13 ágúst 2025
/
Mál 136/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 136/2025
Miðvikudaginn 13. ágúst 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 3. mars 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 5. september 2024, um að synja umsókn kæranda um örorkulífeyri.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 5. september 2024, var umsókn kæranda um örorkulífeyri synjað á þeim grundvelli að endurhæfing væri ekki fullreynd. Ákvörðunin var rökstudd með bréfi Tryggingastofnunar, dags. 23. desember 2024. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 24. júní 2025, að veita kæranda örorkulífeyri varanlega frá 1. október 2024.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2025. Með bréfi, dagsettu sama dag, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 20. mars 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að stofnunin hefði tekið ákvörðun um að boða kæranda í læknisskoðun vegna örorkumats. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 20. mars 2025, sem ítrekað var 8. apríl 2025. Engin svör bárust frá kæranda. Þann 23. júní sendi Tryggingastofnun ríkisins úrskurðarnefnd velferðarmála nýja ákvörðun í málinu, dags. 24. júní 2025, þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri var samþykkt.
II. Sjónarmið kæranda
Með kæru fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 23. desember 2024, þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri var synjað á þeim grundvelli að endurhæfing hefði ekki verið fullreynd.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins segir að stofnuninni hafi borist viðbótargögn frá kæranda 13. febrúar 2025 og hafi í kjölfarið ákveðið að boða kæranda í læknisskoðun. Tryggingastofnun fari því fram á frávísun málsins.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 5. september 2024 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri var synjað á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd. Í kjölfar kæru ákvað Tryggingastofnun að boða kæranda í skoðun hjá skoðunarlækni vegna örorkumats. Með bréfi, dags. 20. mars 2025, sem var ítrekað 8. apríl 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til greinargerðar stofnunarinnar en engin svör bárust frá kæranda. Undir rekstri málsins samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 24. júní 2025, varanlegt örorkumat frá 1. október 2024.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda varanlegan örorkulífeyri. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir