04 júní 2025
/
Úrskurður nr. 462/2025
Hinn 4. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 462/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100050 og KNU24100051
Kæra [...] og [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 6. október 2024 kærðu [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 1. október 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að þess sé krafist að ákvarðanir Útlendingastofnunar verði felldar úr gildi og að fallist verði á beiðni kærenda um vegabréfsáritun til Íslands
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærendur lögðu fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 18. október 2024, fyrir fimm daga dvöl frá 25. til 29. nóvember 2024. Umsóknir kærenda voru lagðar fram í Bandaríkjunum. Kærendur lögðu fram ný gögn á kærustigi; bókun og afbókun á hóteli, afrit af vegabréfum barna kærenda, tölvupóstsamskipti við hótel, bókun á bílaleigubíl og bókun í Bláa lónið.
3 Málsástæður og rök kærenda
Í kæru kemur fram að kærendur hafi hinn 18. september 2024 afbókað gistingu fyrir 28. nóvember 2024 og skipt henni út fyrir aðra gistingu, að beiðni barna sinna. Þau og börn þeirra hlakki til að sjá norðurljósin.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðunum í máli kæranda er merkt í reit 10, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að gisting hafi verið afbókuð. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna fram á hótelbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir og viðauka 2 við sömu reglugerð. Kemur krafa um slík gögn auk þess fram í 6. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Við meðferð umsóknar kærenda hjá sendiráðinu voru kærendur upplýst um að hótelbókun væri ófullnægjandi. Var kærendum gefin frestur til að bregðast við sem þau gerðu ekki. Kærendur hafa lagt fram nýja hótelbókun á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærendur sóttu um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kærenda hafi þau áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Teljast kærendur því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á nýja flugbókun sem lögð var fram á kærustigi. Er kærendum þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.
Að framangreindu virtu hafa ekki verið færð rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar kærenda, sbr. ii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar kærenda hingað til lands, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir því staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður