23 júní 2025

/

Mál nr. 131/2024 - Úrskurður

KÆRUNEFND HÚSAMÁLA

ÚRSKURÐUR

uppkveðinn 23. júní 2025

í máli nr. 131/2024

 

A

gegn

B og C

 

Kærunefndina skipa í þessu máli Auður Björg Jónsdóttir lögmaður, Víðir Smári Petersen prófessor og Eyþór Rafn Þórhallsson verkfræðingur. 

Aðilar málsins eru:

Sóknaraðili: A.

Varnaraðili: B og C.

Krafa sóknaraðila er að viðurkennt verði að varnaraðilum beri að greiða 79.660 kr. vegna viðgerða á borðplötum í eldhúsi og 51.070 kr. vegna flutningsþrifa.

Varnaraðilar krefjast þess að krafa sóknaraðila vegna borðplötunnar verði lækkuð. Varnaraðilar fallast á kröfu sóknaraðila vegna flutningsþrifa.

Eftirtalin gögn voru lögð fyrir kærunefnd:

Kæra sóknaraðila, dags. 4. desember 2024.

Greinargerð varnaraðila, dags.

Athugasemdir sóknaraðila, dags. 1. janúar 2025.

Athugasemdir varnaraðila, dags. 2. og 9. janúar 2025.

Viðbótarathugasemdir sóknaraðila, dags. 14. janúar 2025.

Viðbótarathugasemdir varnaraðila, dags. 20. janúar 2025.

Skýringar sóknaraðila, dags. 4. júní 2025.

I. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Aðilar gerðu tímabundinn leigusamning frá 1. október 2023 til 1. október 2024 um leigu varnaraðila á íbúð sóknaraðila að D. Ágreiningur er um fjárhæð kröfu sóknaraðila vegna viðgerða á borðplötum í eldhúsi.

II. Sjónarmið sóknaraðila

Sóknaraðili kveður að við sameiginlega úttekt hafi komið í ljós að miklar skemmdir hafi verið á þremur viðarplötum í eldhúsi. Rætt hafi verið um að það þyrfti að laga þessar plötur. Eldhúsborð úr viði hafi verið með talsvert af skemmdum. Svartir hringir og margar dökkar rákir af djúpum skemmdum hafi verið á plötunum. Það hafi tekið talsverða vinnu að laga þær þar sem það hafi þurft að fara margar umferðir með pússvél og einnig hafi þurft að bera nokkrar umferðir af viðarolíu á þær. Varnaraðilar hafi ekki fallist á fjárhæð kröfu sóknaraðila og þeir því hafnað kröfunni í gegnum Leiguskjól ehf.

III. Sjónarmið varnaraðila

Varnaraðilar kveðast hafa boðist til að gera sjálfir lagfæringar sem sóknaraðili hafi neitað. Hún hafi sagt að faðir hennar kæmi til með að sjá um þær og varnaraðilar þá boðist til að greiða efniskostnað. Aðilar hafi ekki rætt frekar um kostnaðinn. Það hafi verið skilningur þeirra að faðir sóknaraðila myndi annast lagfæringar án endurgjalds. Um hafi verið að ræða vatnsskemmdir sem vanalega komi ekki fram á viðarplötum hafi viðurinn verið varinn frá upphafi og viðhaldi sinnt. Allt að einu geti það ekki verið á ábyrgð varnaraðila að greiða kostnað vegna viðgerða á skemmdum sem hafi komið til eftir að vökvi hafi skvest á borðplötu í eldhúsi, þar sem gert sé ráð fyrir matseld, bakstri og öðrum matartengdum athöfnum, svo sem uppvaski og þurrkun. Það að hafa viðarplötur í kringum eldhúsvaskinn sé hönnunargalli og eigi kostnaður vegna skemmdanna ekki að falla á varnaraðila.

Þar sem fyrirliggjandi reikningur hafi verið gefinn út af ættingja sóknaraðila fari varnaraðilar fram á að kærunefndin ákveði meðalkostnað vegna slíkra skemmda og taki mið af þeirri vinnu sem hafi í raun verið þörf á. Einnig að horft verði til þess að plöturnar hafi ekki verið varðar við upphaf leigutíma. Sóknaraðili hafi sagt að þetta hafi einnig verið vandamál hjá henni. Hafi það verið svo hafi hún átt að sjá til þess að verja plöturnar. Hún hafi ekki látið varnaraðila vita af þessu áður en þeir hafi flutt inn.

Einnig geri varnaraðilar athugasemdir við þær myndir sem varnaraðilar hafi lagt fram sem og gæði þeirra. Við upphaf leigutíma hafi blettir þegar verið til staðar.

IV. Athugasemdir sóknaraðila

Í athugasemdum sóknaraðila segir að hún hafi aldrei boðist til að gera við skemmdir á eldhúsinnréttingu án kostnaðar. Í sameiginlegri úttekt hafi komið fram að það þyrfti að laga téðar skemmdir og varnaraðilar verið upplýstir um það. Þannig hafi þeir haft tækifæri til að gera lagfæringar sem þeir hafi ekki gert. Engar skemmdir hafi verið til staðar við upphaf leigutíma.

V. Athugasemdir varnaraðila

Í athugasemdum varnaraðila segir að sameiginleg úttekt hafi átt sér stað þar sem sóknaraðili og annar varnaraðila hafi farið yfir íbúðina. Á meðan úttektinni hafi staðið hafi þau rætt um viðgerðir en ekki endurnýjun á borðplötunum. Í þeim samræðum hafi varnaraðili upplýst að þeir ættu í fjárhagsvanda þar sem annar þeirra hafi óvænt misst starfið sitt og þeir hafi því þurft að flytja til baka til E. Hann hafi boðið að þeir gætu séð um viðgerðirnar sjálfir, sem þeir hafi verið tilbúnir að gera til að spara fjármuni. Sóknaraðili hafi sagt að þetta hefði komið fyrir áður, faðir hennar hefði áður lagfært sambærilegar skemmdir, og að hann gæti mögulega séð um lagfæringar fyrir þá. Varnaraðili hafi fallist á að það væri góð lausn og sagðist reiðubúinn að greiða efniskostnaðinn. Það sé rétt að sóknaraðili hafi ekki boðist til að gera þetta endurgjaldslaust. Engu að síður, með hliðsjón af innihaldi samtalsins, hafi það verið gefið sterklega til kynna að kostnaðurinn yrði ekki mikill, þar sem faðir hennar kæmi til með að sjá um þetta en ekki fagaðili. Þess vegna sé jafnframt ósanngjarnt að segja að varnaraðilar hefðu getað lagfært þetta sjálfir hafi þeir viljað gera það þegar þeim hafi verið talin trú um að kostnaðurinn yrði ekki mikill. Úttektin hafi átt sér stað 19. september 2024. Þann 25. sama mánaðar hafi varnaraðili spurt um stöðuna og hún sagt næsta dag að hún hafi ekki vitað hvað faðir hennar kæmi til með að þurfa. Það megi velta því upp hversu miklar viðgerðir hafi þurft að gera og hversu mikill kostnaðurinn hafi þurft að vera. Gerðar séu athugasemdir við fjárhæð kröfunnar en varnaraðila séu ekki með á hreinu hvað hafi verið gert við, hvernig það hafi verið gert og á hvaða grundvelli. Þeir hafi óskað eftir þessum upplýsingum frá sóknaraðila 1. nóvember 2024 en hafi ekki enn fengið fullnægjandi svar. Eigi þeir að greiða kostnað vegna þessa, eigi þeir rétt á að frekari upplýsingum og útskýringum á verkinu. Þess utan sé ítrekað að varnaraðilar hafi ekki verið varaðir við að viðurinn þyldi ekki vatn og að skemmdirnar séu frekar að rekja til þess að hann hafi ekki verið varinn með fullnægjandi hætti.

VI. Niðurstaða            

Krafa sóknaraðila vegna þrifa að fjárhæð 51.070 kr. er ágreiningslaus og er því fallist á hana.

Til tryggingar á réttum efndum á leigusamningi aðila lögðu varnaraðilar fram tryggingu að fjárhæð 700.000 kr. sem þeir keyptu hjá Leiguskjóli ehf. Leigutíma lauk 1. október 2024 og gerði sóknaraðili kröfu í tryggingu varnaraðila með tölvupósti til Leiguskjóls ehf. 29. október 2024, sem varnaraðilar höfnuðu 11. nóvember 2024. Ráða má af málatilbúnaði varnaraðila að sóknaraðili hafi þegar gert áskilnað um bótakröfu sína vegna borðplötunnar við sameiginlega úttekt aðila við lok leigutíma.

Krafa sóknaraðila vegna viðgerða á borðplötu nemur 79.660 kr. Af málatilbúnaði varnaraðila má ráða að þeir hafi fallist á að skemmdir hafi komið til á leigutíma, enda hafi þeir boðist til að gera viðgerðir en faðir sóknaraðili tekið verkið að sér. Þrátt fyrir að varnaraðilar beri fyrir sig í greinargerð sinni að skemmdirnar sé að rekja til þess að viðeigandi vörn hafi ekki verið á borðplötunni verður að líta svo á að viðurkenning þeirra liggur fyrir því að skemmdir hafi komið til á leigutíma sem þeir töldu sig bera ábyrgð á, sbr. framangreint, sem og að þeir gera kröfu um lækkun á fjárhæð kröfunnar en ekki að henni verði hafnað. Þá sýna myndir að dökkar rákir og hringir eru á borðplötunni. Nefndin telur að ekkert hafi komið fram í málinu sem sýni að krafa sóknaraðila sé úr hófi, hún byggir á reikningi viðgerðaraðila og verður því á hana fallist.   

Í 7. mgr. 85. gr. húsaleigulaga er kveðið á um að úrskurðir kærunefndar húsamála séu bindandi gagnvart málsaðilum og sæti ekki kæru til æðra stjórnvalds. Málsaðilum sé heimilt að bera úrskurði nefndarinnar undir dómstóla innan átta vikna frá því að úrskurður sé kveðinn upp og frestast þá réttaráhrif hans uns dómur fellur. Samkvæmt 9. mgr. 85. gr. laganna eru úrskurðir kærunefndar aðfararhæfir án undangengins dóms.

 

ÚRSKURÐARORÐ:

Sóknaraðila er heimilt að fá greiddar 130.730 kr. úr tryggingu varnaraðila.

 

Reykjavík, 23. júní 2025

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Víðir Smári Petersen                                      Eyþór Rafn Þórhallsson