13 ágúst 2025

/

Mál nr. 72/2025 Úrskurður 13. ágúst 2025

Mál nr. 72/2025                    Eiginnafn: Matheó (kk.)

Hinn 13. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 72/2025 en erindið barst nefndinni 23. júlí 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Matheó (kk.) er ritháttarafbrigði nafnsins Matheo sem er á mannanafnaskrá. Þar sem umbeðinn ritháttur felur í sér nokkra aðlögun nafnsins að almennum ritreglum íslensks máls telur mannanafnanefnd ekkert því til fyrirstöðu að samþykkja hann.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Matheó (kk.) er samþykkt og skal nafnið fært á mannanafnaskrá sem ritháttarafbrigði nafnsins Matheo.