21 ágúst 2025

/

Nr. 603/2025 Úrskurður

Hinn 21. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 603/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25040117

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. apríl 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 15. apríl 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin ákvörðun lögreglu um frávísun verði felld úr gildi. Að auki krefst kærandi þess að ákvörðun um tilkynningarskyldu verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins 15. apríl 2025 með flugi frá Vínarborg, Austurríki. Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 15. apríl 2025, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að tilgangi dvalar sinnar. Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 16. apríl 2025, hafi tollgæslan haft samband við lögreglu og óskað eftir aðstoð vegna farþega sem væri til skoðunar. Vegna tungumálaörðugleika hafi lögregla boðið kæranda til viðtals í aðstöðu lögreglu á Keflavíkurflugvelli með aðstoð túlks. Honum hafi verið kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað, sem og réttur sinn til að hafa samband við fulltrúa heimalands síns og viðurkenndra mannúðar- eða mannréttindasamtaka, sbr. 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi greint frá því að vera kominn til landsins sem ferðamaður og ætlað að dvelja á landinu í fimm daga. Kvaðst kærandi hafa komið einn en að systir hans, sem búsett væri á Englandi, væri væntanleg til landsins tveimur dögum síðar, hann vissi ekki með hvaða flugfélagi eða hvaðan nákvæmlega hún kæmi. Kærandi framvísaði ítarlegri ferðaáætlun gagnvart lögreglu. Aðspurður kvaðst kærandi munu ferðast með leigubifreiðum þrátt fyrir að ferðaáætlunin gerði ráð fyrir rútuferðum. Kærandi framvísaði gistibókun, sem lögregla fékk staðfesta, farmiða úr landi og 1000 evrum í reiðufé. Lögregla hafi leitast við að fá staðfestingu á flugbókun systur kæranda en engin bókun fannst undir nafninu. Aðspurður sagði kærandi að vinur hans hefði bókað fyrir sig gistingu þar sem kærandi hefði enn ekki fengið útborgað. Hann hafi gert ferðaáætlunina sjálfur en aðspurður vissi hann ekki hvað Gullni hringurinn væri þrátt fyrir að það væri ritað á ferðaáætlunina. Kærandi hefði þá ekki bókað borð á neinum þeirra veitingastaða sem væru á ferðaáætluninni og kvað kærandi síðar að hann myndi nota kortaforritið Google maps til þess að finna sér veitingastaði.

Í kjölfarið tók lögregla ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga vegna misræmis á ferðaplani og frásögn, óljóss tilgangs dvalar auk þess sem ætla mætti að ferðaplanið hefði verið útbúið svo hann kæmist inn í landið. Kærandi aflaði sér flugmiða og fór úr landi 16. apríl 2025.

Kærandi kærði ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar 25. apríl 2025. Greinargerð kæranda barst 6. maí 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin vegna ákvörðunar lögreglunnar um að frávísa kæranda frá landinu. Kærandi vísar til lagaskilyrða fyrir frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sbr. og 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Byggir kærandi málatilbúnað sinn á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni. Hann hafi fengið ferðaskrifstofu til þess að útbúa ferðaáætlun fyrir sig sem hafi innihaldið heimsóknir á vinsæla ferðamannastaði á borð við Gullna hringinn, Sky Lagoon og Hallgrímskirkju. Þá hafi kærandi einnig ætlað að fara í hvalaskoðun og í norðurljósaferð. Hann hafi haft með sér nægt fjármagn og hvorki verið í endurkomubanni né í skuld við ríkissjóð. Kæranda hafi verið vísað frá landinu vegna þjóðernis og hafi lögregla beitt yfirburðastöðu sinni á ólögmætan hátt. Að framangreindu virtu hafi lögregla brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Brot gegn framangreindum reglum feli í sér efnislegan annmarka á stjórnvaldsákvörðun sem ætti að leiða til ógildingar hennar. Byggir kærandi einnig á því að ákvörðunin uppfylli ekki skilyrði meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga um markhæfni, þar sem hún falli ekki að markmiðum 106. gr. laga um útlendinga.

Kveður kærandi lögreglu hafa brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni með því að leiðbeina kæranda ekki um að leggja fram gögn sem óskað væri eftir, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga. Byggir kærandi að því að hann hafi ekki fengið færi á að andmæla málsástæðum lögreglu og koma að frekari upplýsingum um málsatvik fyrir töku ákvörðunar um frávísun. Hafi lögregla því brotið gegn andmælarétti kæranda, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga. Þá hafi málsmeðferðin brotið gegn 11. gr. laga um útlendinga og vísar til úrskurðaframkvæmdar kærunefndar varðandi þann þátt málsins. Hafi annmarkinn leitt til þess að málið hafi ekki verið nægjanlega rannsakað, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, sem hafi leitt til töku efnislega rangrar ákvörðunar. Bendir kærandi á að frávísun á landamærunum sé íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem geri strangari kröfur til rannsóknar.

Kærandi byggir á því að honum hafi ekki verið birt skrifleg ákvörðun um frávísun en um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun, sbr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Að auki ber kærandi fyrir sig að ákvörðunin hafi ekki verið rökstudd með fullnægjandi hætti, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga, þar sem ákvörðunin hafi eingöngu útlistað efni c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga án umfjöllunar um sjónarmið sem ráðandi hafi verið við mat lögreglu. Enn fremur hafi aðgerðir lögreglu brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar þar sem ómálefnalegt og ólöglegt sé að krefja ríkisborgara Albaníu svo umfangsmikilla skýringa á tilgangi dvalar. Telur kærandi að einstaklingar annarra þjóðerna sæti ekki jafn ítarlegrar gagnaframlagningar. Byggir kærandi á því að ákvörðunin hafi brotið gegn meginreglu um réttmætar væntingar og kveðst hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, sbr. viðauka 9 við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, og má dvelja hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 3. apríl 2025, byggist á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Í c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar). Athugasemdirnar vísa einnig til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a. laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Þar er það gert að skilyrði að útlendingur í fyrsta lagi framvísi gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3 við reglugerðina. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Í öðru lagi skal útlendingur hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Í þriðja lagi má hann ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Í fjórða lagi má hann ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi í fimm daga frá 15. til 19. apríl 2025. Kærandi sýndi fram á farmiða úr landi og gistingu á meðan dvölinni stæði sem staðfest hafi verið af lögreglu. Fyrir liggur ítarleg ferðaáætlun sem tilgreinir heimsóknir á vinsæla ferðamannastaði, einkum á höfuðborgarsvæðinu og á suðurlandi. Þá framvísaði kærandi nægum fjármunum fyrir fimm daga dvöl. Samkvæmt framangreindu hefur kærandi lagt fram viðhlítandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri.

Í skýrslu lögreglu kemur fram að lögregla hafi ekki fengið staðfesta flugferð systur kæranda. Þá hafi frásögn kæranda um ferðaáætlanir sínar ekki verið í fullu samræmi við framlagða ferðaáætlun, kærandi ekki vitað hvað Gullni hringurinn væri og greint frá því að ætla sér að nota kortaforritið Google maps til þess að finna veitingastaði en ekki borða á þeim veitingastöðum sem tilgreindir væru í áætluninni. Þegar litið er til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og að ekkert bendir til þess að kærandi hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verður ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að tilgangur dvalar kæranda hér á landi hafi verið annar en framburðurinn ber með sér. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun.

Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að á þeim tilgangi sem hann hafi gefið upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Athugasemdir kæranda við meðferð lögreglu

Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar með því að meina honum um inngöngu í landið. Kæranda er bent á að hann geti borið umkvartanir um vinnubrögð lögreglu undir nefnd um eftirlit með lögreglu eða héraðssaksóknara, sbr. VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, telji hann ástæðu til.

Athugasemdir við störf lögreglu

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga.

Skylda kæranda til að dveljast á tilteknum stað

Í greinargerð kæranda er gerð krafa þess efnis að felld verði úr gildi ákvörðun lögreglu um að gera kæranda að halda sig á ákveðnum stað á grundvelli 15. gr. laga um landamæri nr. 136/2022, sbr. g-lið 1. mgr. 114. gr. laga um útlendinga. Endurskoðun á ákvörðunum lögreglu sem teknar eru á grundvelli 114. gr. laga um útlendinga eru á höndum dómstóla en ekki kærunefndar útlendingamála. Verður þeim hluta málsins því vísað frá kærunefnd.

 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

 

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

 

 

 

Þorsteinn Gunnarsson                                  Valgerður María Sigurðardóttir