13 ágúst 2025

/

Mál nr. 401/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 401/2025

Miðvikudaginn 13. ágúst 2025

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með rafrænni kæru, móttekinni 25. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 13. mars 2020 um að samþykkja umsókn barnsmóður hans um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 12. mars 2019.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. mars 2020, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsmóður hans frá 12. mars 2019. Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. júní 2025.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærandi geri alvarlegar athugasemdir við kröfu um meðlag aftur í tímann frá mars 2019 til apríl 2020, samtals að fjárhæð 473.281 kr. Á því tímabili hafi kærandi greitt barnsmóður sinni meðlag beint inn á hennar bankareikning, samtals að fjárhæð 1.120.000 kr., sem sé langt umfram það sem honum hafi borið að greiða.

III.  Niðurstaða

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. mars 2020, um milligöngu meðlagsgreiðslna til barnsmóður kæranda fylgdi kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála.

Samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála, skal kæra til úrskurðarnefndar velferðarmála vera skrifleg og skal hún borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Fyrir liggur að í hinni kærðu ákvörðun var kæranda leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála þann 25. júní 2025, en þá var kærufrestur samkvæmt 2. mgr. 13. gr. laga um almannatryggingar löngu liðinn.

Í 5. mgr. 7. gr. laga um úrskurðarnefnd velferðarmála er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:

„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:

  1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
  2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.

Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“

Samkvæmt gögnum málsins leið meira en ár frá því að kæranda var tilkynnt um ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins þann 13. mars 2020 þar til kæra í máli þessu barst úrskurðarnefndinni þann 25. júní 2025. Þegar af þeirri ástæðu verður kæru ekki sinnt, sbr. 2. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

Rakel Þorsteinsdóttir