03 september 2025
/
Mál nr. 408/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 408/2025
Miðvikudaginn 3. september 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með rafrænni kæru, móttekinni 28. júní 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. júní 2025 þar sem umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu var synjað.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi fékk greiddar tekjutengdar bætur frá Tryggingastofnun ríkisins á árunum 2023 og 2024. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 28. maí 2024, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör greiðslna ársins 2023 hafi leitt í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 525.308 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi sótti um niðurfellingu framangreindrar kröfu með umsókn 5. desember 2024. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 13. janúar 2025, var samþykkt að fella niður 33% af eftirstöðvum kröfu, eða 247.995 kr., vegna eingreiðslu úr lífeyrissjóði. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. maí 2025, var kæranda tilkynnt um að endurreikningur og uppgjör greiðslna ársins 2024 hafi leitt í ljós ofgreiðslu að fjárhæð 143.320 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu. Kærandi sótti um niðurfellingu framangreindra krafna með umsókn 24. apríl 2025. Með ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. júní 2025, var umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiddra bóta synjað á þeim forsendum að krafan væri réttmæt og að skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður væru ekki fyrir hendi.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 28. júní 2025. Með bréfi, dags. 10. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Með bréfi, dags. 6. ágúst 2025, barst greinargerð stofnunarinnar og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 7. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru kemur fram að kærð sé synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni um niðurfellingu.
Ofgreiðslan hafi myndast þegar kærandi hafi verið á örorku, hún hafi svo farið á ellilífeyri og sé með endalausar ofgreiðslukröfur á þennan miklu lægri framfærslueyri. Kærandi þurfi að greiða hátt í 17.000 kr. á mánuði af kröfum stofnunarinnar og hún eigi fullt í fangi með að eiga í sig og á. Þessi meðferð á beiðni hennar sé kærð með vísan til þess að kröfurnar hafi verið myndaðar þegar hún hafi verið á örorku og eigi enga tengingu við miklu lægri ellilífeyrisgreiðslur. Farið sé fram á að gjaldstofn endurgreiðslukröfu verði felld niður. Ekki sé heimilt að innheimta hann af miklu lægri ellilífeyri sem hafi þegar verulega skert lífskjör ellilífeyrisþegans, þ.e. lífskjör kæranda.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kæra varði umsókn um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, sem hafi verið synjað af samráðsnefnd Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 12. júní 2025, á þeim grundvelli að krafan væri réttmæt og að skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður hafi ekki verið talin vera fyrir hendi.
Um útreikning ellilífeyris sé fjallað í IV. kafla laga nr. 100/2007 um almannatryggingar. Í 33. gr. laganna sé að finna ákvæði um útreikning og endurreikning en ákvæði um ofgreiðslu og vangreiðslu sé að finna í 34. gr. laganna.
Í 47. gr. laganna sé kveðið á um upplýsingaskyldu umsækjenda og greiðsluþega. Þar segi að umsækjanda eða greiðsluþega sé rétt og skylt að taka þátt í meðferð málsins, m.a. með því að koma til viðtals og veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar séu svo unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og annarra greiðslna samkvæmt lögunum og endurskoðun þeirra. Þá sé skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur.
Í reglugerð nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags sé einnig að finna ákvæði sem máli skipti. Í 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar segi að umsækjanda og bótaþega sé skylt að veita Tryggingastofnun allar nauðsynlegar upplýsingar til þess að hægt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Í 2. mgr. 3. gr. segi að ef ekki reynist unnt að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra vegna skorts á nauðsynlegum upplýsingum sem rekja megi til umsækjanda eða bótaþega sé Tryggingastofnun heimilt að fresta ákvörðun og greiðslu bóta þar til úr því sé bætt. Í 3. mgr. 3. gr. segi að ef umsækjandi eða bótaþegi gefi Tryggingastofnun rangar upplýsingar geti stofnunin endurkrafið bætur, dregið ofgreiðslu frá öðrum bótum, fellt vexti niður af vangreiðslum eða innheimt dráttarvexti af ofgreiðslum í samræmi við 55. gr. laga um almannatryggingar. Í 4. gr. reglugerðarinnar segi að Tryggingastofnun skuli áætla væntanlegar tekjur umsækjanda og bótaþega á bótagreiðsluári. Tekjuáætlun skuli vera byggð á nýjustu upplýsingum um tekjur sem fengnar séu frá þeim aðilum sem greint sé frá í 1. mgr. 3. gr. Í 6. gr. reglugerðarinnar segi að þegar endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluársins liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli endurreikna bótafjárhæðir ársins á grundvelli þeirra upplýsinga. Þá segi í 9. gr. reglugerðarinnar að komi í ljós við endurreikning að tekjutengdar bætur hafi verið ofgreiddar skuli það sem ofgreitt hafi verið dregið frá tekjutengdum bótum sem bótaþegi síðar öðlist rétt til. Þetta eigi eingöngu við ef tekjur þær sem lagðar séu til grundvallar bótaútreikningi hafi reynst hærri en tekjuáætlun samkvæmt 4. gr. hafi gert ráð fyrir og ofgreiðsla stafi af því að bótaþegi hafi ekki tilkynnt stofnuninni um tekjuaukninguna eða aðrar breyttar aðstæður. Í lok 9. gr. sé tekið fram að Tryggingastofnun eigi einnig endurkröfurétt á hendur bótaþega eða dánarbúi hans samkvæmt almennum reglum. Með öðrum orðum, þá geti Tryggingastofnun ávallt innheimt ofgreiddar bætur samkvæmt almennum reglum kröfuréttar, sama hvernig þær séu til komnar, en skuldajöfnun bóta sé einungis heimil ef ofgreiðslan eigi rætur í því að viðskiptavinur hafi ekki tilkynnt Tryggingastofnun um tekjuaukningu í tæka tíð.
Í 11. gr. reglugerðarinnar sé svohljóðandi ákvæði um undanþágu frá endurkröfu:
„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“
Kærandi sé ellilífeyrisþegi, hún hafi fengið greiddan örorkulífeyri til 31. desember 2023 og ellilífeyri frá 1. janúar 2024.
Þann 15. maí 2025 hafi kærandi fengið bréf frá Tryggingastofnun með endurreikningi og uppgjöri tekjutengdra greiðslna ársins 2024. Niðurstaðan hafi verið skuld við stofnunina að upphæð 143.320 kr., sem hafi myndast einkum vegna þess að fjármagnstekjur (vextir og verðbætur) hafi reynst töluvert hærri á skattframtali en tekjuáætlun hafi gert ráð fyrir.
Kærandi hafi sótt um niðurfellingu ofgreiðslukröfu sem samráðsnefnd Tryggingastofnunar hafi tekið fyrir. Niðurstaðan hafi verið sú að synja umsókninni á þeim grundvelli að krafan væri réttmæt og að skilyrði 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um alveg sérstakar aðstæður hafi ekki verið talin vera fyrir hendi. Kærandi hafi 3. júlí 2025 sent beiðni um rökstuðning fyrir ákvörðuninni og hafi kært til úrskurðarnefndar velferðarmála tæpri viku síðar og verklagið þegar svo beri undir sé að rökstuðningur komi þá fram í greinargerð stofnunarinnar til úrskurðarnefndarinnar.
Kærandi hafi einnig sótt um niðurfellingu ofgreiðslukröfu fyrir fyrra tímabil sem samráðsnefnd Tryggingstofnunar hafi samþykkt að hluta, n.t.t. hafi verið fallist á að fella niður 33% eftirstöðva krafna, eða 247.995 kr., vegna eingreiðslu úr lífeyrissjóði.
Í synjunarbréfi, dags. 12. júní 2025, komi fram að eftirstöðvar krafna í innheimtu séu samtals 586.031 kr. og að endurgreiðslu verði dreift þannig að 16.278 kr. verði dregnar af mánaðarlegum greiðslum til kæranda þar til kröfurnar verði að fullu greiddar. Í bréfinu sé einnig vakin athygli á því að heimilt sé að semja um aðra tilhögun endurgreiðslu.
Endurreikningur og uppgjör tekjutengdra greiðslna byggi á skýrum ákvæðum 33. og 34. gr. laga um almannatryggingar og ákvæðum reglugerðar nr. 598/2009. Samkvæmt 33. gr. skuli greiðslur endurreiknaðar þegar endanlegar upplýsingar um tekjur liggi fyrir frá skattyfirvöldum. Við slíkan endurreikning beri að miða við raunverulegar tekjur samkvæmt skattframtali, sbr. 6. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Verklagið sé þannig lögákveðið og því hafi verið fylgt í hvívetna í máli þessu. Samkvæmt 47. gr. laga um almannatryggingar og 3. gr. reglugerðar nr. 598/2009 hvíli skýr skylda á greiðsluþegum til að tilkynna Tryggingastofnun um tekjur og aðrar aðstæður sem kunni að hafa áhrif á greiðslur.
Tryggingastofnun líti til orðalags 11. gr. um „alveg sérstakar aðstæður“, sem bendi til að verulega óvenjulegar aðstæður þurfi að vera um að ræða til að niðurfelling ofgreiðslukröfu sé samþykkt. Að auki sé niðurfelling undantekning frá meginreglu um að kröfur skuli greiða og slíkar undantekningar beri að túlka þröngt. Tryggingastofnun verði í hvívetna að fara að jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar, sem lögfest sé í 11. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, um að stjórnvöld skuli við úrlausn mála gæta samræmis og jafnræðis í lagalegu tilliti. Ef umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu hefði verið samþykkt bæri stofnuninni að afgreiða sambærilegar umsóknir á sama hátt, sem hefði lækkað þröskuldinn í túlkun á 11. gr. reglugerðarinnar.
Í ljósi alls framangreinds sé niðurstaða Tryggingastofnunar sú að afgreiðslan á umsókn kæranda sé í senn lögmæt og málefnaleg. Fyrir nefndinni fari stofnunin þannig fram á staðfestingu á ákvörðun sinni frá 12. júní 2025 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu.
IV. Niðurstaða
Mál þetta varðar synjun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 12. júní 2025, á beiðni kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta áranna 2023 og 2024.
Samkvæmt 1. mgr. 47. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, með síðari breytingum, er greiðsluþega skylt að veita Tryggingastofnun þær upplýsingar sem nauðsynlegar eru svo að unnt sé að taka ákvörðun um bótarétt, fjárhæð og greiðslu bóta og endurskoðun þeirra. Þá er honum einnig skylt að tilkynna um breytingar á tekjum eða öðrum aðstæðum sem geti haft áhrif á bætur eða greiðslur. Tryggingastofnun er heimilt, að fengnu samþykki viðkomandi, að afla nauðsynlegra upplýsinga um tekjur umsækjanda og greiðsluþega hjá skattyfirvöldum og fleirum, sbr. 48. gr. laga um almannatryggingar.
Í 22., 30. og 33. gr. laga um almannatryggingar er kveðið á um tekjutengingu lífeyristrygginga og hvernig Tryggingastofnun ríkisins skuli standa að útreikningi bóta. Í 3. mgr. 33. gr. laganna segir að eftir að endanlegar upplýsingar um tekjur bótagreiðsluárs liggi fyrir við álagningu skattyfirvalda á opinberum gjöldum skuli Tryggingastofnun endurreikna bótafjárhæðir á grundvelli tekna samkvæmt greininni. Kærandi fékk greiddan örorkulífeyri á árinu 2023. Tryggingastofnun ríkisins tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2023 með bréfi, dags. 28. maí 2024. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hennar hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 525.308 kr. að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi rekja til þess að lífeyrissjóðstekjur og fjármagnstekjur voru ekki í samræmi við tekjuáætlun ársins. Kærandi fékk greiddan ellilífeyri á árinu 2024. Tryggingstofnun ríkisins tilkynnti kæranda um endurreikning og uppgjör á tekjutengdum greiðslum ársins 2024 með bréfi, dags. 15. maí 2025. Niðurstaða endurreikningsins var sú að bætur til hennar hefðu verið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 143.320 kr., að teknu tilliti til endurgreiddrar staðgreiðslu skatta. Af gögnum málsins verður ráðið að endurgreiðslukröfuna megi fyrst og fremst rekja til þess að fjármagnstekjur voru ekki í samræmi við tekjuáætlun ársins
Tryggingastofnun ber lögum samkvæmt að endurreikna bótafjárhæðir bótagreiðsluárs eftir að álagning skattyfirvalda á opinberum gjöldum hefur farið fram, sbr. fyrrgreinda 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar. Þá er meginreglan sú að stofnuninni ber að innheimta ofgreiddar bætur, sbr. 34. gr. laganna. Í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009 um útreikning, endurreikning og uppgjör tekjutengdra bóta og vistunarframlags er hins vegar að finna heimild til undanþágu frá endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta. Ákvæðið hljóðar svo:
„Þrátt fyrir að endurreikningur samkvæmt III. kafla leiði í ljós að bætur hafi verið ofgreiddar er heimilt að falla frá endurkröfu að fullu eða að hluta ef alveg sérstakar aðstæður eru fyrir hendi. Skal þá einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort hann var í góðri trú um greiðslurétt sinn. Sama gildir um dánarbú eftir því sem við á.“
Framangreind 11. gr. reglugerðarinnar heimilar undanþágu frá endurgreiðslukröfu að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Aðstæður verða að vera sérstakar. Við mat á því hvort aðstæður séu sérstakar skal einkum litið til fjárhagslegra og félagslegra aðstæðna bótaþega og þess hvort bótaþegi hafi verið í góðri trú þegar hann tók við hinum ofgreiddu bótum. Tryggingastofnun ríkisins hefur hafnað því að heimild tilvitnaðs reglugerðarákvæðis eigi við í tilviki kæranda.
Í máli þessu lýtur ágreiningurinn að synjun Tryggingastofnunar ríkisins á beiðni kæranda um niðurfellingu á endurgreiðslukröfum sem höfðu myndast vegna ofgreiddra bóta áranna 2023 og 2024.
Úrskurðarnefnd velferðarmála lítur til þess við úrlausn þessa máls að tekjutengdar greiðslur frá Tryggingastofnun ríkisins sæta tekjuskerðingu og eru bótaþegar upplýstir um tekjutenginguna við upphaf lífeyristöku. Þá er bótaþegum gert að upplýsa um tekjur sínar á bótagreiðsluári í tekjuáætlun hvers árs. Eins og áður greinir gerir 1. mgr. 47. gr. laga um almannatryggingar ráð fyrir að það komi í hlut þess aðila, sem bætur þiggur frá Tryggingastofnun, að upplýsa réttilega um tekjur sem kunna að falla til á bótagreiðsluári. Þannig hvílir sú ábyrgð á bótaþega að tekjuáætlun sé rétt. Samkvæmt gögnum málsins má rekja framangreindar endurgreiðslukröfur til vanáætlaðra lífeyristekna og fjármagnstekna. Því er ekki fallist á að kærandi hafi verið í góðri trú í skilningi 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009.
Kemur þá til skoðunar hvort fjárhagslegar og félagslegar aðstæður kæranda gefi tilefni til niðurfellingar. Í beiðni kæranda um niðurfellingu ofgreiðslukröfu kemur fram að ástæða beiðninnar sé sú að tekjurnar dugi ekki til framfærslu. Þá greinir kærandi frá því að hún hafi verið í góðri trú þegar þessi ofgreiðslukrafa hafi stofnast og að tekjur hennar hafi lækkað mikið þegar hún hafi farið af örorku yfir á ellilífeyri. Samkvæmt staðgreiðsluskrá 2025 voru meðaltekjur kæranda 527.749 kr. á mánuði fyrstu sjö mánuði ársins. Þá verður ráðið af gögnum málsins að eignastaða kæranda hafi verið neikvæð á árinu 2024. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála leiðir það eitt og sér aftur á móti ekki sjálfkrafa til þess að kröfur verði felldar niður heldur þurfi að meta aðstæður heildstætt með hliðsjón af öllum þeim atriðum sem tilgreind eru í 11. gr. reglugerðar nr. 598/2009. Jafnframt lítur úrskurðarnefndin til þess að Tryggingastofnun felldi niður 33% kröfu vegna uppgjörs 2023 og hefur dreift eftirstöðvum kröfunnar á 36 mánuði í stað þess að kærandi þurfi að endurgreiða ofgreiðslukröfuna á 12 mánuðum, eins og meginregla 3. mgr. 33. gr. laga um almannatryggingar kveður á um, þannig að mánaðarleg greiðslubyrði af kröfunum nemur 16.278 kr. Með hliðsjón af þessu telur úrskurðarnefndin að geta til endurgreiðslu sé fyrir hendi. Einnig lítur nefndin til þess að samkvæmt meginreglu 1. mgr. 34. gr. laga um almannatryggingar skal Tryggingastofnun innheimta ofgreiddar bætur og ber að túlka undantekningu frá þeirri meginreglu þröngt samkvæmt almennum lögskýringarsjónarmiðum.
Með hliðsjón af framangreindu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 12. júní 2025 um að synja umsókn kæranda um niðurfellingu endurgreiðslukröfu vegna ofgreiddra bóta.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja umsókn A, um niðurfellingu ofgreiðslukröfu, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir