16 september 2025
/
Nr. 706/2025 Úrskurður
Hinn 16. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 706/2025
í stjórnsýslumáli nr. KNU24100001
Kæra […]
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 30. september 2024 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 26. september 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.
Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.
Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsmeðferð
Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun sem ferðamaður til Íslands og Schengen-svæðisins 16. september 2024, fyrir níu daga dvöl frá 10. til 18. nóvember 2024. Umsókn kæranda var lögð fram á Indlandi. Kærandi lagði fram viðbótarupplýsingar á kærustigi með tölvubréfum dags. 30. september og 2. október 2024 og 23. apríl, 9. júlí og 22. ágúst 2025.
3 Málsástæður og rök kæranda
Í tölvubréfi frá kæranda, dags. 30. september 2024, gerir kærandi athugasemd við þá niðurstöðu Útlendingastofnunar að hann hafi ekki rík tengsl við heimaríki og tekur fram að hann eigi foreldra þar í landi, fyrirtæki og hús ásamt hlutabréfum í þarlendum fyrirtækjum.
Á kærustigi lagði kærandi fram gögn sem sýni fram á ferðasögu hans, þar á meðal vegabréfsáritanir til ýmissa ríkja utan Schengen-svæðisins. Kærandi lagði auk þess fram afrit af fæðingarvottorði sínu. Kærandi lagði fram útskýringar sínar á sérhverjum tölulið gátlista frá sendiráði Íslands í Nýju-Delí í því skyni að sýna fram á að hann hafi skilað inn öllum umbeðnum gögnum, ásamt rökstuðningi fyrir því að hann hafi sterk tengsl við Indland. Þá lagði kærandi fram bréf þess efnis að hann væri reiðubúinn til að breyta ferðadagsetningum sínum og ferðaáætlun skyldi kærunefnd ekki hafa lokið máli hans tímanlega.
4 Vegabréfsáritun
4.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.
Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.
Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningar reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Loks kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.
Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.
Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.
Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.
4.2 Niðurstaða
Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10, 11 og 13, þ.e. að upplýsingarnar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar hafi ekki verið áreiðanlegar; rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa yfirlýsingar varðandi ferðaáætlun hafi verið áreiðanlegar; og rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa ásetning kæranda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritun rynni út. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að kæranda hafi skort þekkingu á ferðaáætlun í viðtali. Kærandi hafi að auki takmörkuð tengsl við Indland. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.
Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.
Í dagbókarfærslum í málakerfi Útlendingastofnunar sem eru meðal gagna málsins kemur fram að mörgum atriðum hafi verið ábótavant við umsókn kæranda, m.a. að kærandi hafi fengið synjanir á umsóknum um vegabréfsáritanir til Íslands í ágúst 2024, til Sviss í ágúst 2024 og til Hollands í júlí 2024. Í viðtali staðfesti kærandi umræddar synjanir. Auk þess hafi ekki verið unnt að staðfesta með rafrænum hætti rekstrarleyfi fyrirtækis kæranda. Gögn sem sýna fram á tengsl við heimaríki, þ. á m. staðfestingu á atvinnu, eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir og koma fram í 7. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá á Indlandi, þar sem kærandi lagði sína umsókn fram. Umrædd gögn renna stoðum undir tengsl umsækjanda við heimaríki og þar með ásetning hans um að fara af yfirráðasvæði Schengen-ríkjanna. Í tilviki kæranda bar honum að leggja fram rekstrarleyfi fyrirtækis hans. Líkt og fram hefur komið var ekki unnt að staðfesta framlagt rekstarleyfi fyrirtækis kæranda. Úr þeim annmarka hefur ekki verið bætt á kærustigi. Þegar að því sögðu verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.
Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra séu rétt sem og áreiðanleika ásetnings kæranda um að fara frá yfirráðasvæði Schengen-ríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er þannig ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hefur veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.
The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.
Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,
Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður