05 júní 2025
/
Úrskurður nr. 449/2025
Hinn 5. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 449/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU23070033
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. júlí 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 29. júní 2023, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja henni um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 5. desember 2022. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna efnahagsástands í heimaríki sínu.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 8. maí 2023 ásamt löglærðum talsmanni. Kærandi greindi frá því að vera fædd og uppalin í borginni Maracaibo í Zulia fylki í Venesúela. Kærandi kvaðst hafa búið í húsnæði í eigu móður sinnar og starfað í bakaríi en hún hafi misst vinnuna áður en hún hafi flúið heimaríki. Aðspurð kvaðst kærandi hafa verið skráð í stjórnmálaflokkinn Un Nuevo Tiempo frá árinu 2015. Hún hafi verið virk í starfi flokksins framan af en ekki síðan árið 2021. Aðspurð um hvert hlutverk hennar í flokkinum hafi verið greindi kærandi frá því að hafa skipulagt viðburði á vegum flokksins, haldið fyrirlestra og talað við fólk, aðallega ungmenni. Kærandi kvaðst ekki hafa verið á launum hjá flokknum heldur tekið þátt í starfi hans vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærandi greindi frá því að vera tvíkynhneigð og kvaðst tilheyra minnihlutahópi vegna þessa. Þá greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hennar væri góð en andleg heilsa ekki eins góð þar sem hún glími við kvíða og svefnleysi.
Kærandi greindi frá því að tvö atvik hafi leitt til flótta frá heimaríki. Fyrra atvikið hafi átt sér stað í júní 2017 þegar hún hafi verið tekin upp í bifreið af ótilgreindum aðilum gegn vilja sínum og henni haldið í margar klukkustundir. Aðilarnir hafi verið vopnaðir og hótað henni að þeir gætu gert henni og fjölskyldu hennar mein vegna stjórnmálaskoðana hennar og þátttöku hennar í mótmælum. Kærandi greindi frá því að henni hafi borist ítrekaðar hótanir símleiðis og hún hafi hætt að svara í símann vegna áreitisins. Seinna atvikið hafi átt sér stað fjórum árum síðar, nánar tiltekið 5. júlí 2021. Þá hafi kærandi tekið þátt í mótmælum gegn forseta landsins sem haldin voru á torginu Plaza de la Republica í Maracaibo. Á leiðinni heim frá mótmælunum hafi tveir hvítir flutningabílar komið og út úr þeim stigið menn frá SEBIN. Hafi mennirnir beint vopnum að henni, leitað í húsi hennar og hótað henni vegna stjórnmálaskoðana hennar. Aðspurð hvers vegna hún vissi að mennirnir hafi verið frá SEBIN svaraði kærandi að þeir hafi verið í einkennisklæðnaði merktum SEBIN. Kærandi kvaðst hafa hætt að mæta á mótmæli í kjölfarið en bílum án númeraplatna hafi áfram verið ekið framhjá húsinu hennar. Aðspurð hvers vegna hún hafi ekki farið frá heimaríki strax eftir framangreint atvik svaraði kærandi því að stjórnvöld hafi ekki viljað endurnýja vegabréf hennar. Kærandi hafi fengið vegabréf gegn greiðslu frá manni sem starfaði hjá ríkinu og hafi hann sagt henni að „þeir“ hefðu tekið eftir því og hún þyrfti því að sækja vegabréfið og flýja hratt. Kærandi hafi farið frá heimaríki á bíl til Kólumbíu. Þá greindi kærandi frá því að í febrúar 2021 hafi verið reynt að ráðast á hana og aðra hinsegin manneskju í verslunarmiðstöð í heimaríki.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 5. júlí 2023. Greinargerð barst kærunefnd 18. júlí 2023 ásamt fylgigögnum. Kærunefnd bárust viðbótarupplýsingar og viðbótargreinargerð 29. og 30. maí 2024. Með tölvubréfi, dags. 6. febrúar 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 11. febrúar 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar og gögn í máli kærenda. Hinn 17. febrúar 2025, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar frumrit tiltekinna skjala sem kærandi lagði fram við meðferð málsins hjá kærunefnd. Með tölvubréfi, dags. 13. mars 2025, barst kærunefnd afrit af skjalarannsóknarskýrslu lögreglunnar. Með tölvubréfi, dags. 3. apríl 2025, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrslu til kæranda og óskaði eftir athugasemdum. Hinn 7. apríl 2025, bárust kærunefnd athugasemdir kæranda.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð og viðbótagreinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Í greinargerð kemur fram að kærandi hafi flúið heimaríki sitt bæði vegna almenns ástands sem þar ríki en einnig vegna þess að hún hafi upplifað ofsóknir og hótanir af hendi einstaklinga sem tengist stjórnvöldum í heimaríki. Í júní 2017 hafi henni verið rænt af ókunnugum mönnum sem hafi haldið henni gegn vilja hennar í marga klukkutíma. Mennirnir hafi sagst vita allt um hana, fjölskyldu hennar og þeirra rútínu og hótað henni með vopnum. Allt þetta hafi gerst vegna þátttöku hennar í stjórnarandstöðuflokki og pólitískra skoðana hennar sem hafi verið stjórnvöldum kunnar. Eftir að kæranda hafi verið sleppt hafi ofsóknirnar haldið áfram, t.a.m. hafi ítrekað verið hringt á heimili hennar. Kærandi hafi í júlí 2021 verið á pólitískri samkomu þar sem forseta landsins og stjórnvöldum hafi verið mótmælt. Á leið hennar heim af mótmælunum hafi menn komið akandi upp að henni á hvítum sendibíl. Mennirnir hafi verið einkennisklæddir sem hafi gefið til kynna að þeir væru á vegum stjórnvalda. Þeir hafi fylgt henni heim til hennar og farið inn á heimili hennar þar sem þeir hafi beint að henni vopnum, þvingað hana niður á fjóra fætur og leitað í íbúð hennar. Þeir hafi kallað hana föðurlandssvikara og beitt hana ofbeldi. Kærandi hafi þó ekki leitað aðstoðar yfirvalda af ótta við afleiðingarnar en mennirnir hafi hótað henni og fjölskyldu hennar öllu illu myndi hún gera það. Vísað er til þess í greinargerð að kærandi hafi lagt fram til Útlendingastofnunar skjal sem sé kæra sem hún hafi lagt fram í heimaríki vegna umrædds atviks sem styðji frásögn hennar um að hún hafi orðið fyrir ofsóknum af hendi stjórnvalda. Ekkert hafi komið út úr þessari kæru og lögreglan hafi ekkert aðhafst í málinu. Ofsóknirnar hafi haldið áfram allt þar til kærandi hafi yfirgefið Venesúela. Kærandi óttist mjög um líf sitt verði henni gert að snúa aftur til síns heima og telur lögreglu og yfirvöld ekki geta veitt sér vernd eða aðstoð sérstaklega þar sem hún sé á móti stjórnvöldum. Kærandi geti hvergi verið örugg í heimaríki. Kærandi hafi ekki flúið heimaríki fyrr vegna þess að hún hafi ekki verið með gilt vegabréf. Stjórnvöld hafi ekki viljað endurnýja vegabréf hennar og hafi hún þurft að borga manni hjá ríkinu háa upphæð til þess að fá nýtt vegabréf. Kærandi ítrekar að hún hafi orðið fyrir alvarlegum ofsóknum og líflátshótunum í Venesúela vegna þátttöku sinnar í stjórnarandstöðuflokki. Pólitískar skoðanir hennar hafi verið stjórnvöldum kunnar og hafi henni t.a.m. verið neitað um heilbrigðisþjónustu en hún hafi nauðsynlega þurft á sálfræðiaðstoð og lyfjum að halda. Kærandi hafi þurft að flýja heimaríki sitt í leyni og hafi þar með tekið mikla áhættu með líf sitt, þ.e. ef henni hefði verið náð á flóttanum.
Í viðbótargreinargerð byggir kærandi á því að hin kærða ákvörðun sé haldin verulegum annmarka, einkum með tilliti til rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar sem leiði til þess að fella verði ákvörðunina úr gildi. Kærandi telur að ekki hafi verið rannsakað með fullnægjandi hætti heimasvæði hennar, Maracaibo í Zulia fylki, sem skipti meginmáli um málsástæður hennar. Ekki hafi verið notast við neinar heimildir um aðstæður þaðan þrátt fyrir ítarlega frásögn kæranda um alvarlegar aðstæður. Kærandi vekur athygli á því heimafylki hennar sé meðal þeirra fylkja þar sem vopnuð átök eigi sér stað og sýni upplýsingar á vefsíðu Insight Crimefrá 2022 að aðgerðir stjórnvalda gegn glæpastarfsemi hafi ekki borið árangur. Kærandi vísar til þess að henni hafi verið rænt og haldið fanginni í nokkrar klukkustundir og þá hafi vopnaðir menn ráðist inn á heimili hennar og hótað henni. Jafnframt vísar kærandi til þess að umsvif ELN séu talsverð í fylkinu. Kærandi gerir athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar hennar. Kærandi gerir athugasemdir við mat Útlendingastofnunar þess efnis að hún hafi ekki sýnt fram að hún eigi hættu á ofsóknum en stofnunin hafi ekki notast við nákvæmar upplýsingar um heimasvæði hennar. Einnig vísar kærandi til úrskurðar kærunefndar nr. 353/2024 frá 19. apríl 2024 þar sem aðstæður í Zulia fylki hafi verið metnar. Kærandi telur framangreindan úrskurð hafa fordæmisgildi fyrir hennar mál. Þá telur kærandi að skort hafi umfjöllun um frásögn hennar um mannræningjana sem hafi haldið henni fanginni í nokkrar klukkustundir og að vopnaðir menn hafi ráðist inn á heimili hennar og hótað henni. Hafi Útlendingastofnun látið duga að vísa til þess að embætti saksóknara í Zulia fylki hafi tekið við kvörtunum hennar og of skammur tími sé liðinn frá því að hafi lagt fram kæru/kvörtun til lögreglu og yfirvalda til að hægt sé að segja til um að yfirvöld muni ekki aðhafast neitt í málum hennar. Kærandi tekur fram að hún hafi tengt báðar árásirnar við stjórnmálaþátttöku hennar en í hinni kærðu ákvörðun sé ekki dregið í efa að hún hafi verið meðlimur stjórnmálaflokksins Un Nuevo Tiempo. Kærandi telur að með hliðsjón af framangreindu beri að fella úr gildi hina kærðu ákvörðun og senda mál hennar til nýrrar meðferðar hjá Útlendingastofnun, sbr. úrskurð kærunefndar nr. 353/2024.
Kærandi krefst þess aðallega að henni verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimaríki sínu vegna kynhneigðar sinnar og stjórnmálaskoðana. Kærandi hafi þurft að sæta ofsóknum og áreiti einstaklinga sem tengist stjórnvöldum í Venesúela og annarra aðila áður en hún flúði heimaríki. Kærandi hafi upplifað mikla andlega vanlíðan vegna fordóma, ofsókna og hótana. Kærandi hafi flúið heimaríki sitt af ótta um líf sitt og öryggi. Kærandi telur að frásögn hennar í viðtali hjá Útlendingastofnun fái stoð í framlögðum gögnum, þ.e. staðfestingu á þátttöku í stjórnmálaflokki og afrit af kærum til lögreglunnar og yfirvalda. Kærandi sé tvíkynhneigð kona og í aukinni hættu á áreiti og mismunum í heimaríki og hafi hún orðið fyrir áreiti ýmissa einstaklinga og almennum fordómum í samfélaginu vegna kynhneigðar hennar og þátttöku hennar í stjórnarandstöðu. Kærandi óttist um líf sitt verði hún send aftur til síns heima og telur sig ekki örugga þar vegna kynhneigðar sinnar og stjórnmálskoðana. Kærandi telur lögreglu ekki geta veitt sér þá vernd sem hún þurfi á að halda. Ótti kæranda við ofsóknir sé raunverulegur. Hún óttist að verða fyrir frekari ofsóknum og jafnvel drepinn verði hún send aftur til heimaríkis. Með vísan til þess sem að framan hefur verið rakið um stöðuna í Venesúela og persónulegrar reynslu kæranda sé ljóst að vonlaust sé fyrir hana að fá vernd yfirvalda þar í landi gegn ofsóknum. Telur kærandi sig uppfylla skilyrði þess að teljast flóttamaður skv. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að henni verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í Venesúela verði hún send þangað aftur. Kærandi eigi á hættu ofsóknir í heimalandi sínu vegna kynhneigðar sinnar og stjórnmálaskoðana. Almennt ástand sé afar slæmt í Venesúela og hafi það ekki skánað síðustu misseri og býr fólk þar almennt við afar slæmar aðstæður, ofsóknir og ofríki stjórnvalda. Kærandi sé tvíkynhneigð og eigi því í meiri hættu í heimaríki vegna ástandsins þar en almennt gengur og gerist. Persónubundnir þættir í máli hennar, þ.e. kynhneigð hennar og þátttaka í stjórnarandstöðuflokki, leiði enn frekar til þess að skilyrði viðbótaverndar séu uppfyllt. Kærandi telur að flutningur innan Venesúela sé hvorki raunhæfur né sanngjarn kostur fyrir hana og vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 231/2022 máli sínu til stuðnings.
Til þrautavara krefst kærandi þess að henni verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Ljóst sé að umsækjendur frá Venesúela hafi almennt ríka þörf á vernd vegna almennra aðstæðna þar í landi, einkum hinsegin einstaklingar. Kærandi muni eiga erfitt uppdráttar í heimaríki sínu yrði henni gert að snú þangað aftur, einkum vegna kynhneigðar sinnar og stjórnmálaskoðana. Almennar og félagslegar aðstæður kæranda í heimaríki séu afar erfiðar og hún geti ekki treyst á aðstoð eða vernd stjórnvalda þar í landi. Kærandi telur að staðsetning á heimasvæði hennar í Venesúela auki erfiðar félagslegar aðstæður hennar talsvert. Landaupplýsingar sýni fram á gríðarlega umfangsmikla starfsemi skæruliða og bága stöðu í búa á svæðinu.
Til þrautaþrautavara er þess krafist að kæranda verði veitt dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Verði komist að þeirri niðurstöðu að einhver af þeim stafliðum í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eigi við byggir kærandi á því að víkja eigi frá þeim þar sem sérstaklega standi á, sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga, en í því skyni vísar kærandi til röksemda að framan um viðkvæma stöðu kæranda.
Kærandi telur að með endursendingu hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki telur kærandi að slík ákvörðun brjóti í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Kærandi óskar eftir því að við úrlausn málsins verði höft hliðsjón af þeirri óvissu sem ríkir um hagi útlendinga sem voru endursendir til Venesúela þann 15. nóvember s.l. og þeirrar staðreyndar að áætluðu leiguflugi til Venesúela í febrúar var frestað. Kærandi telur að aðeins hafi farið fram takmörkuð rannsókn stjórnvalda á því hvað hafi átt sér stað við endursendingu ríkisborgara til Venesúela í nóvember. Jafnframt hafi ekki verið athugað hvort sú atburðarrás hafi áhrif á meðferð mála sem eru nú til vinnslu á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála. Kærandi bendir á að við endurkomu fólks til Venesúela þann 15. nóvember hafi venesúelsk yfirvöld, þ.m.t. vopnaðir lögreglumenn tekið á móti þeim, fólk hafi ekki verið frjálst ferða sinna og m.a. þvingað í bólusetningu og verið gert að skrifa undir skjöl. Kærandi telur framangreind atvik kunna að hafa áhrif á úrlausn um skilyrði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. og 1. mgr. 42. gr. sömu laga, sbr. meginregluna um bann við endursendingu.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við töku ákvörðunar Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga. Kærandi gerir meðal annars athugasemdir við að ekki hafi verið rannsakað með fullnægjandi hætti heimasvæði hennar, Maracaibo í Zulia fylki, sem skipti meginmáli um málsástæður hennar. Telur kærandi að úrskurður kærunefndar nr. 353/2024 frá 19. apríl 2024 þar sem aðstæður í Zulia fylki hafi verið metnar hafi fordæmisgildi fyrir hennar mál.
Hvað varðar vísun kæranda til úrskurðar kærunefndar frá 19. apríl 2024 sem hún telur að hafi fordæmisgildi fyrir hennar mál er ljóst að ekki er hægt að jafna stöðu kæranda við stöðu aðila máls í tilvísuðum úrskurði, enda kemur fram í úrskurðinum að einn aðili þess máls sé heilbrigðisstarfsmaður sem hafi borðið fyrir sig að hafa verið þvinguð til að hjúkra háttsettum manni innan skæruliðahóps. Fram kemur að samkvæmt landaupplýsingum eigi heilbrigðisstarfsmenn í sérstakri hættu á að verða fyrir áreiti og ofbeldi af hálfu glæpasamtaka vegna starfa sinna. Fann kærunefnd m.a. að því í tilvísunum úrskurði að í ákvörðunum Útlendingastofnunar væri ekkert fjallað um aðstæður heilbrigðisstarfsfólks á því svæði þaðan sem aðilar málsins komu auk þess sem ekki hafi verið fjallað um hvort aðilar málsins myndu eiga á hættu ofsóknir vegna fyrri starfa eins aðilans, bæði sem heilbrigðisstarfsmaður og starfsmaður á skrifstofu bæjarins, yrði þeim gert að snúa til baka. Kærunefnd vísaði til þess að m.a. með vísan til kærenda og heimilda um heimaríki þeirra hafi verið tilefni til að afla frekari gagna og upplýsinga um þá hættu sem þau kunni að vera í við endurkomu til heimaríkis. Var það heildarmat kærunefndar að annmarkar málsmeðferðar Útlendingastofnunar hefðu verið slíkir í máli kæranda að ógilda yrði ákvörðunina og senda til nýrrar meðferðar. Með hliðsjón af framangreindri umfjöllun verður ekki fallist á sjónarmið kæranda hvað þetta varðar.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coor
- dination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 21. maí2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezeula (Britannica, síðast uppfært 21. maí 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 14. maí 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023) og
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024).
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Emundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahófs myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Í skýrslu EASO, sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2020 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að sambönd einstaklinga af sama kyni séu ekki refsiverð í Venesúela. Stjórnarskrá Venesúela leggi bann við mismunun á grundvelli kynhneigðar og kynvitundar. Þrátt fyrir það verði LGBTI+ einstaklingar fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. Þeir hópar sem verði aðallega fyrir ofbeldi og mismunun séu trans- og intersex einstaklingar. LGBTI+ einstaklingar verði ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu kanadíska flóttamanna- og innflytjendaráðsins frá 2021 kemur fram að LGBTI+ einstaklingar geti lagt fram kvartanir vegna mismununar og brota gegn þeim en ekkert kerfi hafi verið til staðar til að taka við kvörtunum og leysa úr þeim með fullnægjandi hætti. Þá veigri einstaklingar sem verði fyrir ofbeldi vegna kynhneigðar sinnar sér við því að leita sér aðstoðar vegna vantrausts í garð lögregluyfirvalda. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ hópsins. Í fyrrnefndri skýrslu EASO kemur fram að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Í skýrslu flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá 8. ágúst 2023 kemur fram að gefnar hafi verið út leiðbeiningar til að stuðla að því að LBGTI+ einstaklingar hljóti vernd og aðstoð í mannúðaraðgerðum. Leiðbeiningarnar feli í sér leiðsögn til mannúðarsamtaka, embættismanna, stofnana Sameinuðu þjóðanna og frjálsra félagasamtaka í landinu um hvernig veita eigi LBGTI+ einstaklingum viðeigandi þjónustu og stuðning án mismununar. Í ávarpi mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að í mars 2023 hafi hæstiréttur Venesúela ógilt ákvæði í lögum landsins um herrétt (e. The Code of Military Justice) sem lagði refsingu við samkynja samböndum innan hersins. Þá hvatti Türk stjórnvöld í Venesúela til þess að vinna áfram að því að bæta réttindi LGBTI+ samfélagsins í landinu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún hafi ástæðuríkan ótta að verða fyrir ofsóknum í heimaríki vegna þátttöku í stjórnarandstöðuflokki og aðildar að þjóðfélagshópi sem tvíkynhneigður einstaklingur.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á viðtali hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki sitt í fyrsta lagi vegna þess að henni hafi verið rænt af ótilgreindum mönnum í júní 2017. Mennirnir hafi neytt hana upp í bíl sinn og haldið henni gegn vilja hennar í marga klukkutíma. Þeir hafi sagst vita allt um hana, fjölskyldu hennar og hagi þeirra og hótað henni með vopnum. Þetta hafi átt rætur að rekja til þátttöku hennar í stjórnmálaflokknum Un Nuevo Tiempo og pólitískra skoðana hennar sem hafi verið stjórnvöldum kunnar. Eftir að kæranda hafi verið sleppt hafi ofsóknirnar haldið áfram, t.a.m. hafi ítrekað verið hringt á heimili hennar. Aðspurð um hver hafi verið að verki kvað kærandi einstaklingana hafa verið á vegum ríkisstjórnarinnar. Áreitið hafi orðið svo mikið að hún hafi hætt að svara símanum. Þá kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki vegna atviks sem hafi átt sér stað 5. júlí 2021 eftir mótmæli á Plaza de la República torginu í Maracaibo, þar sem forseta landsins og stjórnvöldum hafi verið mótmælt. Á leið hennar heim af mótmælunum hafi menn frá SEBIN komið akandi upp að henni á hvítum sendibíl. Mennirnir hafi komið út úr bílnum og beint vopnum að henni. Þeir hafi fylgt henni heim, ráðist inn í íbúð hennar, þvingað hana til þess að fara á fjórar fætur og leitað í íbúð hennar. Þeir hafi hótað henni vegna stjórnmálaskoðana hennar og kallað hana föðurlandssvikara. Kærandi kvaðst hafa leitað til lögreglunnar í kjölfar beggja framangreindra atvika. Lögreglan hafi ekki gert neitt í málinu og áreitið haldið áfram allt þar til hún hafi farið frá heimaríki. Kærandi kvað mennina hafa verið frá SEBIN vegna þess að þeir hafi verið klæddir í einkennisföt stofnunarinnar. Vegna atviksins kvaðst kærandi hafa leitað til opinberrar stofnunar og lagt fram kvörtun.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn til stuðnings málatilbúnaði sínum. Meðal annars lagði kærandi fram skjal sem tilgreint er „kvörtun til lögreglu vegna atviks 2017“, dags. 16. júní 2022, skjal sem tilgreint er „kvörtun til opinberrar stofnunar vegna atviks 2021“ og tvær yfirlýsingar um stjórnmálaþátttöku í stjórnmálaflokknum Un Nuevo Tiempo, dagsettar 18. janúar 2018 og 18. febrúar 2022.
Með tölvubréfi 6. febrúar 2025 óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Hinn 11. febrúar 2025 bárust svör kæranda. Kærunefnd óskaði meðal annars eftir skýringum á því hvers vegna kvörtun til lögreglu vegna atviks 2017 hafi verið dagsett fimm árum eftir umræddan atburð. Í svörum kæranda kemur fram að skýrslan hafi verið dagsett fimm árum seinna vegna þess að þegar hún hafi lagt fram kæru á sínum tíma hafi hún ekki fengið skýrslu um það. Árið 2022 þegar kærandi hafi verið að vinna úr skjölum sínum til að fara úr landi hafi lögfræðingur hennar farið til lögreglunnar og fengið kæruna, með umræddri dagsetningu. Eftir að hafa fengið þessar spurningar frá kærunefnd hafi lögfræðingur kæranda í Venesúela farið aftur á lögreglustöðina til að fá kvörtunina sem lögð var fram árið 2017 og verið tjáð að til að fá þá kvörtun yrði kærandi að bíða í sex til 12 mánuði. Með áðurnefndu tölvubréfi kærunefndar var jafnframt óskað nánari upplýsinga um skjal sem tilgreint er „kvörtun til opinberrar stofnunar vegna atviks 2021“. Var athygli kæranda vakin á því að efst í skjalinu kæmi fram að embættið sem hafi tekið við kvörtuninni heiti Fiscalía Del Ministerio Publico Circunscripción Judicial, Del Estado Zulia. Neðst í skjalinu væri ritvilla á orðinu "Circunscripcion" og væri nafn embættisins ritað "Fiscal de Atencion al Ciudadano del Ministerio Público Circuncrision Judicial del Estado Zulia". Drægi slík ritvilla í opinberu skjali úr trúverðugleika skjalsins. Óskað var eftir skýringum kæranda á framangreindu. Í svörum sínum vísaði kærandi til þess að samkvæmt löggjöf Venesúela geti opinber skjöl verið haldin tvenns konar villum. Um formvillur geti verið að ræða sem breyti ekki eðli skjalsins, þ.e. yfirlýsingar, kvartanir eða vitnisburði, eiginnöfn þeirra sem hlut eiga að máli, innsigli stofnana og númer persónuskilríkja hlutaðeigandi. Í þessu tilviki myndi þessi ritvilla í skjalinu tákna formvillu þar sem hún breyti ekki eðli skjalsins og sé því villa sem hægt sé að leiðrétta jafnvel þótt það sé ekki algerlega nauðsynlegt, þar sem jafnvel þegar orðið „umskrift“ sé rangt stafsett breyti það ekki lögmæti þess og því ætti ekki að draga í efa trúverðugleika skjalsins. Með öðrum orðum sé aðeins um að ræða prentvillu. Kærandi kvaðst hafa afhent fyrri talsmanni sínum öll frumrit, hún hafi fengið þau til baka og myndi leggja fram til kærunefndar. Hinn 17. febrúar 2025 lagði kærandi fram gögn sem hún kvað vera frumrit af fyrrgreindum skjölum.
Hinn 17. febrúar 2025, sendi kærunefnd beiðni til skilríkjarannsóknarstofu flugstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum um að taka til rannsóknar tvö skjöl sem kærandi kvað vera frumrit. Annars vegar kvörtun til lögregluembættis í Maracaibo borg og hins vegar kæra/kvörtun til undirstofnunar Ministerio Público í Zulia fylki. Í skýrslunni, sem barst í tölvubréfi 13. mars 2025 kemur fram að megin niðurstaða hennar er sú að skjölin séu ótraustvekjandi. Í athugasemdum við rannsókn skjalanna kemur m.a. fram að skjal með dagsetningunni 6. júlí 2021 sé ekki öryggisskjal, grunnefnið sé ekki öryggispappír, skjalið beri enga öryggisþætti og flúrljómar skært í útfjólubláu ljósi. Allt prent á skjalinu sé prentað með bleksprautuprentara. Stimpill útgefanda sé blautstimpill og undirskrift skrifuð með penna. Athygli veki að tilkynningin í skjalinu sé stíluð á borgarann (“ciudadano”) en ekki tiltekið embætti. Þetta veiki tilgang skjalsins og sé ótraustvekjandi. Þá veki athygli óvönduð uppsetning texta, sbr. staðsetning stafabila, punkta og komma í meginmáli og í texta við undirritun neðst á skjalinu. Þá séu villur í orðinu „circunscripción“ neðst í skjalinu en það samræmist ekki rithætti í haus skjalsins og misjafnt hvort kommur séu settar yfir stafi þar sem við eigi og í skjalinu sé innra misræmi hvað þetta varði. Athygli veki að síðasta setning skjalsins sé endasleppt og ljúki ekki á punkti. Þetta sé enn athyglisverðara í því ljósi að til sé skjal í málaskrá kæranda hjá Útlendingastofnunar með titlinum “Historia […]” og þar sé nákvæmlega sami texti til staðar en ekki endasleppur heldur lengri en í því skjali sem sé til rannsóknar. Þetta veki grunsemdir um að textinn í skjalinu sem sé til rannsóknar sé afritaður þaðan. Þá kemur fram í skýrslu skilríkjarannsóknarstofunnar að skjal með dagsetningunni 16. júní 2022 sé ekki öryggisskjal, grunnefnið sé ekki öryggispappír, skjalið beri enga öryggisþætti og flúrljómar skært í útfjólubláu ljósi. Þá sé allt prent á skjalinu prentað með duftprentara. Innfærðar upplýsingar séu handskrifaðar með penna. Stimpill útgefanda sé blautstimpill og undirskriftir gerðar með penna. Athygli veki að ósamræmi sé í númeri lögreglustöðvar í skjalinu en í haus skjalsins sé prentað „CENTRO DE COORDINACION POLICIAL No. 13“ en í blautstimplinum þar við sé textinn „CENTRO DE COORDINACION POLICIAL NRO 14“. Þá sé skjaldarmerki í miðju stimpilsins í grófara lagi en það sem almennt einkennir blautstimpla yfirvalda í Venesúela. Skilríkjarannsóknarstofan vakti sérstaka athygli á því að í skjali dagsettu 6. júlí 2021 megi sjá marka fyrir sama texta og þeim sem sé handskrifaður á skjalinu dags. 16. júní 2022, kæruskýrslunni, sem bendi til þess að skjalið frá 6. júlí 2021 hafi legið undir kæruskýrslunni þegar hún var útbúin.
Með tölvubréfi, dags. 3. apríl 2025, sendi kærunefnd skjalarannsóknarskýrsluna til kæranda. Var athygli vakin á athugasemd skilríkjarannsóknarstofunnar á því að svo virtist sem að skjal dagsett 6. júlí 2021 hafi legið undir eyðublaði kæruskýrslunnar, dags. 16. júní 2022. Þá var kærandi spurð að því hvers vegna ekki sé tekið fram í kæruskýrslunni frá 16. júní 2022 að kvartað sé yfir atviki sem hafi átt sér stað 17. júní 20217.
Með tölvubréfi, dags. 7. apríl 2025, bárust kærunefnd athugasemdir ásamt fylgigögnum frá kæranda. Í athugasemdum kæranda greinir hún frá því að árið 2022 hafi lögmaður hennar í Venesúela farið á lögreglustöðina til að leggja fram kvörtun en lögreglan hafi aðeins gefið henni kvittun árið 2017 þar sem fram kom að þeir hefðu skráð niður kvörtunina. Lögmaður kærandi hafi síðan farið með kvittunina á lögreglustöðina árið 2022. Lögreglan hafi tekið við kvittuninni og gefið lögmanni kæranda skjalið frá 2022. Kærandi vísar til þess að í skýrslunni megi sjá að fjallað sé um atvikið sem hún hafi upplifað árið 2017 þar sem henni hafi verið rænt og henni hótað. Þá tók kærandi fram að skjal með heitið „Saga […]“ sé samantekt sem lögmaður hennar í Venesúela hafi útbúið fyrir væntanlegan talsmann hennar hér á landi. Þá tók kærandi fram að ástæða fyrir því að kvörtunin hafi verið skrifuð með kúlupenna sé sú að opinber embætti í Venesúela, sérstaklega í fylkinu Zulia, séu vanbúin vegna takmarkaðrar orkuskömmtunar. Þá séu almenn formsatriði fyrir kvartanir til hins opinbera í Venesúela, svo sem sérstök skjöl, prentuð skjöl og öryggisinnsigli, ekki til staðar. Þeim fylgi einfaldlega bréfsefni lögreglunnar, dagsetning, upplýsingar um kvartanda, eðli kvörtunarinnar eða staðreynda, blaut innsigli stofnunarinnar eða lögreglunnar sem móttekur kvörtunina, undirskrift opinbers starfsmanns eða lögreglumanns sem móttekur kvörtunina, eða sem skrifaði kvörtunina út frá framburði kæranda, og fingraför kæranda. Þetta sé allt stjórnsýsluferlið, og vegna skorts á aðföngum, s.s. rafmagni, prentbleki, pappír og vöntunar á opinberum starfsmönnum eða lögreglumönnum á staðnum til að taka við skýrslunni. Hvað varði skjal með dagsetningunni 16. júní 2022 bendir kærandi á að þar sé að finna umfjöllun um atvikið sem hafi átt sér stað árið 2017.
Kærandi hefur engar skýringar veitt á nokkrum meginatriðum sem koma fram í rannsókn skilríkjarannsóknardeildarinnar, m.a. hvers vegna texti skjalsins, dags. 16. júní 2022 er markaður í pappírinn á skjali með dagsetningunni 6. júlí 2021 en kærandi kvaðst ekki hafa haft nein skjöl meðferðis þegar hún gaf skýrslu hjá lögreglu, sem er dagsett er 16. júní árið 2022. Þá hefur kærandi ekki fært fram haldbærar skýringar á því hvers vegna kæra vegna atviks sem hafi átt sér stað árið 2017 sé dagsett í júní 2022 og að dagsetning atviksins sé hvergi tekin fram í skjalinu. Rýrir það verulega trúverðugleika skjals, dags. 6. júní 2021 að þar megi finna stafsetningarvillu og að ekki sé innra samræmi í rithætti tiltekinna orða. Einnig rýrir það trúverðugleika skjals, dags. 16. júní 2022 að ósamræmi sé í númeri lögreglustöðvar. Af framangreindu virtu teljast skjölin ótrúverðug og verða ekki lögð til grundvallar frásagnar kæranda um að aðilar á vegum stjórnvalda hafi árin 2017 og 2021 áreitt kæranda vegna stjórnmálaskoðana- og þátttöku hennar.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi jafnframt fram sálfræðivottorð frá heimaríki, dags. 15. ágúst 2018. Í vottorðinu kemur meðal annars fram að kærandi hafi leitað aðstoðar vegna þess að hún hafi verið ofsótt af hópum sem styðji stjórnvöld og hafi það ollið hjá henni streitu og kvíða. Greining sálfræðings sé sú að kærandi sé með áfallastreituröskun, glími við ofsakvíða og ranghugmyndir um ofsóknir. Sé hugræn atferlismeðferð ráðlögð til að aðstoða kæranda við að endurskipuleggja óreiðukenndar hugsanir sínar. Af efni vottorðsins verður ráðið að kærandi hafi orðið fyrir áföllum og mögulegu áreiti sem hafi leitt til áfallastreituröskunar en mat sálfræðingsins sé að hún sé að einhverju leyti haldin ranghugmyndum um ofsóknir.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram skriflega yfirlýsingu um að hafa í starfi sínu afhjúpað raunveruleikann sem hún hafi búið við í heimaríki. Árið 2019 hafi hún starfað við gerð heimildarmyndar sem hafi fjallað um raunveruleika kvenna í Venesúela. Heimildarmyndin hafi m.a. verið sýnd í Karakas og nafn kæranda hafi birst víða í tengslum við myndina og vísaði kærandi því til stuðnings í fréttargrein um heimildarmyndina þar sem tilgreint er nafnið […]. Jafnframt fylgdu tenglar á færslur á samfélagsmiðli í tengslum við heimildarmyndina. Ráða má að kærandi telji framangreint sýna fram á að hún hafi með þessu vakið athygli stjórnvalda. Ekki er ástæða til að draga í efa að kærandi hafi verið viðriðin heimildarmynd sem hafi verið sýnd árið 2019 og fjallað um stöðu kvenna í Venesúela. Hins vegar verður ekki séð að aðkoma hennar að framangreindri heimildarmynd renni stoðum undir málatilbúnað hennar eða hafi á annan hátt þýðingu fyrir mál hennar.
Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Ekkert í gögnum málsins bendir til þess að kærandi hafi verið háttsett í umræddum flokki eða að hún hafi verið áberandi fyrir hönd hans.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa tilheyrt stjórnmálaflokkinum Un Nuevo Tiempo síðan 2015. Kærandi kvaðst hafa verið virk í starfi flokksins til ársins 2021. Aðspurð kvaðst hún ekki hafa verið á launum hjá flokknum en hafi verið með fyrirlestra og séð um að skipuleggja viðburði á vegum flokksins. Kærandi kvað stefnu flokksins vera aukið frelsi og að mannréttindi séu virt. Kærandi hefur lagt fram gögn sem staðfesta þátttöku hennar í framangreindum stjórnmálaflokki. Við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram afrit af tveimur yfirlýsingum um stjórnmálaþátttöku í stjórnmálaflokknum Un Nuevo Tiempo, dagsettar 18. janúar 2018 og 18. febrúar 2022. Í yfirlýsingunni frá árinu 2022 kemur fram að hún hafi stundað ýmsa pólitíska starfsemi á undanförnum árum, þar á meðal í mótmælum og stjórnmálaviðburðum. Með fyrrgreindu tölvubréfi kærunefndar, dags. 6. febrúar 2025, var vakin athygli á því að frásögn í viðtali hjá Útlendingastofnun um hvenær hún hafi hætt stjórnmálaþátttöku væri í misræmi við það sem fram kæmi í síðari yfirlýsingunni frá Un Nuevo Tiempo. Óskað var eftir skýringum á framangreindu misræmi. Í tölvubréfi til kærunefndar greindi kærandi frá því að hún hafi hætt í stjórnmálaflokknum vegna áreitisins sem hún hafi orðið fyrir, en haldið samt áfram að vera skráð í flokkinn. Með yfirlýsingunni sem hafi verið gefin út 18. febrúar 2022 hafi kæranda verið þakkað fyrir árin í þjónustu flokksins.
Með vísan til gagna málsins er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi hafi verið aðili að stjórnmálaflokknum Un Nuevo Tiempo og tekið þátt í viðburðum og sjálfboðaliðastarfi fyrir flokkinn. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi kunni að hafa orðið fyrir einhverju áreiti þegar hún hafi sinnt sjálfboðaliðastarfi sínu fyrir flokkinn, einkum árin 2017 til 2018 þegar mótmæli og átök stóðu sem hæst í Venesúela. Hins vegar er ekkert sem bendir til þess að kærandi hafi verið háttsett í flokknum eða ráðandi aðili í andstöðu flokksins við stjórnvöld. Kærandi kvaðst hafa hætt starfi fyrir framangreindan flokk árið 2021 og yfirgaf heimaríki í desember ári síðar. Verður því ekki annað séð en að búseta kæranda í landinu hafi að öðru leyti verið án vandkvæða. Með vísan til framangreinds fellst kærunefnd ekki á að kærandi eigi frekar á hættu að verða fyrir ofsóknum en aðrir einstaklingar í heimaríki hennar sem séu mótfallnir stjórnvöldum og hafi tekið þátt í mótmælum eða sjálfboðaliðastarfi stjórnarandstöðuhreyfinga. Þá horfir kærunefnd til þess að kærandi hafi fengið útgefið vegabréf kæranda í ágúst 2022 og samkvæmt útstimpli frá Paraguachón landamærastöðinni 1. desember 2022 farið úr landi án vandkvæða. Þá lagði kærandi fram til kærunefndar sakavottorð, dags. 2. desember 2022, undirritað af vararáðherra innanríkisstefnu og réttaröryggis í Venesúela (sp. Viceministra de política interior y securidad jurídica), sem er útgefið fyrir íslensk stjórnvöld. Gefur framangreint ekki til kynna að kærandi hafi verið eftirlýst eða sé undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu. Hefur kærandi ekki með rökstuddum hætti leitt líkur að því að hún hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í heimaríki sínu, í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Kærandi ber jafnframt fyrir sig að eiga á hættu ofsóknir yfirvalda, við komuna aftur til heimaríkis, fyrir það að hafa flúið frá Venesúela og sótt um vernd í öðru landi. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi vera tvíkynhneigð og greindi frá atviki frá því í febrúar 2022 þar sem reynt hafi verið að ráðast á hana og vinkonu hennar í verslunarmiðstöð. Ekki er ástæða til að draga frásögn kæranda í efa og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tvíkynhneigð. Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið bera með sér að LGBTI+ einstaklingar eigi á hættu að verða fyrir félagslegri mismunun í Venesúela en ekki sé um kerfisbundnar ofsóknir að ræða. Lög banni mismunun á þeim grundvelli auk þess sem starfandi séu í landinu ýmis frjáls félagasamtök sem berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga. Þá bendi nýlegar aðgerðir stjórnvalda og nýlegur dómur hæstaréttar landsins til þess að stjórnvöld vinni að því að bæta stöðu þessara einstaklinga í landinu. Verður ekki talið að sú mismunun eða áreiti sem LGBTI+ einstaklingar kunni að eiga á hættu nái því alvarleikastigi að fela í sér ofsóknir eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. og 3. mgr. 38. gr. laganna.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu sína um viðbótarvernd á almennu ástandi og óöryggi í heimaríki. Kærandi byggir einnig á því að hún sé í sérstakri hættu vegna kynhneigðar sinnar.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Auk þess höfðu fjölmörg ríki heims sett á Venesúela viðskiptaþvinganir sem vonir standi til að létt verði á vinni stjórnvöld í Venesúela með alþjóðasamfélaginu að umbótum í landinu. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum líti út fyrir að forsetakosningar verði í landinu árið 2024, efnahagur landsins hafi þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Zulia fylki í Venesúela. Samkvæmt landakorti er Zulia fylki staðsett við landamæri Kólumbíu og benda heimildir til þess að fylkið sé eitt ofbeldisfyllsta fylki landsins. Zulia fylki glími við langvarandi rafmagnsleysi, vatnsskort, ofbeldi og staðbundin átök. Samkvæmt heimildum, m.a. greinum InSightCrime frá 15. febrúar 2024 er Zulia megintenging fíkniefnasamtaka frá Kólumbíu, einkum glæpahópanna ELN og afsprengihópa FARC (Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia). Þar komi fram að Zulia sé bækistöð ELN sem starfi með refsileysi í fylkinu, þökk sé tengsla við ríkisstjórn Maduro. Stjórnvöld njóti góðs efnahagslega af starfsemi samtakanna og þau þvingi íbúa til að kjósa flokk Maduro. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), áttu sér stað 233 ofbeldisatvik í Zulia á árinu 2024 þar sem 79 einstaklingar létu lífið. Þrátt fyrir það bera gögn ekki með sér að virk átök eða óeirðir séu á því svæði sem kærandi var búsett eða í Venesúela almennt.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir kröfu um dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga að á því að vegna kynhneigðar hennar og aðstæðna á heimasvæði hennar í Venesúela muni hún búa við erfiðar félagslegar aðstæður.
Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að líkamleg heilsa hennar væri góð en í heimaríki hafi hún fengið sýkingu í augað og leitað til læknis vegna þess. Kærandi kvaðst hafa verið í meðferð hjá sálfræðingi í heimaríki sem hafi greint hana með kvíða árið 2017. Við meðferð málsins lagði kærandi fram afrit af vottorði sálfræðings í Venesúela, dags. 15. ágúst 2018. Í vottorðinu kemur meðal annars fram að greining sálfræðings sé sú að kærandi sé með áfallastreituröskun, glími við ofsakvíða og ranghugmyndir um ofsóknir. Sé hugræn atferlismeðferð ráðlögð til að aðstoða kæranda við að endurskipuleggja óreiðukenndar hugsanir sínar.
Af framburði kæranda og gögnum málsins verður ekki ráðið að hún glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda henni alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður ekki annað séð en að kærandi hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að hún muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð, þar á meðal geðheilbrigðisþjónustu, verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Vegna stöðu kæranda sem tvíkynhneigðs einstaklings bendir kærunefnd á að alþjóðlegar skýrslur um stöðu LGBTI+ einstaklinga í Venesúela bera með sér að þeir einstaklingar eigi á hættu að verða fyrir mismunun, þ. á m. á atvinnu- og leigumarkaði sem og í mennta- og heilbrigðiskerfinu. LGBTI+ einstaklingar verði þó ekki fyrir kerfisbundnu ofbeldi af hálfu yfirvalda en dæmi séu um að 22 lögreglumenn hafi meinað þeim um aðgang að opinberum stöðum og notfært sér lagalegt tómarúm til að áreita og beita slíka einstaklinga ofbeldi. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 kemur fram að í maí 2022 hafi verið sett á fót sérstök skrifstofa sem ætlað sé að rannsaka brot á réttindum LGBTI+ einstaklinga og þá kemur fram í skýrslu EASO að hagsmunasamtök berjist fyrir réttindum LGBTI+ einstaklinga í Venesúela. Benda heimildir ekki til þess að LBGTI+ einstaklingar verði fyrir kerfisbundnu ofbeldi eða mismunun þar í landi.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvaðst kærandi hafa búið í húsnæði móður sinnar í Maracaibo borg áður en hún yfirgaf heimaríki. Kærandi kvaðst hafa verið atvinnulaus en hafa unnið áður í bakaríi. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að ákvæðið um dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða yrði að jafnaði ekki talið ná til neyðar af efnahagslegum rótum, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Við meðferð málsins hafi ekki komið fram gögn sem kalla á að vikið sé frá þeim meginsjónarmiðum sem fram koma í þeim athugasemdum. Kærandi er ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hún sé almennt heilsuhraust og vinnufær. Að framangreindu virtu telur kærunefnd að félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu, að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 38. gr. og 39. gr. laganna. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-lið 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi er, ekki liggi fyrir ástæður sem geti leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls. Samkvæmt 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga gildir ákvæði 2. mgr. 74. gr. ekki um útlending sem m.a. á sjálfur þátt í því að niðurstaða fáist ekki innan tímamarka sbr. d-liður 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi 5. desember 2022. Frá því að kærandi lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd hér á landi og þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, dags. 5. júní 2025, eru liðnir rúmlega 30 mánuðir. Kærandi telst því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 74. gr. laga um útlendinga.
Af skilyrðum ákvæðisins er ljóst að svo til greina komi að veita dvalarleyfi á grundvelli þess verði umsækjandi að hafa sannað á sér deili, aðstoðað við rannsókn málsins og að öðru leyti sýnt af sér háttsemi sem samrýmanleg er ákvæðum laganna.
Í máli kæranda liggur fyrir að tekin var skýrsla af henni við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun. Þá hefur kærandi sannað auðkenni sitt og ekki liggja fyrir ástæður í málinu sem leitt geta til brottvísunar kæranda. Teljast því skilyrði a til c-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga uppfyllt.
Við mat á því hvort að skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga sé uppfyllt verður að líta til orðalags ákvæðisins þar sem ekki er að finna nánari útskýringar í lögskýringargögnum. Gerir ákvæðið þá kröfu að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn málsins. Verður ekki annað ráðið en að hér sé gerð krafa um að útlendingur hafi veitt réttar upplýsingar frá upphafi málsmeðferðar og aðstoðað þannig við úrlausn málsins.
Til stuðnings aðalmálsástæðu sinni um að hafa orðið fyrir ofsóknum af hálfu aðila á vegum stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana sinna og þátttöku í stjórnmálastarfi lagði kærandi fram tvenn skjöl sem bera annars vegar heitið „kvörtun til lögreglu vegna atviks 2017“ og hins vegar „kvörtun til opinberrar stofnunar vegna atviks 2021“. Með tölvubréfi 6. febrúar 2025 til kæranda óskaði kærunefnd eftir frumritum framangreindra skjala auk þess að spyrja út í efni og form þeirra. Með tölvubréfi 11. febrúar 2025 lagði kærandi fram svör við spurningum nefndarinnar og greindi frá því að hún myndi leggja fram frumrit skjalanna. Hinn 17. febrúar 2025 lagði kærandi fram umrædd skjöl ásamt fleiri gögnum, þar á meðal sakarvottorð frá heimaríki. Hinn 18. febrúar 2025, sendi kærunefnd sjölin til rannsóknar til skilríkjarannsóknarstofu flugsstöðvardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum. Í skýrslu skilríkjarannsóknarstofunnar, dags. 13. mars 2025, sem barst sama dag, var það niðurstaða stofunnar að skjölin væru ótraustvekjandi og voru nánari rök færð fyrir þeirri niðurstöðu. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 3. apríl 2025, var kæranda gefinn kostur á því að kynna sér efni skýrslu skilríkjarannsóknarstofunnar auk þess sem vakin var athygli á því að komið hafi í ljós við skoðun á skjalinu sem dagsett er 16. júní 2022 að texti skjalsins væri markaður í pappírinn á skjali með dagsetningunni 6. júní 2017. Var kærandi einnig spurð að því hvers vegna ekki kæmi fram í skjali dags. 16. júní 2022 að verið væri að kvarta yfir atviki sem hafi átt sér stað 17. júní 2021. Með tölvubréfi til kærunefndar 7. apríl 2025 bárust svör frá kæranda. Kærandi veitti engar haldbærar skýringar á þeim meginatriðum sem fram komu í rannsókn skilríkjarannsóknarstofunnar og öðrum atriðum sem þóttu draga úr trúverðugleika skjalanna. Líkt og að framan er rakið er niðurstaða kærunefndar að skjölin teljast ótrúverðug og verða þau ekki lögð til grundvallar frásagnar kæranda um að aðilar á vegum stjórnvalda hafi árin 2017 og 2021 áreitt kæranda vegna stjórnmálaskoðana- og þátttöku hennar. Samkvæmt framangreindu er ljóst að kærandi hefur lagt fram ótrúverðug gögn með það að markmiði að styrkja umsókn sína um alþjóðlega vernd.
Með vísan til þessa er það niðurstaða nefndarinnar að kærandi hafi ekki aðstoðað við úrlausn málsins í skilningi d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Uppfyllir kærandi því ekki skilyrði ákvæðisins. Þar sem skilyrði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga eru ekki uppfyllt kemur ekki til skoðunar hvort ákvæði 3. mgr. sömu greinar eigi við í málinu.
Að framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að ekki sé heimilt að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kæranda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að kærandi eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa henni frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kvaðst kærandi ekki hafa tengsl við Ísland eða önnur lönd innan Schengen-svæðisins en hún teldi það ósanngjarnt yrði henni brottvísað og ákvarðað endurkomubann því það bryti gegn mannréttindum hennar að verða send aftur til heimaríkis.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hennar eða nánustu aðstandenda hennar, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hún Ísland innan þess frest sem henni er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljug innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hún frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Valgerður María Sigurðardóttir
Vera Dögg Guðmundsdóttir