26 júní 2025

/

Mál nr. 217/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 217/2025

Fimmtudaginn 26. júní 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 11. júlí 2024 og var umsóknin samþykkt 1. ágúst 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði skv. 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. apríl 2025. Með bréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 14. maí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. maí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því í kæru að skýringum hans til Vinnumálastofnunar hafi verið synjað en þar hafi komið fram að ástæða þess að hann hafi misst af fundi hafi verið veikindi barns síns. Kærandi hafi verið sá eini sem hafi getað séð um barnið þennan dag. Með kæru fylgdi skjáskot af veikindaskráningu barnsins í leikskóla 13. mars 2025.

Þá greinir kærandi frá því að hann hafi ætlað að tilkynna forföll við fyrsta tækifæri en vegna breytinga á vefsíðu Vinnumálastofnunar hafi hann ekki getað skráð sig inn á „Mínar síður“ þegar hann hafi fengið boð Vinnumálastofnunar á fund. Síðan hafi sent hann á island.is þar sem hann hafi ekki getað fundið neinar upplýsingar um fund sem skyldumæting væri á. Hann hafi alls ekki ætlað sér að missa af fundinum og hafi áður tilkynnt forföll.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur með umsókn, dags. 11. júlí 2024. Með erindi, dags. 1. ágúst 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 13. mars 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásveg 9 í Reykjavík þann 14. mars, kl. 11:00. Kærandi hafi verið upplýstur um að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans yrðu stöðvaðar. Þá hafi einnig verið tekið fram að ef kærandi væri ekki á höfuðborgarsvæðinu gæti hann mætt á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Boðun þessi hafi verið birt á mínum síðum atvinnuleitanda. Ásamt hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum, með tölvupósti á netfang kæranda og með SMS skilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 13. mars 2025, kl. 10:17. Kærandi hafi hvorki mætt til umrædds upplýsingafundar né boðað forföll.

Með erindi, dags. 20. mars 2025, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs upplýsingafundar. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum.

Skýringar kæranda hafi borist Vinnumálastofnun þann 21. mars 2025. Hafi kærandi kveðið ástæðu þess að hann mætti ekki til fundar hafa verið að barn hans hafi verið veikt og hann ekki getað mætt. Kærandi hafi jafnframt afhent stofnuninni skjáskot af tilkynningu kæranda til leikskóla um veikindi barns þann 13. mars. Þá hafi kærandi jafnframt bent á að sökum þess að Vinnumálastofnun hafi verið að breyta vefsvæði sínu hafi hann ekki getað tilkynnt um fjarveru sína.

Með erindi, dags. 1. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun á upplýsingafund þann 14. mars 2025. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. apríl 2025. Skýringar og rökstuðningur kæranda í kæru séu efnislega samhljóða þeim skýringum sem hann hafi veitt Vinnumálastofnun.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til. 

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðað viðtal þann 14. mars 2025. Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tímasetning hafi verið tilgreind og staðsetning. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Skýringar kæranda á fjarveru sinni á boðaðan kynningarfund lúti að því að hann hafi ekki getað mætt á boðaðan upplýsingafund sökum veikinda barns og að hann hafi ekki getað boðað forföll sökum breytinga á vefsvæði Vinnumálastofnunar. Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálstofnun að hann kæmist ekki á boðaðan upplýsingafund. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á ástæðum þess af hverju hann hafi ekki tilkynnti fjarveru sína geti að mati Vinnumálastofnunar ekki talist gildar. Í því samhengi vísist til þess að skýrt hafi verið tekið fram í boðun að öll forföll skyldu tilkynnt á póstfangið [email protected]. Engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda. Líkt og fyrr segi beri atvinnuleitanda að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar. Það sé mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum á fjarveru sinni og ástæðum þess að hann tilkynnti ekki um forföll fært rök fyrir því að hann hafi ekki mætt í boðað vinnumarkaðsúrræði, í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um önnur viðurlög hafi verið að ræða á sama bótatímabili komi til beitingar 1. mgr. 61. gr. laganna og beri kæranda að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga.

Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 13. mars 2025, klukkan 10:16 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjanesbæ sem fara átti fram 14. mars 2025, klukkan 11:00. Í boðuninni kom fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Þá kom fram að forföll þyrfti að tilkynna á netfangið [email protected]. Vakin var athygli á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu leitt til þess að bótaréttur félli niður. Boðunin var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll.

Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki getað mætt á fundinn sökum veikinda barns sín og að honum hafi ekki verið fært að skrá sig inn á „Mínar síður“ Vinnumálastofnunar vegna breytinga á vefsíðu stofnunarinnar.

Líkt og að framan greinir er Vinnumálastofnun heimilt að boða hinn tryggða til sín með mjög skömmum fyrirvara og skal viðkomandi þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar. Þá ber hinum tryggða að tilkynna forföll án ástæðulausrar tafar en um stuttan tímaramma er að ræða. Kæranda bar í samræmi við skyldur sínar samkvæmt lögum nr. 54/2006 að vera reiðubúinn til að mæta til Vinnumálastofnunar án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti gæti komið til viðurlaga í formi biðtíma eftir greiðslum.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála geta skýringar kæranda fyrir því að mæta ekki á fund hjá Vinnumálastofnun og boða ekki forföll ekki talist fullnægjandi. Kærandi var upplýstur um hvernig hægt væri að hafa samband við Vinnumálastofnun vegna forfalla en ekki var einungis hægt að boða forföll á „Mínum síðum“.  Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 7. nóvember 2024 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna í ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 1. apríl 2025. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.


Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir