26 júní 2025
/
Mál nr. 209/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 209/2025
Fimmtudaginn 26. júní 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 31. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 28. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 27. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 31. mars 2025. Með bréfi, dags. 2. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 23. apríl 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 28. apríl 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá því að hafa fengið bréf frá Vinnumálastofnun þann 26. febrúar 2025 þar sem óskað hafi verið eftir viðveru hennar á fundi þann 27. febrúar 2025, klukkan 11:00. Kærandi hafi útskýrt að vegna stutts fyrirvara gæti hún ekki mætt þar sem hún hefði þegar skuldbundið sig til að annast þrjú barnabörn sín. Dóttir kæranda, sem sé einstæð móðir, hafi verið veik frá 24. febrúar 2025 og ekki getað farið út úr húsi. Kærandi hafi greint frá ástæðu fjarveru sinnar í nokkrum bréfum.
Þegar kærandi hafi getað farið fram úr rúminu þann 3. mars 2025 hafi hún farið til læknis og fengið læknisvottorð. Í kjölfarið hafi læknir hennar mælt með því að hún færi í frekari skoðanir. Þrátt fyrir að hafa skilað inn öllum tilskildum gögnum hafi kæranda verið tilkynnt þann 24. mars 2025 um að bótaréttur hennar hefði verið felldur niður í tvo mánuði og að hún hefði fengið ofgreiddar bætur að fjárhæð 60.000 kr. sem henni bæri að endurgreiða.
Kærandi mótmæli ákvörðun Vinnumálastofnunar og óski eftir því að mál hennar verði endurskoðað. Hún þurfi að borga reikninga og sé ekki viss um hvað hún eigi að gera næst.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 28. nóvember 2024. Með erindi, dags. 27. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 26. febrúar 2025 hafi kærandi verið boðuð á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík, þann 27. febrúar 2025, klukkan 11:30. Athygli hafi verið vakin á að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hennar, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 26. febrúar 2025, klukkan 10:51. Þann 26. febrúar 2025, klukkan 11:15, hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hún hafi sagst ekki getað komist á boðaðan fund þar sem hún væri að passa barnabarn sitt og væri ekki með aðgang að bifreið. Þá hafi kærandi bent á að hún hefði áður mætt á fund hjá Vinnumálastofnun tæpri viku áður. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund.
Þann 4. mars 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Kærandi hafi þann 6. mars 2025 skilað inn læknisvottorði sem staðfesti að kærandi hafi verið óvinnufær sökum sjúkdóms á tímabilinu 24. til 28. febrúar 2025.
Með erindi, dags. 24. mars 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hún hefði ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysibætur á tímabilinu 24. til 28. febrúar 2025, samtals að fjárhæð 59.861 kr. sem yrðu innheimtar án álags með skuldajöfnuði við síðar greiddar atvinnuleysisbætur.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.
Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 27. febrúar 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tímasetning og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar.
Kærandi hafi tilkynnt í tölvupósti til Vinnumálastofnunar þann 26. febrúar 2025 að hún gæti ekki mætt á boðaðan kynningarfund þann 27. febrúar 2025 sökum þess að hún væri upptekin við að passa barnabörn. Kærandi hafi ekki minnst á að hún væri veik eins og fram komi á fyrirliggjandi læknisvottorði. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi vísi Vinnumálastofnun til þess að tölvupósti kæranda hafi verið svarað þar sem henni hafi verið bent á að um væri að ræða skyldumætingu á fundinn og að lengd fundar væri 45 mínútur. Kærandi hafi ekki haft orð á því að hún væri óvinnufær á þeim tíma. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi hafi einnig lagt fram læknisvottorð sem staðfesti óvinnufærni með öllu vegna sjúkdóms á sama tíma og fundur hafi farið fram. Kærandi hafi ekki látið vita af veikindum sínum heldur bent á að hún gæti ekki mætt sökum þess að hún væri upptekin við að passa barnabörn sín. Kærandi hafi verið óvinnufær á tímabilinu 24. til 28. febrúar 2025 sökum sjúkdóms og hafi af þeim sökum fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur samtals að fjárhæð 59.861 kr.
Í 5. mgr. 14. gr. komi fram að hinn tryggði teljist vera í virkri atvinnuleit þrátt fyrir tilfallandi veikindi í allt að fimm daga samtals. Ákvæðið heimili að nýta fimm daga tímabil að hámarki í tvennu lagi á hverju tólf mánaða tímabili þegar hinn tryggði hafi verið skráður innan [kerfisins] í fimm mánuði samtals frá fyrstu skráningu á sama tímabili, sbr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fyrir liggi að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta á tímabilinu 24. til 28. febrúar 2025, enda hafi kærandi ekki verið skráð atvinnulaus í fimm mánuði. Kæranda beri því að endurgeiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi þegar fengið greiddar. Ákvæði 3. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimili Vinnumálastofnun að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur með skuldajöfnuði við síðar greiddar atvinnuleysisbætur en í ákvæðinu segi:
„Heimilt er að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti síðar tilkomnum atvinnuleysisbótum sama einstaklings en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur 25% af síðarnefndu atvinnuleysisbótunum í hverjum mánuði. Enn fremur er heimilt að skuldajafna ofgreiddum atvinnuleysisbótum á móti inneign hins tryggða vegna ofgreiddra skatta, barnabóta og vaxtabóta samkvæmt lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt.“
Vinnumálastofnun hafi þegar innheimt ofgreiddar atvinnuleysisbætur með skuldajöfnuði við greiðslu atvinnuleysisbóta til kæranda í mars 2025.
Í ljósi alls þess sem hér hafi verið rakið og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með fjarveru sinni á boðaðan fund stofnunarinnar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræðum og beri að sæta viðurlögum á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 26. febrúar 2025 boðuð á fund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 27. febrúar 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var kærandi upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga.
Fyrir liggur að kærandi mætti ekki á boðaðan fund. Af hálfu kæranda hefur komið fram að fyrirvarinn hafi verið stuttur og hún hafi verið búin að skuldbinda sig til að annast þrjú barnabörn sín fyrir dóttur sína sem hafi verið veik.
Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram að kæranda bæri að mæta til stofnunarinnar á fund. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi því ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. mars 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir