12 júní 2025

/

Úrskurður nr. 460/2025


Hinn 12. júní 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 460/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24060017

Kæra [...] á ákvörðun Útlendingastofnunar

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 4. júní 2024 kærði einstaklingur er kveðst heita [...], vera fæddur [...] og vera ríkisborgari Tyrklands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 21. maí 2024, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Austurríki og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 27. nóvember 2023. Kvaðst kærandi hafa ferðast frá heimaríki sínu, Tyrklandi, með nafngreindum vini sínum sem einnig hafi sótt um alþjóðlega vernd hér á landi. Þeir hafi fyrst farið til Búlgaríu svo til Rúmeníu og Austurríkis, þaðan til Þýskalands, aftur til Austurríkis og loks endað á Íslandi með aðstoð smyglara. Kærandi hafi farið frá heimaríki um miðjan október 2023 með fjárhagslegri aðstoð frá fjölskyldu sinni. Kvaðst kærandi hafa sótt um vernd hér á landi vegna stjórnmálaskoðana sinna og þar sem fangelsisvist bíði hans í heimaríki. Kærandi hafi ekki verið í vinnu síðastliðin tvö ár, en áður hafi hann starfað í skipahöfn. Hann eigi foreldra og systkini í heimaríki. Þá kemur fram í lögregluskýrslu að kærandi hafi ekki verið með nein skilríki meðferðis við komuna til landsins, en að pappírar frá þýskum yfirvöldum hafi fundist í farangri hans. Á þeim sé sama nafn og kærandi hafi gefið upp við yfirvöld hér á landi.

Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 5. mars 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og kvað helstu ástæður flótta síns vera vegna handtökuskipunar sem yfirvöld hafi gefið út á hendur honum þar sem færa eigi hann fyrir dómara til þess að svara til saka. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í borginni Diyarbakir í Tyrklandi, en kvaðst hafa búið í [...] hverfinu í borginni Karamürsel, sem sé í Kocaeli héraði, áður en hann hafi yfirgefið landið. Kvaðst kærandi eiga stóra fjölskyldu í heimaríki, m.a. foreldra og systkini sem hann sé í miklum samskiptum við. Þau séu ekki í neinni hættu. Þá hafi kærandi starfað við viðgerðir á skipum. Aðspurður kvaðst kærandi ekki hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað í heimaríki, ekki sætt ákæru eða að mál hafi verið höfðað gegn honum. Þá kvaðst kærandi vera af þjóðarbroti Kúrda og því tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sínu. Hann aðhyllist engin trúarbrögð og kvaðst aðili að kúrdíska stjórnmálaflokknum Halkların Demokratik Partisi (HDP), en ekki vera skráður í flokkinn þar sem hann hafi óttast að vera settur í fangelsi. Af sömu ástæðu hafi hann heldur ekki tekið þátt í flokksstarfinu og kvaðst ekki virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Aðspurður kvaðst kærandi aldrei hafa átt tyrkneskt vegabréf og að hann geti ekki sótt um vegabréf þar sem hann yrði annars handtekinn. Í viðtali sínu greindi kærandi jafnframt frá því að hann sé eftirlýstur í heimaríki og búið sé að gefa út handtökuskipun á hendur honum fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum, síðast árið 2022. Í það skiptið hafi kærandi, ásamt fleirum, verið handtekinn af lögreglu og gist þrjá daga í fangaklefa. Lögreglan hafi tekið fast í kæranda, en hann kvaðst ekki hafa þurft að leita læknisaðstoðar. Handtökuskipun á hendur kæranda hafi síðan verið gefin út í október 2023 í þeim tilgangi að handtaka hann og færa fyrir dómara. Hann eigi að svara til saka þar sem hann sé sakaður um að vera hryðjuverkamaður. Fleiri einstaklingar séu í sömu stöðu og hann og þegar sé búið að dæma einhverja í fangelsi. Þá kvaðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum í a.m.k. fimm skipti. Eftir að hafa verið sleppt úr haldi lögreglu kvaðst kærandi ekki hafa getað gert mikið, hann hafi einungis farið til vinnu og heim. Þá hafi lögreglan oft stöðvað kæranda og beðið hann um að sýna skilríki. Aðspurður kvaðst kærandi ekki nota samfélagsmiðla og að hann hafi ekki þorað að tjá sig opinberlega. Hann vilji ekki tjá skoðanir sínar þar sem hann óttist að vera settur í fangelsi ef hann geri það. Kærandi kvað föður hans hafa sent hann frá Diyarbakir borg til Kocaeli héraðs til þess að forða honum frá veseni. Þar hafi lífið verið aðeins betra, en hann hafi síðan snúið aftur til Diyarbakir þar sem fjölskylda hans búi þar. Þá kvaðst kærandi hvorki geta leitað ásjár lögreglu né yfirvalda þar sem hann sé Kúrdi. Kærandi greindi enn fremur frá því að hann hafi hvorki orðið fyrir ofbeldi af hálfu lögreglu- né hermanna. Auk þess sé staða hans hvorki betri né verri en staða annarra Kúrda í Tyrklandi.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 4. júní 2024. Greinargerð barst kærunefnd 18. júní 2024, ásamt fylgiskjölum. Viðbótargögn bárust nefndinni 26. júní 2024. Með tölvubréfi, dags. 8. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum og gögnum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 13. maí 2025, bárust kærunefnd frekari upplýsingar frá kæranda, en engin gögn.

3 Greinargerð til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.

Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé fæddur og uppalinn í Tyrklandi. Hann hafi búið þar allt sitt líf áður en hann hafi lagt á flótta og sé tyrkneskur ríkisborgari. Þá hafi hann verið búsettur hjá foreldrum sínum í [...] hverfinu í borginni Karamürsel. Kærandi kveðst hafa flúið heimaríki sitt vegna ofsókna, ofbeldis og misbeitingar ríkisvaldsins. Hann telji sér ófært um að búa áfram í landinu vegna hættu á að verða sakfelldur fyrir hryðjuverk og sæta fangelsisvist. Handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur honum og hann eigi yfir höfði sér fangelsisdóm. Þá óttist kærandi að verða fyrir ofbeldi, ofsóknum og pyndingum vegna stjórnmálaskoðana sinna og þar sem hann tilheyri þjóðarbroti Kúrda. Kærandi kveðst hvorki geta leitað verndar eða aðstoðar lögreglu og annarra yfirvalda þar sem spilling meðal lögreglu- og embættismanna sé mikil. Kærandi bendir jafnframt á að það hafi verið tyrknesk yfirvöld sem hafi gefið út handtökuskipunina á hendur honum vegna ákæru gegn honum fyrir meint hryðjuverk. Eina sem hann hafi gert hafi verið að taka þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum.

Í greinargerð kæranda er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Tyrklandi mótmælt. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt.

Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á því að hann hafi flúið heimaríki sitt þar sem hann óttist um líf sitt og að verða fangelsaður þar í landi að ósekju. Hann geti ekki fært sér í nyt vernd stjórnvalda í heimaríki sínu þar sem þau séu ófær um að vernda íbúa landsins gegn ofsóknum, sbr. a til c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir varakröfu sína á því að hann eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Grundvallast krafan á hinu almenna ástandi sem ríki í landinu og þar sem heimasvæði kæranda sé ótryggt, m.a. vegna árása glæpagengja og handahófskenndra morða, spillingar innan lögreglunnar og fordóma gagnvart Kúrdum. Auk þess sem stjórnvöld í landinu séu vanmáttug við að tryggja borgurum vernd gegn árásum óopinberra aðila.

Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir kröfu sína á því að hann hafi ríka þörf fyrir vernd vegna erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki. Viðvarandi mannréttindabrot eigi sér stað í Tyrklandi og kærandi búi við hættu á ofsóknum og illri og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis.

Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að fellt verði úr gildi tveggja ára endurkomubann sem honum hafi verið ákveðið í hinni kærðu ákvörðun.

Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Kærandi gerir ýmsar athugasemdir við mat Útlendingastofnunar á trúverðugleika hans, stöðu í heimaríki og túlkun í viðtali hjá stofnuninni. Við meðferð málsins gafst kæranda kostur á að koma á framfæri öllum sínum málsástæðum í ítarlegu viðtali hjá Útlendingastofnun, með framlagningu gagna og greinargerð talsmanns. Í viðtali var honum auk þess leiðbeint um að hefði hann einhverjar athugasemdir varðandi túlkun viðtalsins hefði hann tækifæri til þess að koma að athugasemdum í viðtali. Ekki voru bókaðar athugasemdir varðandi túlkun eða skilning kæranda í viðtalinu, en ein bókun var gerð til nánari skýringar á aðstæðum kæranda í heimaríki. Jafnframt var endurrit viðtalsins sent talsmanni kæranda og gafst kæranda færi á að koma að athugasemdum vegna þess í greinargerð til Útlendingastofnunar. Slíkar athugasemdir voru ekki sendar til stofnunarinnar með greinargerð, en bárust seinna með tölvubréfi frá talsmanni. Þá lagði kærandi fram greinargerð með athugasemdum um framangreint og frekari gögn við meðferð málsins hjá kærunefnd. Í ljósi þess að kærandi hefur í tvígang komið að athugasemdum hefur nefndin heildaryfirlit yfir mál hans.

Kærunefnd hefur farið yfir hina kærðu ákvörðun og framkvæmt sjálfstætt mat á öllum þáttum málsins. Með vísan til alls framangreinds og þess að kærunefnd hefur komist að sömu niðurstöðu og Útlendingastofnun er ekki ástæða til að gera athugasemdir við hina kærðu ákvörðun eða ógilda hana á grundvelli málsmeðferðar annmarka.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni og ríkisfang

Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram neitt sem væri til þess fallið að sanna á honum deili. Leysti stofnunin því úr auðkenni kæranda á grundvelli trúverðugleikamats. Það var mat Útlendingastofnunar að engin ástæða væri til að draga í efa að hann sé tyrkneskur ríkisborgari. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé tyrkneskur ríkisborgari. Að öðru leyti er auðkenni kæranda óljóst.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Tyrklandi, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Turkey (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2022 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 15. maí 2023);
  • 2023 Report on International Religious Freedom: Turkey (U.S. Department of State, 26. júní 2024);
  • 2023 Türkiye Earthquake Disaster Brief (The International Federation of Red Cross and Crescent Societies (IFRC), 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Turkey 2022 (Amnesty International, 28. mars 2023);
  • Amnesty International Report 2023/24: Turkey 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
  • Amnesty International Report 2024/25: Turkey 2024 (Amnesty International, 29. apríl 2025);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Kurds (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Military service (UK Home Office, október 2023);
  • Country Policy and Information Note: Turkey: Peoples’ Democratic Party (HDP) (UK Home Office, mars 2020);
  • Country Policy and Information Note: Peoples’ Democratic Party/Green Left Party (HDP/YSP) (UK Home Office, október 2023);
  • DFAT Country Information Report – Turkey (Australian Government, Department of Foreign Affairs and Trade, 10. september 2020);
  • EASO Country of Origin Information Report – Country Focus Turkey (European Asylum Office (EASO), nóvember 2016);
  • Commission Staff Working Document – Turkey 2024 Report (European Commission (EC), 30. október 2024);
  • Freedom in the World 2023 – Turkey (Freedom House,2023);
  • Freedom in the World 2024 – Turkey (Freedom House, 2024);
  • Freedom in the World 2025 – Turkey (Freedom House, 2025);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 2. mars 2022);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 31. ágúst 2023);
  • General Country of Origin Information Report – Turkey (Utanríkisráðuneyti Hollands, 24. febrúar 2025);
  • Progress report on the preparation for EU membership – Türkiye 2023 Report (European Commission, 8. nóvember 2023);
  • Progress report on the preparation for EU membership - Türkiye 2024 Report (European Commission, 30. október 2024);
  • The World Factbook - Turkey (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 21. maí 2025);
  • Turkey’s Constitution of 1982 with Amendments through 2017 (https://www.constituteproject.org/constitution/Turkey_2017.pdf?lang=en, skoðað 17. maí 2025);
  • Turkey Healthcare Technologies Resource Guide (U.S. International Trade Administration. Sótt 17. maí 2025);
  • Turkey: Situation of Kurds, including in Istanbul, Ankara and Izmir; situation of supporters or perceived supporters of the People’s Democratic Party (Halklarin Demokratik Partisi, HDP); situation of Alevi Kurds (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. janúar 2020);
  • Türkiye – Country overview (European Observatory of Health Systems and Policies. Sótt 17. maí 2025);
  • World Report Turkey 2023. Events of 2022 (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report Turkey 2024. Events of 2023 (Human Rights Watch, 11. janúar 2024);
  • World Report Turkey 2025. Events of 2024 (Human Rights Watch, 16. janúar 2025) og
  • Kurds in Türkiye (Vefsíða Minority Rights Group International, síðast uppfært febrúar 2024).

Tyrkland er lýðveldi með rúmlega 83 milljónir íbúa. Ríkið er aðili að Evrópuráðinu og hefur fullgilt mannréttindasáttmála Evrópu. Ríkið er jafnframt aðili að m.a. flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna, alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, samningi Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu og alþjóðasamningi um afnám alls kynþáttamisréttis.

Í skýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um Tyrkland frá október 2023 kemur fram að landið sé og verði áfram lykilsamstarfsaðili Evrópusambandsins. Tyrkland hafi verið tengt Evrópusambandinu með samstarfssamningi síðan 1964 og hafi tollabandalag verið stofnað árið 1995. Tyrkland hafi stöðu umsóknarríkis að Evrópusambandinu frá desember 1999. Aðildarviðræður hafi hafist í október 2005 en séu í biðstöðu og hafi verið frá árinu 2018. Fram kemur að ekki hafi verið brugðist við alvarlegum áhyggjum Evrópusambandsins af áframhaldandi hnignun lýðræðislegra viðmiða, réttarríkisins, sjálfstæði dómstóla og virðingu fyrir grundvallarréttindum borgara landsins. Í maí 2023 fóru fram forseta- og þingkosningar í Tyrklandi og hélt stjórnarbandalagið meirihluta sínum á þinginu og var sitjandi forseti endurkjörinn. Forgangsverkefni nýrrar ríkisstjórnar séu meðal annars aðstoð og endurreisn eftir jarðskjálfta, fjármálastöðugleiki og endurskoðun stjórnarskrárinnar. Hinn 31. mars 2024 fóru fram sveitarstjórnarkosningar í landinu þar sem að stjórnarandstaðan, einkum CHP flokkurinn, vann mikinn sigur m.a. í höfuðborginni Istanbúl. Niðurstöður kosninganna voru einnig þær að CHP flokkurinn hafi sigrað aftur í borgunum Izmir, Adana og Antalya og haldið meirihluta þar.

Stjórnarskrá ríkisins gerir ráð fyrir einu þjóðerni fyrir alla ríkisborgara og viðurkennir ekki minnihlutahópa á grundvelli þjóðernis, svo sem Kúrda, eða kynþáttar að undanskildum Armenum, gyðingum og þeim sem tilheyri grísku rétttrúnaðarkirkjunni. Rétturinn til eigin tungumáls, menningarlegra og trúarlegra réttinda sé ekki tryggður öðrum hópum fyllilega samkvæmt lögum. Í skýrslu innanríkisráðuneytis Bretlands frá október 2023 um aðstæður Kúrda í Tyrklandi kemur fram að rúmlega 15 milljónir íbúa landsins séu af kúrdískum uppruna og tali kúrdískar mállýskur, eða um 20% tyrknesku þjóðarinnar. Kúrdíska sé annað útbreiddasta tungumálið í Tyrklandi, á eftir tyrknesku. Samkvæmt tyrkneskum lögum sé leyfilegt að opna einkareknar menntastofnanir þar sem kennsla fari fram á tungumálum og mállýskum sem íbúar noti í daglegu lífi. Sumir háskólar bjóði upp á valkvæða áfanga á kúrdísku og tveir háskólar séu með kúrdískar málvísindadeildir. Lögin heimili jafnframt að kúrdísk þorp og hverfi taki upp sín fyrri nöfn í stað þeirra tyrknesku og leyfi stjórnmálaflokkum og meðlimum þeirra að velja tungumál í stjórnmálabaráttu sinni og kynningarefni. Sá réttur hafi þó ekki alltaf verð virtur í framkvæmd. Þá banni lög notkun annarra tungumála en tyrknesku í opinberum stofnunum, hins vegar hafi Ayşegül Doğan, þingmaður DEM, fengið að hefja ræðu sína á kúrdísku í tyrkneska þinginu í desember 2024. Áður hefðu þingmenn verið stoppaðir ef þeir hefðu talað á öðru tungumáli en tyrknesku. Þrátt fyrir að kúrdíska sé formlega leyfð í einkareknum menntastofnunum og opinberri orðræðu hafi ríkisstjórnin ekki framlengt leyfi fyrir kennsluefni á kúrdísku í almenningsskólum. Þá kemur fram í skýrslunni að vísbendingar séu um áframhaldandi samfélagslega mismunun gagnvart Kúrdum og hafi fjölmargar fregnir borist af árásum sem beinst hafi að Kúrdum árið 2023. Í sumum tilfellum sé hugsanlegt að þessar árásir hafi ekki verið rannsakaðar á réttan hátt eða ekki verið viðurkenndar sem árásir byggðar á kynþáttahatri. Kúrdar sem búi í borgum í vesturhluta Tyrklands kunni að vera hræddir við að upplýsa um kúrdískt þjóðerni sitt eða tala kúrdísku á almannafæri, og atvinnumöguleikar geti verið takmarkaðir fyrir kúrdískt fólk, sérstaklega ef það sé virkt í kúrdískum stjórnmálum eða áberandi um stuðning sinn við málstað Kúrda. Hins vegar geti flestir Kúrdar sem ekki eru virkir í stjórnmálastarfi og þeir sem styðja AKP lifað án mismununar í borgum í vesturhluta Tyrklands. Nokkrar heimildir séu um að Kúrdum hafi verið meinaður aðgangur að leiguhúsnæði vegna þjóðernis síns. Þá geti Kúrdar sem ekki tali tyrknesku átt í erfiðleikum með að fá aðgang að læknisþjónustu.

Í mannréttindaskýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá mars 2023 um aðstæður í Tyrklandi kemur fram að átök stjórnvalda og stjórnmálaflokksins og skæruliðahreyfingarinnar Partiya Karkerên Kurdistanê (PKK) hafi leitt af sér umfangsmikið tjón í suðausturhluta Tyrklands. Stjórnvöld hafi af þeim sökum árið 2016 lagt hald á tilteknar eignir í sérstökum héruðum í suðausturhluta landsins. Hafi yfirvöld lýst því yfir að tilgangur yfirtökunnar væri að auðvelda uppbyggingu eftir átökin. Sumir íbúanna sem hafi orðið fyrir áhrifum yfirtökunnar hafi lagt fram kröfur fyrir dómstólum þar sem þeir hafi sóst eftir leyfi til að vera áfram á yfirteknu landsvæði og fá bætur. Hafi mörg þessara mála enn verið óafgreidd í árslok 2022. Í ákveðnum tilfellum hafi dómstólar dæmt íbúum bætur. Frá og með júní 2022 hafi 5,7 milljarðar líra verið greiddar út til umsækjenda. Í skýrslu er greint frá einu atviki um að sprengja hafi sprungið í Istanbúl þar sem sex einstaklingar hafi látið lífið og 81 einstaklingur slasast. Það hafi enginn hópur gefið sig fram um að bera ábyrgð á atvikinu en tyrknesk yfirvöld telji árásina hafa verið að undirlagi PKK. Yfirvöld hafi handtekið einstakling sem talinn hafi verið bera ábyrgð á sprengingunni og tólf aðra einstaklinga. Í kjölfar sprengingarinnar hafi tyrkneskar hersveitir sprengt um 500 skotmörk í Sýrlandi og Írak, og drepið að minnsta kosti tíu óbreytta borgara. Í öðrum heimildum, t.d. skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2022, kemur fram að ofbeldisverk annara aðila, svo sem PKK, hafi ekki átt sér stað í borgum í Tyrklandi heldur eigi sér helst stað í dreifbýli í suðausturhluta landsins.

Í skýrslu hollenska utanríkisráðuneytisins frá 2025 kemur fram að Halkların Demokratik Partisi (e. Democratic Peoples’ Party, HDP) hafi verið framsækinn vinstri sinnaður stjórnarandstöðuflokkur sem hafi m.a. barist fyrir stjórnmála- og menningarlegum réttindum Kúrda í Tyrklandi. Skömmu fyrir þingkosningarnar í maí 2023 hafi flokkurinn verið á barmi þess að vera bannaður vegna ásakana um að hann ógni einingu tyrknesku þjóðarinnar og að hann hafi unnið með PKK. Hafi því verið ákveðið að halda áfram starfsemi flokksins undir merkjum annars stjórnarandstöðuflokks að nafni Yeşil Sol Parti (e. Green Left Party, YSP). Í október 2023 hafi YSP ákveðið að breyta nafni flokksins í Halkların Eşitlik ve Demokrasi Partisi (e. Peoples’ Equality and Democracy Party, HEDEP), en í nóvember s.á. komst hæstiréttur Tyrklands að þeirri niðurstöðu að skammstöfunin „HEDEP“ væri of lík „HADEP“, sem hafi verið skammstöfun kúrdísks stjórnmálaflokks sem hafi verið virkur á árunum 1994 til 2003. Um miðjan desember hafi YSP þá ákveðið að halda nýja nafni flokksins en nota skammstöfunina „DEM“, sem vísi til hugtaksins „lýðræði“ (e. democracy), sem sé hluti af nafni flokksins. Í sveitarstjórnarkosningunum í mars 2024 fékk DEM 5,7% atkvæða. Líkt og HDP og YSP hafi DEM sérstaklega fengið stuðning í suðausturhluta landsins þar sem margir Kúrdar búi. Hafi DEM verið stærsti flokkurinn í alls tíu héruðum af 81 héraði. Aðilar að flokknum og stuðningsmenn hans séu að mestu leyti Kúrdar, en flokkurinn leggi einnig áherslu á jafnrétti kynjanna, umhverfismál, réttindi verkafólks og annarra minnihlutahópa. Þá hafi flokkurinn staðið að baki fjölda mótmæla árið 2024 og a.m.k. í tvö skipti fyrstu sex vikur ársins 2025. Áætlað sé að sjö til átta þúsund meðlimir DEM séu í fangelsi eða um helmingur skráðra flokksmeðlima. Þeir fari jafnóðum í og úr fangelsi. Mótmælendur, sem séu ekki skráðir flokksmeðlimir DEM, hafi einnig staðið frammi fyrir handtökum og ákærum fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum í nóvember 2024. Samkvæmt eldri skýrslum hollenska utanríkisráðuneytisins hafi um fimm þúsund flokksmeðlimir HDP verið í fangelsi, en erfitt hafi verið að halda utan um nákvæman fjölda þar sem yfirvöld hafi stöðugt verið að handtaka og láta meðlimi flokksins lausa. Yfirvöld hafi sett flokksmeðlimi í gæsluvarðhald, sleppt þeim tímabundið og síðar sakfellt þá.

Á vefsíðu International Trade Administration kemur fram að heilbrigðisráðuneytið í Tyrklandi setji stefnu í heilbrigðismálum og sé stærsti veitandi heilbrigðisþjónustu í landinu. Það séu um 880 ríkisreknir spítalar í landinu, 570 einkareknir spítalar og 68 háskólasjúkrahús. Heildarfjöldi sjúkrarúma séu um 226.000. Tyrkland eyði um 4,5% af vergri landsframleiðslu í heilbrigðismál og hafi það hlutfall margfaldast síðan árið 2002 þegar að átak hafi verið gert í heilbrigðismálum í Tyrklandi. Tyrkland hafi sett sér framsækna stefnu í rafrænni heilbrigðisþjónustu. Allar upplýsingar um læknisheimsóknir, rannsóknir, meðferðir og lyfjaávísanir séu skráðar í rafræna sjúkraskrá. Lyfseðlar séu gefnir út rafrænt og þeim lyfjum sem sé ávísað fáist afgreidd í apótekum samkvæmt rafrænum lyfseðlum. Þá hafi almenningur aðgang að sjúkraskrá sinni í gegnum snjallsímaforrit. Á vefsíðu European Observatory of Health Systems and Policies kemur fram að í Tyrklandi sé almannatryggingakerfi og að allir íbúar sem séu skráðir hjá almannatryggingum (e. Social Security Institution) fái fría heilbrigðisþjónustu. Almannatryggingar séu fjármagnaðar með framlagi atvinnurekanda og starfsmanna en þeir sem hafi lága innkomu séu undanþegnir greiðslu. Svo til nær öll heilbrigðisþjónusta fellur undir almannatryggingar nema lýtalækningar og tannlækningar, og tæknifrjóvgun sé aðeins greidd að hluta. Vegna skorts á læknum á landsvísu hafi sífellt fleiri keypt viðbótarheilbrigðistryggingu til að greiða fyrir meðferð á einkareknum sjúkrahúsum.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hann óttist um líf sitt í heimaríki og að verða fangelsaður þar í landi að ósekju. Þá byggir hann umsókn sína einnig á því að hann eigi á hættu ofsóknir og mismunun í heimaríki vegna kúrdísks uppruna síns.

Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa flúið heimaríki sitt þar sem yfirvöld hafi gefið út handtökuskipun á hendur honum í þeim tilgangi að færa hann fyrir dómara til þess að birta honum ákæru og láta hann svara til saka. Kærandi kvaðst vera af þjóðarbroti Kúrda og tilheyra minnihlutahópi í heimaríki sínu. Hann kvaðst aðili að kúrdíska stjórnmálaflokknum HDP, en væri ekki skráður í flokkinn þar sem hann óttist að vera settur í fangelsi. Af sömu ástæðu hafi hann heldur ekki tekið þátt í flokksstarfinu og kvaðst ekki virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Aðspurður kvaðst kærandi aldrei hafa átt tyrkneskt vegabréf og að hann geti ekki sótt um vegabréf þar sem hann yrði annars handtekinn. Í viðtali sínu greindi kærandi jafnframt frá því að hann sé eftirlýstur í heimaríki og búið sé að gefa út handtökuskipun á hendur honum fyrir að hafa tekið þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum, síðast árið 2022. Í það skiptið hafi kærandi, ásamt fleirum, verið handtekinn af lögreglu og gist þrjá daga í fangaklefa. Handtökuskipun á hendur kæranda hafi síðan verið gefin út í október 2023 í þeim tilgangi að handtaka hann og færa fyrir dómara. Hann eigi að svara til saka þar sem hann sé sakaður um að vera hryðjuverkamaður. Fleiri einstaklingar séu í sömu stöðu og hann og þegar sé búið að dæma einhverja í fangelsi. Þá kvaðst kærandi hafa tekið þátt í mótmælum í a.m.k. fimm skipti. Eftir að hafa verið sleppt úr haldi lögreglu kvaðst kærandi ekki hafa getað gert mikið, hann hafi einungis farið til vinnu og heim. Þá hafi lögreglan oft stöðvað kæranda og beðið hann um að sýna skilríki. Aðspurður kvaðst kærandi ekki nota samfélagsmiðla og að hann hafi ekki þorað að tjá sig opinberlega. Hann vilji ekki tjá skoðanir sínar þar sem hann óttist að vera settur í fangelsi ef hann geri það. Þá kvaðst kærandi hvorki getað leitað ásjár lögreglu né yfirvalda þar sem hann sé Kúrdi. Hann hafi þó hvorki orðið fyrir ofbeldi af hálfu lögreglu né hermanna. Auk þess sé staða hans hvorki betri né verri en staða annarra Kúrda í Tyrklandi. Þá sé fjölskylda hans í heimaríki ekki í neinni hættu.

Með tölvubréfi, dags. 8. maí 2025, óskaði kærunefnd eftir ítarlegri upplýsingum um frásögn kæranda, einkum hvað varðar það hvort hann hafi einhvern tímann átt vegabréf, tvær handtökuskipanir á hendur honum, meðferð máls hans í heimaríki og framlögð gögn. Í svörum kæranda, sem bárust kærunefnd 13. maí 2025, greindi kærandi m.a. frá því að handtökuskipun hafi fyrst verið gefin út á hendur honum 10. október 2023, en að hann hafi yfirgefið Tyrkland áður, eða um mánaðarmótin september október s.á. Hann hafi farið yfir landamæri Tyrklands án vegabréfs og yfirgefið landið löglega þar sem þá hafi ekki verið búið að gefa út handtökuskipunina. Þá greindi kærandi frá því að meint brot hans hafi átt sér stað 11. júní 2022 og að hann hafi farið í skýrslutöku eftir að hafa verið upphaflega handtekinn. Hann hafi ekki verið kallaður til frekari yfirheyrslu. Telji hann líklegt að yfirvöld hafi haldið áfram rannsókn málsins þar til handtökuskipun hafi verið gefin út í október 2023. Hinn 15. maí 2024 hafi yfirvöld gefið út aðra handtökuskipun á hendur kæranda vegna gæsluvarðhaldsúrskurðar. Kvað kærandi að öll málsmeðferð hafi farið fram að honum fjarstöddum. Þá kemur fram í svörum kæranda að allar upplýsingar sem hann hafi undir höndum um mál hans í heimaríki hafi komið frá fjölskyldu hans sem sé í samskiptum við lögmann. Kærandi sjálfur njóti ekki aðstoðar lögmanns. Auk framangreinds greindi kærandi frá því að til þess að geta fengið aðgang að e-Devlet aðganginum sínum eða upplýsingakerfi dómstóla (UYAP) þurfi hann að sækja um það hjá tyrkneskri ræðismannsskrifstofu með persónuskilríkjum. Það sé ekki mögulegt fyrir hann að gera eins og er og þess vegna geti hann ekki innskráð sig inn á e-Devlet aðganginn sinn.

Við meðferð máls síns hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram afrit af handtökuskipun, dags. 10. október 2023, og frumrit af niðurstöðu máls hans frá skrifstofu innflytjendamála og hælisleitenda Austurríkis. Þá lagði kærandi fram fyrir kærunefnd afrit af annarri handtökuskipun, dags. 15. maí 2024, og afrit af dómi frá dómstól í Tyrklandi vegna máls sem hann kveður sambærilegt máli sínu.

Í umfjöllun í handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda, og séu skoðanirnar stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Í ljósi orðalags ákvæðisins, og með hliðsjón af því sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna, verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í afriti af handtökuskipun, dags. 10. október 2023, er kæranda gefið að sök að vera stuðningsmaður HDP og meðlimur í hryðjuverkasamtökunum PKK og PYD. Hafi hann átt að hafa aðstoðað við, hvatt til og tekið virkan þátt í óeirðum á vegum PKK og PYD, útvegað samtökunum matvæli og veitt þeim upplýsingar, tekið þátt í óeirðum í nafni einangrunarstefnu HDP flokksins, dreift bæklingum við kúrdíska nýársfögnuðinn Nowruz og tekið þátt í hátíðarhöldunum og barist gegn öryggissveitum. Einnig á hann að hafa stutt við breytingu á stjórnmálalegri, lagalegri og félagslegri skipan, tekið þátt í að raska stjórnskipan og veikja ríkisvaldið og deilt færslum á samfélagsmiðlum sem sýni að hann sé stuðningsmaður PKK, PYD og HDP. Þá kemur fram í framangreindri handtökuskipun að sekt kæranda sé sönnuð miðað við fyrirliggjandi sönnunargögn. Í afriti af handtökuskipun, dags. 15. maí 2024, kemur fram að rannsókn hafi verið gerð á kæranda fyrir brot á allsherjarreglu og stjórnskipan ríkisins með því að vera meðlimur í hryðjuverkasamtökunum PKK og PYD. Farið sé fram á að kærandi verði dæmdur til fleiri en eins lífstíðardóms. Reynt hafi verið að birta kæranda ákæruna en hann hafi ekki fundist. Sé litið svo á að honum hafi tekist að flýja með aðstoð framangreindra samtaka. Kærandi hefur aðeins lagt fram afrit framangreindra gagna sem ekki er hægt að staðreyna og dregur það úr sönnunargildi gagnanna. Auk þess, líkt og að framan er rakið hefur kærandi ekki lagt fram neitt sem er til þess fallið að sanna á honum deili, og því getur kærunefnd ekki gengið úr skugga um að framangreindar handtökuskipanir eigi við um kæranda. Þrátt fyrir áskoranir kærunefndar til kæranda um að leggja fram auðkennisgögn og að greina frá því hvernig hann hafi ferðast til Evrópu án vegbréfs hefur hann ekki lagt fram slík gögn. Kærandi greindi þó frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að hafa oft verið stöðvaður af lögreglu í heimaríki og þurft að sýna skilríki sín og því ljóst að kærandi hafi átt slík gögn. Þrátt fyrir áskorun kærunefndar hefur kærandi ekki lagt fram frekari gögn til stuðnings máli sínu, svo sem ákæru eða dómsniðurstöðu. Þá svaraði kærandi því ekki hvort búið væri að dæma í máli hans í heimaríki og var tvísaga með það hvort hann nyti aðstoðar löglærðs einstaklings í heimaríki. Dregur framangreint úr heildar trúverðugleika frásagnar kæranda.

Þá vekur athygli að kærandi tók sérstaklega fram við málsmeðferð sína hjá Útlendingastofnun að hann hafi ekki verið skráður í HDP flokkinn þar sem hann hafi óttast að vera settur í fangelsi. Af sömu ástæðu hafi hann heldur ekki tekið þátt í flokksstarfinu og eða hafa verið virkur í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki. Hins vegar kvaðst hann vera aðili að flokknum. Kærandi greindi jafnframt frá því að hann notaði ekki samfélagsmiðla og að hann hafi ekki þorað að tjá sig opinberlega. Hann vilji ekki tjá skoðanir sínar þar sem hann óttist að vera settur í fangelsi ef hann geri það. Þá hafi hann tekið þátt í a.m.k. fimm mótmælum og fjölskylda hans sé ekki í neinni hættu í heimaríki. Verður því hvorki lagt til grundvallar að kærandi hafi verið virkur þátttakandi né aðili að HDP flokknum. Aftur á móti verður lagt til grundvallar að kærandi hafi tekið þátt í fimm mótmælum. Þrátt fyrir að ekki sé hægt í ljósi framlagðra gagna og heimilda um stjórnarhætti í Tyrklandi að útiloka að kærandi hafi verið handtekinn í kjölfar mótmæla 11. júní 2022 og gist þrjá daga í fangaklefa, ásamt fleiri einstaklingum, verður ekki lagt til grundvallar að hann hafi verið ákærður vegna þeirrar þátttöku eða að gefin hafi verið út handtökuskipun á hendur honum.

Verður ekki lagt til grundvallar að kærandi sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda eða í aukinni hættu að sæta ofsóknum af hálfu stjórnvalda umfram aðra einstaklinga í heimaríki sem einnig hafa tekið þátt í mótmælum. Lítur kærunefnd við það mat til þess að heimildir beri með sér að fjöldi mótmæla eigi sér stað í Tyrklandi á hverju ári þar sem algengt sé að lögreglan handtaki fjölda fólks. Hins vegar séu það aðallega skráðir flokksmeðlimir DEM (áður HDP), sem séu skotspónn stjórnvalda, og þá helst forsvarsmenn flokksins, frambjóðendur til þings, lögmenn, blaðamenn, mannréttindasinnar og leikarar og söngvarar. Hefur kærandi því ekki leitt líkum að því að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna, sbr. b-lið 2.mgr. og e-lið 3.mgr. ákvæðisins.

Kærunefnd telur ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi sé af kúrdískum uppruna. Kærandi greindi frá því að lögreglan hafi oft stöðvað hann og beðið hann um að sýna skilríki þar sem hann sé Kúrdi. Þau gögn sem kærunefnd hefur kynnt sér gefa til kynna að Kúrdar kunni að eiga á hættu einhverja mismunun í heimaríki kæranda af þeirri ástæðu að þeir tilheyri þjóðarbrotinu. Ekkert í þeim gögnum gefur þó til kynna að sú mismunun nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Líkt og áður hefur komið fram eru refsingar lagðar við glæpum sem grundvallast á hatri gegn tilteknu þjóðerni. Þá geti einstaklingar er verði fyrir áreiti af hálfu aðila ótengdum ríkinu leitað til m.a. umboðsmanns og stofnunar mannréttinda og jafnréttismála (NHREI). Þó hlutleysi þeirra og skilvirkni hafi sætt gagnrýni verður ekki fallist á að Kúrdar sæti kerfisbundinni mismunun þar í landi eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1.mgr. 37. gr. laga um útlendinga eingöngu á grundvelli þjóðarbrots síns. Kærandi greindi ekki frá því að hafa sætt mismunun eða öðru áreiti á grundvelli þess að hann væri Kúrdi.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærandi byggir á því að hann eigi á hættu að sæta pyndingum eða annarri ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu verði honum gert að snúa aftur til Tyrklands með vísan til almenns ástands í landinu.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í [...] hverfinu í borginni Karamürsel, sem er umdæmi í Kocaeli héraði í Tyrklandi, þegar hann hafi yfirgefið heimaríki, og að hann eigi rætur að rekja til borgarinnar Diyarbakir í Diyarbakir héraði. Með vísan til framangreindra heimilda nær ástandið á heimasvæðum kæranda ekki því alvarleikastigi að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Að teknu tilliti til gagna málsins og heimilda bendir ekkert til þess að kærandi sé í raunverulegri hættu, á heimasvæðum sínum, á að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu verði hann sendur aftur til Tyrklands.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kæranda og aðstæður í heimaríki hans er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins bendi ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði kæranda í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Kærandi kveður sig vera við góða líkamlega heilsu, en hvað andlegu heilsu hans varðar sé erfitt fyrir hann að vera langt frá fjölskyldu sinni. Engin heilsufarsgögn liggja fyrir í málinu. Af framburði kæranda verður ekki séð að hann glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð sé að muni valda honum alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hann geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hann verði honum gert að snúa aftur til heimaríkis. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hann hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Kærandi hefur greint frá því að eiga fjölskyldu í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að kærandi hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærandi er ungur að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að hann sé heilsuhraustur og vinnufær. Eru félagslegar aðstæður kæranda við komu til heimaríkis því ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að kærandi hafi ríka þörf á vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 27. nóvember 2023. Frá því kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi þar til úrskurður þessi er kveðinn upp, 12. júní 2025, eru liðnir rúmlega 18 mánuðir. Kærandi telst því ekki hafa fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita honum dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.

Eins og að framan greinir hefur kærunefnd komist að þeirri niðurstöðu að auðkenni kæranda sé ekki upplýst. Leikur því vafi á hver kærandi er, sbr. b-liður 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi hefur ekki lagt fram skilríki eða önnur gögn til að staðfesta auðkenni sitt við málsmeðferð stjórnvalda og þá hefur kærandi ekki fært fram skýringar á því hvers vegna hann hafi ekki gert það. Með vísan til framangreinds trúverðugleikamats og skorts á samstarfsvilja kæranda eru skilyrði d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga um að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls ekki heldur uppfyllt.

Skilyrði b- og d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er samkvæmt framansögðu ekki uppfyllt. Þar sem kærandi uppfyllir ekki framangreind skilyrði verður honum ekki veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá verður ekki talið að ástæða sé til þess að falla frá framangreindum skilyrðum, sbr. 4. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kæranda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kæranda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kæranda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun. Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins, sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsókn kæranda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hefur kærandi því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kæranda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa kæranda úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

Kæranda var í viðtali hjá Útlendingastofnun, dags. 5. mars 2024, leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa honum frá Íslandi og ákvarða endurkomubann hingað til lands. Var kæranda gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. Í svörum kæranda kom fram að hann hafi ekki tengsl við Ísland eða önnur ríki innan Schengen-svæðisins. Þá kvað kærandi brottvísun og endurkomubann ósanngjarnar ráðstafanir gagnvart sér og kvaðst hvorki vilja snúa aftur til heimaríkis né fara í fangelsi þar sem hann sé of ungur til þess.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærandi gaf um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð hans eða nánustu aðstandenda hans, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærandi getur komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi hann Ísland innan þess frest sem honum er gefinn.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda brottvísað, ákvarðað endurkomubann til tveggja ára, veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kæranda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kæranda fellur niður yfirgefi kærandi landið sjálfviljugur innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.

Athygli kæranda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest. Endurkomubann kæranda verður fellt úr gildi fari hann frá Íslandi innan 15 daga.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed. If the appellant leaves Iceland voluntarily within 15 days, the re-entry ban will be revoked.


Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir