30 júlí 2025
/
Úrskurður nr. 597/2025
Hinn 30. júlí 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 597/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU23110029
Kæra […] á ákvörðun Útlendingastofnunar
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 5. nóvember 2023 kærði […], fd. […], ríkisborgari Venesúela (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 23. október 2023, um að synja honum um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja honum um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins frá Venesúela, ásamt vini sínum, og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 24. janúar 2023. Kvaðst kærandi sækja um alþjóðlega vernd hér á landi vegna ástandsins í heimaríki, mannrána o.fl. Kærandi kvaðst engan þekkja hér á landi og greindi frá því að vera með ofnæmi.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 23. júní ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindi frá helstu ástæðum flótta síns. Kærandi kom til framhaldsviðtals hjá Útlendingastofnun 7. júlí 2023 og skýrði nánar frá ástæðum umsóknar sinnar um alþjóðlega vernd. Kærandi kvaðst vera fæddur og uppalinn í suður Bólivar en hann hafi að hluta til einnig alist í La Paragua þar sem foreldrar hans hafi starfað. Kærandi kvaðst hafa búið í suður Bólivar í samnefndu fylki áður en hann kom hingað til lands. Kærandi kvaðst hafa búið í íbúð í eigu foreldra sinnar. Kærandi kvaðst hafa starfað sem leigubílstjóri áður en hann fór frá heimaríki en þar áður hafi hann starfað við námuvinnslu í gullnámu. Kærandi kvaðst vera við góða heilsu. Kærandi kvaðst tilheyra Frímúrarareglunni og aðhyllast kaþólsk trúarbrögð. Kærandi kvaðst ekki vera aðili að stjórnmálaflokki en greindi frá því að hafa tilheyrt stjórnmálahreyfingu háskólanema þegar hann hafi verið í háskólanámi á árunum 2015 til 2018. Hann hafi verið virkur í hreyfingunni og tekið þátt í mótmælum en ekki tekið þátt í stjórnmálastarfi eftir árið 2018. Aðspurður hvort hann hafi orðið fyrir ofbeldi við þátttöku í mótmælum greindi kærandi frá því að lögreglan og þjóðvarðliðið hafi m.a. kastað táragasi að mótmælendum og barið til þeirra með hjálmum. Kærandi kvaðst vera með ör á fingri sem hann hafi fengið í mótmælum vegna þess að hann hafi dottið og skorið sig á glerbroti. Kærandi greindi frá því í síðara viðtali að hafa tekið þátt í mótmælum árið áður fyrir utan bensínstöð vegna þess að það hafi ekki verið til bensín í meira en mánuð. Þá hafi lögreglan mætt og beitt táragasi. Kærandi kvaðst ekki hafa verið virkur í þágu tiltekins málsstaðar í heimaríki vegna ótta út af því sem hann hafi upplifað. Kærandi kvað hann og fjölskyldu hans hafa verið með takmörkuð réttindi vegna stjórnmálaskoðana. Kærandi greindi frá því að þau hafi ekki getað fengið „CLAP“ sem séu matarpokar sem ríkisstjórnin selji og þau hafi ekki mátt kaupa olíu af hinu opinbera. Kærandi kvaðst hafa tjáð stjórnmálaskoðanir sínar opinberlega á tilteknum samfélagsmiðli. Kærandi greindi frá því að félagi hans sem hafi staðið fyrir sama málsstað og hann í háskólanum, hafi verið myrtur í janúar vegna þessa. Kærandi kvaðst óttast að geta ekki tjáð pólitískar skoðanir sínar um ríkisstjórnina. Kærandi kvað líklegt að hann yrði settur í fangelsi út af pólitískum skoðunum hans.
Kærandi kvaðst hafa flúið heimaríki aðallega vegna almenns ástands og taldi öryggi sínu og fjölskyldu sinnar ógnað. Kærandi kvaðst hafa búið í þriðja hættulegasta fylkinu í heimaríki. Kærandi kvað nær allt í heimaríki hans tengjast á einhvern hátt ríkisstjórnarflokkum, jafnvel þegar leitað sé aðstoðar lögreglunnar. Kærandi greindi frá því að þegar hann hafi óskað eftir endurnýjun á vegabréfi sínu hafi hann verið spurður út í það hvaða ríkisstjórnarflokki hann hafi tilheyrt og þar sem hann hafi greint frá því að vera ekki skráður hafi það tekið fjóra til fimm mánuði að fá endurnýjun sem að jafnaði taki 20 daga. Kærandi kvaðst ekki vilja fara aftur í bæinn sem foreldrar hans búi í vegna umsvifa Tren de Aragua á svæðinu. Kærandi greindi frá því að hafa lent í misnotkun og munnlegu ofbeldi af hálfu Consejo Comunal, sem sé félagsráð, þegar hann hafi ætlað að kaupa gas.
Kærandi kvað ómögulegt að finna vinnu vegna einkavæðingar ríkisstjórnarinnar. Kærandi kvaðst vera verkfræðingur að mennt en aldrei fengið að starfa sem slíkur vegna stjórnmálaskoðana sinna. Kærandi hafi því þurft að leita að vinnu á námusvæði við ómannlegar aðstæður þar sem glæpamenn, Tren de Aragua, hafi stjórnað og hann þurft að borga þeim prósentu af vatni og rafmagni til þess að fá þjónustu. Kærandi kvað glæpamennina hafa fjárkúgað hann og hann hafi alltaf þurft að greiða hærri fjárhæð með tímanum. Kærandi greindi frá því að eitt skiptið hafi hann talið að hann þyrfti ekki að borga fyrir eitthvað en glæpamennirnir hafi látið hann vita á ofbeldisfullan máta að hann hefði rangt fyrir sér. Hann hafi verið neyddur til þess að starfa á námusvæðinu í tæpa sjö mánuði til þess að greiða glæpamönnunum umbeðna fjárhæð. Kærandi greindi frá því að staðurinn sem hann hafi starfað á hafi verið einangrað fjallasvæði þar sem ekkert símasamband sé og glæpamennirnir séu þeir einu sem geti haft samskipti sín á milli í gegnum talstöðvar. Engin lögregla sé á svæðinu og glæpamennirnir stjórni aðgengi til og frá svæðinu með því að stýra höfnunum. Kærandi kvaðst hafa farið inn á svæðið í byrjun árs 2018 og farið þaðan um jólin sama ár, hann hafi svo aftur farið inn á svæðið í lok janúar árið 2019 og þá þurft að vera þar í tæpa sjö mánuði þar til hann hafi náð að greiða glæpamönnunum upp skuldina. Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir einelti og ofbeldi því honum hafi verið hótað og sagt á hverjum degi að borga á ógnandi hátt sem hafi valdið honum streitu. Aðspurður hvers kyns ofbeldi hann hafi orðið fyrir kvað kærandi það hafa verið andlegt ofbeldi þar sem honum hafi verið hótað með vopnum að verða skotinn ef hann myndi ekki gera það sem honum hafi verið sagt að gera. Aðspurður hvað hefði gerst hefði hann farið út af námusvæðinu greindi kærandi frá því að hann yrði beittur ofbeldi og glæpamennirnir myndi finna hann ef hann myndi fara til næsta bæjar. Þessi frelsissvipting hafi haft slæm áhrif á heilsu hans m.a. þar sem hann hafi smitast ítrekað af malaríu vegna moskító flugna og vegna óhreininda í vatninu. Jafnframt hafi fyrrverandi maki hans misst fóstur vegna þess að hún hafi fengið malaríu. Kærandi kvaðst hafa dvalið á heimili foreldra sinna í suður Bólívar eftir að hann hafi verið látinn laus og starfað sem leigubílstjóri. Aðspurður hvort glæpahópurinn hafi aftur haft samband við hann eftir að honum hafi verið sleppt úr haldi kvaðst kærandi hafa skipt um símanúmer og ekki heyrt frekar frá hópnum. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað til lögreglunnar vegna þess að hvorki sé hægt að leita til lögreglu né yfirvalda vegna spillingar. Kærandi óttist um eigið öryggi og öryggi foreldra sinna þar sem þau séu búsett og starfandi í La Paragua þar sem Tren de Aragua séu allsráðandi.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kæranda var jafnframt brottvísað frá landinu og ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 5. nóvember 2023. Greinargerð barst kærunefnd 20. nóvember 2023 ásamt fylgigögnum.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er vísað til viðtals kæranda hjá Útlendingastofnun og annarra gagna málsins til frekari rökstuðnings. Kærandi gerir athugasemd við það sem fram kemur í hinni kærðu ákvörðun um að þær aðstæður sem bíði hans í Venesúela séu í lagi fyrir hann en kærandi óttist að hann muni ekki lifa það af.
Fram kemur að kærandi muni eiga mjög erfitt uppdráttar í heimaríki. Kærandi hafi lýst mjög slæmum aðstæðum í landinu og þori ekki aftur til baka. Kærandi telur það brjóta gegn ákvæðum mannréttindasáttmála Evrópu að synja honum um vernd hér á landi þar sem hann eigi á hættu að tapa lífi sínu snúi hann til baka. Kærandi vísar til úrskurðar kærunefndar nr. 231/2022 og hafnar því að sá úrskurður sé ekki lengur fordæmisgefandi fyrir mál er varði Venesúela þar sem ástandið í Venesúela hafi ekki lagast frá því hann var kveðinn upp. Með vísan til þess sem hafi gerst í sjálfviljugri heimför 15. nóvember árið 2023 sé kærandi hræddur og þá sérstaklega vegna þess að hann sé yfirlýstur andstæðingur yfirvalda í Venesúela. Kærandi hafi tekið þátt í friðsælum mótmælum hér á landi vegna framangreinds atviks. Kærandi hafi frétt frá foreldrum sínum að hann hafi verið í fjölmiðlum í Venesúela.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi verið virkur þátttakandi í mótmælum í Venesúela og birt mikið af færslum á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem hann mótmæli stjórnvöldum. Kærandi hafi fengið hótanir og lent í ofbeldi vegna andstöðu hans við stjórnvöld.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi óttist mjög ómannúðlega og vanvirðandi meðferð verði honum gert að snúa til Venesúela
Til þrautavara krefst kærandi þess að verða veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Til þrautaþrautavara krefst kærandi þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi og lagt verði fyrir Útlendingastofnun að taka umsókn kæranda um alþjóðlega vernd til meðferðar á ný á grundvelli 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Kærandi vísar til þess að þegar stjórnvald taki íþyngjandi ákvörðun beri því að hafa meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar að leiðarljósi og telur kærandi að Útlendingastofnun hafi ekki haft framangreinda meginreglu að leiðarljósi við ákvarðanatöku í máli hans. Ekki hafi verið litið til þess hvað bíði hans í Venesúela vegna þátttöku hans í mótmælum og vegna þess að hann sé yfirlýstur stjórnarandstæðingur.
Með endursendingu kæranda til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn rannsóknarreglu 10. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 eða 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað venesúelsku vegabréfi. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé venesúelskur ríkisborgari.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Quarterly Report April – June 2023 – Venezuela (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 23. júlí 2025);
- UNHCR Response – Venezuela, January – June 2023 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 28. júlí 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 23. júlí 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar 2023);
- Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnaraðstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs. Samkvæmt samningnum sé einnig gert ráð fyrir að Evrópusambandið og Sameinuðu þjóðirnar hafi eftirlit með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn í komandi forsetakosningum og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða álitnum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðarsinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem gerir þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verður í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðarsinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og séu að minnsta kosti 282 einstaklingar enn í haldi, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni síðasta árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt nýlegum heimildum, m.a. af vefsíðu Insight Crime, þá séu Tren de Aragua valdamestu og stærstu glæpasamtök í Venesúela og teygja anga sína til fjölda landa í Suður-Ameríku, m.a. Kólumbíu, Ekvador, Perú, Bólivíu og Chile. Helsti stjórnandi samtakanna sé Héctor Guerrero, sem hafi liðþjálfa sér t il aðstoðar til að stjórna starfsemi þeirra. Helsta brotastarfsemi samtakanna felist í ólöglegri námuvinnslu, ólöglegum viðskiptum með fíkniefni og vopn, mansal, mannrán, fjárkúgun, þvingaðar nýliðaskráningar, dráp og rán. Samtökin fái einnig staðbundna glæpahópa til að framkvæma tiltekin afbrot fyrir glæpasamtökin eða leyfi glæpahópum að nota nafn samtakanna í sinni starfsemi. Þungamiðja stjórnar samtakanna hafi áður verið í Tocorón fangelsinu í Aragua fylki en í september 2023 hafi stjórnvöld í Venesúela tekið yfir stjórn fangelsisins aftur. Samtökin hafa einnig haft viðveru í fimm öðrum ríkjum í Venesúela, fylkjunum Carabobo, Sucre, Bolívar, Guárico og Lara. Samstilltar aðgerðir yfirvalda í nokkrum ríkja Suður-Ameríku, m.a. í Tocorón fangelsinu og handtökur á yfir 100 meðlimum samtakanna, hafi veikt stöðu þeirra og dregið úr áhrifum þeirra á svæðinu.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Frá árinu 2021 hefur hagkerfi landsins farið að vaxa að nýju og í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna.
Samkvæmt frétt á heimasíðu Sameinuðu þjóðanna fór mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2023 kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Samkvæmt tilkynningu á heimasíðu dómsmálaráðuneytisins 4. desember 2023 kemur fram að haft hafi verið samband við alla einstaklinga í framangreindu flugi sem höfðu skráð tölvupóstföng hjá Útlendingastofnun og þeim sendur spurningalisti á spænsku. Meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu, um 83 svör sem næðu til 99 einstaklinga, væru að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fólkið hafi ekki sætt hefðbundnu landamæraeftirliti en þess í stað verið flutt í móttökumiðstöð þar sem m.a. hafi verið gerð Covid-19 próf og það spurt út í ferðir sínar áður en það hafi verið frjálst ferða sinna eftir um sólarhring. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför á þessu ári með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því á því að hann sé í hættu í heimaríki vegna fjárkúgana af hálfu meðlima glæpahópsins Tren de Aragua og vegna stjórnmálaskoðana hans.
Í viðtali greindi kærandi frá því að mikið væri um glæpi í Venesúela og kvaðst kærandi hafa búið í öðru eða þriðja hættulegasta fylkinu þar í landi. Kærandi kvaðst hafa lifað í stanslausum ótta og búið við mikið óöryggi. Kærandi kvað glæpahópinn Tren de Aragua hafa mikil umsvif í heimabæ hans og því vilji hann ekki fara þangað aftur. Aðspurður kvaðst kærandi helst óttast skipulagða glæpastarfsemi og að geta ekki tjáð pólitískar skoðanir sínar. Kærandi kvaðst hafa tilheyrt stjórnmálahreyfingu háskólanema á árunum 2015 til 2018. Kærandi kvaðst hafa tekið þátt í mótmælum og greindi frá því að lögreglan hafi beitt táragasi gegn mótmælendum og lamið til mótmælendur með hjálmum. Kærandi kvaðst hafa hætt þátttöku sinni í stjórnmálahreyfingunni 2018 og kvaðst ekki hafa mætt á mótmæli síðan. Kærandi greindi þó frá því síðar að hafa mætt á mótmæli á árinu 2023 til þess að mótmæla skorti á eldsneyti. Kærandi kvaðst hafa verið mismunað og verið réttindalaus vegna þess að hann hafi verið á móti ríkisstjórninni. Kærandi kvaðst hafa verið spurður hvaða ríkisstjórnarflokki hann tilheyrði þegar hann hafi endurnýjað vegabréf sitt. Hann neitað fyrir skráningu í ríkisstjórnarflokk og þá hafi ferlið tekið fjóra til fimm mánuði sem hefði átt að taka 20 daga. Kærandi kvaðst óttast að vera fangelsaður vegna pólitískra skoðana sinna. Kærandi greindi frá því að skólabróður hans, sem hafi haft sömu pólitískar skoðanir og hann, hafi verið myrtur.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram sjö skjáskot af ummælum hans gegn ríkisstjórninni á samfélagmiðlum. Skjáskotin en dagsett frá árinu 2014 til ársins 2016. Kærandi lagði einnig fram skjáskot af ljósmyndum af honum á tilgreindum samfélagsmiðli. Ráða má að á ljósmyndunum sjáist kærandi setja kjörseðil í kjörkassa. Kærandi lagði einnig fram skjáskot af ljósmynd af samfélagsmiðli þar sem nafngreinds látins manns er minnst. Merki skólahreyfingarinnar Adelante UDO kemur fram á ljósmyndinni. Við meðferð málsins hjá kærunefnd lagði kærandi fram hlekki á netsíður þar sem hann kveður sig sjálfan koma fram. Um er að ræða ljósmyndir og myndskeið af mótmælum á Íslandi.
Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnamálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Með vísan til framburðar kæranda og framlagðra gagna er ekki ástæða til að daga í efa frásögn hans um að hann hafi tilheyrt stjórnmálahreyfingu háskólanema á árunum 2015 til 2018, tekið þátt í mótmælum og tjáð stjórnmálaskoðanir sínar á tilteknum samfélagsmiðli. Þá efast kærunefnd ekki um að lögreglan hafi kastað táragasi í átt að mótmælendum og barið til mótmælanda með hjálmum. Þá er ekki hægt að útiloka að skólafélagi kæranda hafi verið myrtur. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðasta áratug. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku, refsingu eða verða fyrir áreiti vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Þrátt fyrir að kærandi hafi tilheyrt stjórnmálahreyfingu í háskólanum, tjáð skoðanir sínar opinberlega og mætt á mótmæli þá verður ekki séð að hann hafi gengt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðuhreyfingarinnar eða sé útsettari en aðrir mótmælendur fyrir árásum eða hótunum. Þá ber frásögn kæranda með sér að hann hafi hætt í framangreindri stjórnmálahreyfingu árið 2018 og aðeins tekið þátt í einum mótmælum árið 2023 frá þeim tíma. Þótt kærandi hafi tjáð skoðanir sínar opinberlegar á samfélagsmiðlum þá hefur kærandi ekki leitt að því líkum að stjórnvöldum hafi verið kunnugt um stjórnmálaskoðanir hans eða að hann hafi lent í vandkvæðum í tengslum við ummæli hans gegn ríkisstjórninni á samfélagmiðlum en samkvæmt framlögðum var síðasta færsla hans birt árið 2016.
Auk framangreinds greindi kærandi frá því að hafa sætt mismunun vegna stjórnmálaskoðana hans. Hann hafi átt í erfiðleikum með að fá vinnu, ekki fengið mataraðstoð frá ríkinu auk þess sem hann hafi ekki fengið að kaupa olíu af hinu opinbera. Ekki er ástæða til þess að draga frásögn kæranda í efa. Frásögn kæranda ber þó með sér að hann hafi starfað sem leigubílstjóri áður en hann hafi farið frá heimaríki og starfað í öðrum störfum þar áður. Verður því ekki séð að hann hafi átt í erfiðleikum með að fá vinnu hjá einkafyrirtækjum. Þá liggur fyrir í gögnum málsins vegabréf kæranda, útgefið 22. júlí 2022. Samkvæmt útstimplum í vegabréfunum frá Simon Bolivar flugvellinum 22. janúar 2023 hafi kærandi farið úr landi án vandkvæða. Gefur framangreint ekki til kynna að kærandi sé eftirlýstur eða undir sérstöku eftirliti hjá stjórnvöldum í heimaríki sínu.
Með vísan til framangreinds fellst kærunefnd ekki á að kærandi eigi frekar á hættu að verða fyrir ofsóknum en aðrir einstaklingar í heimaríki sem séu mótfallnir stjórnvöldum eða hafi tekið þátt starfi stjórnarandstöðuhreyfinga. Þá er ljóst að framangreind atvik fela ekki í sér brot á grundvallarmannréttindum kæranda og eða sú mismunun sem hann hafi sætt nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, sbr. b-lið 2.mgr. og e-lið 3.mgr. ákvæðisins.
Í viðtali greindi kærandi frá því að hafa starfað á námusvæði þar sem glæpahópurinn Tren de Aragua hafi verið ráðandi. Kærandi kvað meðlimi Tren de Aragua hafa beitt sig og aðra á svæðinu fjárkúgun. Kærandi kvaðst fyrst um sinn hafa greitt glæpahópnum en síðan hætt að greiða og þá hafi meðlimir glæpahópsins látið hann vita á ofbeldisfullan hátt að hann þyrfti að greiða. Kærandi kvaðst hafa verið neyddur til þess að vera á námusvæðinu í sjö mánuði til þess að greiða glæpahópnum tiltekna fjárhæð. Kærandi greindi frá því að námusvæðið hafi verið á afmörkuðu fjallasvæði þar sem ekkert net- eða símasamband hafi verið og að glæpahópurinn hafi stýrt aðgengi til og frá svæðinu. Í lok júlí árið 2019 hafi kærandi klárað að greiða glæpahópnum umbeðna upphæð og getað yfirgefið svæðið. Kærandi kvaðst hafa orðið fyrir andlegu ofbeldi á þeim tíma er hann dvaldi á námusvæðinu. Kærandi kvaðst hafa farið heim til foreldra sína eftir að hann hafi farið frá námusvæðinu til þess að jafna sig eftir að hafa veikst af malaríu. Hann hafi síðan farið að starfa sem leigubílstjóri í suður Bólívar borg. Aðspurður kvað kærandi meðlimi glæpahópsins ekki hafa haft samban við hann eftir að hann hafi farið frá námusvæðinu árið 2019. Kærandi kvaðst ekki hafa leitað til lögreglunnar. Aðspurður hvort hann hafi einhver gögn til stuðnings frásögn sinni greindi kærandi frá því að hafa ekki mátt vera með síma á svæðinu en hann hafi tekið nokkrar myndir í laumi.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi m.a. fram hlekk á myndskeið á samfélagsmiðli. Ráða má að myndbandið sýni mótmæli vegna árásar á námuverkamenn í La Paragua borg í Bólivarfylki, dags. 5 ágúst 2023. Þá lagði kærandi fram umfjöllun um aðstæður á námusvæði Orinoco Mining Arc þar sem kærandi kveðst hafa starfað og er umfjöllunin er í samræmi við frásögn kæranda um aðstæður á svæðinu.
Af heimildum um heimaríki kæranda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Samkvæmt nýlegum heimildum þá eru Tren de Aragua valdamestu og stærstu glæpasamtök í Venesúela og teygja anga sína til fjölda landa í Suður-Ameríku, m.a. Kólumbíu, Ekvador, Perú, Bólivíu og Chile. Helsta brotastarfsemi samtakanna feli í sér ólöglega námuvinnslu, ólögleg viðskipti með fíkniefni og vopn, mansal, mannrán, fjárkúgun, þvingaðar nýliðaskráningar, dráp og rán.
Með vísan til frásagnar kæranda, framlagðra gagna og þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærandi hafi starfað á námusvæði í Bólivar fylki og að ótilgreindir einstaklingar sem kunni að hafa verið á vegum glæpasamtakanna Tren de Aragua, hafi beitt hann fjárkúgun. Þá er ekki ástæða til að draga í efa að kærandi hafi verið frelsissviptur á árinu 2019 þar til hann hafi verið búin að greiða glæpamönnunum að fullu. Af frásögn kæranda má ráða að fjárkúganirnar hafi tengst starfi hans á námusvæðinu og að hann. hafi ekki orðið fyrir frekari áreiti af hálfu glæpamannanna eftir að hafa skipt um starfsvettvang. Þau atvik sem kærandi hefur lýst og frásögn hans af aðstæðum benda ekki til þess að þeir aðilar sem hafi verið að verki séu í slíkri stöðu eða hafi slík völd að kæranda sé ómögulegt að leita eftir og fá vernd lögreglu í heimaríki. Heimildir um heimaríki kæranda benda til þess að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa þar í landi, m.a. glæpahópnum Tren de Aragua. Þær aðgerðir benda ekki til þess að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd í skilningi c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hann eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á því að hann óttist mjög ómannúðlega og vanvirðandi meðferð snúi hann til Venesúela.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Vísaði nefndin þá til þess að efnahagsástand í landinu hafi þokast í rétta átt með afléttingum ýmissa viðskiptaþvingana, innflutningstakmarkana og verð- og gjaldeyrisstýringar. Ákveðnar breytingar hafi orðið á stjórnarfari landsins síðasta árið og með því samkomulagi sem ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað í nóvember 2022 virðist viðhorf samningsaðila hafa breyst og bendi til þess að aðilar séu tilbúnir að vinna saman að bættum aðstæðum í landinu. Framangreindur samningur og samtal milli stjórnar og stjórnarandstöðu í landinu bæri með sér að dregið hafi úr því pólitíska ójafnvægi sem áður hafi ríkt þegar íbúar Venesúela og aðrar þjóðir hafi skipst í fylkingar með tveimur sitjandi forsetum landsins. Stjórnvöld í Venesúela hafi nú viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar ný afstaðinna forsetakosninga séu harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir beinist að öllum almenningi í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kæranda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kæranda er ljóst að þau atvik sem kærandi hefur lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburði kæranda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda leiði til þess að kærandi eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi kærandi til baka.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hafa verið búsettur í Bólivar fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Bólívar fylki staðsett í suðausturhluta Venesúela og liggur við landamæri ríkjanna Gvæjana og Brasilíu. Landaheimildir benda til þess að ólöglegur námugröftur fari fram í fylkinu og er öryggisástand á slíkum svæðum talið vera slæmt. Þær heimildir sem kærunefnd hefur skoðað bera hins vegar ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimaborg kæranda Bólívar. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project) og á vefsíðu InSight Crime, eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt en aðeins voru skráð 24 öryggistilvik í Bólívar fylki síðast liðið ár. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærandi eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærandi sótti um alþjóðlega vernd hér á landi 24. janúar 2023. Kærandi hefur því ekki fengið niðurstöðu í máli sínu innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita honum dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Að mati kærunefndar uppfyllir kærandi skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði kærandi fram vegabréf. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hver kærandi sé, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kæranda skv. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinar kærðu ákvörðunar er hún staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kæranda dvalarleyfi skv. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest hvað varðar umsókn kæranda um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kæranda dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
The decision of the Directorate of Immigration regarding the appellant’s application for international protection is affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellant a residence permit based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Þorsteinn Gunnarsson