03 september 2025

/

Mál nr. 372/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 372/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 12. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2025, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 16. júlí 2023 og var umsóknin samþykkt 28. ágúst 2023. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2025, var kæranda tilkynnt að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar sökum þess að hún hefði hafnað starfi.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. júní 2025. Með bréfi, dags. 18. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 11. júlí 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. júlí 2025. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að réttur hennar til atvinnuleysisbóta hafi verið felldur niður vegna meintrar höfnunar á atvinnutilboði hjá fyrirtækinu B. Kærandi vilji taka sérstaklega fram að í skilaboðum atvinnurekanda hafi komið fram að hann væri „meira að leita eftir kvenfólki“ sem gefi til kynna ósk, en ekki skilyrði.

Kærandi hafi svarað með nákvæmlega sama hætti og sagt að hún og maki hennar væru fyrst og fremst að leita að starfi saman, en aldrei gert það að skilyrði. Í samskiptum kæranda og atvinnurekanda hafi aldrei verið boðað til atvinnuviðtals, dagsetning eða tímasetning viðtals hafi aldrei verið nefnd og atvinnutilboð aldrei verið staðfest. Um vinalegt samtal hafi verið að ræða en ekki formlegt ráðningarferli.

Kærandi hafi aldrei hafnað starfinu, heldur sagst vera opin fyrir samtali og tekið fram að atvinnurekandi mætti hafa samband aftur. Túlkun á framangreindu sem höfnun á starfi sé því ósanngjarnt með tilliti til aðstæðna og framkomu kæranda og feli í sér verulegan misskilning.

Eftir að kærandi hafi lagt fram kæru til úrskurðarnefndarinnar hafi hún fengið tölvupóst frá fyrirtækinu um að þau væru til í að endurskoða málið og jafnvel bjóða kæranda og maka hennar vinnu á sömu vaktina. Það sýni að kærandi hafi aldrei hafnað starfinu og að misskilningur hafi átt sér stað.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 16. júlí 2023. Umsókn kæranda hafi verið samþykkt þann 28. ágúst 2023.

Í maí 2025 hafi ferilskrá kæranda verið miðlað til B en atvinnurekandi hafi auglýst laust starf hjá vinnumiðlun Vinnumálastofnunar. Um hafi verið að ræða starf við almenna umhirðu og umönnun á hunda- og kattahóteli. Engar sérstakar hæfniskröfur hafi verið gerðar til umsækjenda. Þann 20. maí 2025 hafi Vinnumálastofnun borist tilkynning um að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Í athugasemdum atvinnurekanda hafi komið fram að fyrirtækinu hefði litist vel á umsækjanda en hún hafi ekki viljað vinna hjá fyrirtækinu þar sem hún hafi helst viljað starfa með manni sínum. Atvinnurekandi hafi ekki getað boðið manni hennar vinnu líka.

Með erindi, dags. 10. júní 2025, hafi Vinnumálastofnun óskað eftir skýringum á ástæðum þess að kærandi hefði hafnað starfi hjá fyrirtækinu. Stofnuninni hafi borist skýringar frá kæranda samdægurs. Í skýringum kæranda hafi komið fram að hún hefði ekki hafnað atvinnutilboði. Kærandi hafi sagt að hún hefði útskýrt fyrir atvinnurekanda að hún og maki hennar væru að leita sér að starfi sem þau gætu sinnt saman. Aðspurð hvort hún myndi íhuga að taka vinnu án maka síns hafi kærandi svarað „kurteislega og útskýrði að [þau] væru aðallega að leita að starfi saman.“ Í skýringum kæranda hafi komið fram að hún hefði aldrei beinlínis hafnað starfi og að hennar mati hefði atvinnurekandi endað samtalið.

Þann 12. júní 2025 hafi Vinnumálastofnun birt kæranda ákvörðun um niðurfellingu á rétti hennar til greiðslu atvinnuleysisbóta í tvo mánuði sökum þess að hún hefði hafnað starfi hjá B. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Vinnumálastofnun veki athygli á því að eftir að ákvörðun stofnunarinnar hafi verið kærð til úrskurðarnefndarinnar hafi B óskað eftir ráðningarstyrk til að ráða kæranda til starfa. Kærandi hafi verið afskráð frá og með 14. júní 2025 þegar hún hafi hafið störf hjá fyrirtækinu í vinnumarkaðsúrræði. Á sama tíma hafi annar atvinnuleitandi sem hafi verið skráður með sama heimilisfang og kærandi einnig [hafið störf] hjá fyrirtækinu í vinnumarkaðsúrræði.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð í þrengingum sínum. Með lögunum sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í tímabundnu atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að hinir tryggðu séu í virkri atvinnuleit þann tíma. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að hann sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara, óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Kæranda hafi verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Ákvæði 1. mgr. 57. gr. sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Í athugasemdum með 57. gr. í frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tekið fram að ekki skipti máli hvort það starf sem bjóðist atvinnuleitanda sé fullt starf, hlutastarf eða vaktavinna, þar sem mikilvægt sé að hinn tryggði verði aftur virkur á vinnumarkaði. Þá sé áréttað að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem bjóðist. Ástæðan sé einkum sú að atvinnuviðtal sé venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þyki mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna atvinnuviðtali hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúin að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi hafi veitt fyrir ástæðum þess að hún hefði hafnað starfstilboði lúti einkum að því að hún telji sig ekki hafa hafnað atvinnutilboði. Kærandi hafi rætt við atvinnurekanda og útskýrt að hún og maki hennar væru fyrst og fremst að leita sér að starfi þar sem þau gætu bæði unnið. Þegar kærandi hafi verið spurð hvort hún myndi íhuga að vinna fyrir atvinnurekanda án þess að maður hennar yrði ráðinn til starfa hafi hún ítrekað fyrri yfirlýsingar um að hún hafi fyrst og fremst viljað vinna með maka sínum.

Það hafi verið mat Vinnumálastofnunar að framangreindar skýringar kæranda gætu ekki talist gildar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Eins og fyrr segi hvíli rík skylda á atvinnuleitendum að taka því starfi sem þeim bjóðist, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi. Þá felist meðal annars í virkri atvinnuleit samkvæmt 1. mgr. 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að vera reiðbúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf sé að ræða. Ekki verði fallist á að atvinnuleitandi geti takmarkað atvinnuleit sína við þá staði sem einnig séu reiðubúnir að ráða maka viðkomandi til starfa. Það sé mat Vinnumálastofnunar að framkoma kæranda í atvinnuviðtali hafi falið í sér höfnun á starfi í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, enda hafi viðbrögð kæranda ekki verið til þess fallin að hún yrði ráðin til starfa hjá fyrirtækinu. Kæranda hafi því borið að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi hafnað starfstilboði hjá B og ekki haft þar að baki gildar ástæður. Kæranda hafi því borið að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, sbr. 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 19. maí 2025 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 20. maí 2025 að kærandi hefði hafnað starfinu. Kærandi hefur vísað til þess að hún hafi aldrei hafnað starfinu. Hún hafi bent á að hún og maki hennar væru fyrst og fremst að leita að starfi saman en ekki gert það að skilyrði. Kærandi hafi sagst vera opin fyrir samtali og tekið fram að atvinnurekandi mætti hafa samband aftur ef eitthvað myndi breytast eða ef möguleiki væri á starfi fyrir þau bæði.

Úrskurðarnefndin telur að framkomin gögn bendi til þess að kærandi hafi í raun hafnað starfi hjá fyrirtækinu B. Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit en samkvæmt c. lið 1. mgr. 14. gr. fellur þar undir að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda.

Með vísan til þess er það mat úrskurðarnefndarinnar að þær skýringar sem kærandi hefur gefið séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 12. júní 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir