26 júní 2025

/

Mál nr. 185/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 185/2025

Fimmtudaginn 26. júní 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 8. október 2024 og var umsóknin samþykkt 28. október 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju hjá Vinnumálastofnun með tilliti til nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 4. mars 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. mars 2025. Með bréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 13. maí 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 13. maí 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. maí 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því í kæru að hann leiti eftir aðstoð vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar sem hafi haft veruleg áhrif á getu hans til að afla sér atvinnu og sjá fjárhagslega fyrir sér. Hann standi frammi fyrir verulegum áskorunum vegna skorts á nauðsynlegum skilríkjum, sérstaklega vegabréfi og persónuskilríkjum.

Þann 31. janúar 2025 hafi kærandi misst af viðtali hjá B sem hann hafi talið vera gott tækifæri. Hann hafi hins vegar mætt á fund 18. mars 2025 sem hafi átt að undirbúa hann frekar fyrir framtíðar viðtöl. Þrátt fyrir þetta hafi vandamál hans vegna skorts á persónuskilríkjum verið óleyst. Án gildra skilríkja eða vegabréfs eigi kærandi erfitt með að afla C sakaskrár sem sé nauðsynlegt vegna atvinnuleitar.

Sá fjárhagslegi stuðningur sem kærandi þiggi sé ekki nægilegur til að tryggja grunnþarfir hans, s.s. leigu og fæði, hvað þá til að standa undir ferðakostnaði til C til að sækja nauðsynleg skjöl. Þessi staða hafi áhrif á getu hans til að finna sér vinnu og fjárhagslegt öryggi. Kærandi sé staðráðinn í að geta séð fyrir sjálfum sér og leggja til samfélagsins í gegnum atvinnu. Ef hann geti leyst vandamál varðandi skilríki sín fyrir aðra viku apríl sé hann viss um að hann geti aflað sér vinnu og þurfi þá ekki að reiða sig á bætur. Fjölskylda hans treysti á hann en hann geti ekki leitað til þeirra. Kærandi treysti á úrskurðarnefndina við að aðstoða sig í þessum aðstæðum. Hann óski eftir endurskoðun á máli sínu og þeim stuðningi sem unnt sé að fá við að leysa málið. Aðstoð við að afla skilríkja myndi leiða til þess að kærandi geti aflað sér atvinnu og lagt sitt af mörkum til samfélagsins.

Í athugasemdum kæranda, dags. 13. maí 2025, kemur fram að kærandi leggi áherslu á að hann hafi ekki hafnað þátttöku í umræddum fundi heldur hafi hann verið í atvinnuviðtali hjá B á sama tíma. Öll hans athygli hafi farið í að finna vinnu. Kærandi vilji mun fremur vinna en að vera á atvinnuleysisbótum og þessi staða hafi verið honum mjög erfið. Þetta sé aðeins í annað skipti sem kærandi sæki um atvinnuleysisbætur á þeim fjórum árum sem hann hafi búið og starfað á Íslandi. Enginn hafi útskýrt fyrir honum hvernig kerfið virki. Hann hafi þurft að þýða vefsíðu Vinnumálastofnunar til að geta sótt um atvinnuleysisbætur.

Fram kemur að kærandi hafi móttekið smáskilaboð og heimsótt heimasíðu Vinnumálastofnunar en hafi síðar fengið þær upplýsingar frá starfsfólki Vinnumálastofnunar að það væru tvær aðskildar síður á heimasíðunni þar sem nálgast megi skilaboð. Hann hafi ekki haft hugmynd um það fyrr en starfsfólk Vinnumálastofnunar hafi útskýrt það fyrir honum þegar hann hafi heimsótt skrifstofu stofnunarinnar þann 20. febrúar 2025, daginn eftir að hann hafi móttekið erindi um biðtíma.

Þrátt fyrir erfiðleika sína hafi kærandi mætt á næsta boðaða fund Vinnumálastofnunar, þann 18. mars 2025, þó að hann hafi átt annan mikilvægan fund hjá D, sem hann hafi frestað. Kærandi leggi áherslu á að hann hafi verið í virkri atvinnuleit og hefði getað hafið störf í fimm til sex vinnum nú þegar, en tösku hans með öllum skilríkjum hafi verið stolið, þar með skilríkjum sem séu nauðsynleg til að afla sakaskrár. Án sakaskrár hafi hann ekki getað hafið störf í flestum þeim störfum.

D hafi samþykkt að bíða þar til hann fengi ný skilríki sem hann hafi nú loksins fengið. Hann hafi nú sent þau gögn til E og sé vongóður um að geta hafið störf í júní 2025. 

Vegna þessarar stöðu sé kærandi hins vegar tveimur mánuðum eftir á með húsaleigu og sé ekki fært að greiða aðra reikninga. Hann hafi þurft að treysta á vatn og aðstoð frá vinum til að lifa af. Kærandi telji að kerfið sem eigi að styðja atvinnuleitendur á erfiðum tímum hafi brugðist honum. Hann hafi unnið og greitt skatta síðan hann hafi flutt til Íslands og alltaf fylgt því sem óskað var af honum.

Kærandi kveðst ekki hafa hunsað skilaboð viljandi eða hafnað því að fara eftir því sem honum beri að gera. Daginn eftir að hafa móttekið erindi Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, hafi hann farið á skrifstofu Vinnumálastofnunar og óskað eftir upplýsingum um hvað hafi gerst og hvernig hann gæti mótmælt ákvörðuninni. Hann hafi útskýrt allt í eigin persónu. Starfsfólk Vinnumálastofnunar hafi sagt honum að senda öll viðeigandi gögn, m.a. bankayfirlit og tölvupóst með viðtalstíma hjá B og kærandi hafi gert það. Þrátt fyrir þetta, sem og samstarfsvilja kæranda, hafi fyrri ákvörðun Vinnumálastofnunar verið staðfest.

Á sama tíma sjái kærandi fólk sem hafni atvinnu eða mæti ekki á fundi og fái greiðslur atvinnuleysisbóta. Hann sé ekki að gera kröfu um annað en það sem hafi verið tekið af honum. Kærandi hafi gert allt sem honum hafi borið að gera, sótt um störf, tilkynnt atvinnuleit reglulega og verið virkur í atvinnuleit. Kærandi skilji ekki hvernig honum geti verið refsað fyrir að reyna að gera allt til að bæta stöðu sína. Með vísan til þessa óski kærandi eftir endurskoðun ákvörðunar Vinnumálastofnunar og að viðurkenndur verði bótaréttur vegna þess tímabils sem hafi verið fellt niður. Þá ítreki kærandi vilja sinn til að vera í vinnu og leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Hann sé að gera allt í sínu valdi til að tryggja sér atvinnu eins fljótt og hægt er.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 8. október 2024. Með erindi, dags. 28. október 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 30. janúar 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ, þann 31. janúar 2025, klukkan 10:00. Athygli hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum, með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 30. janúar 2025, klukkan 09:48.

Þann 5. febrúar 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Kærandi hafi þann 9. febrúar 2025 skilað skriflegum skýringum á ástæðum á fjarveru sinnar á boðaðan upplýsingafund þann 31. janúar 2025. Kærandi hafi sagst hafa verið upptekinn á tímabilinu 30. til 31. janúar í atvinnuviðatali hjá B. Hann hafi verið með allan hugann við að finna sér vinnu og ekki talið sig þurfa að fylgjast með skilaboðum á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar.

Með erindi, dags. 19. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Þann 20. febrúar 2025 hafi borist frekari skýringar frá kæranda. Kærandi hafi borið því við að honum hafi reynst erfitt að skilja vefsíðu Vinnumálastofnunar. Hann hafi komið við á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og uppfært netfang sitt en netfang sem hann hafi skráð í upphafi umsóknar hafi verið óvirkt. Því hafi boðun farið fram hjá honum. Kærandi hafi jafnframt borið því við að ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi sett hann í erfiða stöðu.

Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 4. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið til umfjöllunar að nýju. Það hefði verið mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 23. mars 2025. Rökstuðningur kæranda í kæru sé efnislega samhljóma þeim skýringum sem hann hafi þegar veitt Vinnumálastofnun.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, á fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er fylgt hafi frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 31. janúar 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.

Kærandi hafi greint frá því að tölvupóstfang sem hann hafi verið með skráð hafi verið óvirkt. Kærandi hafi nú uppfært netfang sitt. Jafnframt hafi kærandi greint frá að hann hafi verið upptekinn í atvinnuviðtali hjá B þegar umræddur kynningarfundur hafi farið fram. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að það sé á ábyrgð kæranda að hafa rétt netfang skráð. Þá vísi Vinnumálastofnun jafnframt til þess að engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda. Kærandi hafi ekki lagt fram nein gögn sem sýni fram á að hann hafi sannarlega verið í umræddu atvinnuviðtali á sama tíma og kynningarfundur hafi farið fram. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljósi alls þess sem hafi verið rakið, og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með fjarveru sinni á boðaðan fund stofnunarinnar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum og beri að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 30. janúar 2025 boðaður á kynningarfund hjá Vinnumálastofnunar sem fara átti fram daginn eftir, 31. janúar 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi haft rangt netfang skráð og hafi haft allan huga við að afla sér atvinnu. Jafnframt hefur kærandi byggt á því að hann hafi á sama tíma verið upptekinn í viðtali hjá B.

Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi um þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Af gögnum málsins má ráða að kæranda hafi mátt vera fullljóst að um skyldumætingu á kynningarfundinn þann 31. janúar 2025 væri að ræða. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 19. febrúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir