21 ágúst 2025

/

Mál nr. 310/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 310/2025

Fimmtudaginn 21. ágúst 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. maí 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 5. febrúar 2024 og var umsóknin samþykkt 5. mars 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. maí 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi tekjur eða vinnu. Kæranda var jafnframt tilkynnt að hann hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 378.814 kr., að meðtöldu 15% álagi, sem yrðu innheimtar samkvæmt 3. mgr. 39. gr. laga nr. 54/2006.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. maí 2025. Með bréfi, dags. 20. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 2. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hafa fengið tölvupóst frá Vinnumálastofnun þann 8. maí 2025 um að hann hefði ekki tilkynnt stofnuninni um tekjur og opnað launagreiðendaskrá 27. janúar 2025 til þess að taka á móti fé frá sjálfstæðu fyrirtæki sem tengist fyrirtækinu B. Kærandi hafi farið inn á heimasíðu Vinnumálastofnunar og sent inn launaseðil þann 8. maí 2025.

Þann 15. maí 2025 hafi Vinnumálastofnun tilkynnt kæranda um tveggja mánaða viðurlög og skuld að fjárhæð 378.814 kr. Kærandi telji ákvörðunina óheppilega og ósanngjarna. Kærandi hafi sem atvinnuleitandi viljað grípa tækifærið og byrjað að afhenda mat í janúar 2025 fyrir B. Starfið hafi hins vegar ekki hentað kæranda þar sem hann hafi ekki alltaf haft aðgang að bíl auk annarra ástæðna. Kærandi hafi því ákveðið að hætta störfum. Síðasta greiðsla hafi borist kæranda í mars 2025 vegna febrúarmánaðar. Hann hafi því í raun aðeins unnið mánuðina janúar og febrúar og fengið þrjá launaseðla. Kærandi hafi fengið greiddar 25.441 kr. vegna starfsins fyrir skatt og launagreiðendaskrá hafi síðar verið lokað. Kærandi telji það því svolítið fáránlegt að vera kominn í 378.814 kr. skuld vegna 25.441 kr.

Kærandi hafi alltaf reynt að vera heiðarlegur gagnvart Vinnumálastofnun og reynt að skila inn öllum skjölum. Hann hafi ekki tilkynnt um umræddar tekjur fyrr en óskað hafi verið eftir því en viðurlögin hljómi samt sem áður svolítið skringilega. Kærandi bendi á að töf hafi verið á launaseðlunum frá fyrirtækinu og hann hafi því gleymt að tilkynna um tekjurnar. Kærandi hafi haldið að það væri ekki vandamál þar sem hann sé nú þegar í tilfallandi vinnu og tilkynni reglulega um tekjur en láti skjölin stundum fylgja seinna þegar hann hafi aðgang að þeim öllum. Sonur kæranda hafi auk þess verið veikur á þessum tíma og gengist undir aðgerð. Veikindavottorð þess efnis hafi verið sent til Vinnumálastofnunar. Umrædd viðurlög og skuld geri kæranda erfitt fyrir, sérstaklega þar sem hann eigi barn. Hann óski því eftir að málið verði leyst á sanngjarnan hátt.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 5. febrúar 2024. Með erindi, dags. 5. mars 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 95%.

Í kjölfar reglulegs eftirlits Vinnumálastofnunar í maí 2025 hafi komið í ljós að kærandi hefði opnað launagreiðendaskrá og verið með óútskýrðar tekjur úr eigin rekstri í janúar 2025. Kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tilfallandi verktakavinnu á umræddu tímabili. Með erindi, dags. 8. maí 2025, hafi þess verið óskað að kærandi veitti stofnuninni skýringar á umræddum tekjum. Í kjölfarið hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda og launaseðlar frá B. Í ljósi þess að kærandi hefði verið með ótilkynnt reiknað endurgjald samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta hafi Vinnumálastofnun kannað hvort kærandi væri enn með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta. Kærandi hafi reynst hafa verið með opna launagreiðendaskrá frá 21. janúar til 28. febrúar 2025.

Þann 15. maí 2025 hafi kæranda verið tilkynnt að í ljósi þess að hann hefði ekki tilkynnt um verktakavinnu sína bæri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í formi tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að þar sem hann hefði verið með opna launagreiðendaskrá hefði hann fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð 329.403 kr. á tímabilinu 21. janúar til 28. febrúar 2025. Skuld hafi verið innheimt með 15% álagi og numið samtals 378.814 kr.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Mál þetta lúti að ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma og innheimtu ofgreiddra atvinnuleysisbóta. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi hafið störf sem verktaki hjá B í janúar 2025. Kærandi hafi opnað launagreiðendaskrá á eigin kennitölu frá og með 21. janúar til og með 28. febrúar 2025.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Þá segi í 1. mgr. 59. gr. laganna að hver sá sem láti hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar eða um annað það sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar sé tilkynnt aðila. Honum skuli jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur samkvæmt 39. gr.

Ljóst sé að kærandi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um störf sín eða tekjur. Vinnumálastofnun hafi ekki verið kunnugt um að kærandi hefði opnað launagreiðendaskrá í janúar 2025 og hafið rekstur á eigin kennitölu þegar reglubundið eftirlit í maí 2025 hafi leitt í ljós að kærandi hefði reiknað sér endurgjald í byrjun ársins. Þær skýringar sem kærandi hafi fært fram réttlæti ekki að hann hafi látið hjá [líða] að upplýsa stofnunina um breytingar á högum sínum. Honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í tvo mánuði.

Samkvæmt f. lið 1. mgr. 18. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skuli sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur, sbr. 20. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 20 gr. laganna sé nánar tilgreint hvenær sjálfstætt starfandi einstaklingur hafi stöðvar rekstur. Í 1. mgr. 20. gr. laganna segi:

„Sjálfstætt starfandi einstaklingur, sbr. b-lið 3. gr., telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Þegar metið er hvort starfsemi hafi verið stöðvuð skal líta til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá ríkisskattstjóra. Heimilt er að taka tillit til hreyfinga í virðisaukaskattsskrá vegna eignasölu enda hafi sjálfstætt starfandi einstaklingur lagt fram yfirlýsingu þess efnis að hann hyggist hætta rekstri.“

Kærandi hafi verið með opinn rekstur á eigin kennitölu á tímabilinu 21. janúar til 28. febrúar 2025. Eitt af skilyrðum þess að eiga rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta sé að atvinnuleitandi hafi stöðvað rekstur sinn, sbr. f-lið 18. gr. laganna. Í 20. og 21. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar fjallað um það hvað felist í því að stöðva rekstur sinn. Þar segi meðal annars að staðfesting á stöðvun reksturs feli í sér tilkynningu til launagreiðendaskrár ríkisskattstjóra um að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Samkvæmt framangreindu geti atvinnuleitandi sem sé með opna launagreiðendaskrá hjá Skattinum ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysistrygginga á sama tíma.

Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur vegna þess tímabils sem kærandi hafi verið með opinn rekstur. Vinnumálastofnun vísi hvað þetta varði einnig til niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 368/2024 er hafi varðað viðlíka álitaefni.

Ofgreiddar atvinnuleysisbætur beri að innheimta samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en þar segi orðrétt:

„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“

Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Heildarskuld kæranda hafi verið 378.814 kr. með álagi. Eins og kveðið sé á um í lokamálslið 2. mgr. 39. gr. skuli fella niður álagið færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er hafi leitt til skuldmyndunar. Þar sem kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um rekstur sinn telji Vinnumálastofnun ekki efni til að fella niður álag í máli kæranda.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum á grundvelli 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hann hafi ekki tilkynnt stofnuninni um vinnu sína. Það sé jafnframt niðurstaða stofnunarinnar að kærandi hafi ekki uppfyllt skilyrði fyrir greiðslum atvinnuleysistrygginga á tímabilinu 21. janúar til 28. febrúar 2025. Kæranda beri því að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur, auk álags, samtals 378.814 kr., sbr. 2. mgr. 39. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir. Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með tekjur úr eigin rekstri í janúar 2025, auk þess að vera með opna launagreiðendaskrá á tímabilinu 21. janúar og 28. febrúar 2025 samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá Vinnumálastofnun. Þær upplýsingar bárust Vinnumálastofnun í kjölfar reglulegs eftirlits innan stofnunarinnar í maí 2025. Kærandi hefur vísað til þess að töf hafi verið á launaseðlum og hann hafi því gleymt að tilkynna um tekjurnar. Kærandi hafi fengið greiddar 25.441 kr. vegna starfsins fyrir skatt og launagreiðendaskrá hafi síðar verið lokað.

Þann 5. febrúar 2024 var kæranda send staðfesting á móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur þar sem tilgreint var að upplýsa þyrfti um allar tekjur, hlutastarf, tilfallandi vinnu, tekjur eða fjármagnstekjur á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var bent á að ítarlegri upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna undir liðnum „Hvað þarftu að vita“ á vefsíðu stofnunarinnar.

Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita af tilkynningarskyldu vegna starfs síns og tekna eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér upplýsinga um hvort slík skylda væri fyrir hendi. Að því virtu og í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður því fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki fyrir fram um þær tekjur sem hann fékk framangreindan mánuð. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Eitt af skilyrðum fyrir atvinnuleysistryggingum sjálfstætt starfandi einstaklinga er að hafa stöðvað rekstur og leggja fram staðfestingu um slíka stöðvun, sbr. f. og g. liði 1. mgr. 18. gr. laga nr. 54/2006. Í 20. gr. laganna kemur fram að sjálfstætt starfandi einstaklingur telst hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra að hann hafi stöðvað rekstur og að öll starfsemi hafi verið stöðvuð. Enn fremur telst sjálfstætt starfandi einstaklingur hafa stöðvað rekstur hafi hann tilkynnt skráningarnúmer sitt af skrá, sýnt fram á að atvinnutæki hafi verið seld eða afskráð, reksturinn framseldur öðrum eða hann hafi verið tekinn til gjaldþrotaskipta. Samkvæmt 21. gr. laganna skal sjálfstætt starfandi einstaklingur leggja fram staðfestingu á því að hann hafi stöðvað rekstur og skal staðfestingin fela í sér yfirlýsingu um að öll starfsemi hafi verið stöðvuð og ástæður þess og afrit af tilkynningu til launagreiðendaskrár Ríkisskattstjóra um að rekstur hafi verið stöðvaður, vottorð frá skattyfirvöldum um að skráningarnúmer hans hafi verið tekið af skrá eða önnur viðeigandi gögn frá opinberum aðilum er staðfesta kunna stöðvun rekstrar.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi var með opna launagreiðendaskrá samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta frá 21. janúar til 28. febrúar 2025. Kærandi uppfyllti því ekki skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögum nr. 54/2006 á því tímabili.

Mál þetta lýtur einnig að þeirri ákvörðun Vinnumálastofnunar að innheimta ofgreiddar bætur vegna framangreindra tekna. Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.

Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Þar sem kærandi tilkynnti ekki fyrir fram um framangreindar tekjur fékk hann greiddar hærri atvinnuleysisbætur en hann átti rétt á. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um tekjur sínar er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 15. maí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði og að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir