28 ágúst 2025

/

Mál nr. 272/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 272/2025

Fimmtudaginn 28. ágúst 2025

A

gegn

Garðabæ

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 30. apríl 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Garðabæjar, dags. 25. apríl 2025, um að synja beiðni um sumardvöl fyrir dóttur hans.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Garðabæjar, dags. 25. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að beiðni hans um sumardvöl í Vinasetrinu fyrir dóttur hans hefði verið synjað.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 30. apríl 2025. Með bréfi, dags. 8. maí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Garðabæjar ásamt gögnum málsins. Svar barst frá stofnuninni 28. maí 2025 þar sem fram kom að hin kærða ákvörðun hefði verið endurskoðuð af hálfu velferðarsviðs Garðabæjar og að fallist hefði verið á beiðni foreldra um sumardvöl fyrir dóttur þeirra. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 3. júní 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til bréfs Garðabæjar. Sú beiðni var ítrekuð með tölvupósti 29. júlí 2025. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Garðabæjar, dags. 25. apríl 22025, um að synja beiðni kæranda um sumardvöl í Vinasetrinu fyrir dóttur hans. Í kjölfar kærunnar var hin kærða ákvörðun endurskoðuð af hálfu velferðarsviðs Garðabæjar sem féllst á beiðni kæranda. Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirrar ákvörðunar en svar barst ekki.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 35. gr. laga nr. 38/2018 um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er heimilt að kæra stjórnvaldsákvarðanir sem teknar eru á grundvelli laganna til úrskurðarnefndarinnar innan þriggja mánaða frá því að umsækjanda berst tilkynning um ákvörðunina. Nefndin úrskurðar hvort málsmeðferð hafi verið í samræmi við lög og hvort ákvörðun hafi verið efnislega í samræmi við lögin og reglur sveitarfélaga settar á grundvelli þeirra.

Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 38/2018. Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um synjun á beiðni kæranda um sumardvöl fyrir dóttur hans var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.      


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir