26 júní 2025
/
Mál nr. 190/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 190/2025
Fimmtudaginn 26. júní 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 25. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. sama dag, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 29. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 20. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði ekki mætt á boðaðan fund hjá stofnuninni.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. mars 2025. Með bréfi, dags. 2. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 23. apríl 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. apríl 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því í kæru að honum hafi óvænt verið sagt upp störfum vegna aðstæðna vinnuveitanda og hafi þurft að treysta á atvinnuleysisbætur á þessum erfiða tíma. Kærandi hafi verið boðaður á fund þann 27. febrúar 2025 sem hann hafi mætt á en hafi því miður ekki haft meðferðis vegabréf sitt sem hann hafi notað sem persónuskilríki. Kærandi átti sig á því að hann beri ábyrgð á því og finnist það miður. Á fundinum hafi kæranda verið sagt að hann fengi nýja fundarboðun innan fárra vikna eða mánaðar. Nýr fundur hafi verið boðaður 5. [mars]. Kærandi kveðst ekki hafa fengið smáskilaboð vegna fundarins og tölvupóstur hafi týnst í ruslpósthólfi.
Kærandi hafi ekki haft ásetning til þess að mæta ekki á umræddan fund og hafi mikinn áhuga á þátttöku í öllu því sem honum beri vegna atvinnuleysisbóta. Kærandi skilji að hann þurfi að fylgjast vel með „Mínum síðum“ í framhaldinu og þyki miður að hafa misst af boðuðum fundi. Þetta hafi mikil áhrif á hann. Hann hafi aldrei verið án vinnu, fyrir utan stutt tímabil í COVID. Honum þyki það sérstaklega harkalegt að greiðslur til hans séu stöðvaðar í tvo mánuði. Hann reiði sig algjörlega á greiðslur atvinnuleysisbóta til að greiða leigu meðan hann leiti að nýrri vinnu. Hann myndi aldrei gera neitt til að stofna þeim í hættu. Að mati kæranda ætti að líta eigi til þeirrar staðreyndar að hann hafi mætt á fyrsta fundinn og hafi verið viljugur til að uppfylla aðrar skyldur sínar. Um hafi verið að ræða óhapp af hans hálfu að gleyma skilríkjum. Hann þurfi að greiða leigu í lok mánaðar og sé nú í erfiðri stöðu. Hann þiggi alla hjálp.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 29. nóvember 2024. Með erindi, dags. 20. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Með erindi, dags. 4. mars 2025, hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9 í Reykjavík sem fara átti fram þann 5. mars 2025, klukkan 14:15. Athygli hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið send þann 4. mars 2025, klukkan 12:44 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 4. mars 2025, klukkan 12:44. Kærandi hafi hvorki mætt á fundinn né boðað forföll.
Með erindi, dags. 11. mars 2025, hafi verið óskað eftir nánari skýringum á fjarveru kæranda. Kæranda hafi verið greint frá því að ef hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði kynni það að leiða til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.
Þann 17. mars 2025 hafi borist skýringar frá kæranda. Í skýringum hafi kærandi borið því við að hann hafi ekki mætt á kynningarfundinn þann 5. mars 2025 þar sem skilaboð frá Vinnumálastofnun hafi farið fram hjá sér. Kærandi hafi bent á að hann hafi mætt á kynningarfund stuttu áður þann 27. febrúar 2025 en gleymt að taka með sér skilríki í það skiptið.
Kæranda hafi með erindi, dags. 25. mars 2025, verið tilkynnt ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans frá og með 25. mars 2025 sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun á kynningarfund þann 5. mars 2025 og hefði ekki gildar skýringar á fjarveru sinni. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Í kæru beri kærandi við að ákvörðun Vinnumálastofnunar um að stöðva greiðslur til hans í tvo mánuði hafi sett hann í erfiða stöðu. Kærandi bendi á að hann hafi sannarlega mætt á kynningarfund sem hafi verið haldinn af hálfu Vinnumálastofnunar þann 27. febrúar 2025. Kærandi hafi gleymt skilríkum sínum þann 27. febrúar 2025. Kærandi hafi ítrekað fyrri skýringar sínar að hann hafi fengið boð á kynningarfund þann 5. mars 2025 en boð hafi farið fram hjá honum. Að mati kæranda sé ákvörðun Vinnumálastofnunar ósanngjörn í ljósi þess að hann hafi þegar mætt á kynningarfund.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 25. mars 2025.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a-lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h.]-lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit m.a. í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skuli boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til viðtals hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hafi verið haldinn á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 5. mars 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda um boðun á umræddan fund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda gert að sæta viðurlögum vegna þessa.
Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð er fylgt hafi frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysisbóta komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund lúti að því að boð hafi farið fram hjá honum. Þá bendi kærandi á að hann hafi áður mætt á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 27. febrúar 2025. Hann hafi gleymt að taka með sér skilríki á þann fund og því ekki fengið skráða mætingu. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í fyrsta lagi hafi kærandi ekki framvísað skilríkum þann 27. febrúar 2025 og hafi því verið ómögulegt að staðfesta að kærandi hafi sannarlega mætt á umræddan kynningarfund. Stofnunin bendi á að í boðun sé tekið fram með skýrum hætti að mæta þurfi með gild skilríki. Í öðru lagi hafi þátttaka atvinnuleitenda í fyrri úrræðum ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að sinna síðari boðunum stofnunarinnar.
Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum og tilkynningu sinni um forföll fært rök fyrir því að mæta ekki í boðað vinnumarkaðsúrræði, í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 4. mars 2025 boðaður á fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var 5. mars 2025, klukkan 14:15. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.
Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan upplýsingafund né tilkynnti forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki fengið smáskilaboð í farsíma og að tölvupóstur hafi týnst í ruslpósthólfi. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar bárust smáskilaboðin í skráð símtæki kæranda þann 4. mars 2025, klukkan 12:44.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 25. mars 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir