12 júní 2025
/
Úrskurður nr. 454/2025
Hinn 12. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 454/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24060010
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. júní 2024 kærði einstaklingur sem kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. maí 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 4. febrúar 2024. Kvaðst kærandi hafa verið í fylgd með manni sem hafði skilríkin hans og flugmiða en leið þeirra hafi legið til Írlands. Kvaðst kærandi ekki vita hvar sá maður væri en hafi ætlað að hitta hann í flugstöðinni. Kærandi hafi farið frá Sómalíu deginum áður vegna hótanna sem honum hafi borist. Frændi kæranda hafi haft samband við mann sem hafi boðist til að koma kæranda til Íslands gegn gjaldi.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 19. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi kvaðst vera sómalskur ríkisborgari og hafa fæðst og alist upp í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, þar sem hann hafi búið þar til hann hafi flúið heimaríki 9. júní 2023. Kærandi hafi flogið til Eþíópíu og þaðan til Tyrklands þar sem hann hafi dvalið í um níu mánuði. Kvaðst kærandi hafa dvalið löglega í Tyrklandi fyrstu þrjá mánuðina á vegabréfsáritun sem hafi þá runnið út. Aðspurður hvort kærandi hafi verið með dvalarleyfi í öðru landi áður kvaðst hann hafa verið með dvalarleyfi í Tyrklandi á meðan hann hafi stundað framhaldsnám þar í landi frá nóvember 2019 til desember 2022. Aðspurður hvers vegna kærandi hefði ekki vegabréf meðferðis kvaðst kærandi hafa skilið það eftir í Tyrklandi þar sem einstaklingurinn sem hafi fylgt honum til landsins hafi útvegað honum falsað vegabréf og sagt kæranda verða að nota það á ferðalaginu. Kærandi greindi frá því að tilheyra Hawiye ættbálknum en tilheyra ekki minnihlutahópi í heimaríki. Þá greindi kærandi frá því að eiga móður, bróður og tvær systur í heimaríki.
Aðalástæðu flótta frá heimaríki kvað kærandi hafa verið hótanir sem honum hafi borist frá Al-Shabaab í kjölfar þess að hann hafi hafið störf sem verkfræðingur hjá sómölskum yfirvöldum í Mógadisjú í febrúar 2023. Í byrjun maí 2023 hafi kærandi fengið símhringingu frá meðlimi Al-Shabaab sem hafi sagst vita að kærandi ynni fyrir hið opinbera og að hann skyldi greiða aðilanum helming mánaðarlauna sinna eða um 150 dollara. Í kjölfarið hafi kæranda borist um sex símhringingar til viðbótar, en kærandi kvaðst ekki hafa svarað símhringingunum. Hinn 17. maí 2023 hafi kæranda borist smáskilaboð þar sem honum hafi verið hótað lífláti svaraði hann ekki símtölunum. Hinn 3. júní 2023 hafi kærandi farið á fjölskyldusamkomu ásamt föður sínum. Faðir kæranda hafi fengið bíl kæranda að láni á meðan á fjölskyldusamkomunni hafi staðið en stuttu síðar hafi frændi kæranda fengið símtal þar sem hann hafi verið upplýstur um að bíll kæranda hafi verið sprengdur í loft upp og faðir hans látist samstundis. Aðspurður hvort kærandi hafi einhvern tímann hitt meðlim Al-Shabaab svaraði kærandi því játandi og kvað það hafa verið árið 2006 þegar það hafi verið borgarastyrjöld í Mógadisjú. Kærandi kvaðst þá hafa verið ungur að árum að leika sér í fótbolta með vinum sínum þegar meðlimir Al-Shabaab hafi skotið úr skotvopnum í nálægð við þá og vinur hans hafi orðið fyrir skoti og látist í kjölfarið. Að framangreindu undanskildu kvaðst kærandi ekki hafa orðið fyrir frekara áreiti frá Al-Shabaab fyrr en honum hafi borist framangreindar hótanir. Aðspurður hvort kærandi hefði hugmynd um það hvernig Al-Shabaab hafi vitað af starfsvettvangi hans, kvað kærandi föðursystur sína vinna fyrir Al-Shabaab og hún hefði að öllum líkindum komið upplýsingunum áleiðis. Aðspurður um hvaða stöðu hann hafi gegnt í starfi kvaðst hann hafa verið eins og hver annar starfsmaður sem hafi starfað innan verkfræðideildarinnar. Kvaðst kærandi ekki vita til þess hvort samstarfsmenn hans hafi jafnframt fengið hótanir frá Al-Shabaab. Þá greindi kærandi frá því að í ágúst 2023 hafi meðlimir Al-Shabaab komið á heimili fjölskyldu kæranda og fótbrotið móður hans í leit að honum. Systkini kæranda hafi sloppið ómeidd. Kærandi kvaðst ekki hafa heyrt frá fjölskyldumeðlimum sínum síðan í ágúst 2023 og viti því ekki hvort þau búi enn í Mógadisjú. Kærandi kvaðst ekki hafa þorað að hafa samband við fjölskyldu sína þar sem hann kenni sjálfum sér um að þau hafi verið áreitt af meðlimum Al-Shabaab. Þá kvaðst kærandi hafa búið á [...] svæðinu frá maí 2023 þar til hann hafi flúið heimaríki 9. júní 2023. Kvað kærandi svæðið vera öruggt og þar búi margir opinberir starfsmenn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 4. júní 2024. Greinargerð barst kærunefnd 18. júní 2024. Viðbótargögn bárust kærunefnd 17. júlí 2024 og 25. nóvember 2024. Með tölvubréfum dags. 20. og 21. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfum, dags. 21. og 23. maí 2025 bárust nefndinni umbeðnar upplýsingar.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Hvað varðar málavexti og aðstæður kæranda er í greinargerð vísað til málavaxtalýsingar í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar ásamt viðtals kæranda hjá Útlendingastofnun. Í greinargerð kæranda til Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í Sómalíu en hafi yfirgefið heimaríki 9. júní 2023, dvalið í Tyrklandi fram til febrúar 2024 á þriggja mánaða vegabréfsáritun sem runnið hafi út og síðan haldið hingað til lands. Fram kemur að kærandi hafi unnið fyrir sómölsk stjórnvöld og fengið símtal frá Al-Shabaab í maí árið 2023. Í símtalinu hafi honum verið tjáð að meðlimir samtakanna vissu hver hann væri og að hann starfaði fyrir hið opinbera. Til að tryggja öryggi sitt yrði kærandi að inna af hendi greiðslu skatts að jafnvirði helmingi mánaðarlauna hans. Eftir þetta hafi kærandi fengið nokkrar símhringingar ásamt líflátshótun í smáskilaboðum 17. maí 2023. Hinn 3. júní hafi kærandi verið á fjölskyldusamkomu ásamt föður sínum þegar faðir kæranda hafi yfirgefið samkomuna, tekið bíllykla kæranda og ekið á brott. Um klukkustund síðar hafi frændi kæranda fengið símtal þar sem honum hafi verið tjáð að bifreið kæranda hafi verið sprengd í loft upp og faðir kæranda látist í kjölfarið. Þar sem bifreiðin hafi verið í eigu kæranda telji kærandi sprenginguna hafa verið ætlaða honum sjálfum. Al-Shabaab samtökin hafi verið meðvituð um atvinnu kæranda vegna þess að föðursystir hans hafi starfað fyrir samtökin. Kærandi hafi flutt til [...] hverfisins til að reyna að tryggja öryggi sitt í þá sex daga sem hafi liðið frá því faðir hans hafi verið myrtur þar til hann hafi yfirgefið heimaríki 9. júní 2023. Ungur hafi kærandi upplifað borgarastyrjöld í Mógadisjú. Hann hafi dvalið í þorpi sem hafi verið stjórnað af hálfu Al-Shabaab samtakanna. Samtökin hafi oft skotið úr skotvopnum sínum og eitt sinn hafi vinur kæranda orðið fyrir skoti og látist í kjölfarið. Kærandi hafi síðast verið í sambandi við fjölskyldumeðlimi sína í Sómalíu í ágúst 2023 í kjölfar þess að ráðist hafi verið inn á heimili fjölskyldu hans og meðlimir samtakanna fótbrotið móður hans. Kærandi hafi ekki leitað til sómalskra yfirvalda vegna áreitisins þar sem það hefði gert hann að enn frekara skotmarki.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Sómalíu mótmælt. Heimildir beri með sér að jafnvel þótt yfirvöld í Sómalíu hafi náð yfirráðum yfir tilteknum svæðum sem áður hafi verið undir stjórn Al-Shabaab séu meðlimir samtakanna enn til staðar í nánast öllum borgum og bæjum í Suður- og Mið-Sómalíu og haldi þar starfsemi sinni áfram svo til óhindrað. Þá beri skýrsla Sameinuðu þjóðanna frá maí 2021 með sér að Al-Shabaab hafi yfirgripsmikla viðveru í höfuðborginni Mógadisjú og framkvæmi þar reglulega mannskæðar árásir. Þá vísar kærandi til skýrslu dönsku flóttamannanefndarinnar frá árinu 2016 þar sem fram komi að lágt settir starfsmenn stjórnvalda og aðilar sem tengist Sameinuðu þjóðunum með einhverjum hætti geti verið skotmörk hryðjuverkasamtakanna. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Vísar kærandi til þess að í ákvörðun Útlendingastofnunar sé fjallað um nýlega fallinn úrskurð kærunefndar útlendingamála frá 30. apríl 2024, nr. 425/2024. Þó einhverra líkinda sé að gæta í því máli og svo í máli kæranda sé að mati kæranda, ekki hægt að slá því föstu að málið hafi fordæmisgildi í máli hans þar sem horft er fram hjá því að mestu að kærandi hafi starfað sem opinber starfsmaður. Enn frekar bendir kærandi á úrskurðarframkvæmd kærunefndar útlendingamála um stöðu opinberra starfsmanna í Sómalíu. Nefnir kærandi t.d. úrskurð kærunefndar útlendingamála frá 2. febrúar 2023, nr. 57/2023. Í því máli hafi kæranda verið veitt alþjóðleg vernd vegna starfa í þágu stjórnvalda þrátt fyrir að hafa ekki lagt fram gögn sem rennt hafi stoðum undir frásögn um afskipti Al-Shabaab. Hið sama hafi verið uppi í úrskurði kærunefndar útlendingamála frá 6. júlí 2023, nr. 374/2023. Málið sé í öllum meginatriðum sambærilegt máli kæranda þar sem kærandi í því máli hafi einnig starfað sem verkfræðingur, fengið sambærilegt símtal og skilaboð um að inna af hendi skatta til Al-Shabaab, hótað lífláti og átt fjölskyldumeðlim sem sé í Al-Shabaab.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á ástæðuríkum ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi sem þolandi hótana og ofbeldis af hálfu Al-Shabaab og sem fjölskyldumeðlimur einstaklinga sem annars vegar hafi verið myrtir og hins vegar pyntaðir af Al-Shabaab. Kærandi búi við bæði hlutlægan og huglægan ótta við að sæta ofsóknum í heimaríki en við mat á því hve ástæðuríkur ótti hans er sé mikilvægt að taka inn í matið bakgrunn kæranda, upplifanir hans, athafnir og fjölskyldustöðu. Kærandi hafi lýst því að Al-Shabaab hafi tekið föður hans af lífi og að frænka hans tilheyri Al-Shabaab. Ekki sé hægt að gera þá kröfu til kæranda að hann sanni hlutlæga reynslu sína af ofsóknum af hálfu Al-Shabaab, enda séu hryðjuverkasamtök ekki þekkt fyrir að skilja eftir sig gagnaslóð við slíkar hótanir. Frásögn kæranda njóti fullkomins stuðnings almennra heimilda og sé að öllu leyti afar trúverðug. Fyrir liggi að kærandi geti ekki notið verndar yfirvalda í heimaríki þar sem yfirvöld sjálf séu valdur að ofsóknunum.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Líta verði til öryggisástands í Sómalíu, ástæðu flótta kæranda og hættu á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í hans garð í heimaríkinu við matið. Þá leiki enginn vafi á trúverðugleika frásagnar kæranda í ljósi hlutlægra gagna um ástandið í Sómalíu, sem frásögn hans samræmist að öllu leyti. Kærandi vísar til fyrri umfjöllunar og ítrekar að hann eigi vísa hættu á að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð og pyndingum, jafnvel lífláti, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Þá sé útilokað að kærandi geti leitað verndar stjórnvalda í heimaríki sínu. Samkvæmt nýlegri skýrslu Human Rights Watch frá 2022 flokkast ofbeldið sem viðgangist gagnvart almennum borgurum í Sómalíu undir stríðsglæpi og sé því vandséð hvernig sú yfirlýsing kalli ekki á þörf á viðbótarvernd. Stjórnvöldum beri í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar að túlka vafa kæranda í hag, sé frásögn hans trúverðug og eigi hún stoð í hlutlægum gögnum. Þá vísar kærandi til jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar og telur að föst framkvæmd sé fyrir því að veita umsækjendum í mið- og suður-Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að geta ekki treyst á vernd yfirvalda og að leiða megi líkur að því að félagslegar aðstæður kæranda yrðu slæmar. Til þess verði að líta að kærandi hafi verið neyddur til að segja sig frá störfum hjá sómölskum yfirvöldum, enda hafi hann sætt hótunum í tengslum við starfið. Atvinnuöryggi hans og framfærsla verði því ótrygg í heimaríki. Kærandi hafi verið gerður að skotmarki Al-Shabaab samtakanna og þurft að hafa sig lítið í frammi og dvelja í felum til þess að tryggja öryggi sitt. Faðir kæranda hafi verið myrtur af samtökunum og nýleg árás á heimili móður og systkina kæranda varpi enn fremur ljósi á erfiðar félagslegar aðstæður kæranda. Ótækt sé að telja að fjölskylda kæranda geti komið honum til verndar, enda sé fjölskyldumeðlimur kæranda þekktur meðlimur Al-Shabaab samtakanna. Þá sé í ljósi áfallasögu kæranda augljóst að hann hafi hagsmuni af því að sækja sér sálfræðiaðstoð hér á landi, sem sé ótryggð í heilbrigðiskerfi í Sómalíu. Heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt, ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé þar og sérhæfðar læknismeðferðir séu afar takmarkaðar. Til viðbótar bendir kærandi á að matvælaöryggi í Sómalíu sé verulega skert um þessar mundir en um helmingur íbúa landsins þurfi á mannúðaraðstoð að halda til þess að komast lífs af.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar. Þá þurfi að meta málið á grundvelli jafnræðisreglu 11. gr. stjórnsýslulaga í ljósi framkvæmdar um að veita umsækjendum frá mið- og suður Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Hvað varðar vísan kæranda til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar með vísan í úrskurði kærunefndar í málum einstaklinga frá mið- og suður Sómalíu ítrekar kærunefnd að við mat á því hvort einstaklingur eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi fer ávallt fram einstaklingsbundið mat á aðstæðum og mat á trúverðugleika frásagnar. Aðstæður í tilvísuðum úrskurðum eru ekki að öllu leyti sambærilegar aðstæðum í máli kæranda og hafa því ekki fordæmisgildi.
Kærandi gerir athugasemdir við tilvísanir í ákvörðun Útlendingastofnunar til úrskurða kærunefndar. Af lestri ákvörðunar Útlendingastofnunar verður ráðið að lagt hafi verið fullnægjandi mat á einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og að tilvísanir til fyrri úrskurða kærunefndar beri ekki annað með sér en að vera tilvísanir til úrskurðarframkvæmdar nefndarinnar. Verður því ekki talið að um annmarka á málsmeðferð sé að ræða þrátt fyrir að ekki verði séð að umræddar tilvísanir hafi beina þýðingu fyrir niðurstöðu Útlendingastofnunar.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem til þess sé fallið að sanna á sér deili og því ekki sannað hver hann sé með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hans væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari sem hafi verið búsettur í höfuðborginni Mógadisjú.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
- 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
- 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
- Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
- BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
- Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
- Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
- Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
- Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
- Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
- Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, febrúar 2025);
- Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
- Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
- Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
- Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
- DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
- EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
- EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
- Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
- Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
- Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
- Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
- International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, 6. september 2022);
- Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
- Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
- Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
- Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mógadisjú, Somalia (UNHCR, 25. 6. september 2013);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
- Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 3. júní 2024);
- Somalia country profile (BBC, 2. janúar 2024);
- Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
- Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023):
- Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
- Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
- Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
- Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
- Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
- Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
- Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
- Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
- Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
- Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
- Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta Suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum Suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið. Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í Suður- og Mið-Sómalíu. Í skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá október 2024, kemur fram að sprengjuárásir séu ógn við almenning í Sómalíu og óbreyttir borgarar um þriðjungur skráðra mannfalla á tímabilinu frá ágúst 2023 til júlí 2024. Fram kemur að óbreyttir borgarar hafi ekki verið bein skotmörk sprengjuárásanna heldur hafi sprengjurnar verið sprengdar á fjölförnum stöðum til þess að hefta aðgengi að þeim. Slíkum sprengjum hafi verið komið fyrir m.a. á Baraka-markaðnum í febrúar 2024, nokkrum tebúðum í júní 2024 og í Daynile hverfinu í Mógadisjú í ágúst 2024.Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2025, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslunni kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Geðheilbrigðisþjónusta sé í boði í Mógadisjú en sé þó afar takmörkuð. Við stærstu spítala borgarinnar séu starfandi geðlæknar og sálfræðingar og flest algengustu lyf við geðrænum veikindum séu fáanleg í borginni. Þá sé hægt að leita til aðila sem starfi á einkamarkaðnum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann óttist ofsóknir af hálfu hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að í kjölfar þess að hann hafi hafið störf sem verkfræðingur hjá sómölskum yfirvöldum í Mógadisjú í febrúar 2023, hafi kærandi fengið hótanir frá Al-Shabaab. Í maí 2023 hafi kæranda borist hótun símleiðis frá meðlimi Al-Shabaab sem hafi gert honum ljóst að samtökin væru meðvituð um störf kæranda fyrir hið opinbera. Hafi kærandi verið krafinn um greiðslu um helming mánaðarlauna hans en kærandi hafi óskað eftir umhugsunarfresti sem honum virðist hafa verið veittur. Í kjölfarið hafi kæranda borist sex símtöl í viðbót frá mismunandi símanúmerum sem hann kvaðst ekki hafa svarað en jafnframt hafi kæranda borist textaskilaboð 17. maí 2023, þar sem honum hafi verið hótað lífláti. Hinn [...], hafi faðir kæranda látist þegar bíll kæranda hafi verið sprengdur í loft upp. Kvað kærandi sprenginguna hafa verið ætlaða honum. Aðspurður kvaðst kærandi eitt sinn hafa hitt meðlim Al-Shabaab en það hafi verið árið 2006 þegar það hafi verið borgarastyrjöld í Mógadisjú. Að framangreindu undanskildu kvaðst kærandi ekki hafa orðið fyrir frekara áreiti frá Al-Shabaab. Kærandi kvaðst hafa búið á [...] svæðinu sem kærandi lýsti sem öruggu svæði innan Mógadisjú, frá maí 2023 þar til hann hafi flúið land 9. júní 2023. Í ágúst 2023 hafi meðlimir Al-Shabaab ráðist inn á heimili fjölskyldu kæranda í leit að honum og fótbrotið móður kæranda.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram ýmis gögn sem hann kveður sýna fram á menntun sína. Lagði kærandi m.a. fram afrit bakkalárgráðu kæranda frá háskólanum í Mógadisjú, dags. 3. nóvember 2018, ásamt afritum af staðfestingum á starfsnámi kæranda og þátttökuskírteinum í vinnustofum, dags. frá 2016 til 2018. Þá lagði kærandi fram gögn um framhaldsnám hans í Tyrklandi á tímabilinu frá 2020 til 2022. Kærandi lagði jafnframt fram gögn sem hann kveður sýna fram á störf sín fyrir yfirvöld í Mógadisjú. Lagði kærandi m.a. fram starfsskírteini sitt merkt [...], útgefið 2. mars 2023 og með gildistíma til 1. mars 2024. Einnig lagði kærandi fram starfssamning sinn fyrir sómölsk yfirvöld í Mógadisjú, dags. 26. febrúar 2023, ásamt yfirlýsingu frá samstarfsmanni sínum um framangreind störf hans. Þá lagði kærandi fram skjáskot af textaskilaboðum, dags. miðvikudaginn 17. maí, sem hann kveður vera frá meðlimi Al-Shabaab. Í skilaboðunum er kæranda hótað lífláti fari hann ekki eftir skipunum sendanda. Framangreint skjáskot hefur lítið vægi í máli kæranda enda verður ekki ráðið hver hafi sent skilaboðin eða hver hefur móttekið þau. Þá lagði kærandi fram afrit af dánarvottorði nafngreinds manns sem hann kveður vera föður sinn, dags. [...], þar sem fram kemur að dánarorsök hafi verið sprenging og dánardagur 3. júní 2023. Samhliða dánarvottorðinu lagði kærandi fram staðfestingu Madina sjúkrahússins um að faðir kæranda hafi verið fluttur látinn á sjúkrahúsið [...], eftir að hafa orðið fyrir sprengingu. Kærandi lagði jafnframt fram sjúkragögn sem hann kveður sýna fram á fótbrot móður sinnar sem samkvæmt gögnunum hafi átt sér stað í síðari hluta ágústmánaðar 2023. Lagði kærandi m.a. læknisskýrslu, dags. 23. ágúst 2023, ásamt röntgen mynd af fótlegg, dags. 27. ágúst 2023.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram frekari gögn sem hann kveður sýna fram á dánarorsök föður síns. Lagði kærandi fram afrit dánaryfirlýsingar gefna út af Héraðsdómi Hamar-Weine, dags. 18. janúar 2024, þar sem fram kemur að nafngreindur maður hafi látist í slysi [...] sökum sprengingar í bíl. Einnig lagði kærandi fram vottorð sem virðist vera gefið út af rannsóknardeild sakamála í Sómalíu þar sem fram kemur að niðurstaða rannsóknar á dánarorsök hins nafngreinda manns hafi verið sprenging í bifreið sem hafi átt sér stað í [...]-héraði [...].
Með tölvubréfum dags. 20. og 21. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfum, dags. 21. og 23. maí 2025, bárust nefndinni umbeðnar upplýsingar. Aðspurður um skýrari tímalínu símhringinga og textaskilaboða kvað kærandi fyrstu símhringinguna frá Al-Shabaab hafa borist í byrjun maí 2023 og í kjölfarið hafi kæranda stöðugt borist símhringingar frá mismunandi símanúmerum bæði fyrir og eftir að honum hafi borist textaskilaboðið 17. maí 2023. Kærandi kvað símhringingarnar hafa valdið honum miklum ótta og kvíða sem hann glími við enn þann daginn í dag. Aðspurður kvaðst kærandi fljótt hafa áttað sig á því að símhringingarnar kæmu frá Al-Shabaab þar sem að hinn ótilgreindi aðili hafi kynnt sig sem meðlim samtakanna. Þá hafi textaskilaboðin jafnframt innihaldið persónulegar upplýsingar um kæranda sem hafi gert kæranda ljóst að skilaboðunum hafi verið beint að honum sjálfum og því hafi hann tekið þeim alvarlega. Í kjölfarið á bílsprengingunni í [...] og árásinni á heimili fjölskyldu kæranda í ágúst 2023 kvaðst kærandi ekki efast um að hótanirnar hafi borist frá meðlimum Al-Shabaab samtakanna. Aðspurður hvort kærandi geti sýnt fram á símhringingarnar með einhverjum hætti kvaðst kærandi ekki hafa hugsað svo langt að taka upp samtalið eða taka skjáskot af símhringingaskránni á þeim tíma sem símhringingar hafi borist. Hann hafi þegar lagt fram öll þau gögn sem hann hafi undir höndum. Aðspurður kvað kærandi umrædda bílsprengingu hafa átt sér stað nálægt [...] moskunni í [...] hverfi í [...] héraði og kvað kærandi föður sinn hafa verið þann eina sem hafi látist í sprengingunni. Aðspurður hvort skrifaðar hafi verið einhverjar fréttaumfjallanir um sprenginguna kvað kærandi sprenginguna hafa orðið á fámennu svæði og að sprengingar séu algengar í Mógadisjú og fjölmiðlar fjalli því ekki alltaf um hvern atburð fyrir sig.
Með hliðsjón af framburði kæranda og gögnum málsins, þ.e. gögnum um störf og menntun kæranda, er ekki unnt að útiloka að kærandi hafi starfað sem verkfræðingur fyrir yfirvöld í Mógadisjú og hafi menntun og starfsþjálfun á því sviði. Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað kærandi verkefni sín fyrir yfirvöld í [...] í Mógadisjú hafa falist í því að mæla landsvæði og götur sem hann hafi sett upp í teikniforrit og sent áfram til yfirmanns. Aðspurður um hvaða stöðu hann hafi gegnt kvaðst hann hafa verið eins og hver annar starfsmaður sem hafi starfað innan sömu deildar. Kvaðst kærandi ekki vita til þess að samstarfsmenn hans hafi fengið hótanir frá Al-Shabaab.
Af framangreindum heimildum verður ráðið að Al-Shabaab beini spjótum sínum fyrst og fremst að háttsettum aðilum svo sem stjórnmálamönnum, ættbálkaleiðtogum, starfsmönnum AMISOM, starfsmönnum alþjóðlegra samtaka, liðhlaupum Al-Shabaab, fjölmiðlamönnum sem hafi gagnrýnt samtökin og fyrirtækjaeigendum sem neiti að greiða verndartolla til samtakanna. Ólíklegt sé að almennir borgarar sem tengist hvorki yfirvöldum né alþjóðasamtökum stafi sérstök hætta af Al-Shabaab. Við mat á því hvort líklegt sé að einstaklingur með tengsl við stjórnvöld eigi á hættu að sæta ofsóknum vegna starfs síns þurfi að líta til einstaklingsbundinna atvika, svo sem stöðu, verkefna, uppruna og virkni Al-Shabaab á svæðinu.
Aðspurður í viðtali hjá Útlendingastofnun hvernig Al-Shabaab samtökin hafi vitað af því að hann ynni fyrir stjórnvöld, kvað kærandi föðursystur sína vera meðlim samtakanna. Aðspurður nánar hvort samtökin hafi heyrt af starfsvettvangi hans frá föðursystur hans kvaðst hann halda það, en grunaði einnig að Al-Shabaab hefði njósnara sem ynnu fyrir stjórnvöld. Kvað kærandi föðursystur sína aldrei hafa áreitt sig á neinn hátt, hann hafi síðast hitt hana þegar hann hafi verið lítill en hún búi í [...] sem samkvæmt nánari skoðun er í um átta klukkustunda akstursfjarlægð frá Mógadisjú. Af frásögn kæranda verður ekki annað ráðið en að lítið sem ekkert samband hafi verið á milli kæranda og föðursystur hans. Að mati kærunefndar hefur kærandi ekki sýnt nægilega fram á að föðursystir hans hafi átt hlut í því að honum hafi borist meintar hótanir.
Af framlögðum gögnum og frásögn kæranda er ekki hægt að útiloka að faðir kæranda hafi látist við sprengingu [...]. Samkvæmt gögnum ACLED átti sprenging sér stað sér stað [...] í [...] héraði í Mogadisjú. Styðja framangreindar heimildir frásögn kæranda. Samkvæmt gögnum ACLED er atburðurinn skráður sem sprenging eða fjarska ofbeldi (e. explotion/remote violance) en ekki sem ofbeldi gegn óbreyttum borgurum (e. violence against civilians). Með hliðsjón af framangreindu og framlögðum gögnum verður ekki séð að sprengingin hafi beinst að kæranda eða ökutæki kæranda, heldur hafi verið um að ræða sprengingu sem hafi beinst að ákveðnu svæði en ekki tilteknum einstaklingi. Slíkar sprengjuárásir eru samkvæmt heimildum algengar í Mógadisjú og er sjaldnast beint að tilteknu skotmarki en gerðar til þess að skapa ótta og takmarka aðgengi almennings að tilteknum svæðum.
Framlögð gögn um meint ofbeldi Al-Shabaab gegn móður kæranda í ágúst 2023 eru ekki til þess fallin að styðja við frásögn kæranda. Þó ekki sé hægt að útiloka að móðir kæranda hafi fótbrotnað er ekkert í gögnum málsins sem styður við frásögn kæranda um að meðlimir Al-Shabaab hafi staðið þar að baki.
Með vísan til framangreinds og frásagnar kæranda verður ekki talið að hann hafi sýnt fram á að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki vegna atvinnu hans. Kærandi hefur ekki sýnt nægilega fram á það hverjir hafi staðið að baki meintum hótunum en enn fremur bera einstaklingsbundin atvik, svo sem starfslýsing kæranda, ekki með sér neinar vísbendingar um það hvers vegna kærandi ætti að teljast skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki. Þótt ekki verði útilokað að kærandi kunni að hafa sætt áreiti af hálfu ótilgreindra aðila í heimaríki verður ekki talið að hann sé sérstakt skotmark Al-Shabaab hryðjuverkasamtakanna. Verður því ekki lagt til grundvallar að kærandi eigi á hættu að sæta ofsóknum af hálfu meðlima Al-Shabaab.
Þá lítur kærunefnd til þess að kærandi hefur greint frá því að tilheyra meirihlutaættbálki í heimaríki auk þess sem hann hafi verið búsettur á svæði þar sem sómölsk stjórnvöld fara með yfirráð og benda heimildir til þess að ástandið í Mógadisjú sé slíkt að stjórnvöld hafi almennt stjórn á svæðinu. Enn fremur hefur kærandi greint frá því að hafa búið á öruggu svæði í Mógadisjú ásamt samstarfsmönnum sínum frá maí 2023 þar til hann hafi flúið heimaríki 9. júní 2023.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á slæmu almennu öryggisástandi í Sómalíu. Ofbeldið sem viðgengst gagnvart almennum borgurum í Sómalíu flokkist undir stríðsglæpi og því vandséð hvernig það kalli ekki á þörf á viðbótarvernd. Kærandi telur engan vafa leika á trúverðugleika frásagnar sinnar í ljósi hlutlægra gagna um ástandið í Sómalíu. Kærandi ítrekar að hann eigi vísa ómannúðlega og vanvirðandi meðferð og pyndingar, jafnvel líflát, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar frásögn kæranda um að hann sé í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar við úrlausn máls kæranda að kærandi hafi verið búsettur í Mógadisjú þegar hann hafi yfirgefið heimaríki sitt og hafi búið þar mestan hluta ævi sinnar. Verður því horft til aðstæðna í Mógadisjú við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Í dómum Mannréttindadómstóls Evrópu í máli K.A.B gegn Svíþjóð (mál nr. 886/11) frá 17. febrúar 2014 og R.H. gegn Svíþjóð (mál nr. 4601/14) frá 1. febrúar 2016 kemur fram að almennt öryggisástand í Mógadisjú hafi farið batnandi á undanförnum árum eftir að stjórnvöld höfðu náð yfirráðum í borginni. Þá var það afstaða dómsins að aðgengilegar landaupplýsingar bentu ekki til þess að aðstæður í borginni væru slíkar að íbúar í borginni væru almennt í hættu á að sæta meðferð sem færi gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans. Því myndi endursending einstaklinga til Sómalíu ekki brjóta gegn 3. gr. mannréttindasáttmálans.
Þau gögn sem kærunefnd hefur yfirfarið við meðferð málsins benda ekki til þess að aðstæður í Mógadisjú hafi breyst til hins verra eða séu slíkar að kærandi muni eiga á hættu meðferð sem brjóti gegn 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Verður því ekki talið að ástæða sé til að ætla að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð í heimaríki af þeim sökum. Þá er það jafnframt mat kærunefndar, af virtum gögnum málsins og upplýsingum um aðstæður í Sómalíu, að kærandi eigi ekki á hættu að sæta dauðarefsingum, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki sé greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka, verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggisástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að glíma við magavandamál og hafa grennst mikið. Þá kvaðst kærandi fá martraðir og hafa miklar áhyggjur vegna þess sem hann hafi upplifað í heimaríki.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram samskiptaseðla frá göngudeild sóttvarna fyrir tímabilið frá 15. febrúar 2024 til 20. nóvember 2024 og frá 25. nóvember 2024 til 20. maí 2025. Í nótu frá 15. febrúar 2024 kemur fram að kærandi hafi greint frá því að glíma við [...]. Í nótu frá 15. ágúst 2024, kemur fram að kærandi hafi leitað heilbrigðisaðstoðar vegna [...]. Þá kemur fram að kærandi hafi greint frá höfuðverk og svima þegar hann snúi sér á hliðina og lítilli matarlyst en hann hafi misst verulega þyngd á einu ári. Í nótu frá 24. október 2024, kemur fram að kærandi hafi leitað aðstoðar vegna höfuðverkjar og hafi fengið sýklalyf vegna sýkingar í eyra. Þá kemur fram að kærandi hafi greint frá áhyggjum vegna þrýstings í brjóstkassa. Í nótu frá 20. nóvember 2024, kemur fram að kærandi hafi tekið þátt í hópumræðum með sálfræðingi. Gátlisti fyrir kvíða- og þunglyndiseinkenni hafi gefið til kynna alvarleg kvíða- og þunglyndiseinkenni hjá kæranda. Af samskiptaseðlunum má sjá að kærandi hafi sótt sálfræðiaðstoð að meðaltali einu sinni í mánuði, ýmist hóp- eða einstaklings meðferðir. Í nótu frá 24. febrúar 2025, kemur fram að kærandi hafi greint frá að hafa verið að glíma við höfuðverk allt sitt líf, en einnig finni hann fyrir köfnunartilfinningu og hita í líkamanum. Kærandi hafi ekki getað sofið sökum óreglu sambýlisfélaga sinna í Keflavík en hafi verið fluttur í annað úrræði í Reykjavík nýlega og sofi betur. Kærandi fái höfuðverk og ógleði þegar hann hugsi til dauða föður síns og eigi þá erfitt með svefn. Í nótu frá 5. apríl 2025, kemur fram að kærandi hafi farið til tannlæknis þar sem fjarlægð hafi verið tönn og höfuðverkurinn farið skánandi í kjölfarið. Í nótu frá 23. apríl 2025, kemur fram að kærandi sé með bókaðan tíma hjá tannlækni vegna verks í annarri tönn sem hafi slæm áhrif á höfuðverkinn en kærandi hafi byrjað að taka inn mígrenislyf sem hafi hjálpað til. Í nótu frá 20. maí 2025, kemur fram að kærandi hafi einangrað sig og átt erfitt með svefn sökum martraða um dauða föður síns. Fram kemur að kærandi kenni sjálfum sér um dauða föður síns. Höfuðverkirnir hafi farið skánandi en hann glími við [...] af einhverju tagi. Fram kemur að kærandi hafi ekki viljað bóka nýjan tíma í læknisskoðun en muni hafa samband þegar hann sé tilbúinn til þess.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki, þ. á m. sálfræðiþjónusta. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samhengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa gengið í háskóla og hefði meistaragráðu í verkfræði. Kærandi hafi sinnt starfi verkfræðings hjá sómölskum yfirvöldum í Mógadisjú. Kærandi hafi leigt íbúð með nokkrum samstarfsmönnum á [...] svæðinu í Mógadisjú. Kærandi greindi einnig frá því að tilheyra meirihluta ættbálki. Af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Þá hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé almennt heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 4. febrúar 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.
7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga
7.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.
7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu
Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.
8 Brottvísun og endurkomubann
8.1 Lagagrundvöllur
Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.
Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.
8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann
Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.
Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Kærandi kvaðst sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi í leit að betra og öruggara lífi. Kvaðst hann vera vel menntaður og vilja starfa hér á landi.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.
Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.
9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.
Þorsteinn Gunnarsson
Vera Dögg Guðmundsdóttir