09 júlí 2025

/

Mál nr. 224/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 224/2025

Miðvikudaginn 9. júlí 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 4. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun þann 7. mars 2025. Með ákvörðun, dags. 1. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið synjað þar sem hann hefði fullnýtt 30 mánaða bótatímabil.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 4. apríl 2025. Með bréfi, dags. 8. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 29. apríl 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 30. apríl 2025. Athugasemdir kæranda bárust sama dag og voru jafnframt kynntar fyrir Vinnumálastofnun sama dag. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru málsins kemur fram að umsókn kæranda hafi verið hafnað á þeim grundvelli að líða þurfi 24 mánuðir frá síðustu greiðslu atvinnuleysisbóta. Hann hafi síðast fengið greiðslu 12. apríl 2023. Fyrir liggi ákvörðun eftir það. Kærandi hafi unnið í eitt ár og fjóra mánuði vegna skorts á vinnu. Það liggi einnig fyrir ákvörðun um það. Síðasti vinnudagur hans hafi verið 28. febrúar 2025. Það þýði að 24 mánuðir séu liðnir frá 12. apríl 2025 og að í maí hafi hann öðlast fullan bótarétt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi fyrst sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn dagsettri 4. janúar 2019 og svo aftur þann 3. september 2020. Kærandi hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur annars vegar á tímabilinu 18. febrúar 2019 til 3. apríl 2019 og hins vegar á tímabilinu 1. desember 2020 til 23. apríl 2023. Á síðasta greiðsluseðli kæranda, dags. 28. apríl 2023, hafi komið fram að hann hefði fullnýtt 30 mánaða bótatímabil.

Kærandi hafi sótt aftur um atvinnuleysisbætur þann 7. mars 2025. Þann 1. apríl 2025 hafi umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur verið synjað með vísan til þess að kærandi hefði fullnýtt bótatímabil sitt. Kæranda hafi verið bent á að hann gæti sótt um að nýju um greiðslur atvinnuleysisbóta þann 18. apríl 2025. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvell 29. og 30. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna og sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Í VI. kafla laga um atvinnuleysistryggingar sé fjallað um það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar. Í 29. gr. laganna komi fram að atvinnuleitandi geti átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga í samfellt 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

Í 30. og 31. gr. laganna sé fjallað um tilvik sem leiði til þess að bótatímabil endurnýist. Annars vegar endurnýjun á tímabili eftir að atvinnuleitandi hafi fullnýtt bótarétt sinn og hins vegar endurnýjun á bótatímabili áður en fyrra tímabili ljúki að fullu. Þar sem kærandi hafi fullnýtt bótarétt sinn í mars 2023 komi ákvæði 30. gr. laganna einungis til álita í máli þessu en þar sé fjallað um þau tilvik sem nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist eftir að fyrra tímabili ljúki að fullu. Ákvæði 30. gr. laganna sé svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum og hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í 30 mánuði skv. 29. gr. getur áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins að nýju að liðnum 24 mánuðum enda hafi hann starfað á vinnumarkaði í a.m.k. sex mánuði eftir að fyrra tímabili lauk og misst starf sitt af gildum ástæðum. Hefst þá nýtt tímabil skv. 29. gr. en að öðru leyti gilda ákvæði III. og IV. kafla um skilyrði atvinnuleysistryggingar hins tryggða eftir því sem við getur átt.“

Samkvæmt ákvæðinu sé það skilyrði sett fyrir því að nýtt bótatímabil geti hafist að 24 mánuðir séu liðnir frá því að umsækjandi um atvinnuleysisbætur hafi síðast fengið þær greiddar og að hann hafi starfaði í a.m.k. sex mánuði á innlendum vinnumarkaði eftir að fyrra tímabili hafi lokið.

Kærandi hafi fullnýtt 30 mánaða bótatímabil sitt þann 23. apríl 2023. Til að kanna hvort kærandi eigi rétt á endurnýjun á bótatímabili þurfi að kanna hvort 24 mánuðir séu liðnir þegar hann hafi sótt aftur um greiðslur atvinnuleysistrygginga í mars 2025. Fyrir liggi að ekki séu liðnir 24 mánuðir á frá því að kærandi hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur þann 23. apríl 2023 þar til hann hafi sótt um að nýju þann 7. mars 2025.

Ekki hafi verið liðnir 24 mánuðir frá því að kærandi hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur þann 23. apríl 2023 þar til hann hafi sótt um að nýju þann 7. mars 2025. Kærandi hafi þar af leiðandi ekki uppfyllt skilyrði 30. gr. laganna um endurnýjun á bótatímabili. Kæranda hafi verið leiðbeint í ákvörðun Vinnumálastofnunar að hann gæti fyrst átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta frá og með 18. apríl 2025. Vinnumálastofnun hafi því borið að hafna umsókn kæranda þegar hann hafi sótt um atvinnuleysisbætur í mars 2025.

Með vísan til framangreinds hafi það verið niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki átt rétt á nýju bótatímabili samkvæmt 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þegar hann hafi sótt um atvinnuleysistryggingar þann 7. mars 2025 og að stofnuninni hafi borið að hafna umsókn hans.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur þar sem hann hefði fullnýtt 30 mánaða bótatímabil sitt.

Í 1. mgr. 29. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun hafi tekið við umsókn hans um atvinnuleysisbætur, nema annað leiði af lögunum. Í athugasemdum við 29. gr. frumvarps þess sem varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að miðað sé við að það tímabil sem atvinnuleysisbætur séu greiddar hefjist þegar Vinnumálastofnun móttaki umsókn um atvinnuleysisbætur.

Í 30. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að sá sem teljist tryggður samkvæmt lögunum og hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur samtals í 30 mánuði geti áunnið sér rétt innan atvinnuleysistryggingakerfisins að nýju að liðnum 24 mánuðum, enda hafi hann starfað á vinnumarkaði í að minnsta kosti sex mánuði eftir að fyrra tímabili lauk og misst starf sitt af gildum ástæðum. Þá kemur fram í 31. gr. laganna að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.

Fyrir liggur að kærandi hafði fullnýtt 30 mánaða bótatímabil sitt þann 17. apríl 2023. Þegar kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur þann 7. mars 2025 voru því ekki liðnir 24 mánuðir frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur

Kærandi uppfyllti þar af leiðandi ekki skilyrði 30. gr. laganna um endurnýjun bótatímabils. Kæranda var leiðbeint í ákvörðun Vinnumálastofnunar að hann gæti fyrst átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta frá og með 18. apríl 2025.

Framangreind skilyrði laganna eru ströng og engar undantekningar á þeim þar að finna. Hin kærða ákvörðun er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir