03 september 2025

/

Mál nr. 336/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 336/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 25. maí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. apríl 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 18. nóvember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. apríl 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um nauðsynlegar upplýsingar sem hefðu áhrif á rétt hans til atvinnuleysisbóta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 25. maí 2025. Með bréfi, dags. 3. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 9. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um að svipta hann atvinnuleysisbótum í tvo mánuði.

Í kæru greinir kærandi frá því að hann hafi skilað inn skýringum innan tilskilins tíma og hann hafi ekki verið upplýstur um að honum bæri að tilkynna um ferð sína. Í nóvember og desember 2024 hafi kærandi leitað læknisaðstoðar á Sjúkrahúsinu í Keflavík en ekki fengið aðstoð. Heilsu hans hafi þá hrakað mikið. Vegna streitu hafi hann þróað með sér taugaveiklun (hækkaðan blóðþrýsting, kvíðaköst, vandamál í meltingarvegi og þyngdartap). Vegna óbærilegs heilsuvanda hafi kærandi þurft að yfirgefa landið til að fá meðferð.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 4. nóvember 2024. Með erindi, dags. 18. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Upphaf málsins megi rekja til þess að þann 16. mars 2025 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar á Suðurnesjum. Umræddur upplýsingafundur hafi átt að eiga sér stað þann 17. mars 2025, klukkan 10:15. Kærandi hafi hins vegar ekki mætt á umræddan fund.

Með erindi, dags. 20. mars 2025, hafi verið óskað eftir skýringum frá kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á upplýsingafundinn. Þann 21. mars 2025 hafi skýringar borist frá kæranda þar sem kærandi hafi kveðist ekki hafa getað mætt á umræddan upplýsingafund sökum veikinda. Hann hafi gengist undir læknismeðferð á tímabilinu 8.-19. mars 2025. Þá hafi kærandi kveðist vera búinn að finna sér vinnu frá og með 1. apríl 2025.

Með erindi, dags. 2. apríl 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að réttur hans til greiðslu atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. apríl 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 25. maí 2025. Skýringar kæranda í kæru beri með sér að hann hafi ekki verið meðvitaður um að hann þyrfti að láta Vinnumálastofnun vita af breytingum á högum sínum. Þá hafi jafnframt komið fram að hann hafi leitað sér læknisaðstoðar á Íslandi en sú aðstoð hafi ekki borið árangur. Hafi hann því neyðst til að fara af landi brott og leita sér læknisaðstoðar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virki atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi m.a. að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í c. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé mælt fyrir um að umsækjandi um greiðslur atvinnuleysistrygginga þurfi að vera búsettur og staddur hér á landi til að teljast tryggður samkvæmt lögunum.

Í 3. mgr. 9. gr. sé mælt fyrir um upplýsingaskyldu umsækjanda til Vinnumálastofnunar. Þar segi:

„Sá sem telst tryggður á grundvelli laga þessara skal upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.“

Í athugasemdum með frumvarpi því er hafi orðið að lögum nr. 37/2009 segi meðal annars að „láti atvinnuleitandi hjá líða að veita Vinnumálastofnun þessar upplýsingar sem og í þeim tilvikum þegar rangar upplýsingar eru gefnar kemur til álita að beita viðurlögum skv. 59. gr. laganna.“

Í 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé enn frekar mælt fyrir um þessa upplýsingaskyldu atvinnuleitanda. Þar segi að atvinnuleitanda beri án ástæðulauss dráttar að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunni að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti.

Í 1. mgr. 59. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög við brotum á upplýsingaskyldu hins tryggða. Þar segi orðrétt:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Fyrir liggi að kærandi hafi sótt sér læknisaðstoðar erlendis á tímabilinu 8.-19. mars 2025. Kærandi hafi ekki tilkynnt Vinnumálastofnun fyrir fram um þessa ferð sína erlendis. Kærandi hafi því verið beittur viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 59. gr. laganna. Í kæru sinni til úrskurðarnefndarinnar hafi kærandi greint frá því að honum hafi ekki verið kunnugt um að honum bæri að tilkynna stofnuninni um ferðir sínar erlendis eða um breytingar á högum sínum. Vinnumálastofnun vísi til þess að þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi honum verið sendur tölvupóstur þar sem tilgreint hafi verið að honum bæri að upplýsa um allar breytingar á persónulegum högum á „Mínum síðum“, s.s. veikindi. Þá hafi jafnframt verið tilgreint að færi hann til útlanda þyrfti hann að tilkynna um ferð fyrir fram.

Óumdeilt sé í máli þessu að kærandi hafi látið hjá líða að tilkynna um breytingar á högum sínum á tímabilinu 8.-19. mars 2025. Ljóst sé að þeir sem dvelji erlendis uppfylli ekki skilyrði laganna, sbr. einkum c. lið 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki uppfyllt upplýsinga- og trúnaðarskyldu sína gagnvart stofnuninni, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Sú skylda atvinnuleitanda, sem þiggi atvinnuleysisbætur, að tilkynna fyrir fram um utanlandsferðir sínar og breytingar á högum sem snerti vinnufærni sé fortakslaus, enda sé um að ræða upplýsingar um atvik sem hafi bein áhrif á rétt atvinnuleitanda til greiðslu atvinnuleysisbóta. Að mati Vinnumálastofnunar hafi kæranda mátt vera ljóst að honum bæri að tilkynna stofnuninni um ferðir sínar erlendis og einnig um breytingar á högum sínum. Með því að staðfesta atvinnuleit sína staðfesti atvinnuleitandi að hann sé reiðubúinn að ráða sig til vinnu og taka þeim störfum sem bjóðist og hafi vilja og getu til að taka þátt í vinnumarkaðsaðgerðum sem stofnunin skipuleggi. Eðli máls samkvæmt samrýmist það ekki staðfestingu á virkri atvinnuleit að dvelja erlendis og vera óvinnufær sökum veikinda án þess að tilkynna það til stofnunarinnar.

Í ljósi framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta tveggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysisbóta á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 59. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því að láta hjá líða að veita upplýsingar eða láta hjá líða að tilkynna um breytingar á högum. Ákvæði 1. mgr. 59. gr. er svohljóðandi:

„Sá sem lætur hjá líða að veita nauðsynlegar upplýsingar skv. 14. gr. eða um annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. og 59. gr. a. Hið sama á við þegar hinn tryggði hefur látið hjá líða að tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á högum hans á því tímabili sem hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögum þessum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögum þessum, sbr. 3. mgr. 9. gr. og 2. mgr. 14. gr. Skal honum jafnframt verða gert að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur skv. 39. gr.“

Ákvæðið ber meðal annars að túlka með hliðsjón af ákvæði c. liðar 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 þar sem fram kemur að launamaður sé tryggður samkvæmt lögunum sé hann búsettur, með skráð lögheimili og staddur hér á landi.

Samkvæmt 3. mgr. 9. gr. laga nr. 54/2006 skal sá sem telst tryggður á grundvelli laganna upplýsa Vinnumálastofnun um allar breytingar sem kunna að verða á högum hans á þeim tíma er hann fær greiddar atvinnuleysisbætur eða sætir biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum eða annað það sem kann að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum, svo sem um námsþátttöku, tekjur sem hann fær fyrir tilfallandi vinnu og hversu lengi vinnan stendur yfir.

Í 2. mgr. 14. gr. laganna kemur einnig fram að hinn tryggði skuli tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti samkvæmt 1. mgr., þar á meðal um tilfallandi veikindi, án ástæðulausrar tafar. Þá segir meðal annars í 5. mgr. 14. gr. laganna að hinn tryggði skuli tilkynna um upphaf og lok veikinda til Vinnumálastofnunar án ástæðulausrar tafar. Jafnframt skuli hann skila inn læknisvottorði innan viku frá lokum veikindanna óski Vinnumálastofnun eftir því.

Í máli þessu liggur fyrir að kærandi mætti ekki á löglega boðaðan upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun þann 17. mars 2025. Vinnumálastofnun óskaði eftir skýringum kæranda á fjarveru hans þann 20. mars 2025. Í skýringum kæranda kom fram að hann hafi ekki getað mætt á upplýsingafundinn vegna heilsufarsástæðna og að hann hafi verið í meðferð erlendis vegna þess frá 8. til 17. mars 2025. Þá kom fram að kærandi hefði fengið starf frá 1. apríl 2025.

Í ljósi upplýsingaskyldu 3. mgr. 9. gr., 2. og 5. mgr. 14. gr. laga nr. 54/2006 verður fallist á það með Vinnumálastofnun að kærandi hafi brotið gegn skyldum sínum er hann tilkynnti stofnuninni ekki strax um upphaf veikinda sinna og ferð erlendis vegna þeirra, en í skýringum kæranda hefur komið fram að hann hafi verið veikur frá 8. mars 2025. Í 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 er skýrt kveðið á um beitingu viðurlaga við slíku broti.

Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006 staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 2. apríl 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 59. gr. laga nr. 54/2006, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir