03 september 2025

/

Mál nr. 462/2025-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 462/2025

Miðvikudaginn 3. september 2025

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 29. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að synja um umsókn kæranda um örorkulífeyri og tengdar greiðslur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 11. júní 2025, var umsókn kæranda um örorkulífeyri synjað á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun ríkisins með bréfi, dags. 6. ágúst 2025, að greiða kæranda varanlegan örorkulífeyri frá 1. febrúar 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 29. júlí 2025. Með bréfi, dags. 30. júní 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 7. ágúst 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að ný ákvörðun hefði verið tekin í máli kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 7. ágúst 2025. Engin svör bárust frá kæranda.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru er greint frá því að þegar kærandi hafi verið barn hafi verið greiddar umönnunargreiðslur með henni. Ástæðan hafi verið sú að kærandi sé með þroskaskerðingu og ADHD, auk þess sé hún ósjálfbjarga, einhverf, með geðraskanir og mjög hvatvís. Kærandi hafi fæðst með slæma […] og hafi þurft að fara í aðgerð á bakinu. Í dag megi kærandi ekki halda á neinu þungu og hafi sjúkraþjálfari sent Tryggingastofnun ríkisins bréf þess efnis en samt hafi umsókninni verið synjað. Kærandi hafi þurft tal- og iðjuþjálfun, hún hafi alltaf verið veik og í ljós hafi komið MBL skortur. Kærandi sé í sérdeild í B sem sé talið sem endurhæfing en hún eigi bara eina önn eftir þar. Vegna baksins sé kærandi í sjúkraþjálfun og hún þurfi að fara til tannlæknis og borgi fullt gjald fyrir það. Í mesta lagi færi kærandi á verndaðan vinnustað. Heimilislæknir og sjúkraþjálfari kæranda segja að hún muni aldrei fara á almennan vinnumarkað. Það sé ekki hægt að segja að endurhæfing sé ekki fullreynd.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að í ljósi athugasemda aðstandenda kæranda hafi verið fallist á að úrskurða varanlega örorku frá þeirri dagsetningu sem endurhæfingartímabili hafi lokið.

Þar sem ný ákvörðun hafi verið tekin í máli kæranda telji Tryggingastofnun að ekki sé til staðar ágreiningur vegna fyrri ákvörðunar. Stofnunin fari því fram á að málinu verði vísað frá.

IV.  Niðurstaða

Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 11. júní 2025 þar sem umsókn kæranda um örorkulífeyri var synjað á þeim forsendum að endurhæfing væri ekki fullreynd. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 6. ágúst 2025, varanlegt örorkumat frá 1. febrúar 2025. Með bréfi, dags. 7. ágúst 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar en engin svör bárust frá henni.

Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda varanlegan örorkulífeyri. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Rakel Þorsteinsdóttir