28 ágúst 2025
/
Nr. 644/2025 Úrskurður
Hinn 28. ágúst 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 644/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU25050056
Kæra [...]
I. Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 18. maí 2025 kærði [...], fd. [...], ríkisborgari Bandaríkjanna (hér eftir kærandi), ódagsetta ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum, um um brottvísun frá landinu og endurkomubann, sbr. 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri nr. 136/2022 og 2. mgr. 98. gr., sbr. 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Kærandi krefst þess að hin kærða ákvörðun verði felld úr gildi.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
Lagagrundvöllur
Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
II. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi hefur ekki verið með dvalarleyfi á Íslandi. Samkvæmt gögnum málsins hafði lögregla afskipti af kæranda við landamæraeftirlit á ytri landamærum á Keflavíkurflugvelli 14. maí 2025. Samkvæmt stimplum í vegabréfi kæranda hafði hún dvalið lengur en henni er heimilt á landinu og Schengen-svæðinu, sbr. 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga. Með ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum var kæranda brottvísað og gert að sæta endurkomubanni til tveggja ára á grundvelli 3. mgr. 14. gr. laga um landamæri, sbr. og 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga og 2. mgr. 101. gr. laga um útlendinga, sbr. f-lið 2. mgr. 104. gr. laganna.
Samkvæmt skýrslu lögreglu var ákvörðunin birt fyrir kæranda 14. maí 2025. Kærandi kærði ákvörðunina 18. maí 2025. Með bréfi Útlendingastofnunar, dags. 23. júlí 2025, var kæranda skipaður talsmaður vegna málsins. Hinn 14. ágúst 2025 lagði kærandi fram greinargerð og önnur fylgigögn vegna málsins.
III. Málsástæður og rök kæranda
Farið hefur verið yfir greinargerð kæranda og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Í ljósi niðurstöðu málsins verður greinargerð kæranda ekki reifuð nánar.
IV. Niðurstaða kærunefndar útlendingamála
Ákvæði 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um leiðbeiningarskyldu stjórnvalda. Í 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga kemur fram að í máli er varðar frávísun, brottvísun eða afturköllun leyfis skal útlendingi þegar í upphafi máls leiðbeint um réttindi sín og meðferð málsins á tungumáli sem ætla má með sanngirni að hann geti skilið. Samkvæmt a-lið ákvæðisins skal útlendingi m.a. leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við meðferð máls.
Í frumskýrslu lögreglu, dags. 3. júní 2025, kemur ekki fram hvort kæranda hafi verið leiðbeint um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns í upphafi máls heldur kemur fram að við upphaf birtingar ákvörðunarinnar hafi henni verið leiðbeint um framangreint. Í bréfi lögreglu til kærunefndar, dags. 10. júlí 2025, kemur fram að kæranda var ekki kynntur réttur sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað við meðferð málsins við upphaf máls.
Ákvæði 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um fortakslausa skyldu íslenskra stjórnvalda til að hafa frumkvæði að því að leiðbeina útlendingi við upphaf máls um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns eða annars fulltrúa á eigin kostnað. Samkvæmt framangreindu var kæranda ekki leiðbeint um þann rétt sinn í samræmi við 1. mgr. 11. gr. laga um útlendinga og kann að vera að sá annmarki hafi haft áhrif á efnislega niðurstöðu málsins. Er því óhjákvæmilegt að fella hina kærðu ákvörðun úr gildi. Í ljósi niðurstöðu málsins er ekki ástæða til að fjalla nánar um kröfur og málsástæður kæranda.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun lögreglustjórans á Suðurnesjum er felld úr gildi.
The decision of the Police Commissioner of Suðurnes District is vacated.
Valgerður María Sigurðardóttir Vera Dögg Guðmundsdóttir