24 september 2025

/

Mál nr. 421/2025-Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 421/2025

Miðvikudaginn 24. september 2025

A

gegn

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun

Ú R S K U R Ð U R 

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með kæru, dags. 2. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júlí 2025, um að synja umsókn hans um húsnæðisbætur.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans um húsnæðisbætur hefði verið hafnað þar sem fleiri heimilismenn væru með skráð lögheimili í leiguhúsnæðinu en kæmi fram í umsókn hans.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. júlí 2025. Með bréfi, dags. 3. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt gögnum málsins. Svar barst frá stofnuninni 7. júlí 2025 þar sem fram kom að stofnunin hefði farið yfir mál kæranda í kjölfar erindis úrskurðarnefndarinnar. Í ljósi nýrra upplýsinga hafi stofnunin afturkallað hina kærðu ákvörðun í samræmi við 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og tekið nýja ívilnandi ákvörðun. Með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. júlí 2025, var óskað eftir afstöðu kæranda til svars Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Sú beiðni var ítrekuð með erindi 26. ágúst 2025. Svar barst ekki.

II.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 2. júlí 2025, um að synja umsókn kæranda um húsnæðisbætur með vísan til þess að fleiri heimilismenn væru með skráð lögheimili í leiguhúsnæðinu en kæmi fram í umsókn hans. Í kjölfar kærunnar fór Húsnæðis- og mannvirkjastofnun yfir mál kæranda og tilkynnti úrskurðarnefnd velferðarmál að hin kærða ákvörðun hefði verið afturkölluð, sbr. 25. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 og ný ívilnandi ákvörðun tekin í máli kæranda. Óskað var eftir afstöðu kæranda til þeirra upplýsinga en svar barst ekki.

Hlutverk úrskurðarnefndar velferðarmála er að úrskurða í kærumálum vegna stjórnvaldsákvarðana eftir því sem mælt er fyrir um í lögum sem kveða á um málskot til nefndarinnar, sbr. 1. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 75/2016 um húsnæðisbætur er heimilt að kæra ákvarðanir Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar sem teknar eru á grundvelli laganna til úrskurðarnefndar innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun.

Af framangreindu er ljóst að úrskurðarvald nefndarinnar er afmarkað við að fjalla um réttmæti tiltekinnar ákvörðunar eða ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 75/2016. Í ljósi þess að hin kærða ákvörðun um synjun á umsókn kæranda um húsnæðisbætur var afturkölluð og framangreinds hlutverks úrskurðarnefndarinnar er það mat nefndarinnar að lögvarðir hagsmunir kæranda af efnislegri úrlausn málsins séu ekki lengur til staðar. Kærunni er því vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.      


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir