29. janúar 2025. Á skjalinu má sjá númer sakamáls sem virðist vera sama númer sakamáls og fram kemur á framangreindu afriti tilkynningar um sakamálarannsókn frá því í ágúst 2023. Í niðurlagi skjalsins eru talin upp viðurlög mæti M ekki á boðuðum tíma. Með framangreindu tölvubréfi óskaði kærunefnd einnig eftir frekari upplýsingum varðandi framangreinda boðun, m.a. um það hvenær og hvernig kærendum hafi borist skjalið. Í svari kærenda kom m.a. fram að aðili frá CICPC hafi komið með skjalið á heimili fjölskyldunnar í Venesúela þar sem leigutaki hafi tekið við því, tekið afrit af því og sent kærendum. Skjalið hafi fyrst borist þeim hinn 31. janúar 2025. Kærendur telji yfirheyrsluna vera vegna sama máls og þau hafi flúið land vegna í byrjun árs 2024.
Í viðtali hjá kærunefnd greindi M frá því að áðurnefnd tilkynning um sakamálarannsókn hafi borist kærendum síðla ágústmánaðar 2023. M hafi ekki mætt til viðtals en fjölskyldan hafi verið saman í felum í fjóra mánuði frá því í ágúst 2023. Þau hafi dvalið í húsnæði fjölskyldunnar fyrir utan borgina. Þau hafi jafnframt flutt á milli þriggja borga í Venesúela, á milli fjölskyldumeðlima M og K, og ekki verið lengi á sama stað. M hafi sótt um vegabréf í júlí 2023 því hann hafi viljað vera undirbúinn þar sem hann hafi vitað hvað gæti gerst. Þegar K og dætur kærenda hafi sótt um vegabréf á meðan fjölskyldan hafi verið í felum hafi þeim verið fylgt af bróður M. Þær hafi sótt um vegabréf þegar hótanir hafi einnig beinst að þeim en M hafi jafnframt sótt um vegabréf á undan þeim af efnahagslegum ástæðum. Kvað M þær hafa getað fengið vegabréf útgefin vegna þess að opinbera kerfið í Venesúela sé óskilvirkt og spillt þannig að á þeim tíma hafi skýrslur gegn honum ekki verið komnar inn í kerfið. Þá hafi hann ekki getað tekið með sér útprentað eintak af skjalinu frá því 2023 af ótta við að hafa það í fórum sér yrði hann stöðvaður af lögreglu á leið frá Venesúela.
M hefur greint frá því að Colectivos og Tren de Aragua hafi ofsótt þau og spurst fyrir um fjölskylduna í kjölfar framangreindrar boðunar en frásögn kærenda ber ekki með sér að boðuninni hafi verið fylgt eftir með formlegum hætti af yfirvöldum. Þá er ótrúverðugt að yfirvöld hafi einungis fylgt boðuninni frá því í ágúst 2023 eftir með boðun til M í janúar 2025, tæplega einu og hálfu ári síðar. Þá er í skjalinu frá því í ágúst 2023 hvorki að finna tíma- og staðsetningu meintrar yfirheyrslu né mögulegar afleiðingar þess að mæta ekki sem er ekki í samræmi við sambærileg skjöl frá venesúelskum yfirvöldum og til þess fallið að draga úr trúverðugleika skjalsins. Horfir kærunefnd einnig til þess að M hafi fengið útgefið venesúelskt vegabréf 21. júlí 2023. Í vegabréfi hans megi sjá útstimplun frá Simon Bólivar flugvellinum 28. janúar 2024 sem bendi til þess að hann hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvaður vegna opinna mála í venesúelska réttarkerfinu. Þá má af frásögn kærenda ráða að hótanir símleiðis hafi hætt þegar M hafi breytt um símanúmer. Af framburði kærenda verður jafnframt ráðið að þótt fjölskyldan hafi að þeirra sögn verið í felum í kjölfar boðunar dómsmálaráðuneytisins í ágúst 2023 hafi fjölskyldan getað ferðast á milli borga, sótt um vegabréf og A og B hafi getað farið út í fylgd fullorðinna. Einnig hafi fjórir mánuðir liðið frá því að umrædd boðun hafi borist kærendum þar til þau hafi farið úr landi. Bendir framangreint til þess að þau hafi getað dvalið að mestu óáreitt í heimaríki. Að mati kærunefndar gefur framangreint ekki til kynna að M sé eftirlýstur eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Hafa kærendur samkvæmt framangreindu ekki sýnt fram á að M sæti sakamálarannsókn af hálfu yfirvalda í Venesúela.
Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafa aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Þá hafi fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felist í að krafist sé greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslna sé krafist af vörubílstjórum auk greiðslna við vegatálma. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.
Með tilliti til upplýsinga um heimaríki kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að lögregla hafi oft stöðvað M við akstur strætisvagnsins. Bera gögn málsins hins vegar með sér að meint fjárkúgun tengist fremur almennum aðstæðum í heimaríki kærenda og atvinnu M. Hefur M sjálfur greint frá því að lögreglan hafi einnig stöðvað hann þegar hann hafi starfað við vöruflutninga, fjárkúgun hafi verið ástæða þess að lögregla hafi stöðvað hann og ákveðnir staðir væru þar sem strætisvagnar væru stöðvaðir og partar teknir. Ekki er hægt að útiloka að M hafi í einhver skipti verið neitað um að taka bensín en að hans sögn hafði það þó ekki áhrif á starfsemi hans. Hefur M sjálfur greint frá því að margir yfirmenn og samstarfsmenn hafi verið ánægðir með M í starfinu. Þá má af frásögn kærenda ráða að hótanir hafi verið stöðugar og símleiðis í kjölfar þess að kærendur hafi byrjað að tjá sig á samfélagsmiðlum og stafað frá Colectivos og Tren de Aragua. Hótanir símleiðis hafi hætt þegar M hafi breytt um símanúmer. Af framburði kærenda verður jafnframt ráðið að þótt fjölskyldan hafi að þeirra sögn verið í felum í kjölfar boðunar dómsmálaráðuneytisins í ágúst 2023 hafi fjölskyldan getað ferðast á milli borga, sótt um vegabréf og A og B hafi getað farið út í fylgd fullorðinna. Einnig hafi fjórir mánuðir liðið frá því að umrædd boðun hafi borist kærendum þar til þau hafi farið úr landi. Bendir framangreint til þess að þau hafi getað dvalið að mestu óáreitt í heimaríki. Ekkert í frásögn kærenda eða gögnum málsins bendir til þess að gerendur í þeirri atburðarrás hafi haft tengsl við yfirvöld eða að slíkt nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á að þau eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana kærenda, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur kynnt sér um aðstæður í Venesúela hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglumanna. Verður því lagt til grundvallar að kærendur geti leitað aðstoðar lögreglu telji þau þess þörf jafnvel þótt svo M kunni að hafa orðið fyrir fjárkúgun af hálfu einstakra lögreglumanna.
Fram kemur í greinargerð að kærendur byggi jafnframt á því að þau hafi orðið fyrir ofsóknum vegna trúar þeirra og fordómum samfélagsins gegn mormónum. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að þau væru mormónar. Þau tilheyri minnihlutahópi í Venesúela og hafi orðið fyrir miklu áreiti þar í landi vegna trúar þeirra. Trúin hafi haft þau áhrif að fjölskyldan hafi verið útskúfuð, A og B lagðar í einelti í skólanum og ekki hafi verið hlustað á álit M á vinnustað hans. Greindi K einnig frá því að samfélag mormóna í Venesúela væri stórt og þá aðstoð sem kærendur hafi fengið fyrir A hafi komið erlendis frá í gegnum aðila sem styrki þau í gegnum mormónatrúna. Í viðtali hjá kærunefnd greindi M frá því að kærendur hafi tekið upp mormónatrú árið 2019. Líkt og að framan greinir er kveðið á um trúfrelsi í stjórnarskrá Venesúela að því tilskildu að iðkun trúar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Framangreindar heimildir benda til þess að almennt umburðarlyndi ríki gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt séu ekki fordómar gagnvart því að tilheyra tiltekinni trú en það eru einkum forustumenn trúfélaga sem séu gagnrýnir á stjórnvöld sem geti verið ógnað af hálfu glæpahópa líkt og Colectivos af frumkvæði stjórnvalda. Af heimildum verður ekki ráðið að mormónar sæti ofsóknum á grundvelli trúar sinnar í Venesúela. Það er því mat kærunefndar að aðstæður kærenda vegna trúar þeirra séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun vísaði M m.a. til þess að lögreglan hafi beðið eftir einstaklingum sem sent hafi verið til Venesúela frá Íslandi og ákært þau fyrir að vera svikarar. M telji að hann yrði tekinn höndum snúi hann aftur til Venesúela. Af frásögn M má ráða að hann vísi til þess þegar venesúelskir ríkisborgarar hafi verið endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023. Kærunefnd bendir á að samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
K greindi frá í viðtali hjá Útlendingastofnun að kærendur hafi ekki fengið matarkörfur sem aðrir fái einstaka sinnum þar sem ríkisstjórnin hafi vitað að kærendur væru stjórnarandstæðingar. Einnig greindu kærendur frá því að A hafi ekki fengið fullnægjandi heilbrigðisþjónustu í Venesúela. Enga aðstoð hafi verið að fá þar í landi vegna blindu A en einstaklingar með tengsl við stjórnvöld fái þjónustu að sögn K. Þá aðstoð sem kærendur hafi fengið fyrir A hafi komið erlendis frá í gegnum trúarhóp kærenda.
Í viðtali hjá kærunefnd kvað M A hafa stundað nám við sérstakan skóla þegar hún var [...] til [...] ára gömul en staða hennar hafi þá verið metin og hún flutt yfir í almennan skóla. Þær B hafi stundað nám við einkaskóla í heimaríki. A hafi þurft að vera með stuðning sem hafi í hennar tilviki falist í því að K hafi verið með henni. Aðspurður um hvort kærendur hafi sótt um stuðning fyrir A kvað hann þau hafa gert það og sótt um blindrastaf. Stafinn hafi þau ekki fengið og K hafi leiðbeint kennurum A um hvernig best væri að kenna henni. Kvað hann enga aðstoð hafa verið að fá, einungis einstaklingar með tengsl við stjórnvöld hafi getað fengið stuðning. Fram að árinu 2016 hafi verið hægt að fá ákveðinn efnahagslegan stuðning fyrir ferðir erlendis en það hafi það ekki verið mögulegt eftir 2016 af efnahagslegum ástæðum.
Með tilliti til upplýsinga um heimaríki kærenda er ekki hægt að útiloka að kærendur hafi mætt erfiðleikum í heimaríki við það að sækja um og fá aðstoð vegna blindu A. Af frásögn kærenda verður þó ekki annað ráðið en að A hafi hitt lækna í Venesúela og kærendur hafi getað greitt fyrir þá þjónustu. Þegar A hafi verið yngri hafi hún verið í sérstökum skóla vegna stöðu hennar sem blint barn og eftir að hafa verið metin hafi hún verið færð í skóla fyrir ófötluð börn. Þar hafi hún þó þurft stuðning. Einnig hafi kærendur átt möguleika á fjárhagslegum stuðningi til ársins 2016 en hann hafi þá fallið niður af efnahagslegum ástæðum, ekki af ástæðum er varði persónulegar aðstæður kærenda. Ekkert í gögnum málsins eða frásögn kærenda gefur til kynna kærendum hafi verið synjað um þjónustu fyrir A vegna stjórnmálaskoðana kærenda eða persónulegra aðstæðna þeirra. Þá bendir ekkert til þess að A hafi orðið fyrir eða eigi á hættu að verða fyrir mismunun eða áreiti í Venesúela sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna þess að hún er lögblind.
Í greinargerð kemur fram að líta verði m.a. til kyns K, A og B. Bendir kærunefnd á að samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 njóta konur sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og megi vinnuveitendur ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Þá kemur fram í skýrslunni að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Að mati kærunefndar verður hvorki af landaupplýsingum né frásögn kærenda og barna þeirra ráðið að K, A eða B verði í erfiðari stöðu en aðrar konur í Venesúela á grundvelli kyns. Verður því ekki lagt til grundvallar að þær eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli kyns þeirra.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda, viðtölum við börnin og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barna þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2.
mgr. 37. gr. laga um útlendinga sérstaklega með tilliti til persónubundinna
þátta eða aðstæðna kærenda. Raunveruleg hætta sé á að þau láti lífið eða verði
fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í Venesúela og eigi á hættu
að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum handahófskennds ofbeldis vegna
vopnaðra átaka þar í landi. Með tilliti til persónulegra aðstæðna kæranda,
stjórnmálaþátttöku trúarbragða, fötlunar, aldurs og kyns uppfylli þau heildstætt
kröfur ákvæðisins.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst eða beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barna þeirra er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að
hafa verið búsett í
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og barna þeirra séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og börn þeirra uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og börn þeirra eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við 74. gr. frumvarps til laga um útlendinga kemur fram að í samræmi við ákvæði alþjóðlegra skuldbindinga og almennra laga sé lagt til að tekið sé sérstakt tillit til barna, hvort sem um er að ræða fylgdarlaus börn eða önnur börn. Í því ljósi og með hliðsjón af meginreglunni um að það sem barni er fyrir bestu skuli hafa forgang þegar teknar eru ákvarðanir um málefni þess, sbr. jafnframt 2. mgr. 10. gr. og 3. mgr. 25. gr. laga nr. 80/2016, telur kærunefnd að við mat á því hvort skilyrði 1. mgr. 74. gr. laganna séu fyrir hendi skuli taka sérstakt tillit til þess ef um barn er að ræða og skuli það sem er barni fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og barna þeirra og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðu kærendur líkamlega og andlega heilsu sína góða. Þau hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela og hafi ekki alltaf getað greitt fyrir þá þjónustu. M greindi frá því að seinustu fjóra mánuðina í heimaríki hafi hann þó verið veikur af streitu. Útskýrði hann nánar að þegar hann finni fyrir mikilli streitu finni hann fyrir svima og það taki hann þrjá daga að ná sér aftur. Hann hafi lent í því að heil vika hafi liðið þar sem hann hafi verið rúmliggjandi. Kvaðst hann hafa farið til sálfræðings vegna streitueinkenna sem hafi mælt með því að hann hvíli sig og taki því rólega. Við meðferð málsins hafa kærendur m.a. lagt fram ódagsett vottorð frá sálfræðingi í Venesúela varðandi andlega heilsu M. Fram kemur að upphaf meðferðar (s. inicio de consulta) hafi verið 19. október 2023.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindu kærendur einnig frá því að árið 2018 hafi grjóti verið kastað í B og hún höfuðkúpubrotnað. Brotið hafi enn áhrif á B. Hún megi ekki leggja mikið á sig líkamlega og fái höfuðverk við það að hrista höfuðið eða fái hún högg á höfuðið. Kvað K að þau hafi ekki haft efni á að greiða fyrir nægilega góða aðgerð en fyllt hafi verið í brotið. Að sögn læknis þyrfti að setja járnplötu í höfuð B og meta stöðuna þegar B verði [...] ára. Kvað K að vilji þau að B fari í slíka aðgerð þurfi þau að kaupa umrædda járnplötu, sem þau hafi ekki efni á. Aðgerðin væri ekki í boði í opinbera heilbrigðiskerfinu að hennar sögn. Aðgerðin væri gerð á einkastofum að sögn M en væri verulega dýr. Þau hafi þurft að kaupa öll lyf og greiða fyrir þjónustu við B vegna brotsins.
Kærendur hafa greint frá því að A sé lögblind. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að þegar A hafi verið [...] gömul hafi augnbotn hennar fallið vegna vanrækslu frá læknum. Það hafi versnað því læknarnir hafi ekki viljað setja hana í aðgerð strax. Að sögn K hafi þeim ekki verið sagt hvað þau ættu að gera og hvaða sérfræðing A hafi þurft að hitta til þess að bjarga augnbotnum hennar. A væri núna nánast blind og með mikla fötlun hvað sjón hennar varði. Að sögn M hafi þau þurft að stöðva meðferð A þar sem í Venesúela væru ekki til lyf eða annað til þess að sinna meðferð. Kvað K A hitta lækna vegna þess í Venesúela en hún fái þar enga meðferð. Þau hafi getað greitt fyrir læknisþjónustu hennar í Venesúela þegar þess hafi þurft. Árið 2010 hafi A farið í fyrstu aðgerðina í Kólumbíu. Það hafi verið aðal aðgerðin og augnbotn A settur á sinn stað. Kærendur hafi farið með A í stofnfrumuígræðslu til Kína árið 2012 og til Taílands árið 2014. Árið 2016 hafi A farið í rafsegulörvun (e. intercranual interstimulation) í Panama og aðgerð í Kína. Framangreindar aðgerðir hafi gengið vel en að sögn M væri þekkingin fyrir þeim ekki til staðar í Venesúela. A þurfi á aðgerð að halda til þess að laga augnbotninn og aðlaga tölvukubba sem geti látið hana fá sjón á ný. Slík meðferð væri að sögn M ekki til staðar í Venesúela. Þau hafi farið með A í umræddar stofnfrumuígræðslur til Kína og Taílands vegna þess að sagt hafi verið við þau að þær meðferðir gætu hjálpað til við að lækna A, þótt það væri ekki staðfest. Kvað hann kærendur hafa prófað allt sem gæti hjálpað A og hafi farið til Kína því það hafi verið eini staðurinn sem geri slíka hluti. Kváðu kærendur ferðirnar hafa verið kostnaðarsamar og þau hafi getað greitt fyrir aðgerðirnar og ferðalögin.
Aðspurð um það hvort A þurfi að fara í frekari aðgerðir kvað K svo ekki vera. Aðal aðgerðin hafi verið í Kólumbíu þegar augnbotninn hafi verið settur á sinn stað. Annað hafi verið meðferðir til þess til dæmis að styrkja augnbotninn og sambandið á milli sjóntaugar og heilastarfsemi A. Hún þurfi á fleiri slíkum meðferðum að halda en kærendur hafi ekki getað sinnt því þar sem það hafi verið dýrt. Slíkar meðferðir hafi yfirhöfuð ekki verið í boði í Venesúela en hún hafi kynnt sér stöðuna á Íslandi og meðferð sem feli í sér rafsegulörvun væri í boði hér á landi. Kvað hún ástandið hafa farið versnandi frá árunum 2016 og 2017 vegna erfiðra fjárhagslegra aðstæðna í Venesúela og kærendur hafi ekki átt meiri pening til þess að halda áfram meðferð A og hafi ekki fengið aðstoð frá Venesúela. Greindi K einnig frá því að A hafi ekki fengið þá þjónustu frá Venesúela sem hún hefði átt að fá þar sem hún væri lögblind, svo sem blindrastaf. Sú þjónusta væri ekki til staðar. Kvað hún þá aðstoð sem A hafi fengið, svo sem blindrastaf og tól til þess að læra að lesa blindraletur, hafa komið erlendis frá í gegnum aðila sem styrki kærendur í gegnum trúarhóp þeirra.
Við meðferð málsins hafa kærendur m.a. lagt fram heilsufarsgögn frá Venesúela, dags. 18. nóvember 2010, 1. september 2017 og 21. janúar 2021. Fyrra skjalið ber með sér að A sé almennt í góðu ástandi og hafi gengist undir rafsegulmeðferð í ágúst 2016 og sjá megi framför í sjónrænni svörun. Ráðlagt sé að halda meðferðinni áfram með reglulegu millibili. Fram kemur að meðferðin sé ekki í boði í Venesúela. Einnig hafa kærendur lagt fram ódagsett skjal frá stofnuninni IESO í Venesúela og læknisvottorð frá sömu samtökum sem gefið hafi verið út á árinu 2024
Samhliða framangreindum gögnum lögðu kærendur einnig fram heilsufarsgögn frá Kína, dags. 5. og 7. júlí 2012, Panama dags. 10. ágúst 2016, Taílandi dags. 20. febrúar 2014 og gögn útgefin af Brain Treatment Center í Newport dags. 9. júlí 2016. Bera framlögð gögn með sér að A hafi hlotið meðferðir í framangreindum ríkjum með það að markmiði að stuðla að bættri sjón hennar. Í framangreindum heilsufarsgögnum frá Taílandi, dags. 20. febrúar 2014, var m.a. vísað til þess að A stundi nám við sérstakan skóla.
Í viðtali hjá kærunefnd útskýrði M nánar að til að byrja með, þegar A hafi verið [...] til [...] ára gömul, hafi hún lært við sérstakan skóla fyrir börn með fötlun. Staða hennar hafi síðan verið metin og hún send í almennan skóla. Í þeim skóla hafi A þurft að hafa leiðbeinanda og í hennar tilviki hafi K farið með henni því henni hefði ekki verið leyft að vera einni. Hún hafi einungis haft stuðning móður sinnar. Þau hafi sótt um að einhver kæmi inn í skólann og útskýrði stöðu A fyrir kennurunum til þess að þeir væru meðvitaðir um hvernig vinna ætti með henni og hafi sótt um blindrastaf sem þau hafi ekki fengið. K hafi upplýst kennara A um hvernig mætti hjálpa A og hafi m.a.s. lært blindraletur á veraldarefnum. A hafi ekki fengið stuðning frá yfirvöldum fyrir menntun hennar eða lífsgæðum. Aðspurður um hvers vegna hann telji kærendur engan stuðning hafa fengið frá yfirvöldum kvað hann mismunu vera við lýði í Venesúela. Stuðningur væri einungis í boði í Venesúela fyrir þau sem tengingar hafi við stjórnvöld. Fyrir 2016 hafi verið hægt að fá tiltekna fjárhags aðstoð fyrir ferðalög erlendis en það hafi ekki verið hægt eftir 2016.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd hafa kærendur til viðbótar lagt fram tvö bréf frá Sjónstöðinni, bréf frá grunnskóla á Íslandi og bréf frá ÖBÍ réttindasamtökum, dags. 4. apríl 2025.
Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að þau eða börn þeirra glími við skyndilega eða lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda þeim alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. M hefur greint frá því að hafa fengið aðstoð sálfræðings í Venesúela vegna andlegrar heilsu sinnar og gögn hafa verið lögð fram um sálfræðimeðferð hans. Höfuðkúpubrot B hafi enn áhrif á hana og setja þurfi járnplötu í höfuð B. Slíka aðgerð væri hægt að gera á einkastofu í Venesúela en það væri dýrt. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum má jafnframt ráða að þótt A hafi samkvæmt frásögn kærenda ekki hlotið sérstaka meðferð í Venesúela vegna blindu hafi hún hitt lækna þar í landi og kærendur hafi getað greitt fyrir þá þjónustu. Þá hafi kærendur farið með A í aðgerðir og meðferðir í öðrum ríkjum. Kærendur hafa sjálf greint frá því að hafa farið með A í meðferðir í hinum ýmsum löndum og lagt fram gögn varðandi þær meðferðir. Tiltekin meðferð hafi einungis verið í boði í Kína. Kærendur hafi prófað allt sem gæti hjálpað A. Fram að árinu 2016 hafi þau fengið ákveðna fjárhagsaðstoð frá venesúelska ríkinu fyrir ferðalög þeirra erlendis í þágu A en sú aðstoð hafi ekki verið í boði eftir 2016 af efnahagslegum ástæðum.
Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærendur eða börn þeirra þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir þau verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærendur og börn þeirra hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar, þar á meðal sálfræðiaðstoðar, í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Líkt og fram hefur komið telst meðferð ekki óaðgengileg þó greiða þurfi fyrir hana. Hafa kærendur því ekki sýnt fram á að þau eða börn þeirra hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst K ekki hafa verið í launuðu starfi áður en þau fóru frá Venesúela. M kvaðst hafa starfað við vöruflutninga til ársins 2022. Hann hafi þá keypt strætisvagn og hafið að starfa á sviði almenningssamgangna. Hann hafi verið með sjálfstæðan rekstur og mánaðarlaunin verið á bilinu 600 til 900 dollarar. Kærendur hafi átt fyrir mat og öðrum nauðsynjum og hafi ekki sóst eftir aðstoð frá mannúðar- eða hjálparsamtökum. Kærendur hafi gerst mormónar árið 2019. Þann stuðning sem þau hafi fengið fyrir A, svo sem blindrastaf og tæki til þess að læra blindraletur, hafi þau fengið frá aðilum erlendis frá í gegnum trú þeirra. Vinir kærenda væru nú búsett í húsnæði kærenda í Venesúela. Systir M og allir ættingjar hans væru í Venesúela og þar eigi K móður og fullorðna dóttur.
Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér og börnum sínum í heimaríki. Ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að kærendur sé heilsuhraust og vinnufær. Vegna stöðu A sem lögblinds barns bendir kærunefnd á, líkt og fram hefur komið, að heimildir bendi ekki til þess að blindir einstaklingar verði fyrir kerfisbundnu ofbeldi eða mismunun í Venesúela. Af upplýsingum um heimaríki kærenda má jafnframt ráða að stuðningur við menntun fyrir sjónskert eða blind börn, eigi að vera veittur. Frá sex til fimmtán ára aldurs sé menntun barna tryggð og þau njóti stuðnings með þverfaglegri samhæfingu. Þá standi tækifæri til áframhaldandi menntunar eða þjálfunar á starfsvettvangi börnum fimmtán ára og eldri til boða. Af upplýsingum sem finna má á veraldarvefnum um aðstæður fatlaðra í Venesúela kemur m.a. fram að samkvæmt lögum um fatlaða einstaklinga frá 2007 skuli ríkið setja reglur m.a. um skilyrði og fyrirkomulag menntunar fatlaðs fólks, með hliðsjón af einstaklingsbundnum eiginleikum þeirra og þörfum, þá er til staðar stuðningur við fatlað fólk í tengslum við atvinnuþátttöku. Þá má finna upplýsingar um þjónustu til fjölskyldna og stofnanir sem styðja við sjónskerta einstaklinga, m.a. í Carabobo.
Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda og barna þeirra við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við þetta mat hefur kærunefnd litið til stöðu K, A og B sem kvenna og til hagsmuna barna kærenda, til einstaklingsbundinna hagsmuna A og B og aðstæðna barna almennt í Venesúela í samræmi við 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga og 3. mgr. 25. gr. sömu laga. Kærunefnd hefur jafnframt litið til samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins og samningsins um réttindi fatlaðs fólks. Ekki verður séð að A muni eiga á hættu að brotið verði gegn réttindum hennar samkvæmt efnisreglum umræddra samninga. Í Venesúela er gjaldfrjáls menntun til 18 ára aldurs, skólaskylda á grunnskólastigi, aðstoð er í boði fyrir efnaminni fjölskyldur af hálfu stjórnvalda í formi CLAP mataraðstoðar auk þess sem innlend og alþjóðleg mannúðarsamtök styðja stjórnvöld í að veita menntun, heilbrigðisþjónustu og matvælaaðstoð til barna, m.a. í formi matar í skólum landsins. Hvorki almennar aðstæður í Venesúela né einstaklingsbundnar aðstæður barnanna í máli þessu eru með þeim hætti að rétt sé að veita dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda og barna þeirra í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau eða börn þeirra hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum og börnum þeirra dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um
heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið
tekur til eigi ekki við í máli kærenda og
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda og barna þeirra um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda og barna þeirra til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.
Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að
til skoðunar væri að brottvísa þeim og börnum þeirra frá Íslandi og ákvarða kærendum
endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum
hvað það varðar.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og barna þeirra og endurkomubann kærenda verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda og barna þeirra til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.
Athygli kærenda er
vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun
fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli
yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd
útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé
talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum
eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði
að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu
ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti
flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan
sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um
að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar
aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Þorsteinn Gunnarsson