21 ágúst 2025
/
1295/2025. Úrskurður frá 21. ágúst 2025
Hinn 21. ágúst 2025 kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp svohljóðandi úrskurð nr. 1295/2025 í máli ÚNU 25080001.
Kæra og málsatvik
Með erindi, dags. 1. ágúst 2025, barst úrskurðarnefnd um upplýsingamál kæra frá […]. Kærunni fylgdi erindi frá kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf., dags. 3. júlí 2025. Í erindinu spurði kærandi hvort samskipti Vestmannaeyjahafnar og Herjólfs ohf. væru hnökralaus og með eðlilegum hætti. Félagið svaraði kæranda með erindi, dags. 8. júlí 2025. Í erindinu kom fram að Vestmannaeyjabær væri eigandi félagsins. Samskiptin fælust helst í því að framkvæmdastjóri félagsins sækti reglulega bæjarráðsfundi svo ráðið væri upplýst um allt það helsta sem sneri að rekstri og flutningum Herjólfs. Öll þau samskipti væru með miklum ágætum, snurðulaus og eðlileg.
Í kæru til úrskurðarnefndarinnar kemur fram að kærandi sé ekki viss um að samkomulag Vestmannaeyjabæjar og Herjólfs ohf. séu upp á það besta. Kæran sé sú að Herjólfur ohf. verði úrskurðað til að taka afstöðu til þess sem spurt var um og svara samkvæmt því.
Niðurstaða
Upplýsingaréttur almennings tekur samkvæmt 1. mgr. 5. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, til aðgangs að fyrirliggjandi gögnum sem varða tiltekið mál og aðgangs að tilteknum fyrirliggjandi gögnum. Þegar aðili sem heyrir undir gildissvið laganna tekur á móti erindi sem ber með sér að vera beiðni um aðgang að gögnum á hann að athuga hvort fyrir liggi annaðhvort þau gögn sem beinlínis er óskað eftir eða gögn sem innihalda þær upplýsingar sem tilgreindar eru í beiðninni og taka ákvörðun um hvort aðgangur að gögnunum á grundvelli upplýsingalaga verði veittur.
Af upplýsingalögum verður ekki leidd sambærileg skylda til að svara erindum sem bera ekki með sér að vera beiðnir um aðgang að gögnum. Ekki er útilokað að skylt kunni að vera að bregðast við slíkum erindum, sbr. 1. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga, nr. 37/1993, og óskráða leiðbeiningarreglu þess efnis að stjórnvöldum sé skylt að veita þeim sem til þeirra leita nauðsynlega aðstoð og leiðbeiningar varðandi þau mál sem snerta starfssvið þeirra. Hins vegar er það ekki hlutverk úrskurðarnefndar um upplýsingamál að skera úr um rétt beiðanda til að fá svar við slíku erindi eða ágreining um það hvort erindinu hafi verið svarað með fullnægjandi hætti, enda byggja kæruheimildir til nefndarinnar í upplýsingalögum á því að beðið hafi verið um aðgang að gögnum, sbr. 3. mgr. 17. gr. og 1. mgr. 20. gr. upplýsingalaga. Þá þarf og að liggja fyrir beiðni um aðgang að gögnum samkvæmt upplýsingalögum til að kæru, vegna óhóflegs dráttar á afgreiðslu máls samkvæmt 4. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga, teljist réttilega beint til úrskurðarnefndarinnar.
Úrskurðarnefndin hefur farið yfir erindi kæranda til Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. og telur erindið ekki bera með sér að vera beiðni um gögn í skilningi upplýsingalaga heldur almenn fyrirspurn til félagsins. Af þeim sökum verður kærunni vísað frá úrskurðarnefndinni.
Úrskurðarorð
Kæru […], dags. 1. ágúst 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd um upplýsingamál.
Trausti Fannar Valsson, formaður
Hafsteinn Þór Hauksson
Sigríður Árnadóttir