09 júlí 2025
/
Mál nr. 259/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 259/2025
Miðvikudaginn 9. júlí 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 23. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. apríl 2025, um að synja umsókn hennar um atvinnuleysisbætur.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 13. mars 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem hún væri ekki með skráð lögheimili á Íslandi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. apríl 2025. Með bréfi, dags. 29. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Frekari gögn bárust frá kæranda 23. maí, 27. maí og 3. júní 2025. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 12. júní 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Efnisleg rök fylgdu ekki kæru en af henni má ráða að kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 13. mars 2025.
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá Íslands hafi kærandi verið með skráð lögheimili erlendis, nánar tiltekið í B. Með erindi, dags. 7. apríl 2025, hafi kæranda verið tjáð að eitt af skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysistrygginga væri að vera búsettur á Íslandi og stofnunin hafi óskað eftir upplýsingum um skráningu kæranda.
Þann 7. apríl 2025 hafi Vinnumálastofnun borist skýringar kæranda. Kærandi hafi kveðist hafa flutt til Íslands frá B þann 21. júní 2024. Hún hafi fengið vinnu hér á landi þann 1. desember 2024 en misst vinnuna þann 20. febrúar 2025. Að sögn kæranda geti hún ekki skráð lögheimili sitt á Íslandi sökum þess að barnsfaðir hennar hafi neitað að leyfa flutning barns hennar frá B til Íslands. Af þeim sökum væri hún enn með skráð lögheimili í B en væri með skráðan dvalarstað annað en skráð lögheimili á Íslandi, það er að C. Hún væri komin í málaferli hér á landi við barnsföður sinn um forræði barns.
Fyrir liggi að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta í B þann 27. febrúar 2025. Umsókn kæranda um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá systurstofnun Vinnumálastofnunar í D, hafi verið synjað sökum þessi að hún væri stödd erlendis, það er á Íslandi.
Þann 16. apríl 2025 hafi borist afrit af húsaleigusamningi þar sem fram hafi komið að kærandi hefði tekið á leigu íbúðarhúsnæði að C. Þá hafi einnig borist afrit af staðgreiðsluskrá kæranda þar sem fram hafi komið að hún hefði fengið greidd laun á Íslandi frá E á tímabilinu desember 2024 til og með febrúar 2025. Jafnframt hafi borist staðfesting frá D þess efnis að hún ætti ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta í B.
Með erindi, dags. 23. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar um atvinnuleysisbætur, dags. 13. mars 2025, væri hafnað sökum þess að hún væri ekki með skráð lögheimili á Íslandi. Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið tekin á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Í 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um almenn skilyrði þess að launamaður teljist tryggður samkvæmt lögunum. Þá sé í 1. mgr. 18. gr. sömu laga að finna hin almennu skilyrði þess að sjálfstætt starfandi einstaklingur teljist tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum sé að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. og c. lið 1. mgr. 18. gr. laganna.
Fyrir liggi og óumdeilt sé að kærandi sé með skráð lögheimili í B. Kærandi uppfylli því ekki almenn skilyrði atvinnuleysistrygginga, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. og c. lið 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Fyrir liggi að kærandi hafi, að eigin sögn, verið búsett á Íslandi frá 21. júní 2024. Kærandi beri við almennum ómöguleika á að færa lögheimili sitt frá B til Íslands. Kærandi vísi til þess að hún og barnsfaðir hennar séu í forræðisdeilu sem nú sé til umfjöllunar hjá íslenskum dómstólum. Kærandi sé vissulega búsett hér á landi en ekki með skráð lögheimili. Af c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna leiði að sett sé fortakslaust skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta um að vera með skráð lögheimili á Íslandi. Stofnunin telji sér ekki fært að horfa fram hjá því skilyrði.
Þar sem kærandi sé með skráð lögheimili í B hafi Vinnumálastofnun borið að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur, dags. 13. mars 2025.
Með vísan til framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi uppfylli ekki almenn skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga og hafi því borið að hafna umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Niðurstaða þessi leiði af c. lið 1. mgr. 13. gr. og c. lið 1. mgr. 18. gr.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur á grundvelli c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Eitt af þeim skilyrðum er að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr.
Samkvæmt gögnum málsins hefur kærandi verið búsett hér á landi frá 21. júní 2024. Hún er hins vegar með skráð lögheimili í B. Kærandi hefur vísað til þess að hún geti ekki skráð lögheimili sitt á Íslandi þar sem barnsfaðir hennar hafi neitað að leyfa flutning barns þeirra frá B til Íslands.
Ljóst er að kærandi er ekki tryggð samkvæmt lögum nr. 54/2006, enda er hún ekki með skráð lögheimili hér á landi, sbr. c. lið 1. mgr. 13. gr. laganna en það er fortakslaust skilyrði til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. apríl 2025, um að synja umsókn A, um atvinnuleysisbætur, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir