13 ágúst 2025

/

Mál nr. 66/2025 Úrskurður 13. ágúst 2025

Mál nr. 66/2025                    Eiginnafn:     Anída

Hinn 13. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 66/2025 en erindið barst nefndinni 1. júlí 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Anída tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Anídu, og uppfyllir að öðru leyti ákvæði 5. gr. laga um mannanöfn, sbr. nöfn eins og Alída, Ída og Jónída.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Anída (kvk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.