25 september 2025
/
Mál nr. 23/2025-Úrskurður
Mál nr. 23/2025
Úrskurður kærunefndar jafnréttismála
A
gegn
Háskóla Íslands
Beiðni um endurupptöku máls. Hafnað.
Kærandi í máli nr. 31/2024, sem lauk með úrskurði nefndarinnar hinn 25. sept. 2025, óskaði eftir endurupptöku málsins. Endurupptöku hafnað þar sem hvorki lágu fyrir nýjar upplýsingar né að úrskurður væri byggður á ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik. Beiðni hafnað.
- Á fundi kærunefndar jafnréttismála í dag, fimmtudaginn 9. okt., er tekið fyrir erindi A, sem barst nefndinni með tölvubréfi 6. okt. sl. Í erindinu, sem varðar úrskurð kærunefndar í máli nr. 31/2024 frá 25. september sl., leitar A eftir svörum við því, að því er virðist, hvort nefndin hafi í hyggju að breyta eða lagfæra úrskurðinn með tilliti til sjónarmiða sem A setur fram í erindinu. Þar koma fram athugasemdir sem lúta að doktorsnámi A við HÍ og vakin athygli á kynjaskiptingu innan umræddrar deildar kærða, sem hafi falið í sér lögbrot í yfir 100 ár. A ítrekar að hún uni ekki úrskurði nefndarinnar.
- Kærunefnd jafnréttismála telur rétt að líta á erindi þetta sem beiðni um endurupptöku málsins, sbr. ákvæði 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993, sbr. 14. gr. reglugerðar um kærunefnd jafnréttismála nr. 1320/2024. Samkvæmt 1. tl. 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga er endurupptaka stjórnvaldsákvörðunar að beiðni aðila heimil hafi ákvörðun byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik. Ekki verður séð að athugasemdir sem fram koma í erindi A teljist til nýrra upplýsinga eða að úrskurðurinn hafi að öðru leyti byggst á ófullnægjandi upplýsingum um málsatvik. Þau sjónarmið A sem hún vísar til í erindinu lágu fyrir við fyrri meðferð málsins hjá nefndinni. Teljast því ekki lagaleg skilyrði til að endurupptaka úrskurð nefndarinnar frá 25. september sl.
Ú r s k u r ð a r o r ð
Beiðni um endurupptöku úrskurðar í máli nr. 31/2024 er hafnað.
Andri Árnason
Maren Albertsdóttir
Anna Mjöll Karlsdóttir