03 september 2025

/

Mál nr. 376/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 376/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 15. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2025, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 12. desember 2024 og var umsóknin samþykkt 27. janúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2025, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju af hálfu Vinnumálastofnunar í kjölfar nýrra gagna. Með ákvörðun stofnunarinnar, dags. 11. júní 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda. Mál kæranda var tekið fyrir að nýju í kjölfar frekari skýringa og með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 18. júní 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun hefði verið staðfest.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 15. júní 2025. Með bréfi, dags. 19. júní 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 1. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 11. ágúst 2025. Athugasemdir bárust frá kæranda 11. ágúst 2025 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 14. ágúst 2025. Frekari athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að um sé ræða fyrstu viðurlög hans. Netfangið sem hafi verið skráð hjá Vinnumálastofnun sé gamalt sem kærandi hafi ekki aðgang að sökum þess að hann hafi gleymt lykilorðinu. Hann sé því nú með nýtt netfang. Það hafi komið honum á óvart að hafa hlotið viðurlög fyrir að hafa ekki mætt á fund þar sem hann hafi ekki fengið neinar tilkynningar um fundinn, hvorki í gegnum tölvupóst né smáskilaboð.

Af framangreindum ástæðum hafi kærandi ekki vitað af fundinum. Fjarvera hans hafi því ekki verið af ásetningi heldur eingöngu stafað af skorti á upplýsingum sem hafi ekki borist í gegnum virka samskiptaleið. Hann óski því eftir að málið verði endurskoðað.

Í athugasemdum kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar bendir kærandi á að þegar hann hafi fyrst skráð sig inn hjá Vinnumálastofnun hafi hann notað nýtt netfang, það er X. Hann noti ekki lengur gamla netfangið. Fundarboðið hafi hins vegar verið sent á gamla netfangið sem kærandi hafi ekki haft aðgang að.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi þó verið send á hið rétta netfang, það er X, sem sýni að réttar upplýsingar hafi verið í kerfi stofnunarinnar. Kærandi vilji því leggja áherslu á að mistökin hafi ekki verið hans, heldur hafi upplýsingar ekki verið rétt notaðar af hálfu Vinnumálastofnunar.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 12. desember 2024. Með erindi, dags. 27. janúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 14. apríl 2025 hafi kærandi verið boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar að Grensásvegi 9, Reykjavík, þann 16. apríl 2025, klukkan 13:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Boðunin hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi athygli verið vakin á nýjum samskiptum með tölvupósti á skráð netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer hans, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 14. apríl 2025, klukkan 10:15. Kærandi hafi ekki mætt á fundinn.

Þann 5. maí 2025 hafi Vinnumálastofnun sent kæranda erindi þar sem óskað hafi verið eftir skriflegum skýringum á fjarveru á boðaðan kynningarfund. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Skýringar hafi ekki borist frá kæranda.

Með erindi, dags. 14. maí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hans hefðu verið stöðvaðar í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki mætt á boðaðan kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 15. maí 2025 og sagst ekki hafa fengið boð um að mæta á umræddan kynningarfund, hvorki með tölvupósti né smáskilaboðum. Þann 19. maí 2025 hafi skriflegar skýringar borist frá kæranda þar sem fram hafi komið að [hann] hefði ekki mætt sökum þess að hann hefði ekki fengið boð. Kærandi hafi sent skýringar úr netfanginu X sem hafi á þeim tíma ekki verið skráð í kerfum Vinnumálastofnunar. Erindi kæranda hafi verið svarað og honum bent á að netfang hans væri óskráð í kerfum Vinnumálastofnunar.

Þann 10. júní 2025 hafi kærandi uppfært netfang sitt sjálfur á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar, vmst.is. Þegar Vinnumálastofnun hafi sent boð á kæranda í apríl 2025 hafi netfang hans verið skráð X en hafi nú verið uppfært í X.

Með erindi, dags. 11. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið til umfjöllunar að nýju. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.

Þann 13., 16., og 18. júní 2025 hafi borist frekari skýringar á ástæðum þess að kærandi hefði ekki mætt á boðaðan kynningarfund þann 16. apríl 2025. Kærandi hafi borið við að hann hefði ekki mætt sökum þess að honum hefði ekki borist nein boðun. Kærandi hafi bent á að hann notist ekki lengur við netfangið sem hann hafi skráð í upphafi umsóknar. Hann hafi uppfært upplýsingar um netfang sitt. Þá hafi kærandi sent sjáskot af „Mínum síðum“ á island.is þar sem ákvörðun Vinnumálastofnunar sé birt.

Með erindi, dags. 18. júní 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að mál hans hefði verið tekið til umfjöllunar að nýju. Það hafi verið mat stofnunarinnar að staðfesta fyrri ákvörðun þrátt fyrir nýjar skýringar kæranda.

Þann 1. júlí 2025 hafi Vinnumálastofnun borist beiðni um skriflegan rökstuðning samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Beiðni kæranda hafi verið svarað með erindi dags. 24. júlí 2025.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði.

Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til fundar hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skuli þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.

Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hafi farið fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar 16. apríl 2025. Þá liggi jafnframt fyrir að engin forföll hafi verið boðuð af hálfu kæranda Áður hafi kærandi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“ þar sem tímasetning á kynningarfundi hafi verið tilgreind. Ásamt því hafi kæranda verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Kærandi hafi veitt skýringar á fjarveru sinni á umræddan kynningarfund en þær lúti að því að honum hafi ekki borist boð frá Vinnumálastofnun. Skráð netfang, X, hjá stofnuninni hafi á þeim tíma ekki verið í notkun af hálfu kæranda. Þá hafi honum ekki borist nein tilkynning á „Mínum síðum“ á island.is. Í kæru beri kærandi við efnislega sömu skýringum og hann hafi áður veitt Vinnumálastofnun.

Í ljósi skýringa kæranda um að netfang hans hafi tekið breytingum eftir að hann hafi skráð rétt netfang hjá stofnuninni bendi Vinnumálastofnun á að það sé á ábyrgð umsækjanda að uppfæra upplýsingar um netfang. Það hafi kærandi ekki gert fyrr en 10. júní 2025. Vinnumálastofnun visti og geymi afrit af umsókn umsækjanda á þeim tímapunkti sem umsókn hafi verið staðfest og send Vinnumálastofnun. Samkvæmt því afriti hafi netfangið X verið skráð netfang á umsókn kæranda. Samkvæmt breytingasögu umsóknar kæranda hafi netfangi hans verið breytt þann 10. júní 2025, klukkan 16:12 á „Mínum síðum“ kæranda. Í ljósi skýringa kæranda um að engin boðun sé sjáanleg á „Mínum síðum“ á island.is sé rétt að halda því til haga að boðanir Vinnumálastofnunar séu birtar á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar en ekki á „Mínum síðum“ á island.is. Þar að auki bendi Vinnumálastofnun á að boðun á umrætt námskeið hafi einnig verið sent í farsíma kæranda. Kærandi hafi kosið að kynna sér ekki efni tilkynningarinnar.

Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Boðun á fund hafi verið send kæranda með meira en 24 klukkustunda fyrirvara og tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða. Þá hafi einnig verið tekið fram með skýrum hætti í boðun að fjarvera gæti leitt til tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar á greiðslum atvinnuleysisbóta. Því verði ekki fallist á þær skýringar sem kærandi hafi tilgreint fyrir fjarveru sinni á umræddum fundi.

Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Þar sem kærandi hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hafi verið haldinn af hálfu Vinnumálastofnunar beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. í tvo mánuði.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 14. apríl 2025 boðaður á kynningarfund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 16. apríl 2025. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á netfang Vinnumálastofnunar. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar. Kærandi var jafnframt upplýstur um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga.

Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti á boðaðan fund né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi ekki fengið tilkynningu um fundinn sökum þess að gamalt netfang hafi verið skráð hjá Vinnumálastofnun sem hann hafi ekki haft aðgang að.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 14. maí 2025, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir