18 september 2025

/

Nr. 676/2025 Úrskurður

Hinn 18. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 676/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU25050016

 

Kæra […]

I.          Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 7. maí 2025 kærði […], fd. […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 6. maí 2025, um frávísun frá Íslandi og ógildingu vegabréfsáritunar hans til Íslands, sem gefin var út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025.

Kærandi krefst þess að hinar kærðu ákvarðanir verði felldar úr gildi.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.

Lagagrundvöllur

Í máli þessu koma einkum til skoðunar ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016 ásamt síðari breytingum, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017 ásamt síðari breytingum, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, ákvæði laga um landamæri nr. 136/2022, reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2016/399 um för yfir landamæri (Schengen-landamærareglurnar), stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, auk annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.

II.         Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 9. apríl 2025, óskaði kærandi eftir vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins fyrir sex daga dvöl frá 30. apríl til 5. maí 2025 sem ferðamaður. Umsókn kæranda var lögð fram í Bretlandi. Vegabréfsáritun kæranda var gefin út með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025, með gildistíma frá 30. apríl til 13. júní 2025. Kærandi kom til Íslands 6. maí 2025, með flugi frá London, Bretlandi. Með ákvörðunum Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 6. maí 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt og honum vísað frá landinu.

Ákvörðun um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar byggist á stöðluðu eyðublaði sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í ákvörðun lögreglu í máli kæranda er merkt við reit um ógildingu vegabréfsáritunar (e. annulled). Í eyðublaðinu er aukinheldur hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er ógilt. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar og að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Þar að auki tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda fylgdu ekki viðbótarathugasemdir.

Samhliða framangreindri ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar tók lögregla ákvörðun um frávísun kæranda á grundvelli a- og c-liða 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga. Í athugasemdum við ákvörðun um frávísun kemur fram að kærandi hafi ekki framvísað gögnum til að sýna fram á tilgang dvalar sinnar og að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti.

Fram kemur í skýrslu lögreglu, dags. 8. maí 2025, að kærandi hafi, við komu til landsins 6. maí 2025, verið óljós um tilgang dvalar sinnar í komusal á Keflavíkurflugvelli og að lögregla hafi boðið kæranda til viðtals í viðtalsherbergi. Kærandi hafi verið upplýstur um rétt sinn til að leita aðstoðar lögmanns á eigin kostnað. Kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja á Íslandi í einungis nokkra klukkutíma og ætti flug aftur til London eftir sólarhring þar sem hann væri búsettur. Kærandi hafi átt bókaða eina nótt á tilteknu gistiheimili. Kærandi hafi ekki getað greint almennilega frá því hvað hann hygðist gera hér á landi annað en ganga um borgina og sjá helstu staði. Samkvæmt umsókn hans um vegabréfsáritun hafi kærandi ætlað að ferðast til landsins frá 30. apríl til 5. maí 2025. Þá hafi m.a. verið meðfylgjandi umsókn flugmiði og ferðaáætlun. Við skoðun hafi komið í ljós að kærandi hafi átt bókað flug til og frá Íslandi en þegar leitað var eftir staðfestingu frá flugfélaginu hafi hann aðeins verið skráður í grunnbókunarferlinu en hafði ekki greitt né fullbókað flugið þegar hann hafi aflýst bókuninni 27. apríl 2025. Ferðaáætlun kæranda hafi innihaldið ítarlega dagskrá fyrir fyrirhugaða ferð. Aðspurður hvers vegna kærandi hafi ekki komið til landsins í þá ferð sem til stóð að fara í greindi kærandi frá því að hann hafi ekki fengið leyfi frá atvinnurekanda sínum til að koma fyrr. Kærandi hafi jafnframt greint frá því að vandamál hafi orðið í vinahópi hans. Kærandi hafi aftur verið spurður hvers vegna hann hafi ekki komið í áætlaða ferð og hafi hann greint frá því að Íslandi væri svo langt í burtu frá hinum Schengen-ríkjunum og hann hafi frekar viljað skoða hin ríkin. Kærandi hafi þá greint frá því að vilja helst dvelja í Danmörku sökum þess að bróðir hans byggi þar. Kærandi hafi greint frá því að á skrifstofunni þar sem hann hafi sótt um áritun hafi honum verið greint frá að auðveldast væri að sækja um vegabréfsáritun til Íslands. Félagi hans hafi ætlað að koma til Íslands, hann hafi sjálfur sótt um vegabréfsáritunina 9. apríl 2025, en félagi hans hafi sótt um áritun 4. apríl 2025. Félagi hans hafi komið hingað 27. apríl 2025 og til hafi staðið að koma saman hingað til lands á þeim tíma. Kærandi hafi að öðru leyti ekki getað útskýrt hvers vegna hann hafi ekki komið til landsins ásamt félaga sínum. Kærandi hafi greint frá því að skrifstofan, sem hafi ráðlagt honum að fá íslenska áritun, hafi útbúið ferðaáætlunina fyrir hann. Kærandi hafi greint frá því að vilja ferðast til annarra Schengen-ríkja en hafi ekki verið búinn að bóka ferð þangað né fengið leyfi frá atvinnurekanda sínum. Vegna framangreinds misræmis á ferð kæranda hingað til lands 6. maí 2025 og skipulagðrar ferðar, dags. 30. apríl til 5. maí 2025, samkvæmt umsókn hans um vegabréfsáritun, hafi tilgangur dvalar kæranda verið metinn óljós. Af þeim sökum hafi lögregla tekið ákvörðun um að ógilda ákvörðun um vegabréfsáritun til landsins og að frávísa honum á grundvelli a- og c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga.

Kærandi kærði ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum til kærunefndar útlendingamála 7. maí 2025. Gögn frá lögreglu vegna málsins bárust kærunefnd 5. júní 2025. Kæranda var skipaður talsmaður samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um útlendinga 24. júlí 2025. Greinargerð kæranda barst 7. ágúst 2025, ásamt fylgigagni.

III.       Málsástæður og rök kæranda

Í greinargerð kæranda kemur fram að kærandi sé búsettur í London, Englandi, á grundvelli dvalarleyfis fyrir sérhæft starfsfólk og hafi fengið vegabréfsáritun frá íslenska sendiráðinu í London, með gildistíma frá 30. apríl til 13. júní 2025. Kærandi hafi upphaflega ætlað að koma hingað til lands frá 30. apríl til 6. maí 2025, en vegna óviðráðanlegra aðstæðna hafi kærandi þurft að aflýsa ferðinni.

Kærandi byggir á því að ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga sé með engu móti rökstudd. Kærandi hafnar því að hann hafi aflað áritunarinnar með sviksamlegum hætti. Hann hafi fylgt fyrirmælum til að afla sér áritunar til að heimsækja Ísland og hafi hlotið slíka heimild frá íslenskum yfirvöldum í London. Kærandi telur ljóst að málið hafi ekki verið upplýst enda hafi ákvörðunin aðeins byggt á órökstuddum kenningum Lögreglustjórans á Suðurnesjum. Um verulegan annmarka sé að ræða og rétt að ógilda stjórnvaldsákvörðunina. Þá krefst kærandi þess á grundvelli framangreindra sjónarmiða að ákvörðun lögreglunnar um að ógilda ákvörðun um vegabréfsáritun verði felld úr gildi. Þá komi fram að kærandi hafi ekki getað lagt fram gögn til að réttlæta dvöl sína hér á landi. Í ákvörðun séu ekki tilgreind þau gögn sem kærandi hafi ekki haft undir höndum. Kærandi vísar til þess að hann hafi átt bókað flug frá landinu degi síðar. Kærandi telji ljóst að málið hafi ekki verið fullupplýst enda hafi ákvörðunin aðeins verið byggð á órökstuddum fullyrðingum lögreglunnar. Kærandi telur að um verulegan annmarka sé að ræða á öryggisreglu og því sé rétt að ógilda ákvörðunina þar sem lögregla hafi ekki rannsakað málið í samræmi við 10. gr. stjórnsýslulaga.

Kærandi byggir á því að efnislegur rökstuðningur ákvarðananna og skýrleiki forsendna þeirra sé verulega ábótavant og standist ekki áskilnað 22. gr. stjórnsýslulaga. Hvorki komi fram leiðbeiningar um að fá þær rökstuddar né séu efni og forsendur þeirra nægilega skýrar, enda með engu móti greint frá því á hvaða sjónarmiðum ákvarðanirnar byggist eða hvaða málsatvik hafi haft verulega þýðingu. Eingöngu sé hakað í reiti og tilgreint að tiltekin fylgigögn hafi skort. Kæranda sé þannig ómögulegt að meta réttarstöðu sína og hafi andmæli kæranda ekki haft vægi hjá Lögreglustjóranum á Suðurnesjum. Af gögnum málsins verði ekki séð að kæranda hafi verið leiðbeint um að leggja fram frekari gögn eða skýringar sem gætu sýnt fram á tilgang dvalar. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar nr. 708/2024 frá 18. júlí 2024 og 462/2024 frá 8. maí 2024 og telur að málin séu sambærileg sínu máli.

Kærandi byggir á því að ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um ógildingu vegabréfsáritunar sé í andstöðu við lögmætisregluna. Einungis Útlendingastofnun, þó með þeim heimildum sem komi fram í 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, sé bær um að taka slíka ákvörðun. Kærandi bendir á að þótt lögreglan hafi heimild til afturköllunar og ógildingar ferðaheimildar, eins og hugtakið sé skilgreint í 1. tölul. 3. gr. laga nr. 136/2022 um landamæri, sbr. 1. mgr. 22. gr. sömu laga, sé hvergi í þeim lögum kveðið á um heimild lögreglu til að ógilda vegabréfsáritun sem hafi verið gefin út til útlendings sem sé áritunarskyldur. Um sé að ræða íþyngjandi ákvörðun gagnvart kæranda sem sé í andstöðu við lög. Kærandi telur að með hliðsjón af framangreindum staðreyndum skorti ákvörðun lögreglunnar um ógildingu vegabréfsáritunar lagastoð og sé ólögmæt. Af þeim sökum beri að fella ákvörðunina úr gildi.

IV.        Niðurstaða kærunefndar útlendingamála

Ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar

Líkt og að framan greinir fékk kærandi útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar hinn 10. apríl 2025, með gildistíma frá 30. apríl til 13. júní 2025. Með ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum, dags. 6. maí 2025, var vegabréfsáritun kæranda ógilt. Í stöðluðu ákvörðunareyðublaði til að tilkynna um og rökstyðja synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar, sbr. viðauki 6 í reglugerð um vegabréfsáritun, er hægt að merkja í reiti um synjun, ógildingu eða afturköllun vegabréfsáritunar. Í ákvörðun í máli kæranda er líkt og áður segir merkt í reit um ógildingu og til skýringar merkt í reiti 10 og 12 þess efnis að upplýsingar sem veittar voru um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Í ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar eru ekki viðbótarathugasemdir en í ákvörðun um frávísun, sem tekin var samhliða, kemur fram að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar sinnar og að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað í sviksamlegum tilgangi.

Ákvæði 20. gr. laga um útlendinga og reglugerðar um vegabréfsáritanir fela í sér innleiðingu reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (EB) nr. 810/2009 um Bandalagsreglur um vegabréfsáritanir en um það vísast einnig til frekari skuldbindinga íslenska ríkisins á sviði Schengen-samstarfsins. Reglugerð um vegabréfsáritanir er sett með stoð í 8. mgr. 20. gr. laga um útlendinga, en þar kemur fram að ráðherra setji reglur um vegabréfsáritanir, þar á meðal um skilyrði fyrir að veita þær. Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga um útlendinga er lögregla meðal valdbærra stjórnvalda til þess að taka ákvarðanir á grundvelli laga um útlendinga og afleiddra réttarheimilda. Embætti Lögreglustjórans á Suðurnesjum fer með eftirlit með einstaklingum um för yfir ytri landamæri og er lögbært yfirvald til að ógilda eða afturkalla vegabréfsáritun samkvæmt 9. mgr. 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Að auki tekur lögregla ákvarðanir um landgöngu einstaklinga, sbr. 1. mgr. 106. gr. a. laga um útlendinga, en í a-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er m.a. tekið fram að heimilt sé að frávísa einstaklingum sem ekki fullnægja reglum sem settar eru um vegabréfsáritanir. Samkvæmt framangreindu var lögregla valdbær til þess að taka ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda og er málsástæðu kæranda um skort á lagastoð hafnað.

Ákvörðun lögreglu um ógildingu vegabréfsáritunar kæranda byggir á 35. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir en samkvæmt 1. mgr. ákvæðisins skal ógilda vegabréfsáritun ef í ljós kemur að skilyrði fyrir útgáfu hennar voru ekki uppfyllt þegar hún var gefin út, einkum ef rík ástæða er til að ætla að vegabréfsáritunin sé fengin með sviksamlegum hætti. Vegabréfsáritun skal að jafnaði ógilt af lögbærum yfirvöldum aðildarríkisins sem gaf hana út. Lögbærum yfirvöldum annars aðildarríkis er heimilt að ógilda vegabréfsáritun og skal þá yfirvöldum aðildarríkisins, sem gaf út vegabréfsáritunina, tilkynnt um ógildingu hennar. Líkt og að framan greinir lagði lögregla til grundvallar að upplýsingar um tilgang og skilyrði fyrirhugaðrar dvalar væru ekki áreiðanlegar auk þess sem að rökstudd ástæða væri til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra.

Meðal fylgigagna málsins er umsókn kæranda um vegabréfsáritun, dags. 9. apríl 2025, þar sem fram kemur að kærandi hafi ætlað að dvelja á Íslandi í sex daga á tímabilinu 30. apríl til 5. maí 025. Því til stuðnings hafi kærandi lagt fram fylgigögn á borð við skipulagða ferðaáætlun og bókanir fyrir flugi og gistingu. Á grundvelli forsendna sem kærandi bar fyrir sig hafi hann fengið útgefna vegabréfsáritun. Við komu til Íslands hafi þær forsendur þó ekki staðist. Hjá lögreglu bar kærandi fyrir sig að hafa ekki fengið leyfi frá atvinnu sinni til að koma til landsins í fyrirhugaða ferð. Þá greindi kærandi frá því að hafa lagt fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands til þess að geta ferðast til annarra ríkja innan Schengen-svæðisins en ferðaskrifstofa hafi ráðlagt honum að gera það. Samkvæmt framansögðu var framburður kæranda misvísandi og byggðist framlagning gagna hjá utanríkisþjónustunni á röngum forsendum. Samkvæmt framangreindu hafi upplýsingar um tilgang og skilyrði ferðar kæranda ekki verið áreiðanlegar auk þess sem rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, sbr. til hliðsjónar ii-lið a-liðar og b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Af framangreindu leiðir að útgáfa áritunar til handa kæranda hafi byggst á röngum forsendum og voru skilyrði fyrir útgáfu hennar því ekki uppfyllt þegar hún var gefin út. Var lögreglu því heimilt að ógilda vegabréfsáritun kæranda 6. maí 2025 og er sú ákvörðun staðfest.

Ákvörðun um frávísun

Samkvæmt 1. mgr. 49. gr. laga um útlendinga er útlendingi sem þarf vegabréfsáritun til landgöngu óheimilt að dveljast hér á landi lengur en áritunin segir til um nema sérstakt leyfi komi til. Kærandi er ríkisborgari Indlands og fékk útgefna vegabréfsáritun með ákvörðun utanríkisþjónustunnar, dags. 10. apríl 2025.

Ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum um frávísun kæranda, dags. 6. maí 2025, byggir á a- og c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga, sbr. reglugerð um för yfir landamæri nr. 866/2017. Samkvæmt 1. mgr. 106. gr. a laga um útlendinga tekur lögreglustjóri ákvörðun um frávísun við komu til landsins samkvæmt 1. mgr. 106. gr. laganna. Útlendingastofnun tekur ákvörðun um frávísun eftir komu til landsins og aðrar ákvarðanir samkvæmt XII. kafla laganna.

Í 106. gr. laga um útlendinga er kveðið á um frávísun við komu til landsins. Samkvæmt a-lið 1. mgr. ákvæðisins er m.a. heimilt að vísa útlendingi frá landi við komu til landsins eða allt að sjö sólarhringum frá komu ef hann fullnægir ekki reglum sem settar eru um vegabréf, vegabréfsáritun, ferðaheimild eða komu til landsins. Líkt og þegar hefur verið rakið tók Lögreglustjórinn á Suðurnesjum ákvörðun um að ógilda vegabréfsáritun kæranda og hefur sú ákvörðun verið staðfest af kærunefnd. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli a-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Samkvæmt c-lið 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga er heimilt að frávísa útlendingi við komu til landsins þegar hann hefur ekki tilskilið leyfi til dvalar eða vinnu eða getur ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn er upp fyrir dvölinni, sbr. c-lið ákvæðisins. Í greinargerð með frumvarpi því sem varð að gildandi lögum um útlendinga segir m.a. að ákvæði c-liðar mæli fyrir um að heimilt sé að vísa útlendingi frá landi ef hann geti ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem gefinn sé upp fyrir dvölinni. Sé ákvæðið efnislega samhljóða c-lið 1. mgr. 5. gr. reglugerðar (EB) nr. 562/2006 um för fólks yfir landamæri (Schengen landamærareglurnar). Þá er í greinargerðinni vísað til 5. gr. reglugerðar um för yfir landamæri nr. 866/2017.

Með reglugerð nr. 866/2017 um för yfir landamæri voru innleidd ákvæði reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 2016/399 um setningu sambandsreglna um för fólks yfir landamæri (e. Schengen Borders Code) og tók reglugerðin við af áðurnefndri reglugerð nr. 562/2006. Í 5. gr. reglugerðar nr. 866/2017 er mælt fyrir um skilyrði fyrir komu útlendinga til landsins sem hvorki eru EES- né EFTA borgarar. Kemur þar fram að útlendingur sem hvorki er EES- né EFTA-borgari, sem hyggst dvelja á Schengen-svæðinu, þ.m.t. Íslandi, í allt að 90 daga á 180 daga tímabili verði, auk þeirra skilyrða sem koma fram í 106. gr. laga um útlendinga, að uppfylla þau skilyrði sem fram koma í a-e-liðum ákvæðisins. Eru skilyrðin eftirfarandi: Að framvísa gildum, lögmætum og ófölsuðum ferðaskilríkjum eða öðru kennivottorði sem heimilar honum för yfir landamæri, sbr. viðauka 3. Ferðaskilríki skal vera gefið út á sl. 10 árum til þess að það teljist gilt og gildistími ferðaskilríkis vera í a.m.k. þrjá mánuði umfram brottfarardag, sbr. a-lið. Hafa gilda vegabréfsáritun sé hann ekki undanþeginn áritunarskyldu, nema hann hafi gilt dvalarleyfi eða gilda vegabréfsáritun til langs tíma, sbr. viðeigandi viðauka í reglugerð um vegabréfsáritanir, sbr. b-lið. Má ekki vera skráður í Schengen-upplýsingakerfið í þeim tilgangi að meina honum komu til landsins, sbr. c-lið. Má ekki vera talinn ógna þjóðaröryggi, allsherjarreglu, almannaheilsu eða alþjóðasamskiptum ríkisins eða annars Schengen-ríkis, sbr. d-lið. Loks þarf viðkomandi að geta fært rök fyrir tilgangi og skilyrðum fyrirhugaðrar dvalar, og hafa nægt fé sér til framfærslu, á meðan dvöl stendur og vegna ferðar til upprunalands eða gegnumferðar til þriðja lands, eða vera í aðstöðu til að útvega sér slíkt fé á lögmætan hátt, sbr. e-lið.

Til sönnunar á að framangreindum skilyrðum 5. gr. reglugerðarinnar fyrir komu sé fullnægt sé landamæraverði m.a. heimilt að krefja útlending samkvæmt 1. mgr. um eftirfarandi gögn vegna ferðalaga af persónulegum ástæðum: Gögn sem sýna fram á tryggt húsnæði, t.d. boðsbréf frá gestgjafa eða önnur gögn sem sýna fram á hvar viðkomandi hyggst búa, gögn sem staðfesta ferðaáætlun, staðfesting bókunar á skipulagðri ferð eða önnur gögn sem varpa ljósi á fyrirhugaða ferðaáætlun og gögn varðandi heimferð, s.s. farmiða. Í ákvörðun lögreglunnar um frávísun á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga kemur fram að kærandi hafi ekki lagt fram gögn sem sýna fram á tilgang dvalar hans og að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Í skýrslu lögreglu kemur fram að kærandi hafi greint frá því að ætla að dvelja á landinu í einungis nokkra klukkutíma og ætti flug aftur til London eftir sólarhring. Kærandi hafi átt bókaða ein nótt á tilteknu gistiheimili. Kærandi hafi ekki getað greint almennilega frá því hvað hann hygðist gera hér á landi annað en ganga um borgina og sjá helstu staði.

Samkvæmt umsókn kæranda um vegabréfsáritun hafi hann ætlað að ferðast til landsins frá 30. apríl til 5. maí 2025. Flugmiði og ferðaáætlun hafi fylgt með umsókn en við frekari skoðun hafi komið í ljós að kærandi hafi aðeins verið skráður í grunnbókunarferlinu en hafði hvorki greitt né fullbókað flug hingað til lands, líkt og framlögð gögn báru með sér, þegar hann hafi aflýst ferlinu 27. apríl 2025. Ferðaáætlun kæranda hafi innihaldið ítarlega dagskrá fyrir fyrirhugaða ferð. Kærandi hafi greint frá því að hann hafi ekki fengið leyfi frá atvinnurekanda sínum til að koma á fyrirhuguðum tíma. Kærandi hafi greint frá því að á skrifstofunni þar sem hann hafi sótt um áritun hafi honum verið greint frá að auðveldast væri að sækja um vegabréfsáritun til Íslands af öllum ríkjum Schengen-samstarfsins. Kærandi hafi greint frá því að skrifstofan, sem hafi ráðlagt honum að fá íslenska áritun, hafi útbúið ferðaáætlunina fyrir hann. Kærandi hafi greint frá því að vilja ferðast til annarra Schengen-ríkja en hafi hvorki verið búinn að bóka ferð þangað né fengið leyfi frá atvinnurekanda sínum.

Með vísan til framangreinds misræmis á fyrirhugaðri ferð kæranda hingað til lands, dags. 30. apríl til 5. maí 2025 og ferðar hans til landsins 6. mars 2025 auk framburðar kæranda um að hafa einungis sótt um vegabréfsáritun til Íslands til að ferðast til annarra Schengen-ríkja hefur kærandi ekki fært rök fyrir tilgangi fyrirhugaðrar dvalar hér á landi. Kærandi hefur því ekki leitt líkur að þeim tilgangi sem hann gaf upp fyrir dvölinni. Voru skilyrði til frávísunar á grundvelli c-liðar 1. mgr. 106. gr. laga um útlendinga því uppfyllt.

Kærandi vísar til þess að málsmeðferð og ákvarðanir lögreglunnar hafi brotið gegn 10. gr. stjórnsýslulaga. Með vísan til framangreinds er ljóst að kærandi fékk tækifæri til að gera grein fyrir ferðalagi sínu hjá lögreglu þar sem hann var jafnframt inntur eftir upplýsingum og gögnum um ferðatilhögun sína. Í ljósi þess er ekki tilefni til að gera athugasemdir við málsmeðferð lögreglunnar. Með tilliti til framangreinds og að öðru leyti er ekki ástæða til þess að gera athugasemdir við framangreind atriði í málsmeðferð lögreglunnar í máli kæranda.

Að öllu framangreindu virtu er hin kærða ákvörðun um frávísun kæranda staðfest.

Athugasemdir kærunefndar við störf lögreglu

Kærandi telur að ákvörðun lögreglu um frávísun sé ógildanleg þar sem hún sé ekki nægilega rökstudd. Kærandi vísar til úrskurða kærunefndar nr. 708/2024 frá 18. júlí 2024 og 462/2024 frá 8. maí 2024. Í framangreindum málum lágu ekki fyrir viðbótarathugasemdir í ákvörðunum lögreglunnar um frávísun. Í máli kæranda koma fram viðbótarathugasemdir í hinni kærðu ákvörðun um að kærandi hafi ekki sýnt fram á tilgang dvalar og að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Verður ekki talið að framangreind mál séu sambærileg máli kæranda.

Hinar kærðu ákvarðanir um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar fjalla um réttindi og skyldur kæranda í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga. Í hinum kærðu ákvörðunum er ekki að finna frekari rökstuðning fyrir töku þeirra annan en að hakað er við á hvaða synjunar- og afturköllunarástæðu er byggt í stöðluðum ákvarðanaeyðublöðum. Að öðru leyti kom ekki fram hvaða atvik er vörðuðu kæranda hefðu leitt til þeirra niðurstaðna eða þau meginsjónarmið sem voru ráðandi við töku ákvarðananna að undanskildum þeim athugasemdum um að kærandi hafi ekki getað sýnt fram á tilgang dvalar og að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Verður því að líta svo á að með hinum kærðu ákvörðunum hafi ekki fylgt rökstuðningur í skilningi 22. gr. stjórnsýslulaga. Bar því að leiðbeina kæranda um þá heimild sína samkvæmt 21. gr. stjórnsýslulaga að fá slíkan rökstuðning eftir á. Í hinum kærðu ákvörðunum var ekki fyrir að finna slíkar leiðbeiningar. Að þessu leyti voru hinar kærðu ákvarðanir ekki í samræmi við 2. mgr. 20. gr. stjórnsýslulaga. Framangreindur annmarki hefur þó ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

Í viðbótarathugasemdum í ákvörðun um frávísun í máli kæranda kemur m.a. fram að grunur væri um að vegabréfsáritunar hafi verið aflað með sviksamlegum hætti. Ljóst er að ákvarðanir lögreglunnar um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar eru aðskildar ákvarðanir sem eru hvorar um sig kæranlegar til kærunefndar. Framangreind athugasemd lýtur að ákvörðun um ógildingu vegabréfsáritunar og hefði verið rétt að hún kæmi fram á eyðublaði um ógildingu vegabréfsáritunar. Því er beint til lögreglunnar að gæta þess að viðbótarathugasemdir sem koma fram í ákvörðun um frávísun og ógildingu vegabréfsáritunar lúti einvörðungu að efni ákvörðunarinnar.

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvarðanir Lögreglustjórans á Suðurnesjum eru staðfestar.

The decisions of the Police Commissioner of Suðurnes District are affirmed.

 

Valgerður María Sigurðardóttir                               Vera Dögg Guðmundsdóttir