10 júní 2025
/
Úrskurður nr. 477/2025
Hinn 10. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 477/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24100111 og KNU24100112
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 14. október 2024 kærðu [...], fd. [...], og [...], fd. [...], ríkisborgarar Kirgistan (hér eftir kærendur), ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2024, um að synja þeim um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kærum má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kærenda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreindar ákvarðanir eru kærðar á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og bárust kærurnar fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærendur lögðu fram umsóknir um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 12. september 2024, fyrir 18 daga dvöl frá 2. – 19. október 2024 sem ferðamenn. Umsóknir kærenda voru lagðar fram í Bandaríkjunum.
Á kærustigi lögðu kærendur fram meðmælabréf frá ræðismanni Íslands í Kirgistan.
3 Málsástæður og rök kærenda
Í kærum, sem ritaðar er af ræðismanni Íslands í Kirgistan, kemur fram að kærendur hafi ætlað sér að ferðast ásamt ræðismanni Íslands í Kirgistan, eftir ráðstefnu sem ræðismaðurinn hafði þegið boð um þátttöku í. Annar kæranda sé traustur og áreiðanlegur athafnamaður og kona hans hyggist fylgja honum í ferðinni. Ræðismaðurinn vottar um einlægan ásetning þeirra um að ferðast til Íslands. Í kærum er áréttað að kærendur séu handhafar dvalarleyfiskorts (græna kortsins) í Bandaríkjunum og eigi von á því að öðlast ríkisborgararétt í Bandaríkjunum eftir nokkur ár. Framangreint sé til marks um langtímastöðugleika þeirra og áreiðanleika. Í kærum kvaðst ræðismaður sannfærður um að heimsókn kærenda til Íslands myndi styrkja frekar viðskipta- og menningartengsl milli Íslands og Kirgistan.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í málum þessum gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Kirgistan þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningu reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsókna kærenda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í forminu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðunum í málum kærenda er merkt í reit 10, 11 og 12, þ.e. að upplýsingarnar, sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar voru ekki áreiðanlegar; að rökstudd ástæða var til að draga í efa að yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun væru áreiðanlegar; og að rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðununum fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að hótelbókun beggja umsækjenda hafi verið afbókuð. Ekki hafi verið hægt að staðfesta flugbókanir þar sem umsækjendur hafi ekki lagt fram flugbókun með gildu bókunarnúmeri. Rökstudd ástæða væru því til að efast um áreiðanleika framlagðra flugbókana, sem og að bókanirnar væru ósviknar. Efasemdir væru uppi um hvort umsækjendur hygðust ferðast til Íslands. Uppfylltu kærendur þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kærendum jafnframt leiðbeint um að þau gætu óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í málum kærenda.
Gögn sem sýna fram á flug- og hótelbókun eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 5. og 6. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands í Bandaríkjunum. Kærendur hafa lagt fram ný gögn á kærustigi, en hvorki nýja flug- né hótelbókun.
Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa að fylgiskjöl, sem kærendur lögðu fram, séu ósvikin eða að innihald þeirra sé rétt, sbr. b-liðar 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Hafi þannig verið ástæða er til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærendur hafa veitt, sbr. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verða hinar kærðu ákvarðanir því staðfestar.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar.
The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður