21 ágúst 2025

/

Nr. 604/2025 Úrskurður

Hinn 21. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 604/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25040118

 

Kæra [...]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 25. apríl 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Albaníu (hér eftir kærandi), ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 22. apríl 2025, um frávísun frá Íslandi.

Kærandi krefst þess að hin ákvörðun lögreglu um frávísun verði felld úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi kom til landsins 22. apríl 2025 með flugi frá Búdapest, Ungverjalandi. Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 22. apríl 2025, var kæranda vísað frá landinu.

Í hinni kærðu ákvörðun kemur fram að kæranda hafi verið frávísað á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum kemur fram að kærandi hafi ekki getað leitt líkur að tilgangi dvalar sinnar.

Samkvæmt skýrslu lögreglu, dags. 22. apríl 2025, hafði lögregla afskipti af kæranda við almennt löggæslueftirlit á Keflavíkurflugvelli. Vegna óskýrra upplýsinga um dvöl hafi lögregla boðið kæranda til viðtals í aðstöðu lögreglu og hafi kæranda verið boðin aðstoð túlks. Honum hafi einnig verið kynntur réttur sinn til að leita sér aðstoðar lögmanns á eigin kostnað samkvæmt 11. gr. laga um útlendinga. Kærandi hafi framvísað ferðaáætlun en aðspurður um innihald hennar hafi kærandi ekki virst vita hvað hann ætlaði að gera á Íslandi. Þráspurður kvaðst kærandi þó hafa útbúið áætlunina sjálfur. Aðspurður um veitingastaði sem fram komu á ferðaáætluninni kvaðst kærandi ætla að borða á gististaðnum. Aðspurður hafði kærandi hvorki bókað dagsferðir né afþreyingu en meðal ferðamannastaða sem áætlunin tilgreindi voru Gullni hringurinn og Sky Lagoon. Aðspurður um dagskrá lokadags dvalar kvaðst kærandi munu gæta þess að mæta ekki seint á flugvöllinn. Þó hafi ferðaáætlunin tilgreint nokkuð ítarlega dagskrá í miðbæ Reykjavíkur. Að mati lögreglu mátti leiða líkur að því að kærandi hefði ekki gert ferðaáætlunina þar sem hann virtist ekki ætla að fylgja henni á neinn hátt. Hafi lögregla einnig litið til þess að ferðaáætlun kæranda líktist mjög ferðaáætlun annars aðila sem hefði verið frávísað. Aðspurður um fjármuni kvaðst kærandi vera með 1600 evrur. Aðspurður væri hann í námi en starfaði sem þjónn í hlutastarfi. Veitti lögregla því athygli hver meðallaun í heimaríki kæranda væru en samkvæmt því hefði kærandi fjórföld meðallaun meðferðis. Lögregla staðfesti bókanir kæranda fyrir gistingu og farmiða úr landi. Aðspurður greindi kærandi frá því að móðir hans og systir hefðu bókað gistingu og flug fyrir kæranda. 

Í kjölfarið tók lögregla ákvörðun um að frávísa kæranda á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga vegna óljóss tilgangs dvalar. Lögregla veitti kæranda frest til þess að verða sér úti um flugmiða úr landi en kærandi kvaðst frekar munu bíða eftir flugi sínu 24. apríl 2025.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda eru málsatvik rakin vegna ákvörðunar lögreglunnar um að frávísa kæranda frá landinu. Kærandi vísar til lagaskilyrða fyrir frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sbr. og 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Byggir kærandi málatilbúnað sinn á því að hann hafi gefið upp lögmætan tilgang fyrir dvöl sinni og að honum hafi verið vísað frá vegna þjóðernis. Hafi lögregla þannig nýtt yfirburðastöðu sína á ólögmætan hátt þannig að um valdníðslu sé að ræða. Að framangreindu virtu hafi lögregla brotið gegn meginreglum stjórnsýsluréttar um réttmæti og lögmæti stjórnvaldsákvarðana. Brot gegn framangreindum reglum feli í sér efnislegan annmarka á stjórnvaldsákvörðun sem ætti að leiða til ógildingar hennar.

Byggir kærandi á því að lögregla hafi brotið gegn leiðbeiningarskyldu sinni með því að leiðbeina kæranda ekki um að leggja fram gögn sem óskað væri eftir, sbr. 7. gr. stjórnsýslulaga. Byggir kærandi einnig að því að hann hafi ekki fengið færi á að andmæla málsástæðum lögreglu og koma að frekari upplýsingum um málsatvik fyrir töku ákvörðunar um frávísun. Hafi lögregla því einnig brotið gegn andmælarétti kæranda, sbr. 13. gr. stjórnsýslulaga og 12. gr. laga um útlendinga.

Kærandi byggir á því að málsmeðferðin hafi brotið gegn 11. gr. laga um útlendinga og vísar til úrskurðaframkvæmdar kærunefndar varðandi þann þátt málsins. Byggir kærandi einnig á því að lögmaður hans hafi sent lögreglu tölvubréf og óskað þess að umboð yrði birt fyrir kæranda. Lögregla hafi á hinn bóginn ekki brugðist við erindi lögmannsins sem feli í sér brot gegn svarreglu stjórnsýsluréttar. Hafi annmarkinn með aðstoð lögmanns jafnframt leitt til þess að málið hafi ekki verið nægjanlega rannsakað, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga, sem hafi leitt til töku efnislega rangrar ákvörðunar. Bendir kærandi á að frávísun á landamærunum sé íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun sem geri strangari kröfur til rannsóknar.

Að auki ber kærandi fyrir sig að ákvörðunin hafi ekki verið rökstudd með fullnægjandi hætti, sbr. 22. gr. stjórnsýslulaga, þar sem ákvörðunin hafi eingöngu útlistað efni c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga án umfjöllunar um sjónarmið sem ráðandi hafi verið við mat lögreglu. Enn fremur hafi aðgerðir lögreglu brotið gegn meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar þar sem ómálefnalegt og ólöglegt sé að krefja ríkisborgara Albaníu svo umfangsmikilla skýringa á tilgangi dvalar. Telur kærandi að einstaklingar annarra þjóðerna sæti ekki jafn ítarlegrar gagnaframlagningar. Byggir kærandi á því að ákvörðunin hafi brotið gegn meginreglu um réttmætar væntingar og kveðst hafa orðið fyrir mismunun á grundvelli þjóðernis.

IV.       Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Kærandi er ríkisborgari Albaníu og þarf því ekki vegabréfsáritun til landgöngu hér á landi, sbr. viðauka 9 við reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, og má dvelja hér á landi í 90 daga á hverju 180 daga tímabili. Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 22. apríl 2025, byggist á c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Í c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni. Í athugasemdum með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar). Athugasemdirnar vísa einnig til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a. laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Þar er það gert að skilyrði að útlendingur í fyrsta lagi framvísi gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3 við reglugerðina. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Í öðru lagi skal útlendingur hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Í þriðja lagi má hann ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Í fjórða lagi má hann ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða.

Samkvæmt gögnum málsins greindi kærandi lögreglu frá því að hann myndi dvelja hér á landi í þrjá daga frá daga frá 22. til 24. apríl 2025. Kærandi sýndi fram á farmiða úr landi og gistingu á meðan á dvölinni stæði sem staðfest var af lögreglu. Fyrir liggur ítarleg ferðaáætlun sem tilgreinir heimsóknir á vinsæla ferðamannastaði, einkum á höfuðborgarsvæðinu og á suðurlandi. Þá framvísaði kærandi nægum fjármunum fyrir þriggja daga dvöl. Samkvæmt framangreindu hefur kærandi lagt fram viðhlítandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri.

Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi ekki virst vita mikið um ferðaáætlun sína. Kærandi hafi m.a. borið fyrir sig aðra tilhögun máltíða og veitingastaða en tilgreind hafi verið á áætluninni auk breytinga á síðasta degi dvalar. Þá hafði kærandi ekki bókað neinar dagsferðir né aðra afþreyingu. Hafi lögregla auk þess veitt því að athygli að ferðaáætlun kæranda líktist ferðaáætlun annars aðila sem framvísað hefði verið við lögreglu. Þegar litið er til gagna málsins, m.a. með vísan til tímalengdar fyrirhugaðrar dvalar kæranda hér á landi og að ekkert bendir til þess að kærandi hafi áður komið við sögu hjá lögreglu, dvalið hér á landi með ólögmætum hætti eða stundað ólögmæta atvinnu, verður ekki talið að tilefni hafi verið til að gera strangari kröfur til framlagningar gagna eða trúverðugleika framburðar kæranda. Þá er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að tilgangur dvalar kæranda hér á landi hafi verið annar en framburðurinn ber með sér. Áréttast í þessu sambandi að ákvörðun um frávísun er íþyngjandi stjórnvaldsákvörðun.

Að virtum gögnum málsins hefur kærandi lagt fram fullnægjandi gögn með vísan til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri. Að framangreindu virtu hefur kærandi leitt nægar líkur að á þeim tilgangi sem hann hafi gefið upp fyrir dvöl sinni hér á landi og eru skilyrði til frávísunar, sbr. c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, því ekki uppfyllt. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi.

Athugasemdir kæranda við meðferð lögreglu

Kærandi telur að lögreglan hafi farið umfram lögbundnar heimildir sínar með því að meina honum um inngöngu í landið. Kæranda er bent á að hann geti borið umkvartanir um vinnubrögð lögreglu undir nefnd um eftirlit með lögreglu eða héraðssaksóknara, sbr. VII. kafla lögreglulaga nr. 90/1996, telji hann ástæðu til.

Athugasemdir við störf lögreglu

Hin kærða ákvörðun fjallar um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í ákvörðuninni kemur fram að kæranda væri vísað frá landinu á þeim lagagrundvelli sem hér hefur verið fjallað um að framan. Að öðru leyti kom ekki fram í ákvörðuninni hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirrar niðurstöðu eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvörðunarinnar að undanskildum þeim athugasemdum sem koma fram í ákvörðuninni um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar. Verður því að líta svo á að hinni kærðu ákvörðun hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinni kærðu ákvörðun var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti var hin kærða ákvörðun ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga.


 

Úrskurðarorð:

Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.

 

The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.

 

 

Þorsteinn Gunnarsson                                  Valgerður María Sigurðardóttir