22 ágúst 2025
/
Nr. 594/2025 Úrskurður
Hinn 22. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 594/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU23070027
Kæra [...]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 4. júlí 2023 kærði kona sem kveðst heita [...], vera fædd [...] og vera ríkisborgari Sómalíu (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 20. júní 2023, um að synja henni um alþjóðlega vernd á Íslandi. Kæranda var veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðun Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærandi eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu kom kærandi til landsins og lagði fram umsókn um alþjóðlega vernd 18. ágúst 2021. Við leit í Eurodac gagnagrunninum kom í ljós að fingraför kæranda höfðu verið skráð í grunninn af grískum yfirvöldum og að þar í landi hafi henni verið veitt alþjóðleg vernd 1. júní 2020. Með umsókn sinni hér á landi framvísaði kærandi dvalarleyfiskorti útgefnu af grískum yfirvöldum til handa handhöfum alþjóðlegrar verndar með gildistíma frá 22. júní 2020 til 21. júní 2023. Kærandi mætti til verndarviðtals hjá Útlendingastofnun 7. september 2021 ásamt þáverandi talsmanni sínum. Með ákvörðun, dags. 15. október 2021, ákvað Útlendingastofnun að taka ekki umsókn kæranda um alþjóðlega vernd hér á landi til efnismeðferðar og að henni skyldi vísað frá landinu. Ákvörðun stofnunarinnar var kærð til kærunefndar útlendingamála þann 2. nóvember 2021, en með úrskurði sínum, dags. 2. desember 2021, staðfesti kærunefnd útlendingamála ákvörðun Útlendingastofnunar. Í kjölfarið óskaði kærandi eftir því að réttaráhrifum yrði frestað en nefndin hafnaði þeirri beiðni með úrskurði sínum, dags. 4. janúar 2022. Með úrskurði, dags. 22. september 2022, féllst nefndin hins vegar á beiðni kæranda um endurupptöku og lagði fyrir Útlendingastofnun að taka mál hennar til efnismeðferðar.
Kærandi kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 27. október 2022 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Kærandi kvaðst vera sómalskur ríkisborgari og hafa fæðst og alist upp í [...] þorpi í Baidoa umdæmi í suðvestur Sómalíu. Þá kvaðst kærandi hafa búið í bænum [...] áður en hún hafi flúið heimaríki í júlí 2019, sem sé í um klukkutíma göngufjarlægð frá [...] þorpinu. Kvaðst kærandi hafa farið til Mógadisjú og flogið þaðan til Tyrklands þar sem hún hafi dvalið í þrjá mánuði áður en hún hafi lagt leið sína til Grikklands í september 2019 og dvalið þar í tvö ár. Aðspurð hvers vegna kærandi hefði ekki vegabréf meðferðis kvaðst hún hafa týnt því eftir að hún hafi flúið frá heimaríki. Kærandi greindi frá því að tilheyra höfuðættbálknum [...] en undirættbálknum [...] og kvaðst af þeim sökum tilheyra minnihlutahóp í heimaríki sínu. Greindi kærandi sérstaklega frá því að hafa ekki upplifað sig í minnihluta þar sem hún hafi búið, en ef hún færi til annarra borga, s.s. [...]eða[...], þá yrði hún send til baka þangað sem hún ætti uppruna sinn að rekja. Kærandi kvaðst eiga tvö börn sem tilheyri höfuðættbálknum Hawyie og undirættbálknum [...] . Kærandi kvað son sinn búa hjá föður sínum en dóttur sína búa hjá móðurömmu sinni. Kærandi hafi stöku sinnum samband við son sinn en sé ekki í neinu sambandi við dóttur sína né móður.
Aðalástæðu flótta frá heimaríki kvað kærandi hafa verið hótanir sem henni hafi borist frá Al-Shabaab samtökunum. Kæranda hafi verið beitt kynferðislegu ofbeldi af hendi stjúpföður sínum í apríl 2017 sem hafi síðan myrt fimm ára son hennar sem hafi orðið vitni að ofbeldinu. Í kjölfarið hafi kærandi flúið ásamt móður sinni og tveimur börnum frá heimaþorpi sínu til bæjarins [...] þar sem hún hafi búið í tvö ár án vandkvæða. Í apríl 2019 hafi meðlimir Al-Shabaab beðið hana um að koma á starfsstöð þeirra og upplýst hana um að barnsfaðir hennar hafi höfðað mál gegn henni. Degi síðar hafi kærandi farið á starfsstöð Al-Shabaab og verið tilkynnt um að málið hafi falið í sér að hún skyldi láta af hendi börnin sín tvö til föður þeirra vegna þess að hún hafi sofið hjá öðrum manni. Meðlimir Al-Shabaab hafi óskað eftir því að kærandi kæmi á starfsstöð þeirra daginn eftir en þá fengi hún að heyra refsingu sína annars hlyti hún önnur og verri örlög. Sama dag kvað hún nágrannakonu sína hafa upplýst sig um að hún yrði grýtt til dauða mætti hún ekki á starfsstöð Al-Shabaab daginn eftir og því ráðlagt henni að leggja á flótta. Kærandi kvaðst hafa orðið hrædd um líf sitt og hafi hún því sama kvöld fengið far með bifreið sem hafi verið á leið til höfuðborgarinnar Mógadisjú. Kvað hún meðlimi Al-Shabaab hafa margsinnis stöðvað bifreiðina á leið til höfuðborgarinnar en kæranda tekist að fela sig fyrir þeim. Hafi kærandi dvalið hjá fjölskyldu bílstjórans í Mógadisjú í um einn mánuð þar til hún hafi flúið til Tyrklands. Aðspurð hvort fjölskyldumeðlimir hennar séu í hættu í heimaríki kvað hún Al-Shabaab hafa meinað móður sinni og bróður að yfirgefa [...] þar til kærandi kæmi aftur til baka.
Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kæranda synjað um alþjóðlega vernd en veitti henni dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Kærandi kærði ákvörðunina til kærunefndar 4. júlí 2023. Greinargerð barst kærunefnd 19. júlí 2023. Með tölvubréfi, dags. 11. júlí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfi, dags. 16. júlí 2025, bárust nefndinni umbeðnar upplýsingar.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerð kæranda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðarinnar.
Í greinargerð er aðstæðum kæranda lýst. Þar kemur m.a. fram að kærandi sé sómölsk kona sem hafi komið hingað til lands 18. ágúst 2021 og sótt um alþjóðlega vernd. Kærandi hafi verið fædd í [...] á Bay landsvæðinu í Sómalíu en hafi búið í bænum [...] áður en hún hafi yfirgefið heimaríki sitt í júlí 2019. Kærandi óttist öryggi sitt í heimaríki en stjúpfaðir hennar hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi og myrt fimm ára son hennar 29. apríl 2017. Kærandi hafi í kjölfarið flúið heimaþorp sitt og farið til bæjarins [...] þar sem hún hafi búið í tvö ár án vandræða þar til meðlimir Al-Shabaab hafi beðið hana um að koma á starfsstöð þeirra í apríl 2019. Meðlimir Al-Shabaab hafi tilkynnt henni um opið mál á hendur henni og að hún þyrfti að koma aftur næsta dag til að fara yfir það. Næsta dag hafi meðlimir Al-Shabaab upplýst hana um að hún þyrfti að afhenda barnsföður sínum börnin sökum þess að hún hafi sofið hjá öðrum manni. Fram kemur að stjúpfaðir kæranda hafi hótað að drepa hin tvö börnin hennar segði hún frá ofbeldinu. Kærandi hafi því sagt fólki að þjófur hafi brotist inn á heimili hennar, misnotað hana kynferðislega og myrt barnið hennar. Barnsfaðir hennar hafi heimtað að fá börnin þar sem kærandi hafi gerst sek um að sofa hjá öðrum karlmanni. Meðlimir Al-Shabaab hafi beðið kæranda um að koma á starfsstöð þeirra daginn eftir en þá yrði hún upplýst um refsinguna sem hún stæði frammi fyrir. Þann sama dag hafi nágrannakona kæranda ráðlagt henni að flýja, ella yrði hún grýtt til dauða. Kærandi hafi orðið vitni að því þegar stúlkur væru grýttar til dauða og hafi hún óttast mjög um líf sitt. Kærandi hafi fundið bifreið sama kvöld sem hafi verið á leið úr bænum. Móðir hennar hafi greitt bílstjóranum fyrir og kærandi falið sig bakvið poka af korni á leið þeirra til Mógadisjú. Kærandi hafi dvalið hjá fjölskyldu bílstjórans í um einn mánuð áður en hún hafi flúið til Tyrklands með einum fjölskyldumeðlim bílstjórans sem hafi verið á leið þangað að leita sér lækninga.
Um mannréttinda- og öryggisástand í Sómalíu vísar kærandi til greinargerðar sinnar á fyrri stigum málsins og landaupplýsinga sem raktar eru í ákvörðun Útlendingastofnunar. Þá vekur kærandi sérstaka athygli á árásum Al-Shabaab í Mógadisjú í október og nóvember 2022 sem séu mannskæðustu árásir gegn almennum borgurum í Sómalíu sem hafa átt sér stað um nokkurra ára skeið. Fjölmörg svæði séu undir stjórn hryðjuverkasamtakanna sem hafa vaðið uppi með skæruhernaði í landinu og heimildir bendi til þess að lögformleg stjórnvöld landsins hafi ekki getu til að fara með raunverulega stjórn í landinu. Þá bendir kærandi á stöðu kvenna í Sómalíu sem sé svo bág að þær myndi sérstakan þjóðfélagshóp eingöngu á grundvelli kyns. Þannig verði yfir 90% sómalskra kvenna fyrir kynfæralimlestingum og fjöldi þeirra fyrir grófu kynferðislegu ofbeldi, m.a. nauðgunum af hálfu eiginmanna, meðlima öryggissveita landsins og meðlima Al-Shabaab. Kynbundið ofbeldi sé afar algengt í Sómalíu og m.a. algengt að stúlkur séu þvingaðar í hjónabönd, ýmist af eigin fjölskyldum eða vopnuðum hópum. Konur sem verði fyrir kynferðisofbeldi burðist með skömm og geti það verið lífshættulegt fyrir þær að segja frá ofbeldinu enda sé ríkjandi viðhorf í samfélaginu að kvenkyns þolendur kynferðisofbeldis kasti skugga á heiður fjölskyldunnar. Þá búi konur við mismunun m.a. hvað varði erfðarétt og eignarrétt og geti almennt vænst þess að mæta hindrunum reyni þær að leita réttar síns.
Kærandi krefst þess aðallega að verða veitt alþjóðleg vernd sem flóttamaður hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi byggir á upplifun og ástæðuríkum ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi og þjóðernis. Þar að auki telur kærandi að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu. Í fyrsta lagi tilheyri kærandi þjóðfélagshópi einstæðra kvenna án baklands í heimaríki. Fyrir liggi að kærandi hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af hálfu stjúpföður síns í viðurvist fimm ára sonar síns og sonur hennar myrtur samdægurs af stjúpföður hennar. Þá hafi kærandi sætt nauðungarhjónabandi en stjúpfaðir hennar hafi neytt hana til að giftast frænda hans. Afskipti Al-Shabaab af kæranda lýsa sér í því að hún hafi verið kölluð til á starfsstöð samtakanna, krafin um að afhenda börn sín og að hún eigi yfir höfði sér óhóflega refsingu á röngum grundvelli, sem megi rekja til þess að hún hafi verið kynferðislega misnotuð. Kærandi megi vera viss um að sú refsing felist í því að vera grýtt til dauða. Heimildir staðfesti að Al-Shabaab hafi árið 2022 dæmt konu til þess að vera grýtt fyrir hjúskaparbrot en enn fremur kveði heimildir á um að samtökin framkvæmi reglulega svipaðar aftökur á stjórnarsvæðum sínum í suður og mið Sómalíu. Samkvæmt landakorti Political Geography Now, er sýnir áætluð yfirráð svæða í Sómalíu, má greina að Baidoa umdæmi sé á svæði merktum gulum lit, innan um stór rauð svæði. Sú merking feli í sér að umrætt svæði sé nú undir óljósri,blandaðri eða svæðisbundinni stjórn. Heimasvæði kæranda sé því á miklu áhrifasvæði Al-Shabaab samtakanna. Enn fremur byggir kærandi á ástæðuríkum ótta við ofsóknir á grundvelli þjóðarbrots síns. Kærandi tilheyri undirættinni [...] undir ættbálknum [...] sem sé minnihlutaættbálkur. Þá mæti hún fordómum og hafi takmarkað ferðafrelsi í Sómalíu vegna þess uppruna síns. Ættbálkur kæranda hafi verið jaðarsettur svo áratugum skipti og sé verulega valdalítill. Í ljósi stöðu kæranda sem kona og aðili að jaðarsettum ættbálki í afskekktu bændasamfélagi í Sómalía verði að telja að hún hafi ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum, hvort sem er af hálfu annarra ættbálka eða Al-Shabbab. Þá ítrekar kærandi að heimildir bendi til þess að Al-Shabaab líti á þá aðila sem hafa dvalist utan landsteinanna með neikvæðum hætti og að þeir eigi enn frekari hættu á að verða ofsóttir af hópnum samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá 2020. Fyrir liggi að kærandi geti ekki hlotið vernd yfirvalda í heimaríki, annars vegar þar sem yfirvöld sjálf séu valdur af ofsóknum og hins vegar vegna þess að Al-Shabaab, sem fari með völd yfir stórum hluta Sómalíu, sé valdur af ofsóknunum
Þá vísar kærandi til jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar og réttmætra væntinga kæranda. Kærandi vísar til þess að á Útlendingastofnun hvíli skylda til þess að fara með sambærileg mál með sambærilegum hætti. Í því samhengi vísar kærandi til úrskurða kærunefndar þar sem umsækjendum sem hafi óttast ofsóknir af hálfu Al-Shabaab hafi verið veitt vernd hér á landi á grundvelli 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagnar kæranda og því mati mótmælt. Í hinni kærðu ákvörðun hafi verið leyst úr álitaefninu um það hvort skilyrðum 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga væri fullnægt, einvörðungu með vísan til trúverðugleikamats og landaupplýsinga. Með vísan til þess hafi Útlendingastofnun ekki fallist á að kærandi hefði sýnt fram á að hún tilheyrði sérstökum þjóðfélagshópi sem meðlimur í minnihlutaættbálki eða byggi við ástæðuríkan ótta í heimaríki sínu. Kærandi áréttar réttmætisreglu stjórnsýsluréttar um að allar athafnir stjórnvalds verði að byggja á málefnalegum sjónarmiðum meðalhófsreglu og rannsóknar- og réttmætisreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar. Að mati kæranda sé ljóst að Útlendingastofnun hafi látið misræmi, sem ekki sé raunverulega til staðar í frásögn kæranda, hafa úrslitaáhrif með íþyngjandi hætti á mál kæranda.
Verði ekki fallist á aðalkröfu málsins krefst kærandi þess til vara að verða veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi telur að líta verði til öryggisástands í Sómalíu, fyrri reynslu hennar og hættu á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í sinn garð í heimaríkinu við matið. Kærandi sé einhleyp kona án ættbálkastuðningsnets í landinu og sé hún því í sérstaklega slæmri öryggisstöðu í landinu. Þá hafi kærandi skorað 39 stig á skimunarlista sem lagður var fyrir hana hjá Útlendingastofnun sem gefur til kynna að andleg heilsa hennar sé afar bágborin. Ljóst sé að hún sé í mikilli þörf fyrir geðheilbrigðisþjónustu. Byggir kærandi á því að föst framkvæmd sé um að veita umsækjendum frá mið og suður Sómalíu viðbótarvernd, uppfylli þeir ekki skilyrði 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Heimabær kæranda sé á dreifbýlissvæði þar sem viðvera Al-Shabaab sé mikil og dæmi um að óbreyttir borgarar hafi fallið í sprengingum í þorpinu sem kærandi bjó í áður en hún hafi flúið heimaríki. Að því viðbættu sé kynbundið ofbeldi víðtækt mannréttindabrot í landinu og eigi sérstaklega vel við í tilviki kæranda sem hafi komið sér undan refsingu af hálfu Al-Shabaab og þurft að þola grófar ofsóknir af hálfu fjölskyldumeðlims. Þar að auki er búist við að meira en 40% af sómölsku þjóðinni muni búa við hungursneyð eða mataróöryggi í desember 2022 í kjölfar neyðarástands sem hafi skapast vegna þurrka í landinu. Sé litið til yfirlits OCHA frá 18.-29. september 2022 má sjá að heimasvæði kæranda hafi verið í sérstakri hættu á þeim tímapunkti.
Til þrautavara krefst kærandi þess að ákvörðun Útlendingastofnunar, þess efnis að veita henni dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga, verði staðfest. Í því samhengi er vísað til málsástæðna sem raktar eru í greinargerð til Útlendingastofnunar og til forsendna hinnar kærðu ákvarðanir hvað varðar úrlausn um ákvæði 74. gr. laganna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kæranda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telur kærandi að málsmeðferð stofnunarinnar og hin kærða ákvörðun brjóti gegn meðalhófsreglu, rannsóknar- og réttmætisreglu stjórnsýslu- og útlendingaréttar, sbr. 10., 12. og 22. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga.
Hvað varðar vísan kæranda til þess að ákvörðun Útlendingastofnunar brjóti gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar með vísan í úrskurði kærunefndar í málum einstaklinga frá mið og suður Sómalíu ítrekar kærunefnd að við mat á því hvort einstaklingar eigi rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi fer ávallt frama einstaklingsbundið mat á aðstæðum og mat á trúverðugleika frásagnar. Aðstæður í tilvísuðum úrskurðum eru ekki að öllu leyti sambærilegar aðstæðum í máli kæranda og hafa því ekki fordæmisgildi.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hina kærðu ákvörðun sem er í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Er því ekki ástæða til þess að fella ákvörðun Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Auðkenni og ríkisfang
Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærandi framvísað dvalarleyfiskorti útgefnu af grískum yfirvöldum til handa handhöfum alþjóðlegrar verndar með gildistíma frá 22. júní 2020 til 21. júní 2023. Að því virtu var það mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað hver hún er með fullnægjandi hætti. Með vísan til þess var leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika og komst Útlendingastofnun að þeirri niðurstöðu að kærandi væri frá Sómalíu þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærandi hafi ekki sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærandi sé sómalskur ríkisborgari en auðkenni hennar sé að öðru leyti óupplýst.
5.3 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Sómalíu, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
· 2021 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 12. apríl 2022);
· 2022 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 20. mars 2023);
· 2023 Country Reports on Human Rights Practices – Somalia (US Department of State, 23. apríl 2024);
· 2023 Report on International Religious Freedom: Somalia (US Department of State, 1. júlí 2024);
· 2022 UNICEF Somalia Annual Report (UNICEF Somalia, febrúar 2023);
· Amnesty International Report 2022/23 – Somalia (Amnesty International, 27. mars 2023);
· Amnesty International Report 2023 – The State of the World’s Human Rights Somalia 2023 (Amnesty International, 24. apríl 2024);
· Benadir Regional Report 2020, Somali Health and Demographic Survey (SHDS) (Somalia National Bureau of Statistics, júlí 2021);
· BTI 2022 Country Report – Somalia (Bertelsmann Stiftung, 23. febrúar 2022);
· Challenges Facing the Health System in Somalia and Implications for Achieving the SDGs (European Journal of Public Health, 30. september 2020);
· Clans in Somalia (Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation (ACCORD), desember 2009);
· Country Background Note – Somalia (UK Home Office, desember 2020);
· Country Guidance: Somalia (EUAA, júní 2022);
· Country Guidance: Somalia (EUAA, ágúst 2023);
· Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, mars 2024);
· Country of Origin Information – Somalia: Health care services in Mogadishu (Danish Immigration Service, febrúar 2025);
· Country of Origin Information – Somalia: Health System (Danish Immigration Service, nóvember 2020);
· Country Policy and Information Note – Somalia: Al-Shabaab (UK Home Office, nóvember 2020);
· Country Policy and Information Note – Somalia: Majority clans and minority groups in south and central Somalia (UK Home Office, júní 2017);
· Country Policy and Information Note: Security and humanitarian situation in Mogadishu, Somalia (UK Home Office, maí 2022);
· Country Reports on Terrorism 2020 – Somalia (US Department of State, 16. desember 2021);
· DFAT Country Information Report Somalia (DFAT, 13. júní 2017);
· EASO COI Report: Somalia Actors (EUAA, 1. júlí 2021);
· EASO Country of Origin Information Report: Somalia – Targeted profiles (EUAA, 19. september 2021);
· Freedom in the World 2023 – Somalia (Freedom House, 2023);
· Freedom in the World 2024 – Somalia (Freedom House, 2024);
· Genelogical Table of Somali Clans (UNHCR Somalia);
· Humanitarian Needs Overview 2023 – Somalia (OCHA, 8. febrúar 2023);
· International Protection Considerations with Regard to People Fleeing Somalia (UNHCR, 6. september 2022);
· Key socio-economic indicators (EUAA, september 2021);
· Protection of Civilians: Building the Foundation for Peace, Security and Human Rights in Somalia (OHCHR, UNSOM, 10. desember 2017);
· Query response on Somalia: Al-Shabaab (2021 – March 2023) (leadership, objectives, structure; recruitment; areas of operation and activities; financing; attacks; targets; capacity to track individuals; state response) (Immigration and Refugee Board of Canada, 7. mars 2023);
· Reply by the United Nations High Commissioner for Refugees (UNHCR) in response to request for guidance on the application of the internal flight or relocation alternative, particularly in respect of Mógadisjú, Somalia (UNHCR, 25. 6. september 2013);
· Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 19. maí 2021);
· Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 8. febrúar 2022);
· Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 15. júní 2023);
· Situation in Somalia: Report of the Secretary-General (UN Security Council, 3. júní 2024);
· Somalia country profile (BBC, 2. janúar 2024);
· Somalia – Security situation (EUAA, 21. febrúar 2023);
· Somalia – Security situation (EUAA, 3. júní 2025);
· Somalia – Security situation update (EUAA, 25. apríl 2023): Somalia Situation Reports 2023 (UNICEF, 9. september 2023);
· Somalia Situation Update: April 2023 (ACLED, 21. apríl 2023);
· Somalia. Al-Shabaab areas in Southern Somalia (Landinfo, 21. maí 2019);
· Somalia. Key crises to watch in 2023 (Acaps, 14. apríl 2023);
· Somalia: Al-Shabaab and local employees of AMISOM, the UN and other international organisations (Landinfo, 2. júní 2015);
· Somalia: Al-Shabaab Regains Lost Territories as Tax Dispute Halts Counter-Insurgency Operation (ACLED, 2. júní 2023);
· Somalia: Basisinfo (Landinfo, 22. mars 2021);
· Somalia: Counter-Insurgency Operation Gains Regional Support in Phase Two as al-Shabaab Attacks and Political Differences Persist (ACLED, 21. apríl 2023);
· Somalia: Defection, desertion and disengagement from Al-Shabaab (EUAA, 13. febrúar 2023);
· Somalia: Det generelle voldsbildet og al-Shabaabs aktivitet i ulike deler av landet (Landinfo, 3. júní 2021);
· Somalia: Fact-Finding Mission to Mogadishu in March 2020 – Security situation and humanitarian conditions in Mogadishu (Finnish Immigration Service, 7. ágúst 2020);
· Somalia: Kampene i Mogadishu den 25. April 2021 og sikkerhetssituasjonen i byen etter dette (Landinfo, 15. júní 2021);
Sómalía er sambandslýðveldi með tæplega 13 milljónir íbúa. Ríkið lýsti yfir sjálfstæði frá Bretum og Ítölum þann 1. júlí 1960. Hinn 20. september 1960 gerðist Sómalía aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem og alþjóðasamning um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1990. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám alls kynþáttamisréttis árið 1975 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1990. Sómalía fullgilti samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 2015 og samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks árið 2019.
Í skýrslu EUAA frá árinu 2016 kemur fram að árið 1991 hafi brotist út borgarastyrjöld í Sómalíu eftir að vopnaðir andspyrnuhópar hafi steypt þáverandi forseta landsins, Siad Barre, og ríkisstjórn hans af stóli. Næstu ár hafi einkennst af miklum átökum og lögleysu í landinu án þess að starfhæf ríkisstjórn væri við völd. Í ágúst 2012 hafi fyrsta varanlega alríkisstjórnin verið mynduð frá því borgarastyrjöldin hafi hafist. Frá árinu 2009 hafi átök verið bundin við mið- og suðurhluta Sómalíu á milli ríkisstjórnar landsins og bandamanna þeirra annars vegar og íslamskra öfgahópa hins vegar, einkum Al-Shabaab, sem hafi náð stjórn á nokkrum svæðum í landinu. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 beri hryðjuverkasamtökin Al-Shabaab m.a. ábyrgð á fjölda hryðjuverkaárása síðustu ár í Sómalíu sem kostað hafi hundruð óbreyttra borgara lífið. Samkvæmt skýrslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna frá því í maí 2020 sé almennt öryggisástand í Sómalíu sveiflukennt. Megi rekja það til aukningar hryðjuverkaárása í landinu, fjölgunar glæpa og vopnaðra átaka sem hafi verið viðvarandi frá því í janúar 2020. Al-Shabaab hafi aukið árásir sínar í Mógadisjú og í Boosasoo í Bari héraði í Puntlandi. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2023 var mánaðarlegt meðaltal svokallaðra öryggisatvika, þ.e. bardaga, sprenginga og ofbeldis gagnvart almennum borgurum, um 240 á tímabilinu janúar 2022 til nóvember 2022.
Fram kemur í skýrslu EUAA frá júní 2022 að Al-Shabaab séu sómölsk herská samtök íslamskra súnnísalafi jihadista sem hafi myndast upp úr síðustu aldamótum. Sameiginleg hugmyndafræði samtakanna sé að berjast á móti ríkisstjórn landsins sem sé studd af vestrænum öflum. Hafi samtökin áður fyrr farið með yfirráð yfir Mógadisjú en hafi með hervaldi verið þröngvað í burtu frá helstu þéttbýliskjörnum borgarinnar. Samtökin stjórni í reynd svæðum við Juba og Shabelle-dölum, svæðum í kringum Harardhere, El Dher og El Buur í mið-Sómalíu og stórum hluta af landsvæðum annars staðar í landinu. Til að fjármagna samtökin haldi þau úti skattheimtu við eftirlitsstöðvar, kúgi fé af fyrirtækjum, leggi á innflutningsskatt í helstu höfnum og á fasteignafélög. Þá skattleggi samtökin einnig búfé, landbúnaðarafurðir og áveitu, auk þess að innheimta svonefnt zakat sem sé árleg trúarleg skylda til að greiða tiltekið hlutfall af auði einstaklings til fátækra. Þá skattleggi Al-Shabaab embættismenn sem láti samtökunum eftir hluta af launum sínum til að verða ekki skotmark þeirra.
Í skýrslu Landinfo frá árinu 2019 kemur fram að Al-Shabaab hafi tekið yfir stjórn stærsta hluta suður-Sómalíu árin 2008 til 2010. Á árunum 2011 til 2015 hafi friðargæsla Afríkuþjóða í Sómalíu (The African Union Mission in Somalia (AMISOM)) studd m.a. af Sameinuðu þjóðunum, og fleiri samtök stjórnvalda tekist að ná stjórn á Mógadisjú og í kjölfarið öðrum bæjum suður-Sómalíu. Markmið AMISOM sé m.a. að draga úr hættunni sem stafi af Al-Shabaab og öðrum vopnuðum hópum og koma á stöðugleika og öryggi í landinu undir stjórn sómölsku ríkisstjórnarinnar. Þrátt fyrir það hafi Al-Shabaab náð yfirráðum yfir nokkrum bæjum í suðurhluta landsins að nýju á árunum 2016 og 2017 og hafi einnig viss áhrif á þeim svæðum þar sem samtökin hafi ekki varanlega viðveru. Sterkir ættbálkar hafi ákveðið svigrúm til að semja við samtökin en flestir hræðist hefndaraðgerðir þeirra. Al-Shabaab hafi umfangsmikið net uppljóstrara og bandamanna sem fari tiltölulega frjálslega um á svæðum þar sem sómölsk yfirvöld hafi ekki yfirtekið.
Hópar Al-Shabaab starfi í litlum hreyfanlegum hópum sem hægt sé að safna saman þegar þörf krefji t.d. til þess að gera árásir eða ráðast gegn fólki sem sé á móti þeim. Heimildir bendi til þess að slíkir hópar séu sérstaklega virkir í kringum svæði sem sómölsk yfirvöld og stuðningsmenn þeirra hafi yfirráð yfir. Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2022, sem fjallar um mat á umsóknum einstaklinga um alþjóðlega vernd frá Sómalíu, kemur fram að þeir sem tilheyri áhættuhópi vegna ofsókna af hálfu Al-Shabaab séu m.a. einstaklingar sem tengist eða taldir séu tengjast sómölskum yfirvöldum á einhvern hátt, einstaklingar sem taldir séu brjóta gegn sharía lögum eða tilskipunum sem Al-Shabaab hafi sett fram, þ. á m. þeir sem hafi yfirgefið Al-Shabaab, fjölmiðlamenn, einkum þeir sem gagnrýni Al-Shabaab, baráttufólk fyrir mannréttindum og einstaklingar sem Al-Shabaab hafi kúgað fé út úr.
Samkvæmt skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá árinu 2020 er árangursrík vernd stjórnvalda á yfirráðasvæðum Al-Shabaab ekki tiltæk. Ríkisstjórn landsins hafi leitast við að bæta öryggisþjónustu sína með aðstoð AMISOM. Í höfuðborg Sómalíu, Mógadisjú, og á öðrum þéttbýlisstöðum þar sem ríkisstjórnin sé við völd séu öryggissveitir veikburða sökum skorts á fjármagni, fullnægjandi búnaði og skorts á þjálfun starfsmanna. Í skýrslu Landinfo frá árinu 2018 kemur fram að sómalska lögreglan (e. Somali Police Force) sé virk og sýnileg í höfuðborginni Mógadisjú. Megináhersla lögreglunnar sé að vernda stofnanir ríkisins gegn árásum Al-Shabaab. Aftur á móti ber heimildum saman um að lögreglan hafi takmarkaða getu til að vernda einstaklinga gegn ofbeldi, þ.m.t. að rannsaka, ákæra og refsa fyrir ofbeldisbrot. Þá kemur fram að spilling sé útbreidd meðal lögreglu og hjá dómstólum. Í skýrslu danskra innflytjendayfirvalda frá 2020 kemur fram að öryggisástand í Sómalíu sé sveiflukennt og Al-Shabaab fremji flest brot gegn óbreyttum borgurum í suður- og mið-Sómalíu.
Í skýrslu breska innanríkisráðuneytisins frá janúar 2019 kemur fram að ættbálkakerfið sé mikilvægur hluti af auðkenni íbúa Sómalíu og að kerfið hafi áhrif á alla þætti samfélagsins. Ættbálkakerfið sé stigskipt en neðst í stigskiptingunni séu fátækir ættbálkar og minnihlutahópar sem tilheyri ekki ættbálkasamfélaginu. Í leiðbeiningum EUAA frá ágúst 2023 kemur fram að í Sómalíu séu fimm stærstu ættbálkarnir Darood, Hawiye, Isaaq, Dir og Rahanwyen (sem samanstendur af ættbálkunum Digil og Mirifle). Samkvæmt UNHCR eru þeir ættbálkar sem eru í minnihluta í Sómalíu; Bantu/Jareer Bravense, Rerhamar, Bajuni, Eeyle, Jaaji/Reer Maanyo, Barawani, Galgala, Tumaal, Yibir/Yibron og Midgan/Gaboye. Það að tilheyra ættbálki sem sé í minnihluta leiði ekki sjálfkrafa til þess að einstaklingur sé í hættu á að verða fyrir ofsóknum. Samkvæmt skýrslu EUAA frá júní 2023 eru meðlimir Rahanwyen ættbálksins aðallega búsettir í héruðunum Bay, Bakool og Gedo, á milli ánna Shabelle og Jubba og starfi aðallega við búskap. Ættinni sé skipt upp í tvær stórar ættir, Digil og Mirifle. Að hluta til sé litið á ættbálkinn sem lágsettan ættbálk af meðlimum annarra ættbálka en hann tilheyri meirihlutaættbálkum. Ættbálkurinn sé fjölmennur og meðlimir hans geti gengið í hjónaband með meðlimum Hawiye og Darood. Þá hafi ættbálkurinn öðlast virðingu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi stofnað sína eigin hersveit og svæðisstjórn. Meðlimir ættbálksins hafi þó mátt sæta mismunun af hálfu annarra meirihlutaættbálka þegar þeir hafi sest að á stöðum þar sem aðrir ættbálkar séu ríkjandi.
Í skýrslu EUAA frá 2025 kemur fram að konur og stúlkur standi frammi fyrir margs konar áskorunum í Sómalíu, m.a. þvinguðum hjónaböndum á barnsaldri, kynfæralimlestingum, heimilisofbeldi, kynferðis- og kynbundnu ofbeldi, auk takmarkana á skólagöngu. Sómölsk lög og réttarkerfið veiti takmarkaða vernd gegn mismunun á grundvelli kyns. Konur eigi erfitt uppdráttar á mörgum sviðum, m.a. á sviði húsnæðis, menntunar og atvinnu. Þá njóti þær ekki jafnréttis þegar komi að því að erfa eignir og sé þeim oft neitað um þær eignir sem þær eigi lagalegan rétt á vegna félagslegra viðhorfa sem mismuni konum. Í skýrslu EUAA frá 2021 kemur fram að nauðganir og annað kynferðisofbeldi sé mjög útbreitt í Sómalíu, einkum í suður- og mið-Sómalíu og á svæðum innan Puntlands. Meirihluti brotanna sé ekki tilkynntur til lögreglu, einkum sökum víðtæks refsileysis innan réttarkerfisins og ótta og skömm þolenda. Heimilisofbeldi í garð kvenna í Sómalíu sé jafnframt lýst sem „hömlulausu“. Konur séu berskjaldaðar fyrir kynferðislegu ofbeldi á vinnumarkaði og sé algengt að karlmenn, sem sjái um ráðningar innan bæði einkageirans og hins opinbera, krefjist einhvers konar kynlífsþjónustu gegn ráðningu. Konur hafi litla möguleika á að kvarta yfir slíku ofbeldi, en nær öruggt að konur missi vinnuna geri þær það. Fyrir vikið neyðist margar konur til að þola kynferðislega misnotkun til að sjá fyrir fjölskyldu sinni. Þá sé þátttaka kvenna í stjórnmálastörfum takmörkuð vegna viðhorfa sem einkennist af mismunun og fjandskap í garð þeirra. Einstæðar konur séu almennt í viðkvæmari stöðu en giftar konur, en skortur á vernd í bland við viðhorf feðraveldisins í Sómalíu leiði til mismununar og útilokunar einstæðra kvenna. Einstæðar konur standi t.a.m. frammi fyrir erfiðleikum við að leigja eigið húsnæði þar sem þær þurfi karlmann til að ábyrgjast leigufyrirkomulagið. Þá eigi einstæðar konur sérstaklega á hættu að sæta kynbundnu ofbeldi þar sem þær neyðist til að vera á vinnumarkaði til að geta mætt grunnþörfum fjölskyldu sinnar og vegna staðalímynda í samfélaginu sem álíti konur og stúlkur veikburða.
Í framangreindum gögnum, m.a. skýrslu danskra útlendingayfirvalda frá árinu 2025, kemur fram að heilbrigðiskerfi Sómalíu sé í grunninn einkavætt og þó svo að það hafi tekið töluverðum framförum á undanförnum árum séu töluverðar áskoranir um landið allt, sérstaklega í dreifbýli þar sem aðgengi sé slæmt og skortur sé á heilbrigðisvörum. Ekkert miðlægt heilbrigðiskerfi sé í Sómalíu og sérhæfðar læknismeðferðir takmarkaðar. Þá sé aðgengi að lyfjum takmarkað og engin umsjón eða eftirlit með gæðum og öryggi þeirra. Í skýrslunni kemur fram að í Mógadisjú hafi almennir borgarar aðgengi að heilbrigðisþjónustu og sé ekki mismunað á grundvelli þjóðernis eða ættbálks. Þá sé öll opinber heilbrigðisþjónusta gjaldfrjáls en þó geti einstaklingar þurft að greiða óformleg gjöld og greiðslur til starfsmanna. Í borginni hafi orðið aukning á einkarekinni heilbrigðisþjónustu og gæði slíkrar þjónustu séu almennt betri en á opinberum heilsustofnunum. Geðheilbrigðisþjónusta sé í boði í Mógadisjú en sé þó afar takmörkuð. Við stærstu spítala borgarinnar séu starfandi geðlæknar og sálfræðingar og flest algengustu lyf við geðrænum veikindum séu fáanleg í borginni. Þá sé hægt að leita til aðila sem starfi á einkamarkaðnum. Þrátt fyrir takmarkað aðgengi að lyfjum þá megi nálgast fjölda nauðsynlegra lyfja í apótekum í Mógadisjú.
5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir umsókn sína um alþjóðlega vernd á því að hún óttist ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi og þjóðernis. Þar að auki telur kærandi að líta verði á málið með hliðsjón af almennu ástandi í landinu.
Mat á trúverðugleika frásagnar kæranda er byggt á endurritum af viðtali hjá Útlendingastofnun, öðrum gögnum málsins og upplýsingum um heimaríki.
Kærandi greindi frá því í viðtali hjá Útlendingastofnun að vera fædd og uppalin í Bakala þorpi á Bay landsvæðinu í suðvestur Sómalíu en hafi búið í bænum [...] á Bay landsvæðinu áður en hún hafi flúið heimaríki. Í ákvörðun Útlendingastofnunar kemur fram að við komuna hingað til lands hafi kærandi ekki sannað hver hún væri með fullnægjandi hætti og var því leyst úr auðkenni kæranda á grundvelli mats á trúverðugleika. Taldi Útlendingastofnun ekki ástæðu til að leggja annað til grundvallar en að kærandi sé ríkisborgari Sómalíu og frá því svæði sem hún kveðst vera frá, þó auðkenni hennar væri að öðru leyti óupplýst. Kærunefnd telur ekki ástæðu til að hnekkja niðurstöðu Útlendingastofnunar að þessu leyti og verður því gengið út frá því að kærandi hafi a.m.k. dvalið hluta ævi sinnar í [...] þorpi og bænum [...] á Bay landsvæðinu í suðvesturhluta Sómalíu og verður því lagt til grundvallar að það sé heimasvæði kæranda. Bay landsvæðið er staðsett í suðvesturhluta Sómalíu og samanstendur af fjórum umdæmum þar sem höfuðborgin er Baidoa. Samkvæmt skýrslum um heimaríki kæranda, m.a. korti á vefsíðu Political Geography Now bæði frá því í apríl 2023 og mars 2025, fara ATMIS eða sómölsk yfirvöld með yfirráð yfir borgunum Baidoa og Berdales á Bay landsvæðinu. Heimabær kæranda, [...], er samkvæmt ítarlegum landakortum staðsett á milli borganna [...] og [...] og af framangreindum kortum og öðrum upplýsingaveitum, er ekki ljóst hver fari með yfirráð í dreifbýli á svæðinu. Af heimildum má ráða að bardagar á milli stjórnarhersins í Sómalíu og bandamanna þeirra og sveita Al-Shabaab séu tíðar á Bay svæðinu og að stjórnarherinn hafi náð yfirráðum frá Al-Shabaab í nokkrum bæjum á síðustu árum sem hafi valdið auknum árásum Al-Shabaab á herstöðvar og önnur svæði þar sem liðsmenn stjórnarhersins haldi til.
Í verndarviðtali hjá Útlendingastofnun 7. september 2021, kvaðst kærandi hafa flúið heimaríki í kjölfar þess að stjúpfaðir hennar hafi beitt hana kynferðislegu ofbeldi og myrt fimm ára son hennar sem hafi orðið vitni að ofbeldinu. Kvað kærandi stjúpföður sinn hafa hótað að myrða hana og hin börnin hennar tvö, myndi hún segja frá því sem hafi gerst. Aðspurð um barnsföður sinn kvað hún að það síðasta sem hún hefði heyrt væri að hann hefði verið myrtur. Í efnismeðferðarviðtali hjá Útlendingastofnun dagana 20. og 27. október 2022, greindi kærandi frá því að hótanir frá Al-Shabaab hafi verið aðalástæða flótta hennar frá heimaríki. Í apríl 2019 hafi meðlimir Al-Shabaab gert kæranda kunnugt um að barnsfaðir hennar hafi höfðað mál gegn henni og yrði hún að láta börnin sín tvö af hendi til föður þeirra sökum þess að hún hafi sofið hjá öðrum karlmanni. Meðlimir Al-Shabaab hafi óskað eftir því að hún kæmi á starfsstöð þeirra daginn eftir en þá fengi hún að heyra refsingu sína annars hlyti hún önnur og verri örlög. Nágrannakona kæranda hafi ráðlagt henni að leggja á flótta þar sem hún yrði grýtt til dauða fylgdi hún ekki fyrirmælum Al-Shabaab. Kærandi kvaðst hafa orðið óttaslegin enda hafi hún orðið vitni að því að stúlkur hafi verið grýttar til dauða. Kærandi hafi því farið eftir ráðleggingum nágrannakonunnar og lagt á flótta.
Margt í framburði kæranda dregur úr trúverðugleika hennar m.a. hvað varðar meinta höfðun máls fyrrverandi eiginmanns hennar gegn henni, en eins og fram hefur komið greindi kærandi fyrst frá framangreindri ástæðu flótta frá heimaríki í efnisviðtali í október 2022. Þá er frásögn kæranda óljós um það hvar fyrrverandi eignmaður hennar er staddur í dag. Aðspurð í verndarviðtali kvaðst kærandi hafa heyrt að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi verið myrtur en í efnisviðtali kvað kærandi son sinn búa hjá honum. Þá kvaðst kærandi stöku sinnum hafa verið í sambandi við son sinn en hafi engin samskipti við dóttur sína sem dvelji hjá móður kæranda. Af frásögn hennar má þó leiða að hún hafi verið í sambandi við móður sína að einhverju leyti, en kærandi greindi m.a. frá því að Al-Shabaab hafi meinað móður hennar og bróður að yfirgefa [...] þar til kærandi sneri aftur til heimaríkis. Í greinargerð kæranda til kærunefndar eru gerðar athugasemdir við trúverðugleikamat í ákvörðun Útlendingastofnunar sem byggt hafi verið á innbyrðis misræmi í viðtölum kæranda hjá stofnuninni. Kæranda hefur verið gefinn kostur á að veita skýringar og andmæli við misræminu í greinargerð til kærunefndar en þar kemur m.a. fram að í fyrra viðtalinu hafi kærandi á engum tímapunkti verið spurð um ástæður flótta hennar, enda hafi viðtalið ekki snúist um það. Telur kærandi því hvorki málefnalegt né rökrétt að líta svo á að hún hafi ekki greint frá öllum ástæðum flótta síns í viðtali sem henni hafði sérstaklega verið leiðbeint um að sneri ekki um ástæður flótta hennar. Staðhæfingar um ótrúverðugleika að þessu leyti standist því ekki skoðun.
Með tölvubréfum, dags. 11. og 28. júlí 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kæranda. Með tölvubréfum, dags. 16. og 29. júlí 2025, bárust nefndinni umbeðnar upplýsingar. Í svörum sínum kvaðst kærandi hafa gengið til hjónabands við fyrrverandi eiginmann sinn 10. mars 2010 en skilnaður hafi gengið í gegn 20. apríl 2017. Kvað kærandi þau hafa búið saman í [...] í Sómalíu frá því þau hafi gengið í hjónaband þar til 30. apríl 2017. Aðspurð um misræmi í framburði sínum í verndarviðtali og efnisviðtali hjá Útlendingastofnun hvað varðar örlög fyrrverandi eignmanns hennar kvaðst kærandi hafa heyrt að fyrrverandi eiginmaður hennar hafi látist við störf árið 2021, en hann hafi starfað við að flytja bíla á milli staða. Ári síðar hafi kærandi fengið þær upplýsingar að hann væri ekki látinn heldur hafi hann setið í fangelsi og þegar honum hafi verið sleppt hafi hann sótt son sinn hjá móður kæranda og hafi þeir feðgar búið saman síðan þá. Enn fremur var kærandi spurð um misræmi í framburði á milli viðtala um hvort kærandi væri einkabarn móður sinnar kvað kærandi mismunandi mállýsku hjá sér og túlki líklega hafa haft áhrif. Í verndarviðtali hafi kærandi ekki sagt að hún væri einkabarn móður sinnar heldur að faðir hennar og móðir hafi aðeins eignast eitt barn saman og bróðir hennar eigi annan föður. Aðspurð hvers vegna kærandi hafi fyrst greint frá meintri höfðun máls fyrrverandi eiginmanns hennar gegn henni í efnisviðtali í október 2022, kvaðst kærandi ekki hafa gefist tækifæri til þess að greina frá því fyrr. Aðspurð kvaðst kærandi hafa verið í sambandi við bæði börnin sín eftir að hún hafi flúið heimaríki í gegnum síma og myndsímtöl. Kvaðst kærandi tala daglega við dóttur sína en aðeins sjaldnar við son sinn þar sem það reynist flóknara þar sem hann búi hjá föður sínum. Því til stuðnings lagði kærandi fram sjö ódagsett skjáskot þar sem sjá má kæranda tala við börnin sín í gegnum myndsímtöl. Aðspurð kvaðst kærandi jafnframt hafa verið í sambandi við móður sína eftir að hún hafi flúið heimaríki í gegnum síma og myndsímtöl. Þá kvað hún móður sína hafa tekist að flýja [...] og þ.a.l. Al-Shabaab í mars 2023. Móðir kæranda búi nú ásamt bróður og dóttur kæranda í Mógadisjú en þau fari þar huldu höfði. Kærandi kvað ástæðu þess að þau hafi hætt á það að flýja vera veikindi móður hennar. Aðspurð hvort móðir hennar og bróðir hafi orðið fyrir einhverju áreiti eftir að kærandi hafi flúið heimaríki kvað kærandi þau ítrekað hafa orðið fyrir áreiti en t.a.m. hafi bróðir hennar verið handtekinn handahófskennt af Al-Shabaab, honum haldið lengi og beittur grófu líkamlegu ofbeldi. Samhliða svörum sínum til kærunefndar lagði kærandi fram afrit vegabréfs, fæðingarvottorðs og vottorðs um auðkenni sonar hennar og dóttur, fædd 2015 og 2017. Þá lagði kærandi fram afrit af skilnaðarvottorði ásamt afriti forsjárvottorðs, dags. 23. júlí 2023, gefið út af héraðsdómi í Mógadisjú. Kemur þar fram að kærandi og fyrrverandi eiginmaður hennar hafi skilið 20. apríl 2017. Af forsjárvottorðinu verður ekki annað ráðið en að faðir barnanna samþykki breytingu á forsjá barnanna og beri kærandi samkvæmt vottorðinu ein forsjárskyldur gagnvart börnunum og faðirinn samþykki að börnin ferðist til móður sinnar sem sé búsett á Íslandi.
Kærandi hefur engin gögn lagt fram sem styðja frásögn hennar um að eitt barna hennar hafi látist árið 2017 eða um það ofbeldi sem hún hafi upplifað af hálfu stjúpföður síns. Þá eru skýringar kæranda á því misræmi er lýtur að eiginmanni hennar og stöðu hans í heimaríki ótrúverðugar og ekki í samræmi við aðra þætti í frásögn kæranda s.s. um það hvar börn hennar hafi verið búsett í heimaríki hennar eftir að hún hafi yfirgefið landið og samskipti hennar við móður hennar og dóttur. Kærandi greindi frá því í fyrra viðtali að börnin byggju bæði hjá móður hennar og að hún væri í samskiptum við þau en í síðara viðtali að sonurinn væri hjá föður sínum og hún væri stundum í samskiptum við hann en í engum samskiptum við móður sína og dóttur. Þá verður annað misræmi ekki skýrt af misskilningi við túlkun eða því að kærandi hafi ekki haft tækifæri til að greina frá aðstæðum sínum á fullnægjandi hátt. Kærunefnd telur þó ekki hægt að útiloka að kærandi hafi verið þvinguð í hjónaband með frænda stjúpföður síns, að henni hafi verið nauðgað og sonur hennar myrtur. En heimildir benda til þess að konur og stúlkur í Sómalíu geti sætt athöfnum sem séu svo alvarlegar í eðli sínu að þær jafngildi ofsóknum. Þegar athafnir séu hins vegar eingöngu mismunun í eðli sínu, t.d. útskúfun, skuli einstaklingsbundið mat á því hvort slíkt geti talist ofsóknir taka mið af alvarleika og/eða endurtekningu athafnanna eða því hvort þær stafi af samsafni athafna. Samkvæmt skýrslu EUAA frá 2022 eru aðstæður í Sómalíu ekki slíkar að allar konur teljist hafa ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli kyns síns. Frásögn kæranda um almennt slæma stöðu kvenna í Sómalíu fær stoð í heimildum og er ekki ástæða til að draga þann þátt frásagnar kæranda í efa. Á hinn bóginn verður af frásögn kæranda ekki annað ráðið en að kæranda hafi tekist að slíta sig burt úr meintu nauðungarhjónabandi við frænda stjúpföður hennar. Enn fremur hafi henni tekist að flytja fjarri stjúpföður sínum ásamt móður sinni, sem hafi skilið við stjúpföður kæranda, til annars þorps, án vandkvæða. Þá má af framlögðum gögnum ráða að kærandi sé í samskiptum við fyrrum eiginmann sinn varðandi forsjá og umsjá barna þeirra. Skilnaður kæranda og fyrrverandi eiginmanns hennar hafi átt sér stað í apríl 2017 og þau hafi komist að samkomulagi um að kærandi fari ein með forsjá barnanna tveggja árið 2023.
Með vísan til framangreindrar umfjöllunar um aðstæður kvenna er það mat kærunefndar að almennar aðstæður þeirra séu ekki slíkar að þær geti talist til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Er það því mat kærunefndar að kærandi hafi ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir á grundvelli kyns síns í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. d-lið 3. mgr. 38. gr. sömu laga.
Með vísan til framangreinds og misræmis í frásögn kæranda hvað varðar málshöfðun fyrrverandi eiginmanns hennar gegn henni með aðstoð Al-Shabaab verður ekki lagt til grundvallar að mál hafi verið höfðað gegn henni af hálfu Al-Shabaab með tilstuðlan fyrrverandi eiginmanns hennar og af þeim sökum sé hún sérstakt skotmark Al-Shabaab umfram aðra í heimaríki. Þá verður af framangreindum heimildum ekki annað ráðið en að Al-Shabaab beini spjótum sínum fyrst og fremst að háttsettum aðilum svo sem stjórnmálamönnum, ættbálkaleiðtogum, starfsmönnum AMISOM, starfsmönnum alþjóðlegra samtaka, liðhlaupum Al-Shabaab, fjölmiðlamönnum sem hafi gagnrýnt samtökin og fyrirtækjaeigendum sem neiti að greiða verndartolla til samtakanna. Ólíklegt sé að almennir borgarar sem tengist hvorki yfirvöldum né alþjóðasamtökum stafi sérstök hætta af Al-Shabaab.
Auk framangreinds byggir kærandi á því að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í Sómalíu þar sem hún tilheyri ættbálknum Leysan sem sé í minnihluta. Samkvæmt landaupplýsingum um heimaríki kæranda er [...] ættbálkurinn undirættbálkur [...] ættbálksins sem heyri undir [...]ættbálkinn og er meirihlutaættbálkur í Sómalíu. Meðlimir [...] ættbálskins halda sig aðallega til í héruðunum Bay, Bakool og Gedo, milli ánna Shabelle og Jubba og starfi aðallega við búskap. Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að hún hafi ekki upplifað sig í minnihluta á því landssvæði sem hún hafi búið, heldur einungis ef hún færi til annarra borga, s.s. [...] eða [...]. Kærandi greindi ekki frá því að hafa sætt áreiti eða að hún hafi mátt sæta áreiti eða meðferð sem náð getur því marki að teljast ofsóknir á grundvelli ættbálks síns. Með hliðsjón af frásögn kæranda og framangreindum landaupplýsingum hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún eigi á hættu ofsóknir á grundvelli ættbálkar í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda, telst kærandi ekki hafa sýnt fram á með rökstuddum hætti að hún eigi á hættu að sæta ofsóknum í heimaríki í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 38. gr. sömu laga. Sama gildir þótt litið sé til samsafns athafna. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærandi byggir á slæmu öryggisástandi í Sómalíu, fyrri reynslu hennar og hættu á ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki. Kærandi sé einhleyp kona án ættbálkastuðningsnets í landinu og sé hún því í sérstaklega slæmri öryggisstöðu í landinu. Þá sé heimabær kæranda á dreifbýlissvæði þar sem viðvera Al-Shabaab sé mikil og dæmi um að óbreyttir borgarar hafi fallið þar í sprengingum.
Kærunefnd hefur þegar komist að þeirri niðurstöðu að ekki verði lögð til grundvallar frásögn kæranda um að hún sé í hættu í heimaríki vegna hættu á ofsóknum af hálfu meðlima hryðjuverkasamtakanna Al-Shabaab. Kærunefnd hefur lagt til grundvallar við úrlausn máls kæranda að hún hafi verið búsett á í bænum [...] á Bay landsvæðinu þegar hún hafi yfirgefið heimaríki sitt og hafi búið þar mestan hluta ævi sinnar. Verður því horft til aðstæðna á Bay landsvæðinu við mat á því hvort aðstæður kæranda geti fallið undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað fara sómölsk yfirvöld eða ATMIS með full yfirráð yfir borgunum [...] og [...] á Bay landsvæðinu en heimabær kæranda [...] er samkvæmt landakortum staðsett á milli borganna. Af landaupplýsingum er ekki ljóst hver fari með yfirráð í dreifbýli á svæðinu. Samkvæmt skýrslu EUAA leiðir viðverða einstaklings ein og sér á Bay landsvæðinu ekki til þess að viðkomandi teljist eiga raunverulega hættu að sæta alvarlegum sakaða í skilningi c-liðar 15. gr. tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/95/EB (e. Qualification Directive). Hins vegar nái handahófskennt ofbeldi á svæðinu háu stigi og því þurfi minna að koma til við mat á einstaklingsbundnum aðstæðum viðkomandi til að rökstuddar líkur verði taldar á því að viðkomandi muni eiga raunverulega hættu að sæta alvarlegum skaða í skilningi ákvæðisins verði henni gert að fara aftur til Bay landsvæðisins. Með vísan til framangreinds og fyrirliggjandi gagna verður ekki séð að kærandi sé útsettari en aðrir einstaklingar í heimaríki hennar, s.s. á grundvelli ættbálkaraðildar hennar eða kyns hennar, fyrir þeirri hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka.
Þegar frásögn kæranda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kæranda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kæranda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærandi uppfyllir því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamaður hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærandi er ekki flóttamaður samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga á kærandi ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
6.1 Lagagrundvöllur
Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.
Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.
Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.
6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga
Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi kærandi frá því að glíma við mígreni sem hún tæki lyf við og vera með æxli í hálsinum sem ætti eftir að rannsaka betur. Þá kvað kærandi andlega heilsu sína góða. Í gögnum málsins liggja m.a. fyrir samskiptaseðlar frá göngudeild sóttvarna á tímabilinu frá 27. ágúst 2021 til 11. maí 2023, afrit af sjúkraflutningablöðum, dags. 20. október og 11. desember 2021 og 2. júlí 2022, afrit af frumeindafræðisvari frá Rannsóknarstofu í meinafræði, dags. 4. júlí 2022 ásamt afriti af sálfræðinótu, dags. 8. nóvember 2021. Samkvæmt framangreindum gögnum lá kærandi inni á Landspítala frá 23. október til 28. október 2021 vegna Covid-19 sýkingar. Þá kemur fram að á tímabilinu frá 11. desember 2021 til 2. júlí 2022, hafi kærandi leitað heilbrigðisþjónustu í tvígang vegna höfuðverkja, kviðverkja og blóðugra uppkasta. Í nótu frá 19. júlí 2022 kemur fram að fundist hafi 1,5cm hnútur í hálsi kæranda en rannsóknir hafi leitt í ljós að um væri að ræða [...] hnút í Bethesda [...]flokki í skjaldkirtli. Engar sérstakar upplýsingar er að finna um lyfjagjöf eða frekari aðhlynningu vegna hnútsins í framlögðum gögnum. Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun var óskað eftir frekari upplýsingum frá kæranda um núverandi heilsufar hennar, sérstaklega hvað varðaði meint æxli í hálsi hennar. Kærandi upplýsti stofnunina um að hún tæki lyf að staðaldri vegna sýkingar í maga og hálsi og lagði fram sjúkraskrá sína. Í framlögðum gögnum er ekki að finna upplýsingar um hvaða lyf kærandi taki inn eða nánari upplýsingar um meintar sýkingar.
Samkvæmt heimildum kærunefndar er svokallað Bethesda kerfi notað til að flokka tegundir hnúta í skjaldkirtli, en slíkir hnútar eru algengir. [...] hnútur í skjaldkirtli í Bethesda [...] flokki, sem kærandi er með samkvæmt framangreindum gögnum, er samkvæmt Bethesda kerfinu, góðkynja hnútur í skjaldkirtli og um 0-3% líkur á illkynja æxli. Engar frekari aðgerðir eru ráðlagðar fyrir slíka hnúta.
Af framburði kæranda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki ráðið að kærandi glími við skyndilega, lífshættulega eða mjög alvarlega sjúkdóma sem fyrirséð er að muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Að framangreindu virtu verður ekki talið að kærandi þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að hún geti einungis hlotið hana hérlendis né að rof á henni yrði til tjóns fyrir hana verði henni gert að snúa aftur til heimaríkis. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað stendur kæranda til boða heilbrigðisþjónusta í heimaríki, þ. á m. sálfræðiþjónusta. Heilbrigðisþjónusta í Sómalíu sé í grunninn einkavædd en í því samengi bendir kærunefnd á að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Hefur kærandi því ekki sýnt fram á að hún hafi þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í athugasemdum við 74. gr. í greinargerð með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að með erfiðum félagslegum aðstæðum viðkomandi sé vísað til þess að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimalandi og megi þar sem dæmi nefna aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimalandi, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við endurkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.
Ljóst er að Sómalía glímir við ýmsa erfiðleika er tengjast almennu öryggisástandi í landinu sem og efnahag landsins og hafa stjórnvöld í landinu unnið að því með aðstoð alþjóðlegra aðila að bæta úr en enn sé langt í land. Sómalskar konur standi frammi fyrir fjölmörgum hindrunum á borð við heimilisofbeldi, kynferðislegt- og kynbundið ofbeldi auk þess sem að skólasókn stúlkna sé takmörkuð. Konur hafi ekki með sömu réttindi og karlar og upplifi kerfisbundinn ójöfnuð þrátt fyrir ákvæði laga sem banni mismunun á grundvelli kyns.
Það var niðurstaða Útlendingastofnunar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga og hefur kærunefnd ekki forsendur til að breyta ákvörðun Útlendingastofnunar.
Það er því niðurstaða kærunefndar að veita beri kæranda dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinnar kærðu ákvörðunar er hún staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir