17 september 2025
/
Frávísun á kæru vegna ákvarðana Matvælastofnunar um sviptingu mjólkurleyfis og beitingu dagsekta
Stjórnsýslukæra
Með bréfi, dags. 9. júlí 2025, bar [X] að [A], fram kæru, annars vegar vegna ákvörðunar Matvælastofnunar um sviptingu mjólkursöluleyfis, dags. 4. apríl 2025, og hins vegar vegna ákvörðunar um beitingu dagsekta, dags. 16. apríl 2025.
Kröfur
Í kæru er þess krafist að ákvörðun Matvælastofnunar um dagsektir verði felld úr gildi. Þá er jafnframt sett fram bótakrafa vegna tjóns sem kærandi telur sig hafa orðið fyrir vegna ákvörðunar um sviptingu mjólkursöluleyfis.
Málsatvik og ágreiningsefni málsins
Kærandi rekur búskap að [A]. Með bréfi, dags. 4. apríl, var honum tilkynnt um að Matvælastofnun hefði ákveðið að svipta hann mjólkursöluleyfi frá og með þeim degi með heimild í 2. mgr. 20. gr. laga nr. 93/1995. Þar sem kærandi hafði ekki brugðist við rafrænum erindum fóru starfsmenn Matvælastofnunar með umrætt bréf til hans þann 7. apríl. Kæranda hafði hins vegar verið tilkynnt um ákvörðunina 4. apríl með smáskilaboðum sem liggja fyrir í málinu, ásamt því sem hringt var í hann og umrætt bréf lesið upp. Þann 10. apríl ákvað Matvælastofnun að veita kæranda mjólkursöluleyfi að nýju. Stóð leyfissvipting því í eina viku.
Þá var kæranda þann 16. apríl tilkynnt að Matvælastofnun hefði ákveðið að leggja á hann dagsektir að upphæð 10.000 kr. á dag. Fyrir mistök fór innheimta á dagsektum hins vegar aldrei fram og hefur Matvælastofnun upplýst ráðuneytið að af þeirra hálfu sé litið svo á að ákvörðun um dagsektir hafi verið afturkölluð á grundvelli 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 („stjórnsýslulög“).
Í kæru eru gerðar ýmsar athugasemdir við málsmeðferð Matvælastofnunar og er byggt á því að brotið hafi verið gegn rannsóknarreglu stjórnsýsluréttarins með því að afturkalla mjólkursöluleyfi búsins án undangenginnar eftirfylgnisskoðunar. Þar sem kærandi hafi sýnt samstarfsvilja hafi íþyngjandi ákvörðun dagsekta verið ónauðsynleg og í andstöðu við meðalhófsreglu 12. gr. stjórnsýslulaga. Í umsögn Matvælastofnunar er því hins vegar hafnað að brotið hafi verið gegn framangreindum reglum stjórnsýslulaga og byggt á því að málsmeðferð stofnunarinnar hafi verið í samræmi við lög. Um ákvörðun dagsekta er þess sem fyrr segir getið í umsögninni að þær hafi verið felldar niður.
Málsmeðferð ráðuneytisins
Með bréfi, dags. 9. júlí 2025, voru framangreindar ákvarðanir Matvælastofnunar kærðar til ráðuneytisins. Umsögn Matvælastofnunar um kæruna barst ráðuneytinu 8. ágúst 2025 en í ljósi niðurstöðu málsins taldi ráðuneytið ekki þörf á að bera hana undir kæranda.
Málið er tekið til úrskurðar á grundvelli fyrirliggjandi gagna.
Forsendur og niðurstaða
Samkvæmt 26. gr. stjórnsýslulaga er aðila máls heimilt að kæra stjórnvaldsákvörðun til æðra stjórnvalds til þess að fá hana fellda úr gildi eða henni breytt nema annað leiði af lögum eða venju. Af þessu leiðir m.a. það skilyrði að mál sé tekið til endurskoðunar af hálfu æðra stjórnvalds, að fyrir hendi sé ákvörðun í skilningi stjórnsýslulaga. Sem fyrr segir hefur kærandi m.a. kært þá ákvörðun Matvælastofnunar að leggja á hann dagsektir. Þær hafa hins vegar ekki verið innheimtar og hefur umrædd ákvörðun samkvæmt gögnum málsins verið afturkölluð. Í ljósi þessa verður ekki séð að fyrir hendi sé ákvörðun sem enn er í gildi og unnt er að kæra á grundvelli 26. gr. stjórnsýslulaga.
Í 1. mgr. 27. gr. stjórnsýslulaga kemur fram að kæra skuli borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um stjórnvaldsákvörðun nema lög mæli á annan veg. Samkvæmt 28. gr. stjórnsýslulaga skal vísa kæru frá hafi hún borist að liðnum kærufresti nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr. ákvæðisins, eða veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. 1. mgr. Fyrir liggur að hin kærða ákvörðun um mjólkurleyfissviptingu var tilkynnt kæranda 4. apríl sl. og var því kærufrestur liðinn þegar erindi kæranda barst ráðuneytinu þann 9. júlí sl. Að mati ráðuneytisins verður hvorki séð að afsakanlegt sé að kæran hafi ekki borist fyrr né að veigamiklar ástæður mæli með því að hún verði tekin til meðferðar.
Í ljósi alls framangreinds verður ekki hjá því komist að vísa kæru þessari frá ráðuneytinu.
Úrskurðarorð
Stjórnsýslukæru [X], dags. 9. júlí 2025, vegna ákvarðana Matvælastofnunar um sviptingu mjólkursöluleyfis, dags. 4. apríl 2025, og beitingu dagsekta, dags. 16. apríl 2025, er hér með vísað frá ráðuneytinu.