01 júlí 2025

/

Úrskurður nr. 537/2025


Hinn 1. júlí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 537/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25040105

Kæra [...]

I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 22. apríl 2025 kærði [...], kt. [...], ríkisborgari Afganistan (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2025, um að synja honum um endurnýjun dvalarleyfis á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Af kæru má ráða að kærandi krefjist þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og að dvalarleyfi hans verði endurnýjað.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994 auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi fékk fyrst útgefið dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar með íslenskum ríkisborgara 1. desember 2020 með gildistíma til 9. nóvember 2021. Dvalarleyfið var endurnýjað einu sinni, með gildistíma til 23. maí 2023 en 6. maí 2023 sótti kærandi um endurnýjun leyfisins í annað sinn. Með ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 8. apríl 2025, var umsókn kæranda um endurnýjun dvalarleyfis synjað. Í hinni kærðu ákvörðun kom fram að kærandi og maki hans væru skilin að borði og sæng og hefðu slitið samvistum. Uppfyllti kærandi því ekki skilyrði 1. og 7. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun Útlendingastofnunar var birt kæranda 8. apríl 2025. Hinn 22. apríl 2025 kærði kærandi ákvörðunina til kærunefndar. Með tölvubréfi kærunefndar, dags. 23. apríl 2025, var kæranda veittur frestur til 6. maí 2025 til þess að leggja fram greinargerð vegna málsins. Kærandi brást ekki við erindi kærunefndar.

Samkvæmt 1. mgr. 103. gr. laga um útlendinga frestaði kæra réttaráhrifum hinnar kærðu ákvörðunar.

III. Málsástæður og rök kæranda

Kærandi lagði ekki fram greinargerð vegna málsins.

IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Samkvæmt 1. mgr. 70. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi dvalarleyfi hér á landi hyggist hann flytjast hingað til lands til að búa með maka sínum eða sambúðarmaka. Skilyrði þess er að makinn hafi rétt til fjölskyldusameiningar samkvæmt VIII. kafla laga um útlendinga og að hann sé annað hvort í hjúskap eða sambúð, sbr. 2. málsl. 1. mgr. 70. gr. laganna. Í 7. mgr. ákvæðisins kemur fram að makar og sambúðarmakar skuli hafa fasta búsetu á sama stað í samræmi við ákvæði laga um lögheimili og aðsetur. Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði ef sérstakar tímabundnar ástæður eru fyrir hendi.

Kærandi var með útgefið dvalarleyfi frá 1. desember 2020 til 23. maí 2023 og hann sótti um endurnýjun leyfisins öðru sinni 6. maí 2023. Hinn 5. júní 2024 var skráð í Þjóðskrá Íslands að kærandi og maki hans væru skilin að borði og sæng og að lögheimili þeirra væri ekki lengur sameiginlegt. Dvalarleyfi á grundvelli hjúskapar, sbr. 70. gr. laga um útlendinga, er bundið við tiltekinn hjúskap. Samkvæmt framangreindu uppfyllir kærandi ekki lengur skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli hjúskapar, sbr. 1. og 7. mgr. 70. gr. laga um útlendinga. Verður ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja kæranda um endurnýjun dvalarleyfis því staðfest.

Hinn 12. nóvember 2024 sótti kærandi um dvalarleyfi á grundvelli sérstakra tengsla, sbr. 78. gr. laga um útlendinga, og er sú umsókn til meðferðar hjá Útlendingastofnun. Fram kemur í hinni kærðu ákvörðun að kærandi hafi heimild til dvalar á meðan umsókn hans er til vinnslu hjá stofnuninni.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Þorsteinn Gunnarsson

Vera Dögg Guðmundsdóttir