24 september 2025
/
Mál nr. 486/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 486/2025
Miðvikudaginn 24. september 2025
A
gegn
Tryggingastofnun ríkisins
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.
Með kæru, móttekinni 12. ágúst 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2025, var umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri synjað á þeim grundvelli að endurhæfingaráætlun teldist ekki nógu ítarleg í ljósi heildarvanda kæranda og óljóst væri hvernig endurhæfing kæmi til með að stuðla að endurkomu á vinnumarkað, enda virtist virk endurhæfing þar sem tekið væri á heilsuvanda vart vera hafin. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun ríkisins með bréfi, dags. 18. ágúst 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri frá 1. júlí til 30. september 2025.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. ágúst 2025. Með bréfi, dags. 14. ágúst 2025, var óskað eftir greinargerð frá Tryggingastofnun ríkisins ásamt gögnum málsins. Með greinargerð, dags. 18. ágúst 2025, óskaði Tryggingastofnun eftir því að kæru yrði vísað frá með þeim rökstuðningi að ný ákvörðun hefði verið tekin í máli kæranda. Úrskurðarnefndin óskaði eftir afstöðu kæranda til greinargerðar Tryggingastofnunar með bréfi, dags. 20. ágúst 2025 sem var ítrekað 10. september 2025. Engin svör bárust frá kæranda.
II. Sjónarmið kæranda
Með kæru fylgdi ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2025, þar sem fram kemur að umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri hafi verið synjað.
III. Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins
Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að við endurskoðun málsins hafi verið ákveðið að framlengja endurhæfingartímabil kæranda um þrjá mánuði frá þeim degi sem fyrra tímabili hafi lokið. Þar sem ný ákvörðun hafi verið tekin í málinu telji Tryggingastofnun að ekki sé til staðar ágreiningur vegna fyrri ákvörðunar. Stofnunin fari því fram á að málinu verði vísað frá.
IV. Niðurstaða
Kærumál þetta varðaði upphaflega ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 15. júlí 2025, um að synja umsókn kæranda um endurhæfingarlífeyri. Í kjölfar kæru samþykkti Tryggingastofnun með bréfi, dags. 18. ágúst 2025, að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri frá 1. júlí 2025 til 30. september 2025. Með bréfi, dags. 18. ágúst 2025, sem var ítrekað 10. september 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir afstöðu kæranda til nýrrar ákvörðunar stofnunarinnar en engin svör bárust frá kæranda.
Úrskurðarnefnd velferðarmála kveður upp úrskurði um ágreiningsefni vegna ákvarðana sem teknar eru á grundvelli laga nr. 100/2007 um almannatryggingar, sbr. 1. mgr. 13. gr. laganna. Samkvæmt 14. gr. laga nr. 99/2007 um félagslega aðstoð gilda ákvæði laga um almannatryggingar um bætur félagslegrar aðstoðar eftir því sem við á, m.a. um kærurétt til úrskurðarnefndar velferðarmála og um hækkun bóta. Af gögnum málsins verður ekki ráðið að ágreiningur sé til staðar á milli kæranda og Tryggingastofnunar ríkisins. Stofnunin hefur fallist á að greiða kæranda endurhæfingarlífeyri vegna tímabilsins 1. júlí 2025 til 30. september 2025. Þar sem enginn ágreiningur er til staðar í máli þessu er kæru vísað frá úrskurðarnefndinni.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Rakel Þorsteinsdóttir