21 ágúst 2025

/

Mál nr. 286/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 286/2025

Fimmtudaginn 21. ágúst 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 6. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. júlí 2023 og var umsóknin samþykkt 28. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, var kæranda jafnframt tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur væri synjað þar sem hann hefði ekki skilað gögnum sem stofnunin hefði óskað eftir.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 6. maí 2025. Með bréfi, dags. 13. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 8. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Rökstuðningur fylgdi ekki kæru en af henni má ráða að kærandi óski eftir að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 12. júlí 2023. Með erindi, dags. 28. ágúst 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 69%.

Þann 4. mars 2025 hafi kærandi verið boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 5. mars 2025, klukkan 11:30. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 4. mars 2025, klukkan 11:29. Kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal né látið vita af forföllum.

Þann 12. mars 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru í boðað viðtal. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum.

Þann 13. mars 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 14. mars 2025, klukkan 9:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 13. mars 2025, klukkan 8:50. Kærandi hafi hvorki mætt á boðaðan upplýsingafund né látið vita af forföllum.

Þann 17. mars 2025 hafi kærandi sent tölvupóst til stofnunarinnar þar sem hann hafi upplýst um að hann hefði verið staddur erlendis á þeim tíma sem fundir hefðu átt sér stað og af þeim sökum hefði honum verið ómögulegt að mæta. Vinnumálastofnun hafi óskað eftir afritum af flugfarseðlum í kjölfarið og upplýsingum um ferð kæranda erlendis, auk þess sem kærandi hafi verið inntur eftir skýringum á því hvers vegna hann hefði ekki upplýst um hana fyrir fram. Kærandi hafi svarað með tölvupósti 31. mars 2025 og kveðið ótilgreint forrit (e. program) stofnunarinnar ekki leyfa tilkynningar um ferðir erlendis.

Með erindi, dags. 1. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að hann hefði hvorki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar né mætt á upplýsingafund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. og 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en kærandi hefði áður sætt tveggja mánaða viðurlögum vegna ótilkynntrar vinnu í september 2024.

Með erindi, dags. 1. apríl 2025, hafi kæranda jafnframt verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið synjað sökum þess að hann hefði ekki skilað gögnum sem óskað hefði verið eftir.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um atvinnuleysisbætur komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 5. mars 2025 né á boðaðan upplýsingafund þann [14. mars 2025]. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tímasetningar og staðsetning hafi verið tilgreindar. Kæranda hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni í viðtalið og á upplýsingafund en þær lúti að því að hann hafi farið erlendis vegna veikinda barns síns. Kærandi hafi af þeim sökum ekki getað mætt í boðuð vinnumarkaðsúrræði. Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í fyrsta lagi hafi engin tilkynning borist um forföll frá kæranda. Þá hafi kærandi í upphafi umsóknar verið upplýstur um að allar breytingar á högum sínum bæri að tilkynna stofnuninni. Kæranda hafi verið sendur tölvupóstur þann 12. júlí 2023 og sérstaklega tilgreind skylda til að tilkynna um allar ferðir erlendis án ástæðulausrar tafar. Ekki verði fallist á það sem gilda ástæðu fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði að atvinnuleitandi hafi, án þess að tilkynna það til stofnunarinnar, farið erlendis á sama tíma. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli laganna.

Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi fram að sá sem hafi áður sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggi fyrir ef hann hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili samkvæmt 29. gr.

Í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt í boðuð vinnumarkaðsúrræði í tvígang á sama bótatímabili beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. í þrjá mánuði.

Kærandi hafi einnig látið undir höfuð leggjast að skila til stofnunarinnar umbeðnum gögnum um ferðir hans erlendis og óljóst sé hvort kærandi sé enn staddur erlendis. Það hafi verið niðurstaða stofnunarinnar að synja um frekari greiðslur til kæranda þar til umbeðin gögn berist, enda sé ekki ljóst hvort kærandi uppfylli skilyrði 13. og 14. gr. laganna fyrir greiðslum atvinnuleysisbóta.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum þrjá mánuði á grundvelli 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Það sé einnig niðurstaða stofnunarinnar að synja skuli kæranda um frekari greiðslur þar til ljóst megi vera að kærandi uppfylli skilyrði laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærðar eru ákvarðanir Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Í gögnum málsins liggur fyrir að kærandi var þann 4. mars 2025 boðaður í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram daginn eftir, þann 5. mars 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi mætti hvorki í viðtalið né boðaði forföll. Þá var kærandi þann 13. mars 2025 boðaður á upplýsingafund Vinnumálastofnunar sem haldinn var daginn eftir, þann 14. mars 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Kærandi mætti hvorki á fundinn né boðaði forföll.

Framangreindar boðanir voru sendar kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningum á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta fjarveru í boðað viðtal og á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:

„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“

Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 2. september 2024 á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna. Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur. Umsókninni var synjað á þeim grundvelli að kærandi hefði ekki skilað nauðsynlegum gögnum sem Vinnumálastofnun hafði óskað eftir. Því væri ekki ljóst hvort kærandi uppfyllti skilyrði um virka atvinnuleit, sbr. 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna. Þar kemur fram að launamaður sem uppfylli eftirtalin skilyrði teljist tryggður samkvæmt lögunum:

  1. er í virkri atvinnuleit, sbr. 14. gr.,
  2. er orðinn 18 ára að aldri en yngri en 70 ára,
  3. er búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi, sbr. þó VIII. kafla,
  4. hefur heimild til að ráða sig til vinnu hér á landi án takmarkana,
  5. hefur verið launamaður á ávinnslutímabili skv. 15. gr. í starfi sem ekki er hluti af sérstökum vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. þó V. kafla,
  6. leggur fram vottorð fyrrverandi vinnuveitanda þegar það á við, sbr. 16. gr., og vottorð frá skóla þegar það á við, sbr. 3. mgr. 15. gr.,
  7. hefur verið í atvinnuleit samfellt í þrjá virka daga frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst Vinnumálastofnun.

Samkvæmt gögnum málsins óskaði Vinnumálastofnun þann 25. mars 2025 eftir að kærandi skilaði inn flugfarseðlum vegna ferðar sinnar erlendis. Umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur var synjað þar sem engir farseðlar hefðu borist stofnuninni. Samkvæmt c. lið 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er það skilyrði að vera búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum. Þar sem kærandi lét hjá líða að skila inn umbeðnum flugfarseðlum er það mat úrskurðarnefndar velferðarmála að Vinnumálastofnun hafi borið að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að synja umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur er því staðfest.

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvarðanir Vinnumálastofnunar, dags. 1. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði og að synja umsókn hans um atvinnuleysisbætur, eru staðfestar.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir