10 september 2025

/

Úrskurður nr. 682/2025


Hinn 10. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 682/2025

í stjórnsýslumálum nr. KNU24100003 og KNU24100004

Kæra [...]

1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. september 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M) og [...], fd. [...] (hér eftir K), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 16. september 2024, um að synja þeim um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.

Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.

Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2 Málsatvik

Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela 25. mars 2024 og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd 26. mars 2024. Kváðust kærendur hafa unnið sem pylsusalar í Venesúela. K hafi verið búsett á Spáni frá 2016 til 2022. Hún hafi farið aftur til Venesúela því enga atvinnu hafi verið að fá á Spáni og henni verið neitað um dvalarleyfi þar. Fram kemur að M hafi áður sótt um vernd á Íslandi 22. apríl 2023 en dregið umsókn sína til baka og farið með leiguflugi til Venesúela 15. nóvember 2023. Í Venesúela hafi ekkert verið breytt og kærendur hafi því ákveðið að fara saman til Íslands. Kvað M jafnframt ekkert hafa breyst frá fyrri umsókn sinni að því undanskildu að kærendur hafi gengið í hjónaband í febrúar 2024. Samkvæmt lögregluskýrslu, dags. 22. apríl 2023, óskaði M á þeim tíma eftir alþjóðlegri vernd á Íslandi sökum spillingar í Venesúela. Hann væri heilsuhraustur og eigi kærustu og fjölskyldu í Venesúela.

Kærendur komu fyrst til viðtals hjá Útlendingastofnun 17. apríl 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum. Aðspurð um hvernig kærendur hafi kynnst kvað K þau hafa kynnst í afmælisveislu þegar þau voru yngri og verið vinir síðan þá. Alltaf þegar K hafi farið aftur til Venesúela frá Spáni hafi þau M unnið saman í stuttan tíma. Þegar M hafi komist að því að K hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi í Venesúela hafi hann snúið þangað aftur, kærendur hafi gengið í hjúskap og komið saman til Íslands. Aðspurð um heilsu sína kvaðst M nýlega hafa fundið fyrir útbrotum og fengið sýklalyf á Íslandi við þeim. Andleg heilsa hans væri ágæt en tilfinningar hans fari út um allt vegna þess sem hann hafi gengið í gegnum síðan hann yfirgaf heimaríki. Andlega og líkamlega heilsu sína kvað K góða en hún verði mjög kvíðin í tilteknum aðstæðum.

Kærendur komu til viðtals að nýju hjá Útlendingastofnun 21. ágúst 2024 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. Aðspurður um það hvers vegna M hafi ákveðið að koma aftur til Íslands, þótt hann hafi áður farið sjálfviljugur frá Íslandi og þegið enduraðlögunarstyrk kvað hann það hafa verið vegna aðstæðna K og hann hafi ætlað að sækja hana. Auk þess hafi verkefni sem hann hafi byrjað á til þess að safna pening ekki gengið upp. Hann hafi því ákveðið að koma aftur til Íslands áður en hann myndi klára allan peninginn sinn. K greindi frá því að hún hafi flust til Spánar árið 2016, þá 12 ára að aldri og verið búsett þar í sex ár. Föðurfjölskylda hennar væri búsett á Spáni en K væri ekki í sambandi við þau sökum ofbeldis sem hún hafi mátt þola af hendi föður síns og frænda. Þegar hún hafi flutt aftur til heimaríkis hafi hún flutt til móðurömmu sinnar í Puerto Piritu Anzoátegui fylki í Venesúela og verið búsett þar uns hún yfirgaf Venesúela í apríl 2024. Í Puerto Pirito hafi K stundað nám og verið á framfæri framangreindrar ömmu sinnar. Móðurfjölskylda hennar væri búsett í Venesúela. M kvaðst hafa verið búsettur hjá foreldrum sínum einnig í Puerto Pirito, í einbýlishúsi í þeirra eigu og starfað við veitingarekstur ásamt móður sinni sem hafi jafnframt séð honum fyrir húsnæði, mat og öðrum nauðsynjum. Eftir að M hafi snúið aftur til Venesúela frá Íslandi 15. nóvember 2023 hafi hann rekið pylsuvagn í um einn og hálfan mánuð, þar til vagninn hafi sprungið fyrir slysni. M hafi ekki átt næga fjármuni fyrir nýjum vagni og ákveðið að kaupa farmiða til Íslands með þeim fjármunum sem hann hafi þó átt. Kvað hann kærendur hafa dvalið á Spáni í 15 daga á leið þeirra til Íslands. Hann eigi bróður í Ekvador og Kólumbíu og tvær systur á Spáni.

K kvað líkamlega og andlega heilsu sína vera góða en hún þjáist af kvíða. M kvaðst kljást við ógreindan magavanda sem geri hann viðkvæman fyrir hveitivörum, hann fái útbrot, hafi fengið sýkingu í fingur og sé að missa hár. Andleg heilsa M væri almennt góð en hann upplifi streitu.

Aðspurð um hvort kærendur tilheyri sérstöku þjóðarbroti eða minnihlutahópi í heimaríki kváðu þau svo ekki vera. K greindi þó frá því að hún væri kristinnar trúar sem væri frábrugðið flestum í Venesúela og það fari eftir því hverjum hún væri með hvort hún upplifi einhverja mismunun eða fordóma á grundvelli trúar sinnar. Aðspurð um það hvort hún hafi upplifað atvik þar sem henni hafi verið mismunað á grundvelli trúar sinnar kvað hún svo ekki vera. M kvaðst hafa verið alinn upp í kaþólskri trú og tekið þátt í kirkjustarfi en hann væri ekki heittrúaður.

Kærendur kváðust ekki vera aðilar að stjórnmálaflokki í heimaríki. Aðspurð um hvort kærendur hafi verið virk í þágu tiltekins málstaðar í heimaríki svaraði M því játandi en hann hafi barist fyrir mannréttindum og tjáningarfrelsi í Venesúela. Útskýrði M nánar að hann hafi ekki tekið þátt í skipulögðu starfi því tengdu og hafi ekki tekið þátt í neinu vegna þess að hann væri hræddur um að vera fangelsaður. Vísaði hann til þess að yfirvöldum sé skipað að fangelsa fólk sem berjist á móti. Aðspurður kvaðst hann ekki óttast að vera settur í fangelsi í heimaríki þar sem hann hafi ekkert ólöglegt gert. M hafi sjálfur ekki tekið þátt í stjórnmálastarfi en hann viti að fólk sem taki þátt í stjórnmálastarfi sé stundum sett í fangelsi og þekki fólk sem hafi verið fangelsað í tvær til þrjár vikur fyrir þátttöku í stjórnmálastarfi. K kvaðst berjast fyrir frelsi einstaklinga í Venesúela, tjáningarfrelsi og menntun og að hún berjist gegn ástandinu í Venesúela. Hún hafi tekið þátt í mótmælagöngum í Venesúela sem hún hafi séð auglýsingu fyrir en hún viti ekki hver hafi skipulagt mótmælin. K hafi þó ekki upplifað aðkast sökum þátttöku sinnar eða fundið fyrir eftirmálum eftir að hafa mætt á mótmæli í heimaríki.

Aðspurður um ástæðu flótta M frá heimaríki greindi hann frá því að það mætti rekja til atburða sem hafi byrjað árið 2017. Á þeim tíma hafi faðir hans starfað fyrir olíufyrirtæki og kvað hann stjórnvöld nýta slík fyrirtæki til ólöglegrar starfsemi í eigin þágu. Faðir hans hafi séð um vinnsluvélar fyrir olíufyrirtækið og glæpahópurinn Colectivos á vegum hins opinbera hafi hótað föður hans. Colectivos hafi viljað að faðir M undirritaði skjal þess efnis að Colectivos tækju vinnsluvél úr fyrirtækinu. Þegar faðir M hafi neitað að verða við því hafi Colectivos byrjað að hóta fjölskyldunni, beðið fjölskylduna um greiðslur í reiðufé og sent fjölskyldunni myndir af húsnæði þeirra. M hafi orðið hræddur við að fara út og í skólann vegna þessara hótana og hann hafi varla farið út í þrjá mánuði. Í eitt sinn hafi Colectivos beðið fjölskylduna um tólf þúsund dollara í reiðufé. Kvaðst M hafa þurft að hætta í skólanum, fjölskyldan hafi ekki mátt segja frá og foreldrum hans stöðugt borist skilaboð. Fjölskyldunni hafi tekist að safna umbeðinni fjárhæð saman með því að selja rekstur matsölustaðarins og með því að selja eigur sínar. Með litlum greiðslum hafi fjölskyldan náð að greiða fjárhæðina í kringum árið 2021. Fyrstu greiðsluna hafi þau greitt með því að selja stúdíóíbúð sem systur M hafi búið í auk þess sem þær hafi þurft að hætta í námi. Fjölskyldan hafi þurft að selja rekstur matsölustaðarins og fundist tilgangslaust að reyna að byggja líf sitt upp á ný. Ákveðið hafi verið að systkinin yfirgæfu Venesúela smám saman. Tveimur mánuðum áður en M hafi farið til Íslands hafi skilaboð hafið að berast aftur, eftir um tveggja ára hlé. Aðspurður um það hvort einhverjar hótanir hafi beinst gegn M persónulega eða hvort hótanir hafi einungis beinst að foreldrum hans kvaðst M hafa fengið skilaboð 16. apríl 2023. Í skilaboðunum hafi sendandinn vísað til þess að hann viti hvar faðir M væri og hvað hann væri að gera. Um hafi verið að ræða síðustu skilaboðin og þau einu sem beinst hafi að M persónulega. Hann hafi orðið hræddur og ákveðið að flytja til guðföður síns áður en hann færi til Íslands. M viti ekki hvers vegna hann hafi fengið skilaboðin en kvað að þegar slík skilaboð berist viti maður að maður muni fá einhverjar hótanir og þurfi að reiða fram peninga. M kvað foreldra sína ekki hafa fengið skilaboð á sama tíma. Fjölskyldan hafi þá verið búin að greiða umrædda skuld en M hafi orðið hræddur við skilaboðin og hann viti ekki hvernig sendandi þeirra hafi fengið símanúmerið sitt. Honum finnist líklegt að um sé að ræða sömu menn og hafi hótað fjölskyldunni frá 2017 til ársins 2020, þar sem skilaboðin séu svipuð, þótt hann viti það ekki fyrir víst. M hafi ekki séð skilaboðin sem bárust foreldrum hans svo hann viti ekki nákvæmlega hvað hafi staðið í þeim eða hverjir hafi sent þau. Þá kvaðst hann ekki vita nákvæmlega hverjir hafi hótað fjölskyldunni en það hafi sennilega verið Colectivos á vegum þess olíufyrirtækis sem faðir hans hafi starfað fyrir, enda hafi faðir hans verið látinn skrifa undir skjal og hafi ekki getað leitað til fyrirtækisins og ekki mátt segja frá. Skilaboðin hafi borist M tveimur dögum fyrir brottför hans frá Venesúela og hann hafi þegar verið búinn að kaupa flugmiða sinn til Íslands. Aðstæður hafi valdið honum hugarangri og þunglyndi.

Aðspurður um hvort M hafi orðið fyrir einhverju eftir að hafa snúið aftur til Venesúela 15. nóvember 2023, greindi hann frá því að í eitt sinn hafi verið brotist inn í bifreið kærenda. Bifreiðinni hafi hann lagt í stæði niðri í bæ og þegar hann hafi komið aftur að bifreiðinni hafi verið búið að brjóta rúðu, ræna veski K og skilríkjum þeirra, þ. á m. vegabréfi M. Aðspurður um hvenær framangreint atvik hafi gerst kvaðst M ekki muna það en þau hafi kært atvikið til þess að geta fengið ný skilríki og hann væri með lögregluskýrslu um það. Aðspurður um hvort hann hefði orðið fyrir einhverju sem mögulega gæti náð alvarleikastigi alþjóðlegrar verndar kvað M svo ekki vera, enda hafi hann ungur farið úr landi. M hafi reynt að mennta sig sem dýralæknir en það hafi verið dýrt í Venesúela og skólanum á endanum verið lokað. Þau myndu ekki geta byggt líf sín upp í Venesúela vegna spillingar.

Aðspurð um ástæðu flótta K frá heimaríki greindi hún frá því að tvær ástæður væru fyrir flótta hennar. Annars vegar kynferðislegt ofbeldi sem hún hafi orðið fyrir, n.t.t. nauðgun. Hún hafi þurft að leita til sálfræðings og verið mjög óörugg í kjölfar atviksins. Að morgni til 1. september 2023 hafi hún ætlað til messu og tveir menn er huldu andlit sín hafi rænt hana og brotið á henni. Hún viti ekki hverjir mennirnir voru. Atvikið hafi hún kært næsta dag og lögreglan hafi tekið á móti kærunni en ekkert hafi komið út úr kærunni. Aðspurð um hvort hún telji árásina hafa verið handahófskennda kvaðst hún telja að svo væri. Hún hafi upplifað mikið óöryggi og ekki farið út einsömul í kjölfar árásarinnar og móðir hennar hafi greitt sálfræðitíma fyrir hana vegna þunglyndis en atvikið hafi haft mikil áhrif á hana. Það hafi komið að því að K hafi þurft að hætta að fara til sálfræðings því móðir hennar hafi ekki getað greitt fyrir tímana. Ástæðu flóttans kvað K hins vegar vera óstöðugan efnahag fjölskyldu sinnar. Fjölskyldan hafi ekki haft mikil fjárráð og ekki getað stuðlað að betri framtíð fyrir K. Aðspurð um það hvort K hafi orðið fyrir einhverju öðru í Venesúela, svo sem ofbeldi eða ofsóknum, kvað hún svo ekki vera. Kvað K ungt fólk í Venesúela ekki ná að mennta sig og fá góða vinnu.

Aðspurð um hvað kærendur óttist helst við almennt ástand í heimaríki kvaðst M helst óttast um líf sitt, að mannréttindi séu ekki virt og að hann fái ekki að sjá eða vera með systkinum sínum. Hann óttist að verða fyrir því sama og foreldrar hans, að hann reyni að byggja sér upp líf, fái hótanir og þurfi að greiða þóknanir til glæpahóps. M óttist jafnframt að vera beittur ofbeldi, sérstaklega ef hann myndi reyna að vernda mannréttindi eða tjáningarfrelsi í heimaríki. Aðspurður um hvort M hafi sjálfur orðið fyrir ofbeldi á einhverjum tímapunkti svaraði M því neitandi en hann hafi alist upp við hræðslu og takmarkanir auk þess sem hann passi sig þegar hann fari út úr húsi í ljósi ástandsins í Venesúela. Jafnframt hafi systur hans orðið fyrir ránum. K kvaðst helst óttast óöryggið í heimaríki og um eigið öryggi þar í landi. Hún óttist um líf sitt og að eitthvað svipað komi fyrir sig á ný.

M taldi sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki en áður og verið öruggur og vísaði til þess að ástandið væri í raun alls staðar eins. Aðspurður um hvað M telji að muni gerast snúi hann aftur til Venesúela kvaðst hann ekkert hafa til þess að snúa aftur til og hann hefði hugsanlega ekki heimili þar. M myndi þurfa að byggja líf sitt upp frá grunni og fara aftur í þær aðstæður sem hann hafi lagtallt kapp á að yfirgefa. Kvaðst K ekki vita hvað muni gerast snúi hún aftur til heimaríkis, margt geti gerst en kannski komi ekkert fyrir hana.

M kvaðst ekki hafa leitað til lögreglu eða yfirvalda í heimaríki, enda væru yfirvöld í Venesúela spillt. Hann væri jafnvel hræddari við lögregluna en glæpamenn. Aðspurður um kæru þá sem hann hafi lagt fram vegna innbrots í bifreið hans kvað hann að vissulega væri hægt að fara til lögreglunnar fyrir einfaldari atvik til þess að fá skýrslu um atvikið og hann hafi gert það þótt hann hafi vitað að ekkert yrði aðhafst í málinu. Aðspurður um hvort kærandi eða fjölskylda hans hafi leitað til lögreglu vegna hótananna kvað hann þau ekki hafa gert það. Það hafi verið hluti af hótununum að þau mættu ekki leita til lögreglunnar og aðstæður yrðu verri myndu þau reyna það. Kærendur hafi ráðið sér lögmann vegna brotsins gegn K af þeirri ástæðu að lögmenn hafi tengsl og væru líklegri til að koma málum í gegn þannig að líklegra væri að lögreglan aðstoði. Aðspurð kvaðst K heldur ekki telja að yfirvöld í heimaríki gætu veitt sér aðstoð eða vernd heldur væru það yfirvöld sem beiti ofbeldi. K hafi sjálf ekki orðið fyrir í slíku en það hafi hent móður hennar og frænku. Vísaði K til þess að kærendur geti ekki verið örugg í Venesúela og stjórnvöld veiti ekki öryggi.

Með ákvörðun Útlendingastofnunar var kærendum synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 30. september 2024 og kærunefnd bárust greinargerðir kærenda ásamt viðbótargögnum 13. október 2024. Hinn 26. ágúst 2025  óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Svör kærenda bárust 29. ágúst 2025.

3 Greinargerðir til kærunefndar

Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.

Í greinargerðum kærenda er aðstæðum þeirra lýst. Þar kemur m.a. fram að M hafi leitað til lögreglunnar í heimaríki vegna ofsókna gagnvart sér og fjölskyldu sinni en lögreglan hafi ekkert aðhafst.

Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Vísa kærendur til þess að Útlendingastofnun hafi brugðist lögbundinni rannsóknarskyldu sinni sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga m.a. með því að kynna sér ekki til hlítar ástandið sem ríki í Venesúela, aðstæður kvenna og starfsemi og starfshætti Colectivos þar í landi og þá hættu sem af Colectivos stafi. Einnig með því að hafa hvorki rannsakað til hlítar þá hættu sem blasi við K í heimaríki sem yfirlýstur stjórnarandstæðingur og sérstaklega sem kvenkyns stjórnarandstæðingur. Vísar K einnig til þess að með ákvörðun um brottvísun og endurkomubann gagnvart henni hafi stofnunin valið þá mest íþyngjandi leið sem stofnuninni hafi staðið til boða og farið út fyrir meðalhóf í skilningi meðalhófsreglu stjórnsýsluréttarins, bæði eins og hún birtist í 12. gr. stjórnsýslulaga og sem grundvallarregla íslensks stjórnsýsluréttar. Því beri að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi og leggja fyrir stofnunina að taka mál kærenda til meðferðar að nýju.

Kærendur krefjast þess aðallega að þeim verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Helsta ástæða umsóknar M um alþjóðlega vernd sé að hann og fjölskylda hans hafi orðið fyrir ofsóknum og ofbeldi í Venesúela. Helsta ástæða umsóknar K um alþjóðlega vernd hér á landi sé að hún hafi tekið virkan þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum í Venesúela. Hún hafi síðast tekið þátt í mótmælum í heimaríki í febrúar 2024 og þar sem til séu ljósmyndir af K sem sýni þátttöku hennar í mótmælum gegn ríkjandi stjórnvöldum í Venesúela sé stjórnvöldum kunnugt um stjórnmálaskoðanir K. Framangreint setji hana í verulega og aukna hættu á ofsóknum snúi hún aftur til heimaríkis og K sé ekki síst hætta búin í heimaríki sem kvenkyns stjórnarandstæðingur. Önnur ástæða flótta K sé hópnauðgun sem hún hafi orðið fyrir í Venesúela í nóvember 2023 og haft hafi alvarleg áhrif á andlega heilsu hennar. Til viðbótar ríki mannúðarkrísa í heimaríki kærenda og þau vilji ekki snúa þangað aftur sökum óöryggis sem ríki í landinu.

Verði ekki fallist á aðalkröfu krefjast kærendur þess til vara að þeim verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi þeirra almennu aðstæðna í Venesúela, þ.e. ofbeldisástands sem þar ríki, skorts á grundvallarmannréttindum, nauðsynjum líkt og rafmagni, mat, lyfjum og almennri heilbrigðisþjónustu, sé rétt að veita kærendum viðbótarvernd hér á landi. Ekkert hafi breyst í Venesúela til hins betra frá júlí 2022.

Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að eðlilegt væri að þeim yrði veitt tímabundið dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða af heilbrigðisástæðum. Bakland K sé lítið sem ekkert í heimaríki og þar bíði hennar skelfilegar aðstæður og fordómar, sem kona sem sætt hafi kynferðisofbeldi. K komi ekki af efnafólki og búi við dræman efnahag í heimaríki. Hún hafi ekki átt efni á að greiða fyrir nauðsynlega sálfræðimeðferð í kjölfar þeirra áfalla sem hún hafi upplifað sökum ítrekaðs ofbeldis sem hún hafi orðið fyrir, andlegs líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis af hálfu bæði náinna ættingja og ókunnugra.

Byggja kærendur einnig á því að samkvæmt venesúelskum lögum geti það haft alvarlegar afleiðingar í för með sér að flýja Venesúela og sækja um alþjóðlega vernd í öðru landi. Vísa kærendur til þess að sumir þeirra venesúelsku borgara sem snúið hafi aftur frá Íslandi til Venesúela hafi verið settir í varðhald í u.þ.b. sólarhring, gert að viðurkenna landráð, sviptir vegabréfum sínum og IOM styrkjum.

Almennar aðstæður í Venesúela séu þess eðlis að það væri forkastanlegt að vísa umsækjanda um alþjóðlega vernd aftur þangað. Þá verði að telja að slík brottvísun myndi brjóta gegn 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Telja megi líklegt að í heimaríki geti kærendur átt von á að vera beitt brotum sem varðað geti ákvæði 1. til 13. gr. mannréttindasáttmálans.

4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga

Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu og meðalhófsreglu, sbr. 10. og 12. gr. stjórnsýslulaga.

Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.

5 Alþjóðleg vernd

5.1 Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:

Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.

Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:

Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.

Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.

Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:

a. ríkið,

b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,

c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.

Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.

Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.

Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).

Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.

Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).

5.2 Auðkenni

Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur séu venesúelskir ríkisborgarar.

5.3 Landaupplýsingar

Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:

  • 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
  • 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
  • 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
  • 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
  • ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
  • ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
  • Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
  • Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
  • Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
  • Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
  • Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
  • Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
  • Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
  • Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
  • Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
  • Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
  • Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
  • General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
  • Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
  • Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
  • Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
  • Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
  • Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
  • Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
  • Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
  • Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
  • Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
  • International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
  • Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
  • Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
  • Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
  • Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
  • Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
  • Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
  • Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
  • Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
  • RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
  • RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
  • RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
  • Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
  • Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
  • Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
  • The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 26. ágúst 2025);
  • UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
  • UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
  • UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
  • Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
  • Venezuela (Britannica, síðast uppfært 27. ágúst 2025);
  • Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
  • Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
  • Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
  • Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
  • Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 31. ágúst 2025);
  • Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
  • Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
  • Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
  • Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
  • Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
  • Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
  • Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
  • Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
  • Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
  • Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
  • Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
  • Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
  • Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
  • Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
  • Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
  • Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
  • Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
  • Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
  • What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
  • World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
  • World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
  • World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.

Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.

Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs og hafi samningurinn gert ráð fyrir alþjóðlegu eftirliti með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Yfirvöld í Venesúela hafa enn ekki birt þær tölur.

Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.

Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og einstaklingar enn í haldi að ósekju, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni þess árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.

Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.

Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.

Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.

Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem geri þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verði í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.

Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, fór í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Íávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.

Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum. Í

Í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem hafi verið aflétt hafi verið komið á á ný eða nýjar settar á í kjölfar forsetakosninganna í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið sem geti haft áhrif á efnahag landsins.

Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 kemur fram að þrátt fyrir viðvarandi stjórnarkreppu í landinu og vaxandi efnahagslegar áskoranir, sem hafi aukist vegna yfirvofandi viðskiptaþvingana, þá hafi straumur yfir landamærin verið stöðugur, bæði inn í Venesúela sem og út úr landinu. Þá hafi á landamærastöðvum við Kólumbíu fleiri snúið til baka inn í landið en hafi flúið en á landamærastöðvum við Brasilíu væru enn fleiri sem leituðu til Brasilíu með von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria, auk þess sem einstaklingar hafi verið fluttir frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) áætli að nemi um 6,5 % af landsframleiðslu árið 2024, hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins haft áhrif á kaupmátt og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna. Það hafi leitt til félagslegrar óánægju, sérstaklega á meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli og stuðlað að flótta einstaklinga innan lands sem leiti bættra lífskjara. Flóttamannastofnun leitist við að aðstoða þá sem séu verst settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni endurkomu fólks til Venesúela. Vinni stofnunin ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og öðrum samtökum að sérstökum verkefnum til þess að aðstoða einstaklinga sem snúi aftur til Venesúela, s.s. með kennslu, heilbrigðisþjónusta, sálrænni og félagslegri aðstoð og skjóli. Séu þessi verkefni starfrækt í höfuðborg landsins Karakas, Tachira, Zulia og Bólívar fylkjum. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.

Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.

Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Í kjölfarið settu íslensk stjórnvöld sig í samband þá einstaklinga sem hægt var og óskað upplýsinga um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.

Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.

5.4 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á almennu öryggis- og efnahagsástandi í Venesúela ásamt því að þau eigi á hættu ofsóknir af hálfu glæpahópsins Colectivos þar í landi. Þá telja kærendur að þau geti ekki notið aðstoðar lögreglu eða annarra yfirvalda í heimaríki.

Í greinargerð kemur fram að einhelsta ástæða umsóknar K fyrir alþjóðlegri vernd sé að hún hafi tekið virkan þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum í Venesúela, síðast í febrúar 2024. Þar sem til séu ljósmyndir af K að taka þátt í mótmælum gegn ríkjandi stjórnvöldum í Venesúela kunni stjórnvöldum að vera kunnugt umstjórnmálaskoðanir K sem setji hana í verulega hættu á ofsóknum snúi hún aftur til heimaríkis. Henni sé ekki síst hætta búin í heimaríki sem kvenkyns stjórnarandstæðingur.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hún berjist fyrir einstaklings- og tjáningarfrelsi í Venesúela og gegn almennu ástandi í landinu. Hún hafi tekið þátt í mótmælagöngum en ekki í skipulögðu stjórnmálastarfi í heimaríki og hún hafi ekki orðið fyrir aðkasti eða mótlæti vegna þátttöku sinnar í mótmælum. M greindi frá því að hann berjist fyrir mannréttindum og tjáningarfrelsi í Venesúela en hafi aldrei tekið þátt í skipulagðri baráttu, mótmælum eða öðru sem gæti gert stjórnvöldum kunnugt um skoðanir hans sökum hræðslu um að verða fangelsaður.

Vegna málsástæðu í greinargerð K þess efnis að staða hennar í heimaríki verði enn verri í ljósi þess að hún sé kvenkyns stjórnarandstæðingur og að konur í Venesúela séu í sérstaklega mikilli hættu á að verða fyrir ofbeldi bendir kærunefnd á að samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 njóta konur sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og megi vinnuveitendur ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Þá kemur fram í skýrslunni að dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Að mati kærunefndar verður hvorki af landaupplýsingum né frásögn kærenda ráðið að K verði í erfiðari stöðu en aðrar konur í Venesúela. Verður því ekki lagt til grundvallar að K eigi á hættu að sæta mismunun eða áreiti sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga á grundvelli kyns síns.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði K fram ljósmyndir sem að hennar sögn sýni K taka þátt í mótmælum. Kærunefnd áréttar að gögn af slíku tagi hafi takmarkað vægi og benda myndirnar ekki til þess að hún hafi verið meira áberandi í mótmælunum en aðrir. Einkum m.t.t. þess fjölda Venesúelabúa sem hafi tekið þátt í mótmælum í landinu.

Í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um réttarstöðu flóttamanna um stjórnmálaskoðanir í skilningi alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 1951 kemur fram að umsækjandi verði að sýna fram á að hann óttist að verða fyrir ofsóknum vegna þessara skoðana sinna. Gengið sé út frá því að stjórnmálaskoðanir umsækjanda feli í sér gagnrýni á stefnu eða aðferðir stjórnvalda sem séu stjórnvöldum ekki þóknanlegar. Einnig sé gert ráð fyrir að stjórnvöldum sé kunnugt um slíkar skoðanir eða að þau ætli að umsækjandi hafi þær. Við mat á því hvort umsækjandi um alþjóðlega vernd hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir á grundvelli stjórnmálaskoðana í skilningi samningsins er þannig ekki skilyrði að viðkomandi hafi skoðanir sem feli í sér gagnrýni á stjórnvöld, heldur aðeins að stjórnvöld ætli að umsækjandi hafi slíkar skoðanir. Samkvæmt e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga vísa stjórnmálaskoðanir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laganna einkum til skoðana á stefnumótun og aðferðum stjórnvalda sem kunna að beita ofsóknum án tillits til þess hvort viðkomandi hefur aðhafst eitthvað til að tjá skoðanir sínar. Með vísan til þess sem fram kemur í umfjöllun í handbók flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna verður lagt til grundvallar að ætlaðar stjórnmálaskoðanir geti einnig fallið undir e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærunefnd dregur ekki í efa að kærendur séu stjórnarandstæðingar og að K hafi tekið þátt í mótmælum í heimaríki, síðast í febrúar 2024. Ljóst er af þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað að tugir þúsunda manna hafa mótmælt ríkjandi stjórnvöldum í landinu á síðustu árum. Samkvæmt þeim gögnum sem kærunefnd hefur skoðað hafa öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðja ríkisstjórnina ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Þá hafi ríkisstjórn Maduro treyst á hersveitir, leyniþjónustu og Colectivos til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Af gögnum, m.a. skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023, verður ekki annað séð en að þeir sem eigi á mestri hættu að sæta handtöku og refsingu vegna andstöðu sinnar við stjórnvöld séu einstaklingar eða samtök sem njóti vegna stöðu sinnar meiri athygli en aðrir. Aðspurð greindi K sjálf frá því að hafa hvorki orðið fyrir aðkasti né mótlæti vegna þátttöku sinnar í mótmælum og þrátt fyrir að K hafi mætt á mótmæli í heimaríki verður ekki sé að hún eða M hafi gegnt áberandi hlutverki innan stjórnarandstöðunnar eða að þau séu útsettari en aðrir mótmælendur fyrir árásum eða hótunum. Með vísan til framangreinds er það því niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu stjórnvalda vegna stjórnmálaskoðana í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. e-lið 3. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að helsta ástæða flótta hans frá heimaríki væru hótanir og fjárkúgun sem fjölskylda hans hafi orðið fyrir í heimaríki. Hann viti ekki nákvæmlega hverjir hafi hótað fjölskyldu hans en taldi það sennilega hafa verið Colectivos á vegum olíufyrirtækis sem faðir hans hafi starfað fyrir. Umræddar hótanir í garð foreldra M hafi að hans sögn staðið yfir frá 2017 til 2020 eða 2021. Þá hafi M sjálfur móttekið ógnandi skilaboð frá óþekktum aðila 16. apríl 2023. Taldi M sendanda skilaboðanna vera sömu menn og hótað hafi fjölskyldunni vegna þess að skilaboðin væru svipuð.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur m.a. fram skjáskot af umræddum hótunarskilaboðum til M, dags. 16. apríl 2023. Umrætt skjáskot hefur takmarkað sönnunargildi fyrir mál kærenda en af skjáskotinu verður ekki ráðið hverjir hafi staðið að baki sendingu skilaboðanna eða af hvaða tilefni og hver viðtakandi þeirra sé.

Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum.

Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur fram afrit af kæru M til lögreglu, dags. 20. febrúar 2023, sem M hafi lagt fram í heimaríki vegna ofsókna gagnvart sér og fjölskyldu sinni en lögreglan hafi ekkert aðhafst. Ber skjalið með sér að M hafi lagt umrædda kæru fram 20. febrúar 2023 vegna brots, dags. 17. janúar 2023. Fram kemur að M hafi lýst því að föður sínum hafi borist nokkrar hótanir sem tengist fjölskyldu hans. Myndir, skilaboð og tölvubréf hafi verið send á einkareikning föður M. Starfsmenn ríkisins, Colectivos og málaliðar ógni föður M vegna atvinnukvóta hjá dótturfélagi PDVSA, ella myndu þeir skaða fjölskyldu föður hans.

Þrátt fyrir framlagningu framangreindrar kæru til lögreglu hjá kærunefnd hafði M ekki greint frá henni í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun og aðspurður um hvort hann eða fjölskylda hans hefðuð leitað til lögreglunnar í heimaríki vegna umræddra hótana kvað hann þau ekki hafa gert það.

Með tölvubréfi, dags. 26. ágúst 2025, óskaði kærunefnd skýringa M á því misræmi að kærendur hafi, við meðferðs málsins hjá kærunefnd, lagt fram framangreint afrit en M hafi í viðtali hjá Útlendingastofnun ekki greint frá kærunni. Aðspurður um hvort hann eða fjölskylda hans hafi leitað til lögreglunnar í heimaríki vegna umræddra hótana hafi hann greint frá því að það hafi þau ekki gert. Í svari kærenda, dags. 29. ágúst 2025, kemur ekki fram með beinum hætti hvers vegna M hafi ekki greint frá umræddri kæru í viðtali sínu hjá Útlendingastofnun. Í svari kærenda kom m.a. fram að M hafi ekki getað lagt afrit kærunnar fram við meðferð málsins vegna þess að þegar hann hafi snúið aftur til Venesúela í nóvember 2023 hafi hann þurft að losa sig við öll þau sönnunargögn sem hann hafi haft meðferðis af ótta við að leitað yrði á honum og hann stimplaður sem „svikari“. Ætlun M hafi verið að leggja sönnunargögnin fram í viðtalinu en þar sem hann hafi að lokum aldrei fengið þau og verið mjög hræddur hafi hann ákveðið að losa sig við allt. Þegar hann hafi snúið aftur til Íslands hafi hann einungis haft meðferðis tilkynningar um að eigum hans hafi verið rænt úr bifreið kærenda og rúða bifreiðarinnar brotin. Tók M fram að lokum að frá árinu 2017 hafi þau ekki leitað til lögreglunnar eða rannsóknarstofnana í Venesúela vegna ótta. Hins vegar hafi fjölskyldan ákveðið að M skyldi fara af landi brott árið 2022 þegar hann hafi fengið skilaboð frá sömu aðilum og áður. Vegna skilaboðanna hafi M að eigin frumkvæði farið til CICPC til þess að útskýra mál sitt. CICPC hafi ekki boðið honum aðstoð en hafi lagt fram kvörtun fyrir hann sem M hafi ákveðið að geyma vegna þess að ef hann væri á leið úr landi skyldi hann að minnsta kosti hafa meðferðis sönnun fyrir því sem hann hafi verið að upplifa.

Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kærenda telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að M hafi borist skilaboð 16. apríl 2023. Þá telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að fjölskylda M hafi orðið fyrir hótunum og fjárkúgunum í heimaríki á tímabilinu frá 2017 til 2020 eða 2021, af hendi glæpahópsins Colectivos eða ótilgreinds glæpahóps og hótununum hafi að hans sögn lokið þegar fjölskyldan hafi greitt umbeðna fjárhæð í kringum 2021. Upplýsingar um heimaríki kærenda benda til þess að vopnaðir glæpahópar séu starfræktir í heimaríki þeirra sem stundi glæpi á við fjárkúgun, eiturlyfjasmygl og mannrán. Frásögn M og gögn málsins gefa til kynna að meintar fjárkúganir og hótanir gegn fjölskyldu hans hafi tengst starfi föður hans hjá ríkisreknu olíufyrirtæki og beinst að rekstri matsölustaðar móður hans. Gögn þau sem kærunefnd hefur kynnt sér við meðferð málsins bera með sér að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við ólöglegri starfsemi olíufyrirtækja m.a. hjá ríkisfyrirtækjum. Verður að telja að þær aðgerðir beri með sér að einstaklingar og fyrirtæki sem stundi ólöglega starfsemi í tengslum við olíustarfsemi í landinu njóti ekki verndar yfirvalda í Venesúela. Þótt kærandi hafi greint frá því að hann hafi á þriggja mánaða tímabili ekki þorað að fara úr húsi ber frásögn hans ekki með sér annað en að dvöl hans í heimaríki hafi á tímabilinu að öðru leyti verið án vandkvæða. Greindi hann sjálfur frá því í viðtali að skilaboðin 16. apríl 2023 hafi verið þau einu sem honum hafi borist. Samkvæmt því bárust skilaboðin tveimur eða þremur árum eftir að umræddum fjárkúgunum og hótunum gegn fjölskyldu hans hafði lokið og M hafi þegar verið búinn að kaupa sér farmiða frá Venesúela og ætlaði brott frá landinu tveimur dögum síðar þegar skilaboðin hafi borist honum. Virðast engir eftirmálar hafa orðið fyrir kæranda eftir þau skilaboð og frásögn M ber ekki annað með sér en að skilaboðin hafi verið einangruð og ekki haft frekari afleiðingar fyrir hann. Auk þess hafi hann ekki orðið fyrir neinu eftir að hann sneri aftur til Venesúela í nóvember 2023, að því undanskildu að brotist hafi verið inn í bifreið hans. Kærendur hafa ekki sýnt fram á að skilaboðin hafi verið send af sömu aðilum og hótað hafi fjölskyldu M eða að þær hótanir og fjárkúganir sem M hefur lýst gagnvart fjölskyldu sinni, nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga.

Kærendur greindu einnig frá því í viðtölum hjá Útlendingastofnun að þau óttist almennt óöryggi í heimaríki. Líkt og fram hefur komið greindi M frá því að eftir að hann hafi snúið aftur til Venesúela 15. nóvember 2023 og þar til kærendur hafi komið til Íslands 25. mars 2024 hafi í eitt sinn verið brotist inn í bifreið þeirra. Hinn 1. september 2023 hafi verið brotið á K kynferðislega og hún óttist að verða fyrir slíku atviki á ný.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur til viðbótar fram mynd af brotinni bílrúðu sem þau byggja á að hafi verið brotin þegar brotist hafi verið inn í bifreið þeirra og afrit af lögregluskýrslum þeirra vegna atviksins. Bera skýrslurnar með sér að hafa verið lagðar fram 8. janúar 2024.

Með vísan frásagna kærenda, framlagðra gagna og þeirra heimilda sem kærunefnd hefur skoðað um aðstæður í Venesúela telur kærunefnd ekki ástæðu til að draga í efa að kærendur óttist almennt óöryggi í landinu, að brotist hafi verið inn í bifreið þeirra eftir að M sneri aftur til Venesúela og að brotið hafi verið á K kynferðislega í heimaríki þeirra. Líkt og fram hefur komið greindi K sjálf frá því að líklega hafi tilviljun ráðið því að hún hafi verið þolandi umrædds atviks og ekkert bendir til þess að innbrot í bifreið þeirra hafi beinst að kærendum persónulega eða haft frekari afleiðingar fyrir þau. Ekkert í frásögn kærenda eða gögnum málsins bendir til þess að þau séu sérstök skotmörk glæpahópa eða annarra aðila í heimaríki. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til þess að kærendur hafi orðið fyrir áreiti af hálfu slíkra flokka eða annarra aðila þar í landi sem nái því marki að teljast ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. sömu laga, eða að þau eigi slíkt á hættu. Atvik þau sem kærendur hafa greint frá í viðtali hjá Útlendingastofnun virðast fremur hafa tengst almennu ástandi í heimaríki þeirra og er ekkert í gögnum málsins eða frásögnum kærenda sem gefur til kynna að þau hafi sætt ofsóknum eða þurfi að óttast ofsóknir í heimaríki sem hafa eða gætu náð því alvarleikastigi sem 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga mælir fyrir um. Líkt og fram hefur komið verður af gögnum um heimaríki kærenda ekki ráðið að K verði í verri stöðu í heimaríki en aðrar konur þar í landi.

Kærendur byggja jafnframt á því að þau geti ekki notið aðstoðar lögreglu eða yfirvalda í heimaríki og lögreglan þar í landi sé spillt. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kærenda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu er það mat kærunefndar, með vísan til þeirra gagna sem nefndin hefur kynnt sér, að yfirvöld í Venesúela geti almennt veitt vernd gegn ofbeldi, m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir, sbr. c-lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga. Samkvæmt þeim heimildum sem kærunefnd hefur kynnt sér um heimaríki kærenda geta þeir einstaklinga sem lenda í brotum af hendi lögreglu, svo sem fjárkúgunum, meðal annars leitað til ríkislögreglunnar (sp. Policía Nacional Bolivariana) eða þolendaaðstoðar hjá almenningsráðuneytinu (sp. Ministerio Público). Liggur einnig fyrir í málinu að kærendur hafa leitað til lögreglunnar og bendir ekkert til annars en að þau geti leitað til lögreglunnar á ný telji þau ástæðu til þess.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi K frá því að hún væri kristinnar trúar sem væri frábrugðið flestum í Venesúela og það fari eftir með hverjum hún væri hvort hún upplifi mismunun eða fordóma á grundvelli trúar sinnar. Stjórnarskrá Venesúela kveður á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Stjórnarskráin leggi einnig sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Framangreindar heimildir benda til þess að almennt umburðarlyndi ríki gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og lítið sé um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Aðspurð um hvort K hafi upplifað atvik þar sem henni hafi verið mismunað á grundvelli trúar sinnar kvað hún svo ekki vera. Þá er ekkert í frásögn kærenda sem bendir til þess að K hafi orðið fyrir mismunun sökum trúar sinnar sem átt geti undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna. Það er því mat kærunefndar að aðstæður K vegna trúar hennar séu ekki þess eðlis að þær eigi undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga, sbr. 1. mgr. 38. gr. laganna.

Kærendur vísuðu einnig til þess í viðtali hjá Útlendingastofnun að almennt ástand hafi gert þeim erfitt fyrir að byggja upp líf sín í Venesúela og erfitt væri fyrir ungt fólk að byggja upp framtíð í Venesúela. Önnur ástæða K fyrir flótta hennar frá heimaríki væri óstöðugur efnahagur fjölskyldu hennar. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.

Í greinargerðum kærenda er á því byggt að það geti haft alvarlegar afleiðingar í för með sér að flýja Venesúela og sækja um alþjóðlega vernd í öðru landi. Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela geti verið í hættu við endursendingu. Gögn málsins bera með sér að M hafi farið sjálfviljugur frá Íslandi til Venesúela og ekki verður af framburði hans ráðið að hann hafi sætt slæmri meðferð eða óttist slæma meðferð við endurkomu til Venesúela vegna þess að hann hafi sótt um vernd í öðru landi. Horfir kærunefnd einnig til þess að kærendur hafi fengið útgefin venesúelsk vegabréf 25. janúar 2024. Í vegabréfum þeirra má sjá útstimplun frá Simon Bólivar flugvellinum 9. mars 2024 sem bendir til þess að þau hafi getað farið með löglegum hætti úr landinu án þess að vera stöðvuð vegna opinna mála í venesúelska réttarkerfinu.

Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.5 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga

Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með vísan til almennra aðstæðna í Venesúela, þ.e. ofbeldisástands sem þar ríki, skorts á grundvallarmannréttindum, nauðsynjum líkt og rafmagni, mat, lyfjum og almennri heilbrigðisþjónustu.

Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu og starfi nú ýmis innlend og erlend frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Þá er ljóst að þrátt fyrir áframhaldandi viðskiptaþvinganir og takmörkum á olíuviðskipti í landinu sé áframhaldandi hægur hagvöxtur í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, og áhrif jafnræðisreglunnar.

Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.

Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í Anzoátegui fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Anzoátegui í norðurhluta Venesúela. Heimildir bera ekki með sér að átök eða árásir á almenna borgara séu tíðar í heimafylki kæranda. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), eru ekki virk átök eða óeirðir í heimafylki kæranda eða í Venesúela almennt. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur eigi á hættu að verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum við komu aftur til heimaríkis.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.

5.6 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga

Þar sem kærendur eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.

6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða

6.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem staddur er hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, þrátt fyrir að skilyrði 37. gr. séu ekki uppfyllt, ef útlendingur getur sýnt fram á ríka þörf fyrir vernd, t.d. af heilbrigðisástæðum eða vegna erfiðra félagslegra aðstæðna viðkomandi eða erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki eða í landi sem honum yrði vísað til. Kærunefnd telur, með vísan til orðalags ákvæðisins um „ríka þörf fyrir vernd“ auk lögskýringargagna sem fylgdu greininni, að dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verði ekki veitt nema aðstæður, bæði almennar og sérstakar m.t.t. heilsufars og félagslegra þátta, auk atvika sem þar er vísað til, nái ákveðnu alvarleikastigi þegar málið er virt í heild.

Í athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að ákvæði 1. mgr. 74. gr. vísi m.a. til erfiðra almennra aðstæðna í heimaríki og væri þar oft um að ræða viðvarandi mannréttindabrot í ríkinu og þá aðstöðu að yfirvöld veiti þegnum sínum ekki vernd gegn ofbeldisbrotum eða glæpum. Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga kemur m.a. fram að með erfiðum almennum aðstæðum sé vísað til alvarlegra aðstæðna í heimaríki sem ekki séu staðbundin, svo sem vegna langvarandi stríðsátaka. Þá kemur fram að erfiðar almennar aðstæður taki að jafnaði ekki til neyðar af efnahagslegum rótum eða náttúruhamfara, svo sem fátæktar, hungursneyðar eða húsnæðisskorts. Eigi það m.a. við þegar í heimaríki viðkomandi ríki óðaverðbólga, atvinnuleysi í ríkinu sé mikið eða lágmarkslaun dugi ekki fyrir framfærslu.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 með síðari breytingum og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga kemur fram að með ríkri þörf á vernd af heilbrigðisástæðum sé m.a. miðað við að um skyndilegan og lífshættulegan sjúkdóm sé að ræða og meðferð við honum væri aðgengileg hér á landi en ekki í heimaríki viðkomandi. Í þessu sambandi kemur jafnframt fram að meðferð teljist ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana heldur er hér átt við þau tilvik þar sem meðferð sé til í heimaríkinu en viðkomandi eigi ekki rétt á henni. Þá kunna að falla undir 1. mgr. 74. gr. mjög alvarlegir sjúkdómar sem ekki teljast lífshættulegir, svo sem ef sýnt þykir að þeir muni valda alvarlegu óbætanlegu heilsutjóni. Ef um langvarandi sjúkdóm sé að ræða væru ríkari verndarsjónarmið fyrir hendi ef sjúkdómur væri á lokastigi. Jafnframt væri rétt að líta til þess hvort meðferð hafi hafist hér á landi og ekki væri læknisfræðilega forsvaranlegt að rjúfa meðferð, sem og til atriða sem varði félagslegar aðstæður útlendings og horfur hans.

Í 43. gr. a reglugerðar um útlendinga og athugasemdum við frumvarp til laga um útlendinga er jafnframt fjallað um erfiðar félagslegar aðstæður. Þar kemur fram að átt sé við að útlendingur hafi þörf á vernd vegna félagslegra aðstæðna í heimaríki og eru þar nefnd sem dæmi aðstæður kvenna sem hafa sætt kynferðislegu ofbeldi, sem leitt getur til erfiðrar stöðu þeirra í heimaríki, eða aðstæður kvenna sem ekki fella sig við kynhlutverk sem er hefðbundið í heimaríki þeirra og eiga á hættu útskúfun eða ofbeldi við heimkomu. Verndarþörf þjóðfélagshópa að öðru leyti myndi fara eftir aðstæðum í hverju máli.

Samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga er heimilt að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd hér á landi og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann lagði inn umsókn sína dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða að uppfylltum skilyrðum 2. og 3. mgr. ákvæðisins. Ef um barn er að ræða skal miða við 16 mánuði.

6.2 Niðurstaða um 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Af framangreindum gögnum að ráða hafa yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum síðustu ár framið glæpi sem fallið geta undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity) og hafi meirihluti glæpanna verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í þeim tilgangi að efla stjórn ríkisins. Almennir borgarar hafi hvorki getað treyst á vernd lögregluyfirvalda né opinbera aðstoð. Þá benda heimildir til þess að sú alvarlega staða sem ríkt hefur í landinu hvað varðar efnahag þess og aðgang almennings að fæðu, hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu hafi fyrst og fremst stafað af aðgerðum og aðgerðarleysi stjórnvalda en ekki af utanaðkomandi þáttum líkt og þurrkum eða öðrum náttúruhamförum. Af þeim gögnum og skýrslum sem kærunefnd hefur farið yfir má ráða að þrátt fyrir það ótrygga ástand sem ríkt hefur í landinu síðustu ár hafi ástandið undanfarna mánuði breyst til batnaðar m.a. með breyttu viðhorfi stjórnvalda til mannúðaraðstoðar og vilja til að vinna að bættu réttarkerfi landsins. Þá er hvorki stríð í landinu né útbreidd vopnuð átök. Með vísan til fyrri umfjöllunar um aðstæður kærenda og aðstæður í heimaríki þeirra, benda gögn málsins ekki til þess að almennar aðstæður sem bíði þeirra í heimaríki nái því alvarleikastigi sem 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kveði á um.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun kvað M líkamlega heilsu sína almennt góða en hann væri með óskilgreindan magavanda sem hann haldi í skefjum með því að forðast hveitivörur. M hafi einnig upplifað hárlos, útbrot á líkama og sýkingu á fingri. Hann væri á sýklalyfjum vegna sýkingarinnar en tæki annars ekki lyf að staðaldri. Í þeim tilvikum sem hann hafi tekið lyf í Venesúela hafi það verið gegn hósta eða sambærilegum kvillum. Andlega heilsu sína kvað M almennt vera góða, en hann upplifi streitu vegna óvissu um framtíðina. Aðspurður kvaðst M hafa notið heilbrigðisþjónustu bæði í Venesúela og á Íslandi. Opinbera heilbrigðiskerfið í Venesúela virki að hans sögn ekki vel og hann hafi ekki leitað til þess heldur til einkarekinnar stofu. Það hafi ekkert komið út úr því og M enga greiningu fengið. Líkamlega og andlega heilsu sína kvað K vera góða en hún þjáist af kvíða. Aðspurð um hvort hún hafi leitað til heilbrigðiskerfisins í heimaríki kvaðst hún hafa leitað til kvensjúkdómalæknis. Hún taki ekki lyf að staðaldri [...]. K hafi leitað til sálfræðings í heimaríki en hafi þurft að hætta að sækja tíma hjá sálfræðingi vegna kostnaðar.

Í greinargerð kemur fram að fyrir nauðgun þá sem K hafi orðið fyrir hafi hún þjáðst af [...] en eftir atvikið hafi hún greinst með bæði [...]sýkingu (e. [...[) og [...] og fengið lyf við því. Hún þjáist enn af síðarnefndri sýkingu og [...]sýkingu.

Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lagði K fram heilsufarsgögn frá kvensjúkdómalækni í Venesúela. Þá lögðu kærendur fram afrit af komunótum frá Göngudeild sóttvarna, dags. 2. maí til 30. júní 2023, í tilviki M og 26. mars 2024 til 26. apríl 2024 í tilviki K.

Samkvæmt landaupplýsingum eru innviðir heilbrigðiskerfisins í Venesúela veikburða og skortur á heilbrigðisvörum og lyfjum. Stjórnvöld hafi stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki. Samkvæmt skýrslu Landinfo frá árinu 2023 hefur Venesúela glímt við lyfjaskort á undanförnum árum en aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Þá sé aðgengi að lyfjum fyrir þá sem geti greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum. Af framburði kærenda og framlögðum heilsufarsgögnum verður ekki annað ráðið en að kærendur hafi getað leitað sér heilbrigðisaðstoðar í heimaríki og fengið hana. Hefur jafnframt ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau muni áfram geta fengið heilbrigðisaðstoð, þar á meðal sjálfræðiþjónustu, verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Árétta ber að meðferð telst ekki óaðgengileg þótt greiða þurfi fyrir hana. Með vísan til framangreinds verður ekki talið að kærendur þarfnist meðferðar sem sé svo sérhæfð að þau geti einungis hlotið hana hérlendis eða að rof á henni yrði til tjóns fyrir kærendur verði þeim gert að snúa aftur til heimaríkis. Verður því ekki talið að kærendur hafi sýnt fram á ríka þörf á vernd af heilbrigðisástæðum, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Í viðtali hjá Útlendingastofnun greindi M frá því að hann hafi búið í húsnæði foreldra sinna í heimaríki og starfað við veitingarekstur ásamt móður sinni og almennt þénað á bilinu 80 til 100 dollara á mánuði. Móðir hans hafi séð honum fyrir húsnæði, mat og öðrum nauðsynjum. M hafi rekið pylsuvagn í heimaríki í um einn og hálfan mánuð eftir að hann hafi snúið aftur til Venesúela frá Íslandi 15. nóvember 2023. Foreldrar M séu enn búsett í Venesúela en þau vinni að því að selja húsnæði sitt og flytjast annað. Systkini M hafi flust frá Venesúela. K kvaðst hafa búið á Spáni frá árinu 2016 og flust aftur til Venesúela í desember árið 2022. Hún hafi stundað nám í heimaríki og verið á framfæri móðurömmu sinnar. Móðurfjölskylda K sé búsett í Venesúela en hún vilji ekkert hafa með föðurfjölskyldu sína að gera sem búsett sé á Spáni.

Kærendur hafa greint frá því að eiga bakland í heimaríki og af gögnum málsins verður talið að þau hafi getað framfleytt sér í heimaríki. Kærendur eru ung að árum og hefur ekkert komið fram sem bendir til annars en að þau sé heilsuhraust og vinnufær. Það er því niðurstaða kærunefndar að félagslegar aðstæður kærenda við komu til heimaríkis séu ekki slíkar að þær geti talist erfiðar í skilningi 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að kærendur hafi ekki sýnt fram á aðstæður sem ná því alvarleikastigi að þau hafi ríka þörf fyrir vernd líkt og kveðið er á um í 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Það er því niðurstaða kærunefndar að aðstæður í heimaríki séu ekki með þeim hætti að veita beri kærendum dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.

6.3 Niðurstaða um 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga

Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd 26. mars 2024 og á ákvæði 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga því ekki við.

7 Bann við endursendingu samkvæmt 42. gr. laga um útlendinga

7.1 Lagagrundvöllur

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga er ekki heimilt að senda útlending eða ríkisfangslausan einstakling til svæðis þar sem hann hefur ástæðu til að óttast ofsóknir, sbr. 37. og 38. gr., eða vegna svipaðra aðstæðna og greinir í flóttamannahugtakinu er í yfirvofandi hættu á að láta lífið eða verða fyrir ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð. Samkvæmt 2. mgr. sömu greinar er einnig óheimilt að senda útlending til svæðis þar sem ekki er tryggt að hann verði ekki sendur áfram til slíks svæðis sem greinir í 1. mgr.

7.2 Niðurstaða um bann við endursendingu

Af heimildum verður ekki ráðið að einstaklingar sem snúa til baka til Venesúela sæti ofsóknum eða áreiti stjórnvalda af þeirri ástæðu einni að hafa sótt um alþjóðlega vernd utan heimaríkisins og fengið synjun. Verður því að líta svo á að aðeins þeir einstaklingar sem fyrir eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í Venesúela séu í hættu við endursendingu. Þar sem þegar hefur verið komist að þeirri niðurstöðu að aðstæður kærenda falli ekki undir 1. og 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er ekki ástæða til að ætla að þau eigi á hættu ofsóknir eða áreiti af hálfu stjórnvalda við það eitt að snúa til baka.

Með vísan til umfjöllunar að framan um heimaríki kærenda er það niðurstaða kærunefndar að þær aðstæður sem ákvæðið tekur til eigi ekki við í máli kærenda. Stendur ákvæði 42. gr. laga um útlendinga því ekki í vegi fyrir endursendingu kærenda þangað.

8 Brottvísun og endurkomubann

8.1 Lagagrundvöllur

Í 3. mgr. 43. gr. reglugerðar um útlendinga nr. 540/2017 kemur fram að verði umsækjanda um alþjóðlega vernd ekki veitt dvalarleyfi skuli Útlendingastofnun taka ákvörðun um frávísun eða brottvísun eftir ákvæðum laga um útlendinga og að útlendingur sem sótt hafi um alþjóðlega vernd teljist hafa áform um að dveljast á landinu lengur en 90 daga. Samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga skal vísa útlendingi úr landi sem dvelst ólöglega í landinu eða þegar tekin hefur verið ákvörðun sem bindur enda á heimild útlendings til dvalar í landinu svo framarlega sem ákvæði 102. gr. laganna eigi ekki við. Í 102. gr. laganna er kveðið á um vernd og takmarkanir við ákvörðun um brottvísun.

Samkvæmt 3. mgr. 102. gr. laganna skal brottvísun ekki ákveðin ef hún, með hliðsjón af atvikum, alvarleika brots og tengslum útlendings við landið, felur í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart útlendingi eða nánustu aðstandendum hans. Sérstaklega skal taka tillit til þess ef um barn eða nánasta aðstandanda barns er að ræða og skal það sem barni er fyrir bestu haft að leiðarljósi við ákvörðun. Við mat á því hvort brottvísun feli í sér ósanngjarna ráðstöfun gagnvart kæranda verður að hafa ákvæði 71. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. nr. 33/1944 og 8. gr. mannréttindasáttmála Evrópu um friðhelgi einkalífs og fjölskyldu til hliðsjónar. Þegar útlendingur á hagsmuna að gæta í skilningi 8. gr. sáttmálans verður ákvörðun um brottvísun að vera í samræmi við það sem lög mæla fyrir um og nauðsyn ber til í lýðræðislegu þjóðfélagi, sbr. 2. mgr. 8. gr. sáttmálans.

Samkvæmt 1. mgr. 101. gr. laganna felst í endanlegri ákvörðun um brottvísun skylda útlendings til þess að yfirgefa Schengen-svæðið nema viðkomandi hafi heimild til dvalar í öðru ríki sem er þátttakandi í Schengen-samstarfinu. Með lögum um landamæri nr. 136/2022 voru gerðar breytingar á 98. gr. laga um útlendinga sem leiða til þess að brottvísun og endurkomubann er nú beitt þar sem áður var beitt frávísun en veita skal frest til sjálfviljugrar heimfarar, sbr. 104. gr. laga um útlendinga. Sá sem sætir slíkri ákvörðun getur komist hjá endurkomubanni með því að yfirgefa landið sjálfviljugur innan frestsins sbr. 3. mgr. 101. gr. laga um útlendinga.

8.2 Niðurstaða um brottvísun og endurkomubann

Eins og að framan greinir hefur umsóknum kærenda um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga verið synjað. Hafa þau því ekki frekari heimild til dvalar hér á landi. Af framangreindu leiðir að með hinni kærðu ákvörðun var réttilega bundinn endir á heimild kærenda til dvalar hér á landi og ber því samkvæmt 2. mgr. 98. gr. laga um útlendinga að vísa þeim úr landi nema 102. gr. laganna standi því í vegi. Það athugast að kæra til kærunefndar útlendingamála frestaði réttaráhrifum hinna kærðu ákvarðana.

Kærendum var í viðtali hjá Útlendingastofnun leiðbeint um að til skoðunar væri að brottvísa þeim frá Íslandi og ákvarða þeim endurkomubann hingað til lands. Var kærendum gefið færi á að koma að andmælum hvað það varðar. M kvaðst eiga systkini á Spáni og náinn vin á Íslandi. K kvað föður sinn og föðurfjölskyldu vera búsett á Spáni. Kærendum þætti ósanngjarnt yrði þeim ákveðin brottvísun og endurkomubann á Schengen-svæðið.

Með vísan til framangreindrar umfjöllunar og af þeim svörum sem kærendur gáfu um tengsl sín við Ísland og önnur Schengen-ríki verður ekki séð að brottvísun kærenda og endurkomubann verði talin ósanngjörn ráðstöfun í garð þeirra eða nánustu aðstandenda þeirra, sbr. 3. mgr. 102. gr. laga um útlendinga. Þá horfir kærunefnd jafnframt til þess að kærendur geta komist hjá endurkomubanni og afleiðingum þess yfirgefi þau Ísland innan þess frest sem þeim er gefinn. Geta kærendur þá nýtt sér heimild sína til að koma aftur til aðildarríkja Schengen-samstarfsins, m.a. til að rækta fjölskyldutengsl sín, á grundvelli vegabréfsáritunarfrelsis sem ríkisborgarar Venesúela njóta.

Við meðferð málsins hafa kærendur lagt fram gögn sem bera með sér að þau hafi mögulega heimild til dvalar á Spáni og bendir kærunefnd á að brottvísun og endurkomubann hefur ekki áhrif á slíka heimild sé hún til staðar.

Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum veittur 15 daga frestur til að yfirgefa landið með sjálfviljugri heimför og þannig fá endurkomubannið fellt niður.

Með vísan til 2. mgr. 104. gr. laga um útlendinga teljast 15 dagar hæfilegur frestur í tilviki kærenda til að yfirgefa landið. Endurkomubann kærenda fellur niður yfirgefi þau landið innan framangreinds frests.

9 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar

Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar.

Athygli kærenda er vakin á því að samkvæmt 6. mgr. 104. gr. laga um útlendinga frestar málshöfðun fyrir dómstólum til ógildingar á endanlegri ákvörðun um að útlendingur skuli yfirgefa landið ekki framkvæmd hennar. Að kröfu útlendings getur kærunefnd útlendingamála þó ákveðið að fresta réttaráhrifum endanlegrar ákvörðunar sé talin ástæða til þess. Krafa þess efnis skal gerð ekki síðar en sjö dögum eftir birtingu endanlegrar ákvörðunar. Skal frestun bundin því skilyrði að útlendingur beri málið undir dómstóla innan fimm daga frá birtingu ákvörðunar um frestun réttaráhrifa úrskurðar og óski eftir því að það hljóti flýtimeðferð. Nú er beiðni um flýtimeðferð synjað og skal þá mál höfðað innan sjö daga frá þeirri synjun. Þó getur kærunefnd útlendingamála tekið ákvörðun um að fresta framkvæmd ákvörðunarinnar ef sýnt er fram á að verulega breyttar aðstæður hafi skapast frá því að endanleg ákvörðun var tekin.


Úrskurðarorð:

Ákvarðanir Útlendingastofnunar er staðfestar. Endurkomubann kærenda verður fellt úr gildi fari þau frá Íslandi innan 15 daga.

The decisions of the Directorate of Immigration are affirmed. If the appellants leave Iceland voluntarily within 15 days, their re-entry ban will be revoked.

F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,

Vera Dögg Guðmundsdóttir