20 ágúst 2025

/

Mál nr. 79/2025 Úrskurður 20. ágúst 2025

Mál nr. 79/2025                    Eiginnafn:     Væringi (kk.)

Hinn 20. ágúst 2025 kveður mannanafnanefnd upp svohljóðandi úrskurð í máli 79/2025 en erindið barst nefndinni 1. ágúst 2025.

Til þess að heimilt sé að samþykkja nýtt eiginnafn þurfa öll skilyrði 5. gr. laga, nr. 45/1996, um mannanöfn að vera uppfyllt. Skilyrðin eru:

  1. Eiginnafn skal geta tekið íslenska eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli.
  2. Nafnið má ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.
  3. Það skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rithætti þess.
  4. Eiginnafn má ekki vera þannig að það geti orðið nafnbera til ama.

Eiginnafnið Væringi (kk.) tekur íslenskri beygingu í eignarfalli, Væringja, og stríðir hvorki gegn hljóðskipunar- né beygingarreglum íslensks máls. Í málinu reynir hins vegar á skilyrði nr. 2 um að nafnið megi ekki brjóta í bág við íslenskt málkerfi.

Í athugasemdum með frumvarpi núgildandi laga um mannanöfn segir m.a. að íslenskt málkerfi sé samsafn þeirra reglna sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli. Þær hefðir taka sérstaklega til gerðar mannanafna og merkingar þeirra. Orðið Væringi er heiti þjóðflokks sem lífvarðarflokkur Miklagarðskeisara var kenndur við. Önnur dæmi um slík heiti eru til að mynda Goti, Kelti, Vandali, Rómverji, Sígauni sbr. grein 1.2.3.1 íslenskra ritreglna, sbr. auglýsingar nr. 695/2016 og 800/2018 með síðari breytingum. Heiti þjóða og þjóðflokka hafa ekki verið notuð sem eiginnöfn og nöfn af því tagi eru ekki í samræmi við þær reglur sem unnið hafa sér hefð í íslensku máli og brjóta gegn íslensku málkerfi. Líta má til hliðsjónar á úrskurð nr. 35/2024 um nafnið Móari. Er því ekki unnt að fallast á eiginnafnið Væringi.

Líkindi heitisins Væringi við eiginnafnið Víkingur eru nefnd til rökstuðnings í úrskurðarbeiðni. Þess ber að gæta að eiginnafnið Víkingur er ævafornt, kemur fyrir í Landnámu og í Þorsteins sögu Víkingssonar en ekki eru fordæmi fyrir að nafnorðið Væringi hafi verið notað sem eiginnafn.

Úrskurðarorð:

Beiðni um eiginnafnið Væringi (kk.) er hafnað.