13 ágúst 2025

/

Mál nr. 71/2025 Úrskurður 13. ágúst 2025

Mál nr. 71/2025                    Aðlögun kenninafns: Lársson         

Hinn 13. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 71/2025.

Með bréfi Þjóðskrár Íslands, dags. 11. júlí 2025, var óskað úrskurðar mannanafnanefndar um beiðni XX og YY um að sonur þeirra, ZZ, verði kenndur við föður sinn og nafn hans, Laurentiu, aðlagað að íslensku þannig að drengurinn beri kenninafnið Lársson.

Ekkert er í lögum nr. 45/1996, um mannanöfn, sem stendur í vegi fyrir því að fallist sé á ofangreinda beiðni.

Úrskurðarorð:

Fallist er á föðurkenninguna Lársson.