21 ágúst 2025

/

Mál nr. 295/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 295/2025

Fimmtudaginn 21. ágúst 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 9. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 31. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til starfsloka hjá fyrrum vinnuveitanda væri réttur til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kærandi óskaði eftir rökstuðningi 24. janúar 2025 og var hann veittur með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2025. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju af hálfu Vinnumálastofnunar í kjölfar frekari skýringa frá kæranda. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 8. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 9. maí 2025. Með bréfi, dags. 13. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 3. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að í rökstuðningi Vinnumálastofnunar, dags. 10. febrúar 2025, sé talið upp hvað teljist gildar ástæður fyrir starfslokum og að þær geti verið af margvíslegum toga. Sérstaklega sé tekið fram að tvennt falli þar undir, meðal annars þegar maki hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan flytji þar af leiðandi búferlum.

Í símtali við fulltrúa Vinnumálastofnunar í janúar 2025 hafi kærandi spurst fyrir um hvort búferlaflutningar væru einir og sér nægjanlegir. Fulltrúinn hafi tjáð kæranda að svo væri ekki og að þörf væri á frekari rökstuðningi. Hann hafi nefnt að einhver ástæða þyrfti að vera til staðar fyrir búferlaflutningum, til dæmis til að veita maka stuðning. Kærandi hafi í kjölfarið sent bjartsýnn inn rökstuðning þar sem fram hafi komið að maki hans væri barnshafandi og kærandi hafi af þeim sökum flutt nær henni til að vera henni til stuðnings og að þau væru að flytja í sameiginlegt húsnæði. Til þess að það gæti orðið að veruleika hafi kærandi þurft að flytja búferlum þar sem maki hans búi í öðrum landshluta sem sé upphafleg ástæða kæranda fyrir umsókn hans um atvinnuleysisbætur.

Nánari upplýsingar um gildar ástæður hafi ekki komið fram, enda hafi kærandi talið í ljósi símtals við fulltrúa Vinnumálastofnunar að hann hefði uppfyllt skilyrðið um búferlaflutninga en hann hefði verið í fastri vinnu undanfarin 10 ár. Þegar kæranda hafi borist rökstuðningur Vinnumálastofnunar þann 10. febrúar 2025 hafi gildar ástæður komið fram sem kærandi hafi ekki vitað um, annars hefði hann komið þeim til skila, það er að maki hans hefði hafið störf í öðrum landshluta. Maki kæranda hafi hafið störf sem lögreglumaður í umdæmi B en áður verið í C þar sem kærandi hafi verið búsettur. Í ljósi þess að maki kæranda hafi hafið störf í öðrum landshluta og sé barnshafandi fái kærandi ekki betur séð en að rökstuðningur hans fyrir búferlaflutningum sé endanlega gulltryggður.

Það séu mistök kæranda að hafa ekki lesið rökstuðning Vinnumálastofnunar frá 10. febrúar 2025 nægjanlega vel og áttað sig á að ákvörðun stofnunarinnar hafi byggt á ófullnægjandi upplýsingum. Í öðru skjali, dagsettu sama dag, sé ákvörðun um frestun staðfest og kærandi hafi því talið um lokaniðurstöðu að ræða. Eftir að hafa ráðfært sig við sitt stéttarfélag telji kærandi það hins vegar ljóst að niðurstaða Vinnumálastofnunar sé efnislega röng í ljósi þess sem stofnunin telji vera gildar ástæður. Kærandi hafi reynt að koma þessum sjónarmiðum á framfæri símleiðis við Vinnumálastofnun og við fulltrúa á þjónustuskrifstofu stofnunarinnar en honum hafi verið tjáð að eina úrræðið sé að leggja fram kæru.

Kærandi krefjist þess að biðtími hans verði felldur niður og að honum verði greiddar atvinnuleysisbætur fyrir þá mánuði sem hann hafi uppfyllt skilyrðið um gildar ástæður.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 31. desember 2024. Kærandi hafi tilgreint í umsókn að ástæða starfsloka hefði verið búferlaflutningar og að hann hefði sjálfur sagt um störfum.

Kæranda hafi verið sent bréf þann 20. janúar 2025 þar sem honum hafi verið gefinn kostur á frekari athugasemdum og skýringum vegna starfsloka sinna. Kærandi hafi svarað þann 20. janúar 2025 með svohljóðandi skýringum: „Skýring vegna starfsloka: Búferlaflutningar“.

Með erindi, dags. 24. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans um atvinnuleysisbætur hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Með vísan til starfsloka hans hafi réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar verið felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi óskað eftir rökstuðningi þann 24. janúar 2025 og einnig sent frekari skýringar með bréfi, mótteknu þann 28. janúar 2025. Rökstuðningur fyrir ákvörðun stofnunarinnar um biðtíma hafi verið veittur þann 10. febrúar 2025 en kæranda hafi sama dag einnig verið sent bréf sem hafi upplýst hann um að skýringar hans frá 28. janúar 2025 hefðu verið lagðar til grundvallar endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar en niðurstaða þeirrar skoðunar hefði leitt til sömu niðurstöðu og áður.

Kærandi hafi aftur óskað eftir rökstuðningi þann 3. mars 2025 og ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið sú að synja þeirri beiðni þar sem rökstuðningur hefði þegar verið veittur skriflega 10. febrúar 2025. Kæranda hafi verið tilkynnt um þá ákvörðun með bréfi, dags. 24. mars 2025.

Kærandi hafi sent bréf með ítarlegri skýringum þann 26. mars 2025 og ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið að leggja þær skýringar til grundvallar endurupptöku á máli hans. Kæranda hafi verið tilkynnt um að stofnunin teldi ekki ástæðu til að breyta efnislegri niðurstöðu í máli hans með bréfi, dags. 8. apríl 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Lögin veiti þeim fjárhagslegt úrræði og beri að gera ríkar kröfur til þeirra sem segi upp störfum sínum að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Í 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segi:

,,Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf sitt af ástæðum sem hann sjálfur á sök á.“

Orðalagið ,,gildar ástæður“ hafi verið túlkað þröngt og fá tilvik hafi verið talin falla þar undir. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar komi fram að með ákvæði þessu sé verið að undirstrika það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í ljósi þess sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þar sem annað starf sé ekki í boði. Þar sé jafnframt sérstaklega tekið fram að það sé erfiðleikum bundið að skilgreina nákvæmlega í lögum og reglugerðum hvaða ástæður, sem liggi að baki uppsögn, séu gildar, þar sem þær ástæður geti verið af margvíslegum toga. Þó sé í athugasemdum sérstaklega fjallað um tvenns konar tilvik sem séu talin heyra til gildra ástæða fyrir starfslokum. Annars vegar sé það þegar um sé að ræða þau tilvik er maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar séu það þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær. Í athugasemdum sé þó sérstaklega áréttað að við þær aðstæður sé gert að skilyrði að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en launamaðurinn hafi látið af störfum. Í ljósi þess að um matskennda ákvörðun sé að ræða sé Vinnumálastofnun falið að meta hvernig atvik og aðstæður þess máls er fyrir henni liggi falli að umræddri reglu. Vinnumálastofnun beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Fyrir liggi að kærandi hafi sagt starfi sínu lausu hjá D. Ágreiningur snúi að því hvort ástæður kæranda fyrir uppsögn í starfi teljist gildar í skilningi framangreinds ákvæðis 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi í fyrri úrskurðum sínum talið að almennt beri að gera ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið sé hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laganna.

Þær skýringar sem kærandi hafi gefið sem ástæðu fyrir uppsögn sinni lúti einkum að búferlaflutningum á grundvelli þess að sambýliskona kæranda sé barnshafandi og ekki sé forsvaranlegt að halda tvö heimili. Af umsókn kæranda um atvinnuleysisbætur að dæma þá liggi fyrir að hann hafi ekki haft fast starf í hendi þegar hann hafi tekið þá ákvörðun að segja starfi sínu lausu.

Búferlaflutningar hafi einir og sér ekki talist gild ástæða í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar fyrir uppsögn á starfi þegar umsækjandinn sjálfur taki ákvörðun um að flytja búferlum. Líkt og áður komi fram segi í athugasemdum með ákvæði 54. gr. laganna að gildar ástæður kunni að vera fyrir uppsögn í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Sérstaklega sé tilgreint tilvik þegar maki hins tryggða hefji störf í öðrum landshluta og fjölskyldan þurfi af þeim sökum að flytja búferlum. Í máli þessu liggi fyrir að flutningur kæranda hafi ekki komið til vegna starfa sem maka hans hafi boðist fjarri heimili kæranda. Kærandi hafi sjálfur ákveðið að flytja búferlum fjarri vinnustað sínum og segja upp starfi sínu.

Með hliðsjón af framangreindum sjónarmiðum sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna starfsloka hjá D geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Vinnumálastofnun telji því að kærandi skuli sæta biðtíma á grundvelli 54. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að staðfesta beri ákvörðun stofnunarinnar, dags. [24. janúar 2025], um að fella niður bótarétt kæranda í tvo mánuði samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 54. gr. laganna er svohljóðandi:

„Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.“

Óumdeilt er að kærandi sagði upp starfi sínu hjá D en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður hans fyrir uppsögninni hafi verið gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006. Í athugasemdum við 1. mgr. 54. gr. í frumvarpi til laga nr. 54/2006 kemur fram að með ákvæðinu sé undirstrikað það markmið vinnumarkaðskerfisins að stuðla að virkri atvinnuþátttöku fólks. Í því ljósi sé ekki gefinn kostur á að fólk segi upp starfi sínu til að fá greiddar atvinnuleysisbætur án þess að sérstakar ástæður liggi að baki uppsögninni í tilvikum þegar annað starf sé ekki í boði. Tekið er fram að það sé erfiðleikum bundið að takmarka þau tilvik sem geti talist til gildra ástæðna í lögum og reglugerðum þar sem ástæður þess að fólk segi störfum sínum lausum eða missi þau geti verið af margvíslegum toga. Því sé lagt til að lagareglan verði áfram matskennd og Vinnumálastofnun falið að meta atvik og aðstæður hverju sinni. Stofnuninni beri að líta til almennra reglna og málefnalegra sjónarmiða við ákvarðanir um hvort umsækjendur um atvinnuleysisbætur skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Jafnframt er bent á að um íþyngjandi ákvörðun sé að ræða. Í athugasemdunum er þó sérstaklega vísað til tvenns konar tilvika sem talin eru heyra til gildra ástæðna fyrir starfslokum. Annars vegar þau tilvik þegar maki hins tryggða hafi hafið störf í öðrum landshluta og fjölskyldan hafi af þeim sökum þurft að flytja búferlum. Hins vegar þau tilvik þegar uppsögn megi rekja til þess að atvinnuleitandi hafi sagt upp störfum af heilsufarsástæðum en sé að öðru leyti vinnufær.

Úrskurðarnefnd velferðarmála telur að ráða megi af framangreindu að almennt beri að gera nokkuð ríkar kröfur til atvinnuleitanda þegar metið er hvort ástæður fyrir uppsögn séu gildar samkvæmt 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

Kærandi hefur gefið þær skýringar að hann hafi sagt upp starfi sínu hjá D þar sem hann hafi flutt búferlum til að vera nær maka sínum sem væri barnshafandi. Þau væru jafnframt að flytja í sameiginlegt húsnæði. Þá hafi maki hans hafið störf sem lögreglumaður í umdæmi B.

Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er málefnalegt að gera þá kröfu til launþega að þeir segi ekki upp starfi sínu nema við ýtrustu nauðsyn þegar annað starf er ekki í hendi við mat á því hvort viðkomandi skuli sæta biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Ekki verður séð að slíkt eigi við í tilviki kæranda og er því ekki um að ræða gilda ástæðu fyrir uppsögn í skilningi 54. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi átti því ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum frá móttöku umsóknar hans um atvinnuleysisbætur, sbr. 1. mgr. ákvæðisins.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. janúar 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir