10 júní 2025
/
Nr. 481/2025 Úrskurður
Hinn 10. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 481/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24100040
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. október 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Kína (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 2. október 2024, um að synja henni um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 23. september 2024, fyrir sex daga dvöl frá 24. til 29. nóvember 2024 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bandaríkjunum.
Við meðferð málsins á kærustigi lagði kærandi fram afrit af sjúkratryggingaskírteini, vottorði vegna sjúkratryggingar, bókanir vegna gistinga og bréf með rökum kæranda.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í bréfi meðfylgjandi kæru greinir kærandi frá því að hún vilji ferðast til Íslands með vinum í fríi yfir þakkargjörðarhátíðina. Á Íslandi muni þau fara í skoðunarferðir til þess að sjá landslag svo sem strendur og fossa og dvelja alls í sex daga. Kærandi muni dvelja í Airbnb í Reykjavík fyrstu dagana og síðan í Airbnb á Hvolsvelli fram að brottför. Kærandi vilji heimsækja Ísland með vinum sínum þar sem hún hafi unun af því að ferðast og sjá fallegt landslag. Hún greinir frá því að hafa alltaf viljað heimsækja Bláa lónið og Reynisfjöru. Fer kærandi fram á að synjun Útlendingastofnunar verði endurskoðuð.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Kína þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun til einnar komu eða tveggja skulu sýna fram á að þeir séu handhafar viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar til að mæta hvers konar kostnaði sem kann að falla til í tengslum við heimsendingu af læknisfræðilegum ástæðum, brýna læknismeðferð og/eða meðferð á sjúkrahúsi í neyðartilvikum eða við andlát meðan á dvöl þeirra stendur á yfirráðasvæði aðildarríkjanna, sbr. 1. mgr. 15. gr. reglugerðar um útlendinga. Í 3. mgr. sömu greinar kemur fram að tryggingin skuli gilda á öllu yfirráðasvæði aðildarríkjanna og taka til alls fyrirhugaðs dvalar- eða gegnumferðartímabils hlutaðeigandi. Lágmarkstryggingarvernd skuli vera í samræmi við þá tryggingarvernd sem krafist er í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 2 og 16 þ.e. að kærandi hefði ekki fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar og kærandi hefði ekki fært sönnur á að hann væri handhafi viðeigandi og gildrar ferðasjúkratryggingar. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að bankayfirlit hafi ekki verið lagt fram og að gögn varðandi ferðasjúkratryggingar væru ófullnægjandi. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hún gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Gögn sem sýna fram á fullnægjandi ferðasjúkratryggingu eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. h-lið 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga og 15. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Kemur krafa um slík gögn kemur auk þess fram í 4. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Við meðferð umsóknar kæranda hjá sendiráðinu var kærandi upplýstur um að gögn vegna ferðasjúkratryggingar væru ófullnægjandi. Var kæranda gefin frestur til að bregðast við sem hún gerði ekki. Kærandi hefur lagt fram ný gögn um ferðasjúkratryggingu á kærustigi. Það ferðatímabil sem kærandi sótti um vegabréfsáritun fyrir er hins vegar liðið þegar úrskurður þessi er kveðinn upp. Forsendur hinnar kærðu ákvörðunar hvað þetta varðar byggjast á efnislegum skilyrðum sem ættu ekki að hafa íþyngjandi áhrif á réttarstöðu kæranda hafi hún áform um að sækja um vegabréfsáritun til ferðalaga inn á Schengen-svæðið að nýju eða koma hingað til lands í framtíðinni, sbr. til hliðsjónar dóm Hæstaréttar nr. 25/2022, dags. 9. maí 2022. Telst kærandi því ekki hafa lögvarða hagsmuni af því að lagt sé mat á ný gögn sem lögð voru fram á kærustigi. Er kæranda þess í stað leiðbeint um að sækja um vegabréfsáritun að nýju.
Að framangreindu virtu hefur kærandi ekki lagt fram sönnun fyrir því að hún sé handhafi gildrar ferðasjúkratryggingar, sbr. viii. tölul. a-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi kærandi þannig ekki uppfyllt skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritunar, sbr. h-liðar 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður