04 júlí 2025
/
Úrskurður nr. 548/2025
Hinn 4. júlí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 548/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24080072
Kæra [...] og barna hennar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 12. ágúst 2024 kærði [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgari Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 29. júlí 2024, um að synja henni og börnum hennar, [...], fd. [...] (hér eftir A), [...], fd. [...] (hér eftir B), [...], fd. [...] (hér eftir C) og [...], fd. [...] (hér eftir D), ríkisborgurum Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi og börn hennar eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Kærandi og börn hennar lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd hér á landi ásamt eiginmanni kæranda og föður barnanna. Voru mál fjölskyldunnar unnin samhliða en um umsókn hans er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 547/2025.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela ásamt venesúelskum eiginmanni sínum (hér eftir M) og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 19. desember 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd á Íslandi vegna ástandsins í Venesúela, þar sé mikið um glæpi og hún vilji öryggi fyrir sig og börn sín. Í Venesúela eigi kærandi systur og foreldra. Kærandi kvaðst vera heilsuhraust. Með þeim í för voru tengdamóðir kæranda og mágur hennar, sem einnig sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi. Málsmeðferð umsókna þeirra var lokið á stjórnsýslustigi með úrskurðum kærunefndar nr. 497/2025 og 502/2025, dags. 12. júní 2025.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 17. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá ástæðum flótta síns. Kvaðst kærandi vera fædd og uppalin í Karakas í Venesúela og þar væru foreldrar hennar búsettir. Hún hafi verið búsett í einbýlishúsi í eigu tengdamóður sinnar sem hafi selt húsið til þess að fjármagna ferðalag fjölskyldunnar til Íslands. Kærandi hafi starfað á veitingastað ásamt tengdamóður sinni, M og bróður hans og þénað 30 dollara á viku. Hún hafi tekið á móti viðskiptavinum og M og bróðir hans starfað í eldhúsinu. Kærandi hafi haft efni á mat og öðrum nauðsynjavörum. Andlega og líkamlega heilsu sína kvað kærandi góða og hún taki ekki lyf að staðaldri. Kærandi hafi þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela fyrir einn son þeirra M og hafi ekki þurft að greiða fyrir þá þjónustu þar sem hún hafi farið fram á opinberum spítala. Börn kæranda hafi sótt skóla. M hafi sótt þau í skólann og þau hafi að öðru leyti verið inni allan daginn. Kærandi kvaðst ekki tilheyra sérstöku þjóðarbroti í heimaríki.
Kærandi kvaðst vera stjórnarandstæðingur og tilheyra minnihlutahópi í Venesúela á grundvelli stjórnmálaskoðana sinna. Fjölskyldan hafi reglulega skipulagt viðburði og mótmæli heima hjá sér til stuðnings stjórnmálakonunni María Corina Machado. Eftir það hafi þau farið að fá hótanir en þær hafi einkum beinst að M og bróður hans og það væri allt og sumt. Aðspurð um hvort kærandi hafi verið virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki kvaðst hún styðja réttlæti. Colectivos hafi hótað fjölskyldunni en kærandi hafi sjálf aldrei fengið hótanir.
Aðspurð um hvaða atvik í lífi hennar hafi gert það að verkum að kærandi hafi flúið frá Venesúela kvað hún allt hafa byrjað á mótmælum til stuðnings María Corina Machado. Árið 2018 hafi M og bróðir hans verið á mótmælum framangreindri stjórnmálakonu til stuðnings en í lok mótmælanna hafi vopnaðir menn beitt þá ofbeldi, tekið af þeim myndir og hótað þeim. Þeir hafi lagt fram kæru vegna þess og þau hafi haldið áfram störfum sínum á veitingastaðnum. Það hafi verið eina skiptið sem kærandi hafi leitað aðstoðar lögreglu eða yfirvalda í heimaríki. Dag einn árið 2023 hafi aðilar frá ríkinu mætt og spurt mág kæranda spurninga varðandi stöðu hans í landinu. Til viðbótar hafi fjölskyldan ekki fengið ýmis leyfi útgefin sem þau hefðu annars átt að fá í tengslum við starfsemi veitingastaðarins þegar í ljós hafi komið að þau væru stjórnarandstæðingar. Þá hafi einstaklingar sem komið hafi að húsi fjölskyldunnar og hótað þeim sagt þeim að þau ættu að mæta fyrir dómara í nóvember 2023 þar sem þau væru föðurlandssvikarar. Boðunin hafi verið munnleg og kvaðst hún aðspurð ekki hafa gögn sem sýnt geti fram á framangreinda boðun en hún telji tengdamóður sína hafa einhver gögn.
Kærandi kvaðst óttast um líf sitt, M og barna þeirra vegna þeirra hótana sem þeim hafi borist. Hún óttist að vera beitt ofbeldi snúi hún aftur til Venesúela þar sem hún hafi heyrt af mörgum hlutum sem Colectivos hafi gert og að vera sett í fangelsi vegna þátttöku sinnar í stjórnarandstöðu Venesúela. Þá telji hún M geta verið tekinn til fanga eða drepinn og hún viti ekki hvort hún gæti búið annars staðar í Venesúela en áður og verið örugg. Aðspurð um það hvað kærandi óttist helst við almennt ástand í Venesúela kvaðst hún helst óttast spillingu ríkisstjórnarinnar þar í landi.
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar í málum barna kæranda kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við þau með vísan til ungs aldurs þeirra og framburðar foreldra þeirra.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kæranda og börnum hennar synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var brottvísað frá landinu og henni ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfi kærandi landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann hennar fellt niður. Börnum kæranda var brottvísað frá landinu. Kærandi kærði ákvarðanirnar til kærunefndar 12. ágúst 2024 og kærunefnd barst greinargerð kæranda ásamt fylgiskjölum 23. ágúst 2024. Viðbótargreinargerð barst kærunefnd 7. apríl 2025. Með tölvubréfi dags. 27. maí 2025 óskaði kærunefnd frekari upplýsinga frá kæranda. Svör bárust 3. júní 2025 ásamt viðbótargögnum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Um málavexti vísar kærandi til efnisviðtals kæranda og greinargerðar til Útlendingastofnunar dags. 2. maí 2024. Þar kemur m.a. fram að kærandi hafi í viðtölum hjá Útlendingastofnun veitt upplýsingar um að hún væri stjórnarandstæðingar og hafi stutt María Corina Machado frá árinu 2018. Eiginmaður kæranda hafi orðið fyrir meiðslum í mótmælum 16. maí 2018 af hálfu lögreglunnar semhafi freistað þess að stöðva mótmælin. Hann hafi lagt fram kæru og verið ráðlagt af lögreglunni að afla áverkavottorðs en hann hafi ekki heyrt meira af málinu. Kærandi og eiginmaður hennar hafi fengið hótanir og verið ofsótt á einn eða annan hátt af Colectivos frá 2018. Fram kemur að hótanirnar og ofsóknirnar megi rekja til stjórnmálaskoðana þeirra og hafi stigmagnast með tímanum. Á haustmánuðum 2023 hafi stjórnvöld boðað fjölskylduna fyrir dóm.
Í greinargerð kæranda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Byggir kærandi einnig á því að fullnægjandi rannsókn þurfi að eiga sér stað á aðstæðum í Venesúela og hvaða þýðingu nýlegar fréttir um aðstæður þar í landi hafi á stöðu kæranda varðandi umsókn hennar um alþjóðlega vernd á Íslandi áður en ákvörðun yrði tekin í máli hennar.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Fram kemur að kærandi hafi orðið fyrir alvarlegum hótunum og ofsóknum sem rekja megi til stjórnvalda. Þátttaka kæranda og eiginmanns hennar í mótmælum í aðdraganda forsetakosninga 2018 hafi valdið því að þau hafi verið elt af hálfu Colectivos og kveðin fyrir dóm. Fram kemur að af framlagðri boðun fyrir dóm megi ráða að stjórnvöld líti á kæranda sem andstæðing stjórnvalda. Þá eigi kærandi á hættu að verða fyrir áframhaldandi ofsóknum, hótunum, áreiti og andlegu ofbeldi af hálfu glæpahópa sem njóti verndar yfirvalda í Venesúela. Byggir kærandi á því að snúi hún aftur til Venesúela verði hún elt af stjórnvöldum og talin föðurlandssvikari.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Hún eigi á hættu að sæta meðferð í Venesúela sem heimfæra megi undir framangreint ákvæði.
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að heildarmat á aðstæðum hennar í Venesúela leiði til þess að hún teljist hafa ríka þörf fyrir vernd í skilningi ákvæðisins. Félagslegar aðstæður kæranda í heimaríki yrðu mjög erfiðar og þar bíði hennar áframhaldandi ofsóknir snúi hún til baka.
Með endursendingu kæranda og barna hennar til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
Með viðbótargreinargerð dags. 7. apríl 2025, óskaði kærandi eftir því að mál hennar yrði skilið frá máli eiginmanns hennar. Þau væru ekki lengur saman vegna þess að hann hafi beitt hana líkamlegu, munnlegu og andlegu ofbeldi og þau hafi verið flutt í sundur vegna ofbeldis hans gegn kæranda 23. janúar 2025. Kærandi hafi leitað á spítala vegna áverka og tilkynnt hann til lögreglu. Óskaði kærandi þess einnig að það yrði skoðað vandlega að veita henni og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga þar sem félagslegar aðstæður hennar yrðu mjög erfiðar yrði henni gert að snúa aftur til Venesúela. Þar þyrfti hún að búa við áreiti og heimilisofbeldi og væri útsett fyrir áframhaldandi ofbeldi.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að börn þau sem hér um ræðir eru í fylgd móður sinnar og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og börn sín. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi og börn hennar hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi og börn hennar séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 25. júní 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);.
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 29. júní 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 26. júní 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Evrópusambandsins, Bandaríkjanna, Kanada og Bretlands 26. nóvember 2022 hyggjast ríkin endurskoða viðskiptaþvinganir sínar verði sýnt fram á lýðræðislegar umbætur í Venesúela.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún eigi á hættu ofsóknir í Venesúela vegna stjórnmálaskoðana sinna og hún tilheyri minnihlutahópi þar í landi vegna þeirra skoðana.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtölum hennar hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki hennar.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún væri stjórnarandstæðingur og hafi ásamt M, tengdamóður sinni og mági á heimili fjölskyldunnar reglulega skipulagt viðburði og mótmæli til stuðnings María Corina Machado. M og mágur kæranda hafi orðið fyrir ofbeldi og hótunum vopnaðra manna við lok mótmæla á árinu 2018. Fjölskyldan hafi fengið hótanir frá Colectivos sem hafi þó aldrei beinst að kæranda persónulega. Þá hafi fjölskyldunni ekki verið veitt ýmis leyfi í tengslum við rekstur veitingarstaðarins þegar komið hafi verið í ljós að þau væru stjórnarandstæðingar. Til viðbótar hafi einstaklingar sem komið hafi að húsi fjölskyldunnar og hótað þeim tjáð þeim að þau ættu að mæta fyrir dómara í nóvember 2023 vegna þess að þau væru föðurlandssvikarar. Kærandi óttist að verða beitt ofbeldi af hálfu Colectivos og að vera sett í fangelsi snúi hún aftur til Venesúela. Við frásögn kæranda hjá Útlendingastofnun vísaði hún gjarnan til atvika sem einnig hafi varðað M, mág hennar og tengdamóður.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectivos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Freedom House frá 2025 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram afrit af yfirlýsingu dags. 23. apríl 2024 sem ber með sér að stafa frá stjórnmálaflokknum Vente Venesúela og veita upplýsingar um að kærandi hafi verið virkur meðlimur flokksins frá 15. nóvember 2019.
Þá lagði kærandi við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun fram afrit skjals sem dagsett er 24. nóvember 2023 og ber með sér að vera boðun fyrir kæranda, M, tengdamóður hennar og mág, að mæta fyrir dómstól í Karakas eins fljótt og auðið er. Skjalið ber með sér að boðunin varði meinta röskun framangreindra aðila á allsherjarreglu, ærumeiðingar gagnvart ríkinu, fundi og mótmæli sem ógni fullveldi Venesúela og grun um samsæri gegn stjórn forseta Venesúela. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að einstaklingar sem hótað hefðu fjölskyldunni hafi tjáð þeim við heimili þeirra að þau skyldu mæta fyrir dóm. Boðunin hafi einungis verið munnleg og kvaðst hún aðspurð ekki hafa gögn sem sýnt geti fram á framangreinda boðun en hún telji tengdamóður sína hafa einhver gögn.
Með tölvubréfi dags. 27. maí 2025 óskaði kærunefnd eftir nánari upplýsingum frá M, mági kæranda og tengdamóður m.a. um framangreinda boðun. Hvorki mágur kæranda né tengdamóðir höfðu greint frá henni í viðtölum sínum hjá Útlendingastofnun en M hafði greint frá því að boðunin hafi borist með pósti á heimili fjölskyldunnar. Upplýsinga var m.a. óskað um það hvers vegna mágur kæranda og tengdamóðir hefðu ekki nefnt framangreinda boðun í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun, hvernig fjölskyldan hafi fengið afrit boðunarinnar í hendurnar og hvort þau hafi frumritið undir höndum. Í svari þeirra dags. 3. júní 2025 kom m.a. fram að tengdamóðir kæranda og mágur hafi ekki nefnt boðunina í viðtölum þeirra þar sem þau hafi ekki talið boðunina vera úrslitaatriði eða nægilega mikilvæga í ljósi annarra alvarlegri atvika sem þau hafi viljað leggja áherslu á, nánar til tekið hótana og ofbeldis. Starfsmaður frá hæstarétti hafi komið með skjalið að dyrum heimilisins, fjölskyldan hafi skannað það og sent sér í tölvupósti þannig að allir hefðu afrit. Frumritið hafi orðið eftir í Venesúela þar sem þau hafi óttast að það yrði uppgötvað af landamærayfirvöldum sem hefði getað reynst þeim hættulegt.
Þar sem aðeins er um afrit að ræða er ekki mögulegt að rannsaka skjalið m.a. með tilliti til fölsunar. Dregur það verulega úr gildi þess. Þá er ljóst að misræmi er í frásögn kæranda, M og skýringum fjölskyldumeðlima kæranda til kærunefndar hvað varðar uppruna skjalsins. Meðal annars hvað varðar hvernig fjölskyldunni á að hafa borist skjalið. Verður því ekki lagt til grundvallar að kæranda hafi borist boðun frá stjórnvöldum um að mæta fyrir dómstól í heimaríki hennar.
Líkt og fram hefur komið greindi kærandi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að M og mági hennar hafi borist hótanir en hótanirnar hafi aldrei beinst að kæranda persónulega. Einnig hafi aðilar mætt að húsi fjölskyldunnar og haft uppi hótanir í þeirra garð. Ennfremur hafi fjölskyldunni ekki verið veitt ýmis leyfi í tengslum við rekstur veitingarstaðarins þegar komið hafi í ljós að þau væru stjórnarandstæðingar.
Vegna misræmis á milli frásagna M, mágs kæranda og tengdamóður hennar varðandi m.a. þær hótanir sem þau greindu frá að M og mági kæranda hafi borist óskaði kærunefnd með áðurnefndu tölvubréfi eftir nánari upplýsingum m.a. varðandi framangreindar hótanir. Í áðurnefndu svari kemur m.a. fram að M og mágur kæranda hafi fengið meira en tíu beinar munnlegar hótanir frá árslokum 2022 fram á mitt ár 2023. Eftir það hafi hótanirnar orðið tíðari, bæst hafi við skilaboð, fjandsamleg hegðun og vöktun á þeim. Hótanirnar hafi hafist eftir að ljóst hafi orðið að þeir væru skráðir í Vente Venesúela og að þeir hafi tekið þátt í mótmælum. Hótanirnar hafi stafað frá meðlimum Colectivos og áreiti sem M og mágur kæranda hafi orðið fyrir hafi versnað um mitt ár 2023 og haldið áfram fram í desember 2023. Varðandi andlag umræddra hótana hafi þær falist í því að M og mágur kæranda yrðu reknir að heiman og úr hverfinu. Þá hafi fjölskyldan verið vöktuð, ókvæðisorðum hreytt í þau úti á götu og vopnað mótorhjólafólk verið við hús þeirra. Fjölskyldan hafi ekki leitað til lögreglu vegna ótta og vantrausts á yfirvöldum.
Með tilliti til frásagnar kæranda verður ekki ráðið að framangreindar hótanir eða synjanir á útgáfu leyfa hafi beinst að persónu kæranda eða haft frekari afleiðingar fyrir hana. Kærandi hefur sjálf greint frá því að hótanirnar hafi ekki beinst að henni. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að gögn málsins beri ekki með sér að framangreind atvik hafi eða geti náð því alvarleikastigi að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Með tilliti til frásagnar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi sé á móti stjórnvöldum í heimaríki og sé stuðningsmaður flokksins Vente Venesúela. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að hún hafi ásamt fjölskyldu sinni skipulagt og undirbúið mótmæli í aðdraganda kosninga 2018 til stuðnings María Corina Machado. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Af frásögn kæranda verður ekki ráðið að hún eða fjölskyldumeðlimir hennar hafi gengt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar eða að hún hafi sætt áreiti eða ofbeldi vegna stjórnmálaskoðana sinna af hálfu stjórnvalda í heimaríki. Þá horfir kærunefnd til þess að kærandi hafi haldið áfram að starfa á veitingastaðnum og dvalið í heimaríki í um fimm ár frá framangreindum mótmælum að mestu óáreitt. Hótanirnar hafi líkt og áður segir ekki beinst að kæranda. Horfir kærunefnd einnig til þess að kærandi fékk útgefið venesúelskt vegabréf 10. nóvember 2023 og má í því sjá útstimplun frá Simon Bolivar flugvellinum 17. desember 2023. Gefur það til kynna að kærandi hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð af yfirvöldum og ber það ekki með sé að hún sé undir sérstöku eftirliti stjórnvalda í heimaríki. Með vísan til framangreinds er það niðurstaða kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir vegna stjórnmálaskoðana sinna eða á grundvelli stjórnmálaskoðana sona sinna, sbr. e- lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Kærandi greindi frá því að hún óttist að verða sett í fangelsi snúi hún aftur til Venesúela vegna stjórnmálaþátttöku sinnar. Í greinargerð er á því byggt að snúi kærandi aftur til Venesúela verði hún elt af stjórnvöldum og talin föðurlandssvikari. Kærunefnd bendir á að samkvæmt framangreindum heimildum um endursendingar almennt til Venesúela verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til bara eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka og þá hafa stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar sem snúið hafi aftur til Venesúela frá Íslandi hafi sætt sérstöku áreiti eða eftirlit stjórnvalda af þeim sökum að þeir hafi ferðast frá heimaríki sínu. Af heimildum verður auk þess ekki ráðið að einstaklingar sem snúi til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun.
Með viðbótargreinargerð dags. 7. apríl 2025 var kærunefnd upplýst um að kærandi hafi verið beitt ofbeldi af hálfu M og þau væru ekki lengur saman vegna þess. Þau hafi verið flutt í sundur hér á landi vegna ofbeldis hans gegn kæranda 23. janúar 2025. Kærandi hafi leitað á spítala vegna áverka og tilkynnt M til lögreglu.
Með tölvubréfi 27. júní 2025 óskaði kærunefnd upplýsinga frá kæranda vegna ofangreindra upplýsinga. Óskaði kærunefnd m.a. upplýsinga um það hvort kærandi hafi sætt ofbeldi af hálfu M áður en hún kom til Íslands og ef svo væri, hvenær ofbeldið hafi hafist, hvers eðlis það hafi verið og hvort hún hafi leitað aðstoðar í heimaríkis eða ekki eða hvers vegna ekki. Í svari kæranda, dags. 3. júní 2025, kemur m.a fram að ofbeldið hafi hafist eftir tvö ár af sambandi þeirra og falist í barsmíðum og líkamlegu ofbeldi. Hún hafi ekki leitað sér aðstoðar í heimaríki af ótta við viðbrögð M. Upplýsinga var einnig óskað um það hvort börn kæranda hafi sætt ofbeldi af hálfu föður þeirra, M, hér á landi eða í heimaríki og ef svo væri, hvenær ofbeldið hafi hafist, hvers eðlis það hafi verið og aðstoðar hafi verið leitað í heimaríki eða hvers vegna ekki. Greindi kærandi frá því að A hafi orðið fyrir líkamlegu ofbeldi af hálfu M bæði í Venesúela og á Íslandi. Ofbeldið hafi ekki verið tilkynnt í heimaríki kæranda af ótta við M. Í heilsufarsgögnum A kemur fram að hann hafi upplýst sálfræðing á Göngudeild sóttvarna um það að M hafi beitt hann ítrekað ofbeldi í Venesúela og á Íslandi. Einnig var kærandi spurð hvort hún telji sig ekki geta farið aftur til heimaríkis síns og fengið aðstoð yfirvalda og fjölskyldu sinnar þar vegna ofbeldis af hálfu M. Kvaðst hún ekki geta snúið aftur til heimaríkis því hún óttist að hann beiti sig aftur ofbeldi.
Með tilliti til framangreindra upplýsinga telur kærunefnd ekki hægt að útiloka að kærandi og A hafi mátt sæta ofbeldi af hálfu M í Venesúela og á Íslandi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 kveða lög í Venesúela á um refsingu gegn hvers konar líkamlegu, kynferðislegu og andlegu ofbeldi, m.a. sem framið sé inni á heimilum. Einnig kemur fram í heimildum um heimaríki kæranda að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun árið 2021 sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn kynbundnu ofbeldi eða áreiti, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Kærandi greindi frá því að foreldrar hennar væru búsettir í Karakas í Venesúela og ekkert hefur komið fram sem bendir til annars en að hún myndi njóta stuðnings þeirra snúi hún aftur til Venesúela. Með vísan til framangreinds verður talið að kæranda sé mögulegt að leita aðstoðar lögreglu í landinu telji hún tilefni til þess.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmiðum barnanna var nægilega komið á framfæri með framburði kæranda og eiginmanns hennar, og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að börnin fylgi móður sinni aftur til heimaríkis. Börn þau sem um ræðir eru í fylgd móður sinnar sem er heilsuhraust og vinnufær og njóta börnin stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur börnum kæranda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að börnin muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnanna er það börnunum fyrir bestu að fylgja móður sinni til heimaríkis síns. Um málefni föður barnanna er fjallað í úrskurði kærunefndar nr. 547/2025.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum hennar og barna hennar í heimaríki, telst kærandi ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hún eigi rétt á viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga þar sem hún eigi á hættu að sæta meðferð í Venesúela sem heimfæra megi undir ákvæðið.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda og barna hennar er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsett í Karakas í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Karakas í norðurhluta Venesúela. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum, m.a. skýrslu Landinfo frá árinu 2023, eru almennar aðstæður í höfuðborginni mun betri en á strjálbýlli stöðum í landinu. Í skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, kemur fram að ríkislögreglan sé aðallega við störf í höfuðborginni og nágrenni hennar og þá bera heimildir ekki með sér að vopnuð átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimaborg kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir á því svæði sem kærandi og börn hennar hafa tengsl við eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi og börn hennar eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda og barna hennar séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi og börn hennar uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi og börn hennar eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd fyrir sig og börn sín 19. desember 2023. Kærandi og börn hennar hafa því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Að mati kærunefndar uppfylla kærandi og börn hennar skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málasins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf fyrir sig og börn sín. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi og börn hennar séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda og barna hennar skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kæranda og barna hennar um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda og börnum hennar dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellant and her children’s applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant and her children residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Valgerður María Sigurðardóttir