30 september 2025
/
Úrskurður nr. 758/2025
Hinn 30. september 2025 er kveðinn upp svohljóðandi
úrskurður nr. 758/2025
í stjórnsýslumálum nr. KNU24030166, KNU24030168 og KNU24030169
Kærur [...], [...] og barns
1 Kröfur, kærufrestir og kæruheimild
Hinn 26. mars 2024 kærðu [...], fd. [...] (hér eftir M), [...], fd. [...] (hér eftir K) og [...], fd. [...] (hér eftir A), ríkisborgarar Venesúela, ákvarðanir Útlendingastofnunar, dags. 25. mars 2024, um að synja þeim og barni M og K, [...], fd. [...] (hér eftir B), ríkisborgari Venesúela, um alþjóðlega vernd á Íslandi ásamt því að synja þeim um dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016.
Samkvæmt 6. mgr. 8. gr. laga um útlendinga skal kærunefnd meta að nýju alla þætti kærumáls og getur ýmist staðfest ákvörðun, breytt henni eða hrundið að nokkru eða öllu leyti. Þá getur nefndin einnig vísað máli til meðferðar að nýju hjá þeirri stofnun sem tók hina kærðu ákvörðun. Við meðferð kæru þessarar fer fram endurskoðun á ákvörðunum Útlendingastofnunar sem m.a. felur í sér sjálfstætt efnislegt mat á því hvort kærendur eigi rétt á veitingu alþjóðlegrar verndar á grundvelli 1. eða 2. mgr. 37. gr. laganna, hvort skilyrði séu fyrir veitingu dvalarleyfis á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt 74. gr. laganna og hvort skilyrði fyrir brottvísun séu uppfyllt ef svo á við. Auk þess fer fram skoðun á því hvort formreglum laga um útlendinga og stjórnsýslulaga nr. 37/1993 hafi verið fullnægt. Kröfur í máli þessu eru í samræmi við framangreint.
Kæruheimild er í 7. gr. laga um útlendinga og barst kæran fyrir lok kærufrests.
2 Málsatvik
Samkvæmt lögregluskýrslu komu kærendur til landsins frá Venesúela og lögðu fram umsóknir um alþjóðlega vernd fyrir sig og barn M og K 14. febrúar 2023. Kváðust kærendur sækja um alþjóðleg vernd vegna þess að heimaríki þeirra væri undir stjórn einræðisherra. Þau hafi komið sem fjölskylda og fjármagnað farmiðana sjálf. Kærendur kváðust öll vera við góða heilsu.
M og K komu til viðtals hjá Útlendingastofnun 14. september 2023 ásamt löglærðum talsmanni sínum og greindu frá ástæðum flótta síns. M og K kváðust vera fædd og uppalin í Maracaibo Zulia fyki í Venesúela þar sem þau hafi búið í eigin húsnæði áður en þau hafi flúið heimaríki ásamt A og B. Þau hafi búið í eigin húsnæði í heimaríki sem standi nú tómt. M kvaðst hafa starfað sem lögreglumaður hjá CPEZ/CpeBez og K kvaðst hafa sinnt skrifstofustörfum á skrifstofu mannauðstjóra hjá CICPC. Þau hafi einnig verið með verslun í verslunarmiðstöð. Kváðust M og K hafa getað framfleytt sér með launum úr framangreindum störfum. B hafi gengið í einkarekinn skóla. Kærendur kváðust ekki hafa þegið aðstoð frá stjórnvöldum eða frá mannúðar- eða hjálparsamtökum. Þá kváðust þau vera við góða líkamlega heilsu. M kvaðst líða vel andlega hér á landi. K kvaðst stundum vera þunglynd og gráti á nóttunni. Þau kváðust ekki hafa þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í heimaríki og taki ekki lyf að staðaldri. M kvaðst hafa þurft að leita til almenna heilbrigðiskerfisins í heimaríki fyrir börn sín, sem hafi verið þeim að kostnaðarlausu. B hafi farið til tannlæknis hér á landi og teknar hafi verið úr henni tennur. M og K kváðust ekki tilheyra sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahópi í heimaríki. Þá kváðust þau ekki vera virk í þágu tiltekins málstaðar né vera aðilar að stjórnmálaflokki í heimaríki. M kvaðst vera kaþólskrar trúar og K kvaðst aðhyllast kristna trú.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur hafa flúið heimaríki vegna þess að 23. janúar 2023 hafi K borist skilaboð þar sem þeim hafi verið hótað og þau krafin um tiltekna peningaupphæð annars yrðu þau og barnið B tekin af lífi. M og K hafi lagt fram kæru til CICPC sem hafi tekið skýrslu af kærendum og tekið síma K til rannsóknar. Rannsókn á síma K hafi leitt í ljós að nafngreindur glæpamaður (hér eftir X) hafi staðið að framangreindum hótunum og fjárkúgun. X væri leiðtogi þekkts glæpahóps í Venesúela sem stundi fjárkúganir og hótanir. Hafi kærendur orðið óttaslegin og K fengið kvíða í kjölfarið. K Kvað lögregluna í Venesúela vera spillta og oft með tengsl við glæpahópa. K hafi óttast að samstarfsfólk hennar myndi gefa X upplýsingar um hana og fjölskyldu hennar. Vegna ótta um öryggi sitt hafi M og K farið í veikindaleyfi frá störfum til þess að vera heima með fjölskyldunni. Þau hafi lokað versluninni og A sem hafi starfað þar hafi hætt að mæta. Þá hafi B hætt að mæta í skólann. Hinn 30. janúar 2023 hafi verið gerð skotárás á heimili kærenda. M og K hafi vaknað við skothvelli dynja á heimili þeirra. Þau hafi farið inn á baðherbergi til að fela sig og beðið eftir að skotárásin væri yfirstaðin. Þau hafi svo farið inn í herbergi A og B til að athuga hvort það væri í lagi með þau. Kærendur hafi farið út og séð að skotið hafi verið á bíl þeirra, stofu, eldhús og herbergi. Nágranni kærenda hafi tjáð þeim að hann hafi heyrt ótilgreinda menn hrópa að þeir hafi gert þetta vegna þess að M og K hafi ekki greitt þeim umbeðna fjárhæð og hafi svo heyrt í mótorhjól keyra á brott. Eftir þetta hafi K borist fleiri skilaboð frá X um að gerð hafi verið skotárás á heimili hennar vegna þess að hún hafi ekki greitt umbeðna peningaupphæð og að fjölskylda hennar yrði tekin af lífi ef hún hefði ekki samband. Þá hafi henni verið sendar myndir af vopnum og af manni sem hafi verið skorinn á háls, auk texta um að slíkt kæmi fyrir þá sem greiði ekki. M og K hafi verið óttaslegin og daginn eftir lagt fram kæru til lögreglunnar sem hafi komið heim til þeirra og tekið skýrslu og rannsakað atvikið. Kærendur hafi yfirgefið heimili sitt eftir atvikið og flutt til móður K. Foreldrar K hafi haft áhyggjur og óttast að einhver kæmi og tæki þau af lífi. M og K hafi í kjölfarið flúið til Íslands til að tryggja öryggi sitt.
A kom til viðtals hjá Útlendingastofnun 18. september 2023, ásamt löglærðum talsmanni sínum. A greindi m.a. frá því að vera fæddur og uppalinn í Maracaibo Zulia fyki í Venesúela þar sem hann hafi búið í húsnæði M og K áður en hann flúði með þeim ásamt systur sinni. A kvaðst hafa verið í launuðu starfi í verslun í eigu M og K og séð um rekstur verslunarinnar. Hann hafi tæplega geta framfleytt sér en fengið aðstoð frá M og K. A kvaðst vera við góða líkamlega heilsu og liða vel hér á landi. Þá kvaðst hann ekki hafa þurft að leita til heilbrigðiskerfisins í Venesúela og taki ekki lyf að staðaldri. Hann tilheyri ekki sérstöku þjóðarbroti né minnihlutahópi og hafi ekki verið virkur í þágu tiltekins málstaðar né vera aðili að stjórnmálaflokki í heimaríki. A kvaðst aðhyllast kristna trú. Um ástæðu flóttans frá heimaríki var frásögn A sambærileg framburði M og K í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun. Greindi A frá því að hann hafi orðið kvíðinn og þunglyndur eftir að skotárásina. Aðspurður hvort hann hafi sjálfur fengið hótanir, kvað hann foreldra sína hafa sagt honum frá hótununum. Aðspurður hvort framangreindar hótanir hafi beinst að honum persónulega, kvað hann þær hafa beinst að öllum í fjölskyldunni. Þá greindi hann frá því að hann hafi séð hótanirnar og að foreldrar hans hafi þrisvar eða fjórum sinnum borist hótanir sem hafa verið úr mismunandi símanúmerum og að það væru margir sem starfi fyrir X. Hann hafi hætt að fara út úr húsi eftir að fyrstu hótanirnar hafi borist móður hans. Aðspurður hvenær fjölskyldu hans hafi borist síðustu hótanirnar, kvaðst hann ekki vita það en að 30. janúar 2023 hafi móðir hans fengið myndir af manni sem búið væri að skera á háls ásamt hótun en foreldrar hans hafi forðast að tjá sig mikið um hótanirnar við hann. Þá kvaðst A ekki vera með upplýsingar um það hvort aðrir í fjölskyldunni hafi verið áreitt eftir að þau hafi yfirgefið heimaríki. Fyrir utan framangreint atvik hafi ekkert slæmt komið fyrir hann í heimaríki. Hann teldi að hann yrði áfram í hættu yrði honum gert að snúa aftur til heimaríkis þar sem þau hafi flúið án þess að borga framangreinda upphæð. Þá taldi hann sig ekki geta búið annars staðar í heimaríki og verið öruggur, þar sem X væri með tengingar víðs vegar í Venesúela. Þá kvaðst hann óttast um líf sitt vegna þess að X væri frægur glæpamaður í Venesúela og hann væri þekktur fyrir að drepa þá sem greiði ekki umbeðnar fjárhæðir. Hann hafi flúið heimaríki til að forðast ofbeldi og tryggja öryggi sitt og systur sinnar. Aðspurður kvaðst A ekki geta treyst lögreglunni í heimaríki vegna þess að hún væri spillt og að tenging væri á milli lögreglunnar og glæpahópa. Þá kvaðst hann ekki geta fengið aðstoð eða vernd yfirvalda og lögreglu í heimaríki vegna þess að þetta væri ekki land sem veiti borgurum sínum aðstoð. Aðspurður um félagslegar aðstæður hans í heimaríki yrði honum gert að snúa aftur kvað hann að erfitt yrði fyrir hann að fá vinnu þar sem hann væri bara 19 ára. Hann gæti ekki framfleytt sér í heimaríki vegna þess að mánaðarlaun hans myndu ekki duga út mánuðinn. Hann hafi verið fjárhagslega háður foreldrum sínum og verið að vinna í fyrirtækinu þeirra. Þá kvaðst A ekki geta fengið aðstoð við framfærslu Í Venesúela vegna þess að hann eigi engan þar að og efnahagsástandið væri slæmt.
Í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli B kom fram að ekki væri tilefni til að taka viðtal við hana með vísan til ungs aldurs hennar og framburðar foreldra hennar.
Með ákvörðunum Útlendingastofnunar var kærendum og B synjað um alþjóðlega vernd og dvalarleyfi á grundvelli 74. gr. laga um útlendinga. Kærendum var brottvísað frá landinu og þeim ákvarðað endurkomubann til tveggja ára. Fram kom að yfirgæfu kærendur landið sjálfviljug innan frests sem þeim hefði verið veittur yrði endurkomubann þeirra fellt niður. B var brottvísað frá landinu. Kærendur kærðu ákvarðanirnar til kærunefndar 26. mars 2024 og barst kærunefnd greinargerð kærenda ásamt fylgiskjölum sama dag. Viðbótargreinargerð barst frá nýjum talsmanni 7. maí 2024. Viðbótargögn bárust kærunefndar 12. júní 2024 og 29. janúar 2025. Með tölvubréfi, dags. 19. september 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Frekari upplýsingar bárust frá kærendum 22. september 2025.
3 Greinargerð til kærunefndar
Nefndin hefur farið yfir greinargerðir kærenda og fylgiskjöl og lagt mat á þau sjónarmið er þar koma fram. Verða aðeins reifuð hér helstu atriði greinargerðanna.
Í greinargerð er aðstæðum kærenda lýst með sambærilegum hætti og í viðtölum þeirra hjá Útlendingastofnun. Í greinargerðum kærenda er vísað til landaskýrslna og er mati Útlendingastofnunar á aðstæðum í Venesúela mótmælt. Vísa kærendur til þess að aðstæður í Venesúela hafi ekki breyst á síðastliðnu ári, né heldur frá því að kærunefnd útlendingamála komst að niðurstöðu um aðstæður í landinu í júlí 2022. Þá bendi fjölmargar skýrslur t.d. frá Amnesty International og Human Rights Watch ekki til breyttra aðstæðna í landinu. Einnig er vísað til mats Útlendingastofnunar á trúverðugleika frásagna kærenda og því mati mótmælt. Vísa kærendur til þess að hafa lagt fram gögn við málsmeðferð hjá Útlendingastofnun, þ.m.t. kærur og lögregluskýrslur sem að ekki hafi verið tekið tillit til við trúverðugleikamat hjá stofnuninni.
Kærendur mótmæla umfjöllun Útlendingastofnunar um að framlagðar lögregluskýrslur séu afrit og að í þeim birtist eingöngu einhliða frásögn kærenda á atburðunum og vísa til þess að það sé hlutverk lögreglunnar að taka niður umkvartanir og upplifanir þeirra sem kæri ofbeldi. Þá vísa kærendur til þess að eðli málsins samkvæmt hafi verið ómögulegt að verða sér út um frumrit lögreglugagna því þau hafi verið í vörslu lögreglunnar. Þá hafna kærendur röksemdum Útlendingastofnunar að þau eigi afturkvæmt til Venesúela á þeim rökum að framangreindur glæpahópur starfi ekki á landsvísu. Kærendur vísa til þess að glæpahópurinn starfi á landsvísu og hafi tengingar víðs vegar um Venesúela, sbr. skýrslu EUAA – Venezuela Contry Focus. Kærendum bíði vanvirðandi meðferð, refsing glæpahóps, verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum og K og B verði borgaraleg skotmörk verði þau send aftur til heimaríkis. Þá hafna kærendur rökum Útlendingastofnunar um að þau hafi ekki borið fyrir sig að óttast tiltekna einstaklinga eða eiga á hættu ofsóknir af hálfu stjórnvalda í heimaríki eða annarra tiltekinna aðila í heimaríki.
Kærendur krefjast þess að leyst verði úr máli þeirra með hliðsjón af óvissu sem ríki um hagi útlendinga sem voru endursendir til Venesúela 15. nóvember 2023 og þeirri staðreynd að ekki hlaust lendingarleyfi í Karakas fyrir flutninga fólks til landsins. Vísa kærendur til þess að fram hafi farið takmörkuð rannsókn stjórnvalda og ekki verið kannað hvort atburðarásin hafi áhrif á meðferð mála sem nú séu til vinnslu á kærustigi hjá kærunefnd útlendingamála. Þá benda kærendur á að nýlega hafi stjórn Nicólás Maduro rekið starfsfólk Mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna úr landi í kjölfar þess að Sameinuðu þjóðirnar fordæmdu áætlanir stjórnarinnar til að takast á við hungur í Venesúela.
Kærendur vísa til þess að B sé ólögráða barn á níunda aldursári en lítið sem ekkert hafi verið fjallað um einstaklingsbundnar aðstæður B í ákvörðun Útlendingastofnunar. Ekkert hafi verið fjallað um aðstæður hennar í Venesúela verði hún send þangað, heldur vísað í ákvörðun Útlendingastofnunar í máli móður hennar hvað þetta atriði varðar. Ekkert tillit sé tekið til persónulegra og einstaklingsbundinna hagsmuna B, heldur sé almennt fjallað um aðstæður barna í Venesúela án þess að tekið sé tillit til kyns og/eða aldurs hennar. Það geti ekki talist nægjanleg rannsókn m.t.t. rannsóknarreglu stjórnsýslu- og útlendingarréttar, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Leggja beri mat á hagsmuni B á hennar eigin forsendum, m.a. með hliðsjón af því að hún sé ung og hafi myndað tengsl hér á landi. Börn teljist til sérstaklega viðkvæms hóps umsækjenda um alþjóðlega vernd og stjórnvöldum sé skylt að hafa það sem börnum sé fyrir bestu í forgangi í þeim ákvörðunum sem teknar séu um málefni þeirra, sbr. 2. mgr. 1. gr. barnalaga nr. 76/2003 og 1. mgr. 3. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013. Þá beri samkvæmt 1. mgr. 22. gr. sama samnings að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu flóttamanns fái viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í alþjóðlegum samningum á sviði mannréttinda. Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga sé áréttað að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með það sem því sé fyrir bestu að leiðarljósi og í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga sé tekið fram að við ákvarðanir sem séu háðar mati stjórnvalds skuli m.a. huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska. Mat Útlendingastofnunar að B komi til með að hafa aðgang að menntakerfi og heilbrigðiskerfi í Venesúela sé hafnað m.t.t. til skorts á rannsókn, sbr. 10. gr. stjórnsýslulaga og 2. mgr. 23. gr. laga um útlendinga. Þá sé ekki fjallað sérstaklega um kynbundið áreiti og ofbeldi í garð ungra stúlkna.
Kærendur krefjast þess aðallega að þeim og B verði veitt alþjóðleg vernd sem flóttamenn hér á landi samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur byggja á því að þau séu flóttamenn samkvæmt skilgreiningu ákvæðisins með vísan til þess að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir af hálfu aðila sem séu nefndir í a-c. lið 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópi. Einnig byggja kærendur á almennu ástandi í Venesúela. Kærendur telji sig búa við ástæðuríkan ótta á grundvelli aðildar að þjóðfélagshópi þar sem þau séu þolendur ofbeldisglæpa af hálfu glæpahópa og fjárkúgana og sem fyrirtækjaeigendur. Árásir, hótanir og yfirvofandi mannréttindabrot geri það að verkum að kærendur lúti sérstöðu í samfélaginu sem mæli með því að litið verði á þau sem aðila að þjóðfélagshópi. Auk líkamlegs og andlegs ofbeldis í formi fjárkúgana sé um að ræða kerfisbundið, endurtekið ofbeldi sem birtist m.a. í skorti á lögregluvernd, ófullnægjandi réttarkerfi og refsileysi gegn fulltrúum stjórnvalda í Venesúela sem gerist sekir um ofbeldisglæpi gegn almennum borgurum. Kærendur telji að af heimildum, þ.m.t. yfirlýsingum frá rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna frá mars 2024, og skýrslu bandarísku utanríkisráðuneytisins, sé skýrt að þau geti ekki treyst á vernd lögreglu vegna ofbeldis. Vísa kærendur til þess að það eitt að hafa lagt fram kæru og gerð hafi verið skýrsla nægi ekki til þess að uppfylla skilyrði virkrar verndar stjórnvalda enda sé ekkert sem bendi til þess að lögreglan hafi aðhafst frekar í málinu.
Kærendur krefjast þess til vara að þeim og barninu B verði veitt viðbótarvernd hér á landi með vísan til 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur telji að stjórnvöld í Venesúela geti ekki veitt þeim vernd. Mannréttindabrot sem snerti kærendur séu fjölmörg og landaupplýsingar renni stoðum undir frásögn þeirra. Kærendur óttist um líf sitt og hafi þegar upplifað ofbeldi, hótanir og fjárkúganir. Það sé mikil spilling innan lögreglunnar og athafnaleysi gagnvart öryggissveitum og vopnahópum. Kærendur byggja á því að aðgerðir og aðgerðarleysi sem hafi áhrif á öryggi þeirra hafi ekki farið batnandi á síðastliðnum tveimur árum að það varði við breytta framkvæmd á 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í ljósi þess að yfirvöld í heimaríki kærenda séu meðal þeirra sem séu ábyrg fyrir þeirri stöðu sem þar ríki verði ekki talið raunhæft eða sanngjarnt að kærendur setjist annars staðar að í heimaríki sínu, sbr. 4. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Vísa kærendur til úrskurðar kærunefndar útlendingamála í máli nr. 231/2022.
Verði ekki fallist á framangreindar kröfur krefjast kærendur þess að þeim og barninu B verði veitt dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Telja kærendur að vegna erfiðra almennra aðstæðna í Venesúela hafi þau ríka þörf fyrir vernd. Því til stuðnings vísa kærendur til ástandsins í Venesúela, m.a. skorts á heilnæmu drykkjarvatni, hruns réttarkerfisins, spillingar, hárrar glæpatíðni og takmarkaðrar lögregluverndar.
Með endursendingu kærenda og barns M og K til heimaríkis yrði brotið gegn meginreglunni um bann við endursendingu, sbr. 1. mgr. 42. gr. laga um útlendinga. Að auki brjóti slík ákvörðun í bága við 1. mgr. 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands, sbr. lög nr. 33/1944, 2. og 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, 6. og 7. gr. alþjóðasamnings um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi og 33. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna.
4 Reglur stjórnsýsluréttar og málsmeðferð samkvæmt lögum um útlendinga
Í greinargerð kærenda eru færð rök fyrir því að ekki hafi verið farið að málsmeðferðarreglum við málsmeðferð og ákvarðanatöku Útlendingastofnunar. Telja kærendur að málsmeðferð stofnunarinnar og hinar kærðu ákvarðanir brjóti gegn rannsóknarreglu, jafnræðisreglu og málshraðareglu stjórnsýslulaga og laga um útlendinga sem leiði til þess að fella verði ákvarðanirnar úr gildi.
Kærunefnd hefur farið yfir málsmeðferð Útlendingastofnunar og hinar kærðu ákvarðanir sem eru í samræmi við málsmeðferðarreglur stjórnsýslulaga. Er því ekki ástæða til að fella ákvarðanir Útlendingastofnunar úr gildi af þeim sökum.
5 Alþjóðleg vernd
5.1 Lagagrundvöllur
Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga nr. 80/2016, reglugerð nr. 540/2017 um útlendinga, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 og mannréttindasáttmáli Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994. Jafnframt ber að líta til ákvæða alþjóðasamnings um stöðu flóttamanna frá 1951, ásamt viðauka við samninginn frá 1967, og annarra alþjóðlegra skuldbindinga Íslands á sviði mannréttinda eftir því sem tilefni er til.
Í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016, sem byggir á A-lið 1. gr. flóttamannasamningsins, segir:
Flóttamaður samkvæmt lögum þessum telst vera útlendingur sem er utan heimalands síns af ástæðuríkum ótta við að vera ofsóttur vegna kynþáttar, trúarbragða, þjóðernis, aðildar að tilteknum þjóðfélagshópi eða vegna stjórnmálaskoðana og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta færa sér í nyt vernd þess lands; eða sá sem er ríkisfangslaus og er utan þess lands þar sem hann áður hafði reglulegt aðsetur vegna slíkra atburða og getur ekki eða vill ekki vegna slíks ótta hverfa aftur þangað, sbr. A-lið 1. gr. alþjóðasamnings um réttarstöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951 og bókun við samninginn frá 31. janúar 1967, sbr. einnig 38. gr. laga þessara.
Í 38. gr. laga um útlendinga eru sett fram viðmið um það hvað felist í hugtakinu ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr., á hvaða grundvelli ofsóknir geta byggst og hvaða aðilar geta verið valdir að þeim. Í 1. mgr. ákvæðisins segir:
Ofsóknir samkvæmt 1. mgr. 37. gr. eru þær athafnir sem í eðli sínu eða vegna þess að þær eru endurteknar fela í sér alvarleg brot á grundvallarmannréttindum, einkum ófrávíkjanlegum grundvallarmannréttindum á borð við réttinn til lífs og bann við pyndingum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu, bann við þrældómi og þrælkun og bann við refsingum án laga. Sama á við um samsafn athafna, þ.m.t. ólögmæta mismunun, sem hafa eða geta haft sömu eða sambærileg áhrif á einstakling.
Í 2. mgr. 38. gr. laga um útlendinga er fjallað um í hverju ofsóknir geta falist. Þá eru þær ástæður sem ofsóknir þurfa að tengjast skilgreindar nánar í 3. mgr. 38. gr. laganna.
Í 4. mgr. 38. gr. kemur fram að þeir aðilar sem geta verið valdir að ofsóknum eða ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð séu:
a. ríkið,
b. hópar eða samtök sem stjórna ríkinu eða verulegum hluta landsvæðis þess,
c. aðrir aðilar, sem ekki fara með ríkisvald, ef sýnt er fram á að ríkið eða hópar eða samtök samkvæmt b-lið, þ.m.t. alþjóðastofnanir, geti ekki eða vilji ekki veita vernd gegn ofsóknum eða meðferð sem fellur undir 2. mgr. 37. gr., m.a. með því að ákæra og refsa fyrir athafnir sem fela í sér ofsóknir.
Orðasambandið „ástæðuríkur ótti við að vera ofsóttur“ í 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga inniheldur huglæga og hlutlæga þætti og þarf að taka tillit til hvors tveggja þegar mat er lagt á umsókn um alþjóðlega vernd. Mat á því hvort ótti umsækjanda sé ástæðuríkur getur verið byggt á persónulegri reynslu umsækjanda sem og á upplýsingum um ofsóknir sem aðrir í umhverfi hans eða þeir sem tilheyra sama hópi hafa orðið fyrir. Umsækjandi sem hefur sýnt fram á að hann hafi þegar orðið fyrir ofsóknum í heimaríki, sbr. 1. mgr. 38. gr. laga um útlendinga, eða beinum og marktækum hótunum um slíkar ofsóknir, yrði almennt talinn hafa sýnt fram á ástæðuríkan ótta við slíkar ofsóknir snúi hann aftur til heimaríkis nema talið verði að miklar líkur séu á því að slíkar ofsóknir yrðu ekki endurteknar, t.d. þar sem aðstæður í heimaríki hans hafi breyst. Þótt umsækjandi um alþjóðlega vernd skuli njóta vafa upp að ákveðnu marki verður umsækjandinn með rökstuddum hætti að leiða líkur að því að hans bíði ofsóknir í heimaríki. Frásögn umsækjanda og önnur gögn um einstaklingsbundnar aðstæður hans verða því almennt að fá stuðning í hlutlægum og áreiðanlegum upplýsingum um heimaríki umsækjanda, stjórnvöld, stjórnarfar og löggjöf þess. Þá er litið til sambærilegra upplýsinga um ástand, aðstöðu og verndarþörf þess hóps sem umsækjandi tilheyrir eða er talinn tilheyra.
Við mat á umsóknum um alþjóðlega vernd verða stjórnvöld því að leggja mat á auðkenni umsækjanda, landaupplýsingar um það heimaríki umsækjanda sem til meðferðar er og trúverðugleika frásagnar umsækjanda.
Við mat á trúverðugleika er höfð til hliðsjónar handbók Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna um málsmeðferð og viðmið við mat á umsókn um alþjóðlega vernd (Handbook and Guidelines on Procedures and Criteria for Determining Refugee Status, Genf 2019). Þá er tekið mið af skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna og Flóttamannasjóðs Evrópusambandsins um trúverðugleikamat, eftir því sem við á (Beyond Proof: Credibility Assessment in EU Asylum Systems, Brussel 2013).
Samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga er útlendingur einnig flóttamaður ef, verði hann sendur aftur til heimaríkis síns, raunhæf ástæða er til að ætla að hann eigi á hættu að sæta dauðarefsingu, pyndingum eða annarri ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu eða hann verði fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum þar sem ekki er greint á milli hernaðarlegra og borgaralegra skotmarka. Sama gildir um ríkisfangslausan einstakling.
Við mat á því hvort aðstæður kæranda séu slíkar að þær eigi undir 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga hefur kærunefnd talið rétt að líta til 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur fjallað um það mat sem þarf að fara fram á því hvort kærandi sé í raunverulegri hættu á að verða fyrir meðferð sem falli undir 3. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem bannar pyndingar og ómannlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu. Hefur dómstóllinn sagt að 3. gr. sáttmálans geti átt við þegar hættan stafar frá einstaklingum eða hópi fólks sem ekki séu fulltrúar stjórnvalda. Kærandi verður þó að geta sýnt fram á að gildar ástæður séu til að ætla að um raunverulega hættu sé að ræða og að stjórnvöld í ríkinu séu ekki í stakk búin til að veita viðeigandi vernd. Ekki er nóg að aðeins sé um að ræða möguleika á illri meðferð og verður frásögn kæranda að fá stuðning í öðrum gögnum (sjá t.d. dóma Mannréttindadómstóls Evrópu í máli NA gegn Bretlandi (mál nr. 25904/07) frá 7. júlí 2008 og H.L.R. gegn Frakklandi (mál nr. 24573/94) frá 29. apríl 1997).
5.2 Réttarstaða barna
Staða barna á flótta ræðst af viðeigandi reglum í þjóðarétti og landsrétti. Í 22. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins, sbr. lög nr. 19/2013, segir í fyrsta lagi að aðildarríki skuli gera viðeigandi ráðstafanir til að tryggja að barn sem leiti eftir réttarstöðu sem flóttamaður, eða sem talið sé flóttamaður samkvæmt viðeigandi reglum eða starfsháttum þjóðaréttar eða landslaga, fái, hvort sem það sé í fylgd foreldra eða annarra eða ekki, viðeigandi vernd og mannúðlega aðstoð við að nýta sér þau réttindi sem við eigi og kveðið sé á um í samningnum.
Í 2. mgr. 10. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 segir að ákvarðanir sem varði barn skuli teknar með hagsmuni þess að leiðarljósi, því tryggður réttur til að tjá skoðanir sínar í málum sem það varði og tekið tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Í 3. mgr. 25. gr. laga um útlendinga kemur fram að við ákvörðun sem sé háð mati stjórnvalds skuli huga að öryggi barns, velferð þess og félagslegum þroska og möguleika þess til að sameinast fjölskyldu sinni.
Sérstaklega er fjallað um mat stjórnvalda á umsóknum barna um alþjóðlega vernd í 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þar segir að við mat á því hvort barn teljist flóttamaður samkvæmt lögunum skuli það sem barninu sé fyrir bestu haft að leiðarljósi. Við mat á því hvað barni sé fyrir bestu skuli stjórnvöld líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis þess, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skuli tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Við ákvörðun í máli er varðar hagsmuni barns skuli stjórnvöld taka skriflega afstöðu til þessara atriða.
Almennt er viðurkennt að eðlilegur þroski barns sé best tryggður með því að vernda fjölskylduna. Sé ólögráða barn í fylgd annars eða beggja foreldra sinna eða annars úr fjölskyldunni sem hefur það á framfæri sínu og sá fer fram á réttarstöðu flóttamanns, ber að fara með málin í samræmi við meginregluna um einingu fjölskyldunnar. Ljóst er að barn það sem hér um ræðir er í fylgd foreldra sinna og haldast úrskurðir fjölskyldunnar því í hendur.
5.3 Auðkenni
Í ákvörðunum Útlendingastofnunar kemur fram að til að sanna á sér deili hafi kærendur framvísað venesúelskum vegabréfum fyrir sig og B. Að því virtu hafi það verið mat Útlendingastofnunar að kærendur og B hafi sannað auðkenni sitt með fullnægjandi hætti. Ekki er ástæða til að hnekkja framangreindu mati Útlendingastofnunar og verður því lagt til grundvallar að kærendur og B séu venesúelskir ríkisborgarar.
5.4 Landaupplýsingar
Kærunefnd útlendingamála hefur lagt mat á aðstæður í Venesúela, m.a. með hliðsjón af eftirfarandi skýrslum:
- 2021 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. apríl 2022);
- 2022 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 20. mars 2023);
- 2023 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 22. apríl 2024);
- 2024 Country Reports on Human Rights Practices: Venezuela (U.S. Department of State, 12. ágúst 2025);
- ACCORD - Austrian Centre for Country of Origin and Asylum Research and Documentation: Venezuela, year 2024: Update on incidents according to the Armed Conflict Location & Event Data Project (ACLED) (ACCORD 5. febrúar 2025);
- ‘All sides need to think about the future they want for Venezuela’, says UN human rights chief (vefsíða Sameinuðu þjóðanna, http://news.un.org/en/story/2023/01/1132957, 28. janúar 2023);
- Amnesty International Report 2022/23: Venezuela (Amnesty International, 27. mars 2023);
- Annual Report 2020 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2021);
- Annual Report 2022 – Chapter IV.B: Venezuela (Inter-American Commission on Human Rights, 2023);
- Bolivarian Republic of Venezuela interim country strategic plan 2023-2025 (World Food Programme, 1. febrúar 2023);
- Country Reports on Terrorism 2022: Venezuela (U.S. Department of State, 30. nóvember 2023);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 14. október 2024);
- Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (United Nations. Human Rights Council, 15. september 2020);
- Election Observation Mission – Venezuela 2021 (European Union, 22. febrúar 2022);
- Fostering Impunity: The Impact of the Failure of the Prosecutor of the International Court to Open an Investigation into the Possible Commission of Crimes against Humanity in Venezuela (Organization of American States, OAS, 2. desember 2020);
- Freedom in the World 2022 – Venezuela (Freedom House, 28. febrúar 2022);
- Freedom in the World 2023 – Venezuela (Freedom House, 10. mars 2023);
- Freedom in the World 2024 – Venezuela (Freedom House, 29. febrúar 2024);
- General Country of Origin Information Report. Venezuela 2020 (Netherlands. Ministry of Foreign Affairs, júní 2020);
- Global Childhood Report 2021 – The Toughest Place to be a Child (Save the Children, 2021);
- Global Organized Crime Index – Venezuela (Global Initiative Against Transnational Organized Crime, 2023);
- Guidance Note on International Protection Considerations for Venezuelans – Update I (UNHCR, maí 2019);
- Human Rights Violations in the Bolivarian Republic of Venezuela: A Downward Spiral with No End in Sight (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), júní 2018);
- Humanitære forhold (Landinfo, 2. mars 2023);
- Humanitarian Access overview (ACAPS, desember 2022);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 24. ágúst 2023);
- Humanitarian Action for Children 2024 – Bolivarian Republic of Venezuela (UNICEF, 12. desember 2023);
- Independence of the justice system and access to justice in the Bolivarian Republic of Venezuela, including for violations of economic and social rights, and the situation of human rights in the Arco Minero del Orinoco region (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 29. september 2020);
- Informe Annual de Violencia 2022 (Observatorio Venezolano de Violencia, 29. desember 2022);
- International Protection Needs of Venezuelan Nationals (Amnesty International, október 2023);
- Judges on the Tightrope Report on the Independence and Impartiality of the Judiciary in Venezuela (International Commission of Jurists, júní 2021);
- Latest Asylum Trends (European Union Agency for Asylum, 17. maí 2023);
- Outcomes of the investigation into allegations of possible violations of the human rights to life, liberty, and physical and moral Integrity in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 17. september 2020);
- Punished for Seeking Change, Killings, Enforced Disappearences and Arbitrary Detention following Venezuela‘s 2024 Election (Human Rights Watch, 30. apríl 2025);
- Religious Regulation and Discrimination in Venezuela (Observatory of Religious Freedom in Latin America, janúar 2022);
- Report of the General Secretariat of the Organization of American States and the Panel of Independent International Experts on the Possible Commission of Crimes Against Humanity in Venezuela. Second Edition (Organization of American States, OAS, mars 2021);
- Report of the independent international fact-finding mission on the on the Bolivarian Republic of Venezuela (UNHRC, 17. september 2024);
- Report of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela (Human Rights Council, 18. september 2023);
- Rise of the Criminal Hybrid State in Venezuela (InSight Crime, júlí 2023);
- RMNA 2023 – Refugee and Migrant Needs Analysis (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 11. september 2023);
- RMRP 2023-2024: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 30. nóvember 2022);
- RMRP 2024 Update: Regional Refugee and Migrant Response Plan (Inter-Agency Coordination Platform for Refugees and Migrants from Venezuela, 2. desember 2023);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (Office of the United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 16. júní 2021);
- Situation of human rights in the Bolivarian Republic of Venezuela (The United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 4. júlí 2023);
- Situation of Venezuelans who have returned and seek to return to their country in the context of COVID-19 (Organization of American States, OAS, september 2020);
- Situation Report No. 1 – Venezuela (UNICEF, 30. júní 2023);
- The World Factbook – Venezuela (Central Intelligence Agency, síðast uppfært 17. september 2025);
- UNHCR Venezuela Operational update, May 2025 (The UN Refugee Agency, 7. maí 2025);
- UNHCR Venezuela Annual Report 2022 (The UN Refugee Agency, 8. ágúst 2023);
- UNHCR Venezuela Factsheet April 2025 (The UN Refugee Agency, 9. apríl 2025);
- Update on Venezuela by High Commissioner Türk (United Nations High Commissioner for Human Rights (OHCHR), 5. júlí 2023);
- Venezuela (Britannica, síðast uppfært 23. september 2025);
- Venezuela Country Focus (European Asylum Support Office, EASO, ágúst 2020);
- Venezuela Country Focus (European Union Agency for Asylum, EUAA, nóvember 2023;
- Venezuela Country Report 2022 (Bertelsmann Stiftung, 2022);
- Venezuela in 2022: Building solutions with communities affected by armed violence (International Committee of the Red Cross, 6. janúar 2023);
- Venezuela Organized Crime Observatory (InSightCrime, síðast uppfært 18. ágúst 2025);
- Venezuela Situation (UNHCR, janúar 2023);
- Venezuela Situation Fact Sheet (UNHCR, 8. mars 2023);
- Venezuela: Availability of health care, including for persons with disabilities and older persons; treatment of persons with disabilities and older persons within the healthcare system (2021-January 2023) (Immigration and Refugee Board of Canada, 13. febrúar Venezuela: Humanitarian Action, (OCHA, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Humanitarian Response Plan 2022-2023 (OCHA, 7. september 2022);
- Venezuela: Joint Statement on Venezuela Negotiation in Mexico (The Diplomatic Service of the European Union, 26. nóvember 2022);
- Venezuela: Los Colectivos (Landinfo, 1. október 2019);
- Venezuela: Overview of U.S Sanctions (Congressional Research Service, 8. ágúst 2023);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 30. nóvember 2022);
- Venezuela: Overview of U.S. Sanctions (Congressional Research Service, 19. desember 2024);
- Venezuela: Political Crisis and U.S Policy (Congressional Research Service, 1. september 2023);
- Venezuela: Progress Report March – April 2023 (OCHA, 31. maí 2023);
- Venezuela: Sikkerhetssituasjonen for sivilbefolkningen (Landinfo, 14. apríl 2020);
- Venezuela: Situasjonen etter presidentevalget 28. Juli 2024 (Landinfo, 10. desember 2024);
- Venezuela: The Perilous Path to a Key Election (International Crisis Group, 30. janúar 2024);
- Venezuela: Tidligere og nåværende protestaksjoner, og retursituasjonen for personer som deltok i de store demonstrasjonene i 2017-2019 (Landinfo, 30. maí 2023);
- Venezuela: Treatment of citizens by the authorities based on whether or not they participate in anti-government protests, including whether some are more targeted than others and for what reasons; whether access to social security programs may be affected by political activities (2017-January 2021) (Immigration and Refugee Board of Canada, 3. febrúar 2021);
- Venezuela: UN Experts warn of persisting attacks on civil society, media and trade union leaders (UNCHR, 22. mars 2023);
- Venezuela: Utsatte grupper og reaksjoner fra myndighetene (Landinfo, 11. júní 2020);
- Venezuela: Ytringsfrihet og kritiske ytringer i sosiale medier (Landinfo, 28. júní 2023);
- Venezuela’s Humanitarian Emergency (Human Rights Watch, 4. apríl 2019);
- What’s Ahead for Venezuela’s Crisis (World Politics Review, 20. apríl 2023);
- World Report 2023 – Venezuela (Human Rights Watch, 12. janúar 2023);
- World Report 2024 – Venezuela (Human Rights Watch, 11. janúar 2024) og
- World Report 2025- Venezuela (Human Rights Watch, 16. janúar 2025.
Venesúela er stjórnarskrárbundið lýðveldi með rúmlega 30 milljónir íbúa. Í landinu aðhyllast um 96% íbúa kristna trú, þar af meirihlutinn rómversk-kaþólska trú. Hinn 15. nóvember 1945 gerðist Venesúela aðili að Sameinuðu þjóðunum. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi ásamt alþjóðasamningi um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi árið 1978. Ríkið fullgilti alþjóðasamning um afnám allrar mismununar gegn konum árið 1983 og samning Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri og vanvirðandi meðferð eða refsingu árið 1991.
Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum bandarísku utanríkisþjónustunnar frá 2022 og 2023, bandarísku leyniþjónustunnar frá 2023 og Human Rights Watch frá 2023, kemur fram að Venesúela sé fjölflokka lýðræðisríki að nafninu til. Nicolás Maduro, forseti landsins frá árinu 2013, hafi hins vegar styrkt völd sín jafnt og þétt og um leið veikt löggjafar-, framkvæmdar- og dómsvald landsins. Stjórnarkreppa hafi ríkt í Venesúela frá árinu 2019. Forsetatíð Nicolás Maduro hafi lokið 10. janúar 2019, en hann hafi neitað að afsala sér völdum og haldið því fram að hann hafi unnið sigur í forsetakosningum árið áður. Niðurstöður kosninganna, sem hafi sætt mikilli gagnrýni og hvorki talist óháðar né sanngjarnar, hafi verið ógiltar af venesúelska þinginu. Hinn 23. janúar 2019 hafi stjórnarandstaðan lýst Juan Guaido, forseta venesúelska þingsins, forseta til bráðabirgða. Guaido hafi haft fullt stjórnskipulegt umboð frá þinginu og yfir 50 ríki hafi viðurkennt lögmæti hans sem bráðabirgðaforseta, þ. á m. Bandaríkin og flest ríki innan Evrópusambandsins. Þrátt fyrir það hafi Maduro farið með stjórn allra ríkisstofnana landsins auk þess sem hann hafi notið stuðnings öryggissveita. Guaido hafi því ekki getað beitt valdheimildum sínum og aðeins haft yfirráð yfir nokkrum sendiráðum og eignum Venesúela erlendis. Samkvæmt skýrslu Evrópusambandsins frá árinu 2022 hefur stjórnarandstaðan sniðgengið þrennar kosningar í landinu frá árinu 2015 vegna skorts á lýðræðislegum skilyrðum en hafi árið 2021 verið boðið að sitja í kjörstjórn sveitastjórnarkosninga og hafi sendinefnd á vegum Evrópusambandsins verið boðið að fara með kosningaeftirlit þeirra. Stjórnarandstaðan hafi tekið þátt í kosningunum en framkvæmd þeirra hafi hins vegar verið ábótavant. Í nóvember 2022 hafi samningaviðræður milli stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnar Maduro hafist að nýju en þær hafi legið niðri síðan í október 2021. Samningsaðilar hafi komist að samkomulagi um að bæta mannúðarástand í landinu með stofnun sjóðs á vegum Sameinuðu þjóðanna sem sótt gæti fjármagn í frystar eignir Venesúela erlendis. Í desember 2022 í kjölfar viðræðnanna hafi stjórnarandstaðan dregið stuðning sinn við Guaido til baka og leyst upp bráðabirgðastjórn hans í landinu þar sem honum hafi mistekist að ná þeim yfirráðum sem stefnt hafi verið að. Markmið stjórnarandstöðunnar sé enn að koma Maduro frá völdum en hún telji Guaido ekki réttan fulltrúa sinn. Á fundi í Barbados 17. október 2023 hafi ríkisstjórn Venesúela og stjórnarandstaðan samþykkt að halda forsetakosningar í Venesúela á seinni hluta ársins 2024. Alþjóðlegir eftirlitsmenn hafi verið viðstaddir fundinn og hafi samningurinn verið undirritaður með milligöngu Noregs og hafi samningurinn gert ráð fyrir alþjóðlegu eftirliti með kosningunum. Hinn 22. október 2023 hafi stjórnarandstaðan valið Maria Corina Machado sem fulltrúa sinn í kosningunum. Hinn 30. október 2023 hafi Hæstiréttur Venesúela þó ógilt þá niðurstöðu og frestað forkosningum stjórnarandstöðunnar vegna mögulegs lögbrots. Í kjölfarið hafi stjórnarandstaðan valið Edmundo Gonzalez, fyrrum stjórnarerindreka, sem fulltrúa sinn og hafi landskjörstjórnin staðfest valið 26. mars 2024. Hinn 28. júlí 2024 hafi forsetakosningar verið haldnar í Venesúela og Maduro hlotið endurkjör. Stjórnarandstaðan hafi mótmælt niðurstöðum kosninganna og sagt Gonzalez vera nýkjörinn forseta. Eftir að landskjörstjórn hafi tilkynnt um sigur Maduro hafi m.a. utanríkisráðherra Bandaríkjanna lýst áhyggjum sínum um að niðurstaða kosninganna endurspegli ekki vilja eða atkvæði venesúelsku þjóðarinnar og hafi kallað eftir því að landskjörstjórnin birti atkvæðatöflur sínar. Yfirvöld í Venesúela hafa enn ekki birt þær tölur.
Í skýrslu rannsóknarnefndar á vegum Mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 17. september 2024, kemur fram að brot hafi verið framin gegn raunverulegum eða ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Í kjölfar kosninganna í júlí 2024 hafi 915 mótmæli átt sér stað í landinu og ásakanir um óréttmætar kosningar jafnframt aukist. Í kjölfarið hafi ríkisstjórnin hert aðgerðir sínar til að þagga niður og stöðva andstöðu við ríkisstjórnina og koma í veg fyrir friðsamleg mótmæli. Hafi aðgerðir ríkisstjórnarinnar m.a. beinst að þeim sem gagnrýnt hafi niðurstöður kosninganna, mótmælt með virkum hætti eða verið grunaðir um að taka þátt í slíku. Aðgerðir hafi einnig beinst að yfirvöldum á kjörstöðum og umsjónarmönnum. Yfirvöld hafi sent öryggissveitir að heimilum einstaklinga sem tekið hafi þátt í mótmælum eða látið í ljós skoðanir sínar og hafi þeir einstaklingar verið handteknir. Þá hafi stjórnvöld áreitt, hótað eða handtekið blaðamenn. Nefndin hafi skjalfest handtökur einstaklinga sem tengst hafi eða tekið hafi þátt í kosningaviðburðum á vegum stjórnarandstöðunnar. Fyrirtækjaeigendur, starfsmenn og fjölskyldur þeirra hafi einnig verið handtekin t.a.m. fyrir það að útvega ýmis aðföng vegna kosningaviðburða stjórnarandstöðunnar. Þeir einstaklingar hafi þó almennt verið í haldi í stuttan tíma, engin ákæra hafi verið lögð fram og hafi einstaklingarnir verið látnir lausir án endurgjalds. Í kjölfar mótmælanna hafi fjöldi þátttakenda verið handteknir, þ. á m. börn. Nefndin hafi skráð og rannsakað markvissar handtökur pólitískra leiðtoga og aðgerðasinna, blaðamanna og mannréttindasinna. Þar á meðal áberandi meðlima stjórnarandstöðuflokka. Handtökur og meðferð fanga hafi ekki farið fram með lögbundnum hætti eða gætt að réttlátri málsmeðferð. Telur nefndin að í aðgerðunum hafi stjórnvöld framið glæpi sem talist geti glæpir gegn mannkyni gegn einstaklingum sem hafi verið gagnrýnir á ríkisstjórnina og séu raunverulegir eða ætlaðir pólitískir andstæðingar.
Í skýrslu Freedom House frá 2021 kemur fram að strangar hömlur hafi verið settar á grundvallarréttindi venesúelskra ríkisborgara, þ. á m. á tjáningar-, samkomu- og félagafrelsi. Stjórnarandstæðingar, blaðamenn, aðgerðasinnar, mótmælendur og einstaklingar sem taldir séu andsnúnir ríkisstjórninni hafi verið skotmörk yfirvalda og hafi m.a. þurft að sæta handahófskenndum rannsóknum og handtökum. Í skýrslu Freedom House frá 2023 kemur fram að yfirvöld í landinu hafi takmarkað borgaraleg réttindi og sótt til saka pólitíska andstæðinga sína án réttlátrar málsmeðferðar. Þrátt fyrir að efnahagur landsins hafi náð vexti á ný eftir margra ára samdrátt sé enn mannúðarkrísa í landinu sem drifin sé af pólitísku ójafnvægi. Í skýrslu Human Right Watch frá 2023 kemur fram að ríkisstjórn landsins hafi fangelsað pólitíska andstæðinga sína. Að minnsta kosti 114 pólitískir fangar hafi dvalið í meira en þrjú ár í gæsluvarðhaldi sem samræmist ekki hegningarlögum landsins. Öryggissveitir og vopnaðir hópar sem styðji ríkisstjórnina hafi ítrekað ráðist á mótmælendur með ofbeldisfullum árásum, barsmíðum og skotárásum. Dómskerfi landsins hafi hætt að starfa sem óháð ríkisvald árið 2004 og hafi dómsmálayfirvöld verið samsek venesúelskum yfirvöldum í misnotkun á kerfinu, t.a.m. með því að gefa út afturvirkar heimildir til handtöku og fyrirskipa gæsluvarðhöld á grundvelli ónægra sönnunargagna. Í samantekt rannsóknarnefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá 22. mars 2023 kemur m.a. fram að yfirvöld handtaki enn pólitíska andstæðinga sína, hindri mótmæli verkalýðsfélaga og loki fjölmiðlum. Varðhald og pyndingar af hálfu stjórnvalda hindri tjáningarfrelsi og réttinn til mótmæla. Handahófskennd gæsluvarðhöld af pólitískum ástæðum séu enn áhyggjuefni og einstaklingar enn í haldi að ósekju, þ. á m. óbreyttir borgarar og hermenn.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla af völdum ofbeldis í Venesúela sé ein sú hæsta í Mið- og Suður-Ameríku. Frá 2018 til 2019 hafi slíkum dauðsföllum fækkað en það sé ekki til marks um að ofbeldi í landinu hafi farið minnkandi. Vopnahópum hafi tekist að viðhalda yfirráðasvæðum sínum og komið á fót eiginlegum smáríkjum (e. micro-states) innan Venesúela sem hafi gert það að verkum að dregið hafi úr átökum milli stríðandi fylkinga. Þá megi rekja fækkun dauðsfalla af völdum ofbeldis til aukinnar fátæktar og flutnings fólks úr landi. Mannránum hafi einnig fækkað og megi rekja það til erfiðleika við greiðslu lausnargjalda vegna óðaverðbólgu. Á undanförnum þremur árum hafi hins vegar þeim glæpum sem dregið hafði úr á liðnum árum, s.s. ránum, mannránum og fjárkúgun, fjölgað aftur. Það megi einkum rekja til lögleiðingu og greiðara aðgengis að erlendum gjaldmiðli í Venesúela. Þá hafi aukning á notkun Bandaríkjadals í efnahagskerfi Venesúela leitt til þess að smærri, staðbundnari glæpahópar hafi horfið og runnið saman við stærri glæpasamtök. Venezuelan Observatory of Violence gefur árlega út skýrslu um glæpatíðni í landinu. Í skýrslu þeirra frá desember 2020 kemur fram að morðtíðni í landinu það ár hafi verið um 45,6 dauðsföll af völdum ofbeldis á hverja hundrað þúsund íbúa. Þá hafi fjölgað dauðsföllum af hálfu yfirvalda en árið 2020 hafi í fyrsta sinn, frá árinu 2016, verið skráð fleiri dauðsföll af aðgerða lögreglu en af hálfu annarra gerenda. Í skýrslu þeirra frá desember 2021 kemur fram að dauðsföll af völdum ofbeldis það ár hafi verið 40,9 á hverja hundrað þúsund íbúa og a.m.k. 6,3 slík manndráp hafi verið framin á hverjum degi af hálfu yfirvalda. Aukning hafi orðið á dauðsföllum sem skráð séu óupplýst og því óvíst um gerendur og þá hafi orðið aukning í óútskýrðum mannshvörfum, eða um 4,4 mannshvörf á dag árið 2021. Í skýrslu þeirra frá desember 2023 kemur fram að tíðni dauðsfalla vegna ofbeldis fari lækkandi en tíðni þess árs hafi verið um 26,8 dauðsföll á hverja hundrað þúsund íbúa en hafði verið 40,4 árið 2022.
Samkvæmt skýrslu EUAA frá nóvember 2023 hefur fjárkúgun aukist í Venesúela undanfarin ár. Meðal skotmarka séu fyrirtæki sem notist við erlendan gjaldeyri, t.a.m. fyrirtæki sem flytji inn vörur og þjónustu til landsins, vöruflutningafyrirtæki, lítil fyrirtæki, bílasalar, heimilistækjaverslanir, einkaskólar og heilsugæslustöðvar. Þær greiðslur sem krafist sé séu ákveðnar í samræmi við kaupmátt þolandans en geti verið allt frá fimm bandaríkjadollurum á viku upp í 50.000 bandaríkjadollara á mánuði. Fjárkúgun sé að mestu leyti framin af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum. Algengt sé að þolendum fjárkúgunar berist bréf og símtöl með hótunum, auk þess sem bifreiðar þeirra séu brenndar, skotið sé að heimilum þeirra og sprengjum varpað á húsin. Þá fái þolendur senda kransa, hljóðskilaboð, myndir og myndbönd með hótunum í gegnum samfélagsmiðilinn Whatsapp. Í skýrslu EUAA kemur fram að þrír sjómenn hafi verið myrtir í janúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins El Yiyi og hafi morðin verið tekin upp og birt á samfélagsmiðlum til að senda skilaboð til annarra sjómanna um að verða við kröfum hópsins. Þá hafi meðlimir glæpahóps myrt kjötkaupmann í verslun hans í Zulia fylki í febrúar 2023 eftir að hafa neitað að greiða gjald til glæpahópsins. Fjárkúgun af hálfu ríkisstarfsmanna og öryggissveita hafi einnig aukist á milli ára og birtist oft í formi kröfu um mútugreiðslu. Einnig sé bílstjórum oft gert að greiða gjald til að þeim verði hleypt í gegnum eftirlitsstöðvar. Samkvæmt framangreindri skýrslu EUAA er engin áreiðanleg tölfræði til um fjölda tilfella fjárkúgunar í Venesúela. Flestir þolendur leggi ekki fram kæru vegna ótta við hefndaraðgerðir og vegna skorts á trausti á réttarkerfinu. Þá bendi heimildir til þess að viðbrögð yfirvalda við fjárkúgun séu ófullnægjandi. Þrátt fyrir viðleitni yfirvalda til þess að bregðast við fjárkúgunum hafi þolendur oft á tíðum ekki annarra kosta völ en að verða við kröfum glæpahópa samkvæmt skýrslu Global Initiative Against Transnational Organized Crime frá 2023.
Samkvæmt framangreindum skýrslum, m.a. skýrslu bandarísku leyniþjónustunnar (CIA) frá árinu 2023 og skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2022, heyra lögreglu- og öryggismál landsins m.a. undir alríkislögregluna, herlögregluna, svæðisbundin lögregluembætti og lögregluembætti sveitarfélaga. Um 45 þúsund lögreglumenn starfi hjá alríkislögreglunni en yfirvöld hafi gefið það út að stefnt sé að því að fjölga þeim í 100 þúsund árið 2024. Í fyrrnefndri skýrslu bandarísku utanríkisþjónustunnar kemur fram að stjórn yfirvalda yfir öryggissveitum landsins hafi minnkað undanfarin ár. Hin ólögmæta og sífellt óvinsælli ríkisstjórn Maduro hafi treyst á hersveitir-, leyniþjónustu og vopnahópa (Colectívos) til þess að veikja stöðu stjórnarandstæðinga og draga úr vilja almennings til mótmæla. Í skýrslu Landinfo frá 2019 kemur fram að Colectívos sé sameiginlegt heiti yfir vopnahópa sem starfi í Venesúela og styðji ríkisstjórnina. Colectívos, sem samanstandi af allt að 100 mismunandi vopnahópum,séu með viðveru um land allt. Óljóst sé að hve miklu leyti vopnahópunum sé stjórnað af yfirvöldum en Colectívos hafi verið þátttakendur í aðgerðum yfirvalda gegn mótmælendum og stjórnarandstæðingum ríkisstjórnar Maduro. Í niðurstöðuskýrslu óháðrar nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna (e. Detailed findings of the independent international fact-finding mission on the Bolivarian Republic of Venezuela) frá 2020 er fjallað um ítarlega rannsókn á aðgerðum yfirvalda í Venesúela frá árinu 2014. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að yfirvöld í Venesúela og vopnahópar á þeirra vegum hafi framið svívirðilega glæpi, þ. á m. kerfisbundnar pyndingar og aftökur án dóms og laga, sem geti fallið undir skilgreiningu á glæpum gegn mannkyni (e. crimes against humanity). Meirihluti glæpanna hafi verið hluti af kerfisbundnu ofbeldi gegn almenningi í samræmi við eða til að framfylgja stefnu stjórnvalda, m.a. í því skyni að þagga niður, letja eða brjóta á bak aftur andstöðu tiltekinna einstaklinga við ríkisstjórn Maduro og að berjast gegn glæpum. Þá hafi háttsettir embættismenn og herforingjar haft vitneskju um glæpina og ekki gripið til aðgerða til að sporna gegn þeim. Samtök Ameríkuríkja (e. Organization of American States (OAS)) hafa í skýrslum sínum frá 2020 og 2021 komist að sömu niðurstöðu. Í skýrslunum kemur m.a. fram að umfang og alvarleiki glæpa gegn mannkyni í Venesúela hafi aukist frá því að fyrri skýrsla samtakanna hafi verið gefin út árið 2018. Skráð tilvik aftaka án dóms og laga séu yfir 18 þúsund og fjöldi einstaklinga hafi þurft að sæta handahófskenndum handtökum og varðhöldum. Þvinguð mannshvörf hafi verið tíð og yfirvöld hafi beitt ýmsum aðferðum við pyndingar, s.s. kynferðislegu ofbeldi. Samkvæmt skýrslu Human Rights Watch frá 2023 gaf saksóknari alþjóðlega sakamáladómstólsins (e. International Criminal Court (ICC)) út yfirlýsingu í nóvember 2021 um þá ákvörðun sína að hefja rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni sem framdir hafi verið í Venesúela. Í mars 2022 hafi saksóknarinn fengið heimild til að opna skrifstofu sína í Karakas og samkvæmt skýrslu mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna frá júní 2022 hefur dregið verulega úr dauðsföllum í aðgerðum öryggissveita þó nefndin telji að slíkar aðgerðir hafi haldið áfram. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2024 kemur fram að alþjóðlegi sakamáladómstólinn hafi tilkynnt í júní 2023 að skrifstofa dómstólsins yrði opnuð í Karakas og rannsókn á ætluðum glæpum gegn mannkyni í landinu sem hafi verið slegið á frest skuli haldið áfram. Í ágúst hafi fulltrúar venesúelskra yfirvalda áfrýjað framangreindri ákvörðun. Hinn 1. mars 2024, hafi dómstóll hafnað beiðni fulltrúa venesúelskra yfirvalda.
Samkvæmt skýrslu Observatory of Religious Freedom in Latin America frá 2022 kveður stjórnarskrá Venesúela á um trúfrelsi að því tilskildu að iðkun hennar brjóti ekki í bága við almennt siðgæði, velsæmi og allsherjarreglu. Þá tryggir stjórnarskráin einnig sjálfstæði kirkna í landinu og rétt foreldra til að velja trúarbragðafræðslu fyrir börn sín. Þá leggi stjórnarskráin sérstakt bann gegn dreifingu áróðursboðskapar gegn trúarbrögðum. Samkvæmt skýrslunni ríkir almennt umburðarlyndi gagnvart ólíkum trúarbrögðum í Venesúela og er lítið um deilur á milli hópa með ólík trúarbrögð. Almennt sæti einstaklingar ekki fordómum fyrir að tilheyra tiltekinni trú. Þá hafi verið nefnd dæmi um að glæpahópar, Colectivos, hafi að undirlagi stjórnvalda ógnað leiðtogum trúfélaga sem hafi gagnrýnt stjórnvöld.
Í skýrslu EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023 kemur fram að fljótlega eftir að Maduro hafi orðið forseti árið 2013 hafi olíuverð farið hríðlækkandi. Olía hafi lengi verið helsta tekjulind Venesúela og hafi um helmingur af árlegum tekjum ríkissjóðs komið til vegna olíuvinnslu. Lækkun olíuverðs hafi, ásamt efnahagsstefnu stjórnvalda og íþyngjandi regluverki er snúi að atvinnulífinu, átt þátt í niðursveiflu hagkerfisins í Venesúela. Óðaverðbólga og kreppa hafi dregið verulega úr kaupmætti almennings í landinu og orsakað skort á matvælum, lyfjum og öðrum nauðsynjavörum. Þrátt fyrir að lágmarkslaun hafi verið hækkuð hafi meginþorri almennings ekki getað keypt nauðsynjavörur eða framfleytt sér án fjárhagsaðstoðar. Þá kemur fram að öll félagsleg aðstoð sé veitt í gegnum föðurlandskerfið og föðurlandskortið (s. sistema Patria, Carnet de la Patria) en kortið sé forsenda þess að geta fengið opinbera aðstoð, m.a. matvælaaðstoð í formi svokallaðra CLAP matarpakka (s. Comité Local de Abastecimiento y Producción). Kerfið hafi verið notað til að fylgjast með íbúum og upp hafi komið tilvik þar sem einstaklingum hafi verið neitað um aðstoð vegna þess að þeir hafi verið taldir á móti ríkisstjórn landsins. Þannig hafi föðurlandskortið verið verkfæri til samfélagsstjórnunar í gegnum matvæla- og fjárhagsaðstoð. Árið 2022 hafi ríkisstjórn Venesúela hafið átak til að bregðast við þörfum og vandamálum sem hafi komið upp í samfélaginu. Einstaklingar geti hlaðið niður smáforriti, svokölluðu VenApp, sem geri þeim kleift að tilkynna beint til stjórnvalda ef bilun verði í veitingu grunnþjónustu, s.s. vatns, gas eða rafmagns. Einstaklingar sem hyggist nota slíkt smáforrit þurfa að gefa samþykki fyrir því að forritið fái aðgang að persónuupplýsingum og staðsetningu notanda og sé því einnig tæki sem notað sé til að fylgjast með íbúum. Í skýrslu Human Rights Watch frá árinu 2023 kemur fram að flestir íbúar Venesúela séu í þörf fyrir aðstoð vegna skorts á mat, vatni, heilbrigðisþjónustu og hreinlæti. Rúmlega sjö milljónir venesúelskra ríkisborgara hafi lagt á flótta eða séu á vergangi vegna ástandsins í landinu og venesúelska flóttamannakrísan sé talin eitt alvarlegasta vandamál nútímans og fólksflutningarnir þeir fjölmennustu í nútímasögu Suður-Ameríku.
Mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk, fór í opinbera heimsókn til Venesúela í janúar 2023. Türk fundaði með Maduro forseta landsins sem lýsti opinberlega yfir vilja til að vinna að því að bæta réttarkerfi landsins. Türk hafi þá boðið fram stuðning og sérfræðiþekkingu til að fylgja því eftir. Türk hafi einnig hitt varaforseta landsins, háttsetta embættismenn, yfirmann dómstóla, stjórnarandstöðu og fleiri háttsetta aðila sem allir hafi viðurkennt þörfina á umbótum í landinu. Ítrekaði Türk þá tilmæli sín til aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna um að fresta eða aflétta ráðstöfunum sem grafi undan mannréttindum í landinu. Þá hafi Türk hvatt yfirvöld í Venesúela til að efla samstarf sitt við stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að tryggja frjálsa, örugga og virðulega endurkomu þeirra sem kjósi að snúa aftur til heimaríkis. Í ávarpi mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Volker Türk til mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna, dags. 5. júlí 2023, kemur fram að skráðum tilvikum drápa af hálfu öryggisstofnana, og tilkynningum um pyndingar og illa meðferð haldi áfram að fækka. Stjórnvöld hafi haldið áfram að saksækja og refsa embættismönnum sem gerst hafi sekir um pyndingar og illa meðferð. Þó þurfi stjórnvöld að halda áfram að bregðast við tilkynningum um slíka glæpi án undantekninga og af gagnsæi. Í skýrslu hinnar óháðu nefndar á vegum mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna um stöðu mála í Venesúela, frá 18. september 2023, kemur fram að einhver árangur hafi náðst við að draga þá til ábyrgðar sem framið hafi þau brot sem nefndin hafi rannsakað. Þó telji nefndin ástæðu til að ætla að stjórnvöld hafi ekki gert nauðsynlegar breytingar á stofnunum og hafi jafnvel stuðlað að framgangi þeirra sem beri ábyrgð á ofbeldinu. Þá hafi árásum á borgaralegum og lýðræðislegum vettvangi fjölgað á ný. Sé það einkum vegna stefnu stjórnvalda er miði að því að þagga niður í stjórnarandstöðu og gagnrýni á forseta landsins og ríkisstjórn hans. Þrátt fyrir að nefndinni hafi borist færri tilkynningar um meint alvarleg mannréttindabrot síðasta ár en undanfarin ár, hafi hún skrásett fjölda slíkra brota gegn raunverulegum og ætluðum andstæðingum ríkisstjórnarinnar. Brotin hafi einkum beinst að ákveðnum meðlimum borgaralegs samfélags, þ. á m. verkalýðsleiðtogum, blaðamönnum og baráttufólki fyrir mannréttindum.
Í skýrslu Landinfo frá mars 2023 kemur fram að árið 2021 hafi aukning orðið í olíuframleiðslu í landinu, en Maduro hafi slakað á þeim ströngu reglum sem gilt höfðu um gjaldeyrismál og gefið leyfi fyrir auknum viðskiptum í erlendri mynt. Í kjölfar þess hafi hagkerfið farið að vaxa að nýju eftir að hafa verið í frjálsu falli síðustu ár og talið sé að hagkerfið hafi styrkst um 15% árið 2022. Fátæktin sé þó enn mikil, sérstaklega hjá þeim sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldeyri. Þá kemur fram að efnahagsástand í landinu hafi farið batnandi síðan árið 2019 þrátt fyrir að enn sé langt í land. Í kjölfar afléttinga ýmissa innflutningshafta og lækkunar verðbólgu hafi framboð af matvælum og lyfjum aukist. Samt sem áður hafi fæstir efni á að nálgast slíkt sökum lágra launa og hækkandi matvöruverðs. Flestir sem yfirgefi landið geri það af efnahagslegum ástæðum. Ástandið í Karakas sé mun betra en á öðrum svæðum þar sem rafmagnsleysi hafi áhrif á aðgengi fólks að bæði rafmagni og rennandi vatni. Samkvæmt skýrslunni hafi um 50% heimila í Venesúela verið undir fátæktarmörkum árið 2022 samanborið við 65% árið 2021 og 87% árið 2017. Í skýrslunni kemur fram að frá árinu 2019 hafi Sameinuðu þjóðirnar aukið viðveru sína og mannúðaraðstoð í landinu. Þá hafi aðgengi ýmissa hjálparsamtaka að landinu aukist en aðstoðin komi aðallega frá Sameinuðu þjóðunum, Rauða krossinum og öðrum alþjóðlegum félagasamtökum.
Í skýrslu mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá september 2023 kemur fram að hagvöxtur hafi aukist um 17,3% árið 2022. Þrátt fyrir hagvöxt hafi önnur atvik og aðstæður áfram haft neikvæð áhrif á nauðsynlega almannaþjónustu, s.s. samgöngur, menntun og heilbrigðisþjónustu. Í framangreindri skýrslu Human Right Watch frá árinu 2023 kemur fram að nýkjörinn forseti Kólumbíu hafi tilkynnt að hann hygðist opna landamærin að Venesúela að nýju og hafi skipað sendiherra sem tekið hafi við embætti í Karakas 29. ágúst 2022. Í apríl 2022 hafi argentínsk yfirvöld tilkynnt áform sín um að endurnýja stjórnmálasamband við Venesúela. Í mars og júní 2022 hafi Bandaríkin sent opinberar sendinefndir til Venesúela í fyrsta sinn í mörg ár til viðræðna vegna áhuga stjórnar landsins á að opna fyrir olíuviðskipti við Venesúela að nýju. Í nóvember 2022 hafi orðið vendipunktur í stjórnarfari Venesúela þegar ríkisstjórn Maduro og stjórnarandstaðan hafi undirritað samkomulag um að auka mannúðaraðstoð í landinu. Samkomulagið kveði á um úthlutun þriggja milljarða Bandaríkjadala til velferðarmála, m.a. til að tryggja betri heilbrigðisþjónustu, fæðuöryggi og rafmagn í landinu, en fram að þessum tíma hafi Maduro, forseti landsins, verið tregur við að þiggja mannúðaraðstoð þrátt fyrir þrýsting frá Bandaríkjunum og öðrum löndum. Þá hafi samningsaðilar samþykkt að halda viðræðum áfram um hin ýmsu mannréttindamál og ákvarða nákvæma tímasetningu kosninga í landinu árið 2024. Bandaríkin hafi í nóvember 2022 dregið úr viðskiptaþvingunum í kjölfar samningaviðræðna ríkisstjórnar landsins og stjórnarandstöðunnar og hafi heimilað bandarísku fyrirtæki að hefja að nýju vinnslu á olíu frá Venesúela og innflutning á henni til Bandaríkjanna. Heimildir benda til þess að hluti þeirra þvingana sem hafi verið aflétt hafi verið komið á á ný eða nýjar settar á í kjölfar forsetakosninganna í júlí 2024 og aðgerða stjórnvalda gegn stjórnarandstæðingum í kjölfarið sem geti haft áhrif á efnahag landsins.
Í skýrslu Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna frá apríl 2025 kemur fram að þrátt fyrir viðvarandi stjórnarkreppu í landinu og vaxandi efnahagslegar áskoranir, sem hafi aukist vegna yfirvofandi viðskiptaþvingana, þá hafi straumur yfir landamærin verið stöðugur, bæði inn í Venesúela sem og út úr landinu. Þá hafi á landamærastöðvum við Kólumbíu fleiri snúið til baka inn í landið en hafi yfirgefið það en á landamærastöðvum við Brasilíu væru enn fleiri sem leituðu til Brasilíu með von um atvinnu og grunnþjónustu. Þá hafi fjöldi fólks snúið til baka til Venesúela í gegnum ríkisstyrktu áætlunina Vuelta a la Patria, auk þess sem einstaklingar hafi verið fluttir frá Bandaríkjunum og öðrum nágrannaríkjum. Þrátt fyrir áframhaldandi efnahagslegan bata sem Þróunaráætlun Sameinuðu þjóðanna (UNDP) áætli að nemi um 6,5 % af landsframleiðslu árið 2024, hafi vaxandi verðbólga og lækkun gjaldmiðilsins haft áhrif á kaupmátt og matvælaöryggi stórs hluta íbúanna. Það hafi leitt til félagslegrar óánægju, sérstaklega á meðal opinberra starfsmanna og lífeyrisþega sem ekki hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli og stuðlað að flótta einstaklinga innan lands sem leiti bættra lífskjara. Flóttamannastofnun leitist við að aðstoða þá sem séu verst settir í landinu með auknu samstarfi við önnur mannúðarsamtök og alþjóðlega aðila í landinu með það að markmiði að stuðla að sjálfbærni endurkomu fólks til Venesúela. Vinni stofnunin ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og öðrum samtökum að sérstökum verkefnum til þess að aðstoða einstaklinga sem snúi aftur til Venesúela, s.s. með kennslu, heilbrigðisþjónusta, sálrænni og félagslegri aðstoð og skjóli. Séu þessi verkefni starfrækt í höfuðborg landsins Karakas, Tachira, Zulia og Bólívar fylkjum. Stofnunin áætli að einn af hverjum fjórum Venesúelabúum þurfi á mannúðaraðstoð að halda og sérstökum aðgerðum sé beint að um 2,7 milljónum manna sem séu í sérstaklega viðkvæmri stöðu.
Samkvæmt skýrslum mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (e. OHCHR), innflytjenda- og flóttamannanefndar Kanadaog Landinfo frá 2023 eru bæði opinberar og einkareknar heilbrigðisstofnanir í Venesúela en aðeins 3% íbúa Venesúela hafi tök á að nýta sér þjónustu einkarekinna heilbrigðisstofnana. Yfir 200 opinber sjúkrahús og fjöldi heilsugæslustöðva séu í landinu en þar hafi skort allar helstu nauðsynjar til að sinna sjúklingum síðustu ár. Í framangreindum skýrslum, þ. á m. skýrslum Human Rights Watch frá 2022 og 2019 og EASO frá 2020 sem uppfærð var með skýrslu EUAA frá 2023, kemur fram að frá árinu 2012 hafi heilbrigðisþjónusta í landinu farið versnandi. Innviðir heilbrigðiskerfisins séu veikburða og skortur sé á heilbrigðisvörum og lyfjum. Árið 2022 hafi stjórnvöld áfram stutt við aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lyfjum á fátækustu svæðum landsins en aðbúnaði sé ábótavant og skortur sé á heilbrigðisstarfsfólki sem hafi flúið land í miklum mæli. Fjölda sjúkrahúsa hafi verið lokað undanfarin ár og afkastageta þeirra sjúkrahúsa sem enn séu starfrækt hafi verið takmörkuð, t.a.m. hafi mörg þeirra ekki haft reglulegan aðgang að rafmagni og vatni. Umfang vandans liggi ekki fyrir vegna vanrækslu yfirvalda við birtingu heilbrigðisupplýsinga. Þó liggi fyrir að barnadauði og útbreiðsla sjúkdóma sem hefði mátt koma í veg fyrir með bólusetningum, s.s. barnaveiki, malaríu og mislinga, hafi aukist verulega á undanförnum árum. Heilbrigðiskerfið í Venesúela hafi verið illa undirbúið fyrir Covid-19 faraldurinn og hafi einstaklingar sem greinst hafi með sjúkdóminn ekki fengið viðeigandi meðferð. Þá hafi læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk sætt hótunum og jafnvel handtökum af hálfu yfirvalda hafi þau tjáð skoðanir sínar opinberlega á stöðu heilbrigðiskerfisins og aðgerðarleysi stjórnvalda í þeim málum. Í skýrslu Human Rights Watch frá 2023 kemur fram að Venesúela standi enn frammi fyrir alvarlegri mannúðarkrísu þar sem milljónir hafi ekki aðgang að fullnægjandi heilbrigðisþjónustu og næringu. Í mars 2023 hafi rúmlega átta milljónir alvarlega veikra einstaklinga átt í erfiðleikum með að fá heilbrigðisþjónustu í Venesúela og meira en níu milljónir sem þurft hafi á lyfjum eða heilbrigðisþjónustu að halda hafi ekki haft efni á að nálgast slíkt. Aðgangur að drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu hafi dregist saman frá árinu 2021 til ársins 2022 sem m.a. hafi leitt til þess að rúmlega fjórar milljónir séu í mikilli þörf fyrir drykkjarvatn. Í skýrslu Landinfo frá 2023 kemur fram að Venesúela hafi á undanförnum árum glímt við mikinn lyfjaskort en að aðgengi hafi farið batnandi frá árinu 2019. Aðgengi sé að lyfjum fyrir þá sem geta greitt fyrir það en margir fái lyf send frá útlöndum.
Hinn 15. nóvember 2023 aðstoðuðu Útlendingastofnun og embætti ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex), 180 venesúelska ríkisborgara við að snúa aftur heim til Venesúela í sjálfviljugri heimför. Í kjölfarið bárust fregnir af því að umræddir einstaklingar hefðu ekki fengið að fara frjálsir ferða sinna af flugvellinum í Karakas, vegabréf þeirra hefðu verið haldlögð og einhverjir sætt yfirheyrslum af hálfu yfirvalda. Í kjölfarið settu íslensk stjórnvöld sig í samband þá einstaklinga sem hægt var og óskað upplýsinga um afdrif þeirra. Voru meginniðurstöður þeirra svara sem borist hefðu að nær allir hafi komist á áfangastað eða væru á leið þangað auk þess sem einn aðili hafi verið kominn til annars ríkis. Þá hafi allir sem svöruðu verið með vegabréf sín og flestir haft ferðastyrk íslenskra stjórnvalda í fórum sínum. Fyrir umrætt leiguflug höfðu íslensk stjórnvöld veitt alls 135 ríkisborgurum Venesúela aðstoð við sjálfviljuga heimför með hefðbundnu áætlunarflugi án vandkvæða við komu til Venesúela. Samkvæmt upplýsingum sem kærunefnd aflaði frá Útlendingastofnun 23. janúar 2025 fengu 971 venesúelskir ríkisborgarar aðstoð við sjálfviljugar heimför til Venesúela á árinu 2024. Hefur íslenskum stjórnvöldum ekki borist upplýsingar um að þeir einstaklingar hafi lent í erfiðleikum við endurkomu sína til Venesúela.
Í skýrslum bandaríska utanríkisráðuneytisins frá árinu 2023 og 2024 kemur fram að konur njóti sömu réttinda og karlar samkvæmt stjórnarskrá landsins. Konur og karlar séu lagalega jöfn í hjónabandi, lögin kveði á um jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði og vinnuveitendur megi ekki mismuna konum varðandi laun eða vinnu. Engu að síður sé ójöfnuður á vinnumarkaði viðvarandi og lögum ekki framfylgt. Í skýrslunni kemur einnig fram að sérstakar deildir í höfuðstöðvum lögreglunnar sérhæfi sig í kynbundu ofbeldi og í tveimur þriðju hluta fylkja í Venesúela séu dómstólar sem fjalli eingöngu um mál er varða kynbundið ofbeldi. Dómsmálaráðherra Venesúela hafi sett á fót stofnun sem taki á móti kvörtunum vegna ofbeldis gegn konum og börnum. Ráðherra hafi sett saman teymi lögfræðinga, geðlækna og annarra sérfræðinga sem eingöngu hafi sinnt málum er tengjast morðum á konum, kynbundnu ofbeldi og öðrum glæpum gegn konum. Nauðgun sé refsiverð í Venesúela og geti varðað fangelsi allt að 14 árum. Þá kveði lögin á um tuttugu til þrjátíu ára fangelsisrefsingu fyrir morð á konum og refsingu fyrir líkamlegt, kynferðislegt eða andlegt ofbeldi. Þrátt fyrir að lög í landinu kveði á um refsingar fyrir ofbeldi gegn konum hafi eftirfylgni með lögunum og aðgangur að réttlæti verið ófullnægjandi auk þess sem almenningur sé ekki meðvitaður um þau úrræði sem í boði séu s.s. stuðning til þolenda. Í landinu séu starfandi félagasamtök sem berjist gegn kynbundu ofbeldi og hægt sé að leita til þeirra eftir stuðningi auk þess sem starfræktar séu hjálparlínur sem konur geti hringt í til að fá upplýsingar og aðstoð.
Venesúelsk stjórnvöld fullgiltu samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins árið 1990. Í umfjöllun um Venesúela á vefsíðu Britannica kemur fram að skólaskylda sé í landinu og að gjaldfrjáls grunnskólamenntun sé í boði fyrir börn á aldrinum sex til 15 ára. Tveggja ára framhaldsskólanám (e. secondary education) sé einnig gjaldfrjálst en ekki skyldubundið. Meira en 90% Venesúelabúa 15 ára og eldri séu læsir. Mikill meirihluti venesúelskra barna sé skráður í skóla en næstum helmingur fullorðinna hafi enga framhaldsskólamenntun og fjöldi hafi ekki hlotið formlega skólagöngu. Venesúelabúar sem tilheyri milli og efri stéttum þjóðfélagsins sendi börn sín gjarnan í einkarekna grunn- og framhaldsskóla. Samkvæmt skýrslu UNICEF frá júní 2023 hafa aukin mótmæli í landinu á fyrri helmingi ársins haft áhrif á menntastofnanir þar sem kennarar hafi í auknum mæli tekið þátt í mótmælum. Sé kennsla í sumum skólum landsins því gloppótt. Kennarasamband Venesúela hafi varað við aðferð sem kallist „horario mosaico“ sem sumir skólar hafi innleitt en í henni felist að kennarar haldi uppi kennslu einungis tvo daga vikunnar til að þeim gefist tími til að sinna öðrum tekjuskapandi störfum. Í skýrslu UNICEF frá desember 2023 kemur fram að um 900 þúsund börn séu utan skóla í landinu og að rúm ein milljón barna eigi á hættu að flosna upp úr námi. Samkvæmt skýrslu bandaríska utanríkisráðuneytisins frá 2023 leggja venesúelsk lög bann við verstu tegundum barnaþrælkunar og er börnum yngri en 14 ára meinað að stunda atvinnu. Börnum á aldrinum 14 til 18 ára sé einungis heimilt að stunda atvinnu með leyfi forsjáraðila og þá að hámarki 30 klukkustundir á viku. Stjórnvöld hafi þó ekki framfylgt lögunum með skilvirkum hætti og hafi hátt hlutfall barna hætt í skóla til að fara að vinna. Í skýrslu Amnesty International frá október 2023 kemur fram að börn séu meðal þeirra sem hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á skertu aðgengi að heilbrigðisþjónustu og læknismeðferð, en árið 2022 hafi tæp 80% barnalæknastofa verið búnar að loka. Í skýrslu Barnaheilla (e. Save the Children) frá árinu 2021kemur fram að samkvæmt mælingum samtakanna á því hvar aðstæður barna séu hvað erfiðastar sé Venesúela í 145. sæti af 186 ríkjum.
5.5 Niðurstaða um réttarstöðu flóttamanns samkvæmt 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja umsóknir sínar um alþjóðlega vernd á því að þau hafi ástæðuríkan ótta við ofsóknir vegna aðildar að þjóðfélagshópi sem þolendur ofbeldis og hótana af hálfu glæpahóps. Þá byggja kærendur einnig á almennu ástandi í Venesúela.
Í viðtali hjá Útlendingastofnun kváðust kærendur hafa flúið heimaríki vegna þess að 23. janúar 2023 hafi K borist skilaboð þar sem kærendur hafi verið krafin um tiltekna peningaupphæð annars yrðu þau og barnið B tekin af lífi. Hafi kærendur lagt fram kæru til CICPC sem hafi tekið skýrslu af þeim og tekið síma K til rannsóknar. Rannsókn á síma K hafi leitt í ljós að X hafi staðið að framangreindum hótunum og fjárkúgun. X væri leiðtogi þekkts glæpahóps í Venesúela sem stundi fjárkúganir og morð. Hafi kærendur verið óttaslegin og K upplifað kvíða. Kvað K að lögreglan í Venesúela væri spillt og oft með tengsl við glæpahópa. K hafi óttast að samstarfsfólk hennar myndi gefa X upplýsingar um hana og fjölskyldu hennar. Vegna ótta um öryggi þeirra hafi M og K farið í veikindaleyfi frá störfum til þess að vera heima með fjölskyldunni. Þau hafi lokað versluninni og A sem hafi starfað þar hafi hætt að mæta. Þá hafi B hætt að mæta í skólann. Hinn 30. janúar 2023 hafi verið gerð skotárás á heimili kærenda. M og K hafi heyrt skothvell dynja á heimili þeirra þegar þau hafi verið sofandi að nóttu til. Þau hafi farið inn á baðherbergi til að fela sig og beðið þangað til skotárásin væri yfirstaðin. Að henni lokinni hafi þau farið inn í herbergi A og B til að athuga hvort það væri í lagi með þau. Kærendur hafi farið út og séð að skotið hafi verið á bíl þeirra, stofu, eldhús og herbergi. Nágranni kærenda hafi tjáð þeim að hann hafi heyrt ótilgreinda menn hrópa að þeir hafi gert þetta vegna þess að M og K hafi ekki greitt þeim umrædda peningaupphæð og svo heyrt í mótorhjóli aka á brott. Eftir þetta hafi K borist fleiri skilaboð frá X um að gerð hafi verið skotárás á heimili hennar vegna þess að hún hafi ekki greitt umbeðna peningaupphæð og að fjölskylda hennar yrði tekin af lífi. Þá hafi henni verið sendar myndir af vopnum og af manni sem hafi verið skorinn á háls auk texta um að slíkt kæmi fyrir þá sem greiddu ekki. M og K hafi verið óttaslegin og daginn eftir lagt fram kæru til lögreglunnar sem hafi komið heim til þeirra og tekið skýrslu og rannsakað atvikið. Kærendur hafi yfirgefið heimili sitt eftir atvikið og flutt til móður K. Foreldrar K hafi haft áhyggjur og óttast að eitthvað kæmi fyrir þau. Kærendur hafi flúið til Íslands til að tryggja öryggi fjölskyldunnar.
Við meðferð málsins hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram ýmis gögn m.a. afrit af lögregluskýrslu, dags. 30. janúar 2023, sem ber með sér að varða framangreinda skotárás, afrit af rannsóknarskýrslu lögreglunnar varðandi hótanirnar frá 25. janúar 2023, skjáskot af hótununum send í síma K, ljósmyndir af skotgötum á húsi og bíl kærenda, afrit af skráningarskírteini ökutækis, dags. 27. september 2016, sem staðfestir eignarhald M á bifreið, staðfesting á því að M hafi verið starfsmaður CPEBEZ, dags. 6. febrúar 2023, starfsmannaskírteini og viðurkenningarskjöl fyrir störf M hjá lögreglunni, starfsmannaskírteini og viðurkenningarskjöl, sem staðfesta að K hafi verið starfsmaður CICPC, staðfesting á veitingu leyfis frá störfum hjá CICPC til K, dags. 28. mars 2017 og samþykki á uppsögn K úr starfi hjá CICPC, dags. 13. febrúar 2023.
Við meðferð málsins hjá kærunefnd lögðu kærendur til viðbótar afrit af lögregluskýrslum frá heimaríki, dags. 30. janúar 2023, sem bera með sér að vera skýrsla lögreglunnar á rannsókn sem framkvæmd hafi verið á framangreindum atvikum.
Með tölvubréfi, dags. 19. september 2025, óskaði kærunefnd eftir frekari upplýsingum frá kærendum. Kærendur voru beðin um að gera grein fyrir því hvers vegna þau teldu sig hafa verið skotmark X og glæpahóps á hans vegum. Í svari kærenda, dags. 22. september 2025, greindu þau frá því að þau hafi átt og rekið verslun og X hafi komið og reynt að kúga af þeim fé annars yrði fjölskyldan fyrir ofbeldi eða jafnvel lífláti. Hafi kærendum verið tjáð að störf þeirra fyrir lögregluna skipti ekki máli og að ef þau myndu ekki greiða tiltekna peningaupphæð yrði fjölskylda þeirra tekin af lífi.
Kærendur byggja á því að tilheyra sérstökum þjóðfélagshópi vegna stöðu þeirra sem einstaklingar í verslunarrekstri í Venesúela. Af frásögn og greinargerð kærenda má ráða að vegna stöðu þeirra sem einstaklingar í verslunarrekstri hafi þau ástæðuríkan ótta við að verða fyrir ofsóknum í heimaríki. Af heimildum um heimaríki kærenda er ljóst að fjárkúganir hafi aukist vegna batnandi efnahags landsins og aðgengis að reiðufé. Hafi slíkt einkum beinst að fyrirtækjum og einstaklingum sem hafi aðgang að erlendum gjaldmiðli. Minni glæpahópar hafi framið rán hjá smærri fyrirtækjum. Þá benda landaupplýsingar til þess að fjárkúganir sem framdar séu af skipulögðum glæpahópum og skæruliðasamtökum séu ítrekaðar og þolendur þurfi reglulega að greiða samtökunum fjárhæðir í samræmi við kaupmátt. Þá hafi fjárkúgun af hendi starfsmanna yfirvalda og öryggissveita einnig aukist sem einkum felist í að krafist sé greiðslu til að ljúka eða hraða afgreiðslu mála í stjórnsýslunni, greiðslna sé krafist af vörubílstjórum, nautgripabændum og öðrum við vegatálma. Viðbrögð yfirvalda við fjárkúgunum séu ófullnægjandi og þá bera heimildir með sér að lögreglumenn hafi tekið þátt í fjárkúgunum og krafist verndargjalds af fyrirtækjum. Að teknu tilliti til gagna málsins og upplýsinga um heimaríki kærenda er ekki ástæða til að draga í efa að kærendur hafi orðið fyrir hótunum og skotárás af hálfu X og glæpahóps á hans vegum í Venesúela. Framlögð gögn og frásögn kærenda benda til þess að kærendur hafi leitað til lögreglunnar sem hafi komið og tekið skýrslu og rannsakað framangreind atvik. Þótt fallast megi á að skilvirkni lögregluyfirvalda og dómstóla í heimaríki kæranda sé ábótavant og spilling sé talsverð í dómskerfinu verður af gögnum sem kærunefnd hefur skoðað séð að venesúelsk stjórnvöld hafi ráðist í aðgerðir til að sporna við starfsemi glæpahópa í landinu. Þá hafa stjórnvöld þar í landi brugðist við spillingu innan raða lögreglunnar. Þær aðgerðir benda ekki til þess að venesúelska ríkið geti ekki eða vilji ekki veita vernd í skilningi c-liðar 4. mgr. 38. gr. laga um útlendinga m.a. með því að ákæra eða refsa fyrir athafnir sem feli í sér ofsóknir. Með vísan til framangreinds verður talið að kærendur geti leitað aðstoðar lögreglu og yfirvalda telja þau þess þörf, jafnvel þó þau telja að kæra þeirra hafi ekki fengið fullnægjandi hljómgrunn af hálfu lögreglunnar.
Samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga skal, við mat samkvæmt 1. og 2. mgr. 37. gr. í málum sem varða börn, fylgdarlaus sem önnur, hafa það sem er barninu fyrir bestu að leiðarljósi. Í ákvæðinu kemur fram að við það mat beri að líta til möguleika barns á fjölskyldusameiningu, öryggis barnsins, velferðar og félagslegs þroska auk þess sem taka skal tillit til skoðana barnsins í samræmi við aldur þess og þroska. Leggur kærunefnd mat á hagsmuni þeirra samkvæmt 5. mgr. 37. gr. laga um útlendinga með hliðsjón af upplýsingum úr fyrirliggjandi gögnum málsins og framangreindum aðstæðum í heimaríki þeirra. Sjónarmið barnsins var nægilega komið á framfæri með framburði kærenda og hagsmunagæslu talsmanns. Að teknu tilliti til ákvæða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og íslenskrar löggjafar um barnavernd standa engin rök í vegi fyrir því að B fylgi foreldrum sínum aftur til heimaríkis. Barnið sem um ræðir er í fylgd foreldra sinna sem eru heilsuhraust og vinnufær og nýtur barnið stuðnings þeirra. Eins og áður greinir stendur barn kærenda til boða gjaldfrjáls menntun í heimaríki. Þá bera gögn með sér að því muni jafnframt hafa aðgang að heilbrigðiskerfinu í heimaríki. Með vísan til framangreinds og að teknu tilliti til sjónarmiða um öryggi, velferð og félagslegan þroska barnsins er það því fyrir bestu að fylgja foreldrum sínum til heimaríkis síns.
Þá greindu kærendur frá erfiðum efnahagslegum aðstæðum þeirra. Efnahagslegar aðstæður teljast almennt ekki til ofsókna í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga og ekkert í gögnum málsins bendir til þess að annað eigi við í máli kærenda.
Þegar frásagnir kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum þeirra og barnsins B í heimaríki, teljast kærendur ekki hafi sýnt fram á með rökstuddum hætti að þau eigi á hættu ofsóknir í skilningi 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Sama á við þegar litið er til samsafns athafna. Kærendur og barnið B uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.6 Niðurstaða um viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga
Kærendur byggja á því að þau eigi rétt á viðbótarvernd samkvæmt 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga vegna þess að þau eigi á hættu að verða fyrir ómannúðlegri og vanvirðandi meðferð í heimaríki. Þá byggja kærendur á því að því að þau geti ekki fengið aðstoð eða vernd yfirvalda og lögreglu í heimaríki.
Með úrskurðum kærunefndar nr. 539/2023, 526/2023 og 525/2023 frá 27. september 2023 komst nefndin að þeirri niðurstöðu, með vísan til alþjóðlegra skýrslna um ástandið í Venesúela, að í landinu væri ekki stríð eða útbreidd vopnuð átök. Þó öryggisástand í landinu væri enn ótryggt og glæpa- og morðtíðni há hafi dregið úr átökum í landinu undanfarin ár og hafi þau að mestu verið staðbundin við svæði við landamæri Kólumbíu. Var því talið að aðstæður í landinu næðu ekki því marki að sérhver einstaklingur sem þangað færi ætti á hættu að láta lífið eða verða fyrir alvarlegum skaða af völdum árása í vopnuðum átökum. Stjórnvöld í Venesúela hafi viðurkennt þörfina á mannúðaraðstoð og greint frá þeim vilja sínum að vinna að bættu réttarkerfi í landinu en ríkisstjórn Maduro hafi fram að því hafnað allri mannúðaraðstoð og lokað fyrir innflutning til landsins. Samkvæmt alþjóðlegum skýrslum virðist efnahagur landsins hafa þokast í rétta átt síðustu árin, olíuviðskipti hafi hafist að nýju og samningur verið gerður milli stjórnar og stjórnarandstöðu um aukna mannúðaraðstoð í landinu og starfi nú ýmis innlend og erlend frjáls félagasamtök og alþjóðastofnanir í landinu. Þrátt fyrir að viðbrögð stjórnvalda í kjölfar forsetakosninga í júlí 2024 hafi verið harkaleg og alþjóðasamfélagið hafi gagnrýnt þær aðfarir verður ekki ráðið að þær aðgerðir hafi beinst að eða beinist að öllum almenningi í landinu. Þá er ljóst að þrátt fyrir áframhaldandi viðskiptaþvinganir og takmörkum á olíuviðskipti í landinu sé áframhaldandi hægur hagvöxtur í landinu. Er það því jafnframt mat kærunefndar að þrátt fyrir alvarlega stöðu í Venesúela þá nái almennar aðstæður þar ekki því alvarleikastigi að hver sem þar sé staddur teljist eiga á hættu dauðarefsingu eða ómannúðlega eða vanvirðandi meðferð eða refsingu í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
Það er því afstaða kærunefndar, með vísan til niðurstöðu framangreindra úrskurða og gagna um Venesúela, að frekari persónulegir þættir þurfi að vera til staðar svo umsækjandi um alþjóðlega vernd frá Venesúela teljist eiga á hættu meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Í úrskurðunum féllst kærunefnd á breytta framkvæmd Útlendingastofnunar og eiga þau sjónarmið við að breyttu breytanda í úrskurði þessum. Hið sama á við um málsástæður kærenda varðandi gildissvið hinnar breyttu framkvæmdar, réttmætar væntingar og áhrif jafnræðisreglunnar.
Með vísan til umfjöllunar undir 1. mgr. 37. gr. laga um útlendinga um aðstæður kærenda og barnsins B er ljóst að þau atvik sem kærendur hafa lýst ná ekki því marki að teljast ómannúðleg eða vanvirðandi meðferð í skilningi 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Þá er ekkert í gögnum málsins eða framburðum kærenda sem gefur tilefni til að ætla að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og B leiði til þess að þau eigi á hættu að sæta ómannúðlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu snúi þau til baka.
Í viðtölum hjá Útlendingastofnun greindu kærendur frá því að hafa verið búsett í borginni Maracaibo í Zulia fylki í Venesúela. Samkvæmt landaupplýsingum er Maracaibo næst stærsta borg Venesúela. Samkvæmt landakorti er Zulia fylki staðsett í norðvesturhluta Venesúela og liggur við landamæri Kólumbíu. Heimildir benda til þess að fylkið sé eitt ofbeldisfyllsta fylki landsins. Zulia fylki glími við langvarandi rafmagnsleysi, vatnsskort, ofbeldi og staðbundin átök. Samkvæmt heimildum, m.a. greinum InSightCrime frá 15. febrúar 2024 er Zulia megintenging fíkniefnasamtaka frá Kólumbíu, einkum glæpahópanna ELN og afsprengihópa FARC (Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia). Þar komi fram að Zulia sé bækistöð ELN sem starfi með refsileysi í fylkinu, þökk sé tengsla við ríkisstjórn Maduro. Stjórnvöld njóti góðs efnahagslega af starfsemi samtakanna og þau þvingi íbúa til að kjósa flokk Maduro. Samkvæmt landaupplýsingum, m.a. korti og upplýsingum á vefsíðu ACLED (e. The Armed Conflict Location & Event Data Project), áttu sér stað 58 ofbeldisatvik í Zulia á fyrsta ársfjórðungi 2024 þar sem 16 einstaklingar létu lífið. Þrátt fyrir það bera gögn ekki með sér að virk átök eða óeirðir séu á því svæði sem kærendur voru búsett eða í Venesúela almennt.
Þegar frásögn kærenda, upplýsingar um heimaríki og gögn málsins eru virt í heild, með hliðsjón af aðstæðum kærenda í heimaríki, er það niðurstaða kærunefndar að einstaklingsbundnar aðstæður kærenda og B séu ekki þannig að þær falli undir ákvæði 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga. Kærendur og barn M og K uppfylla því ekki skilyrði fyrir viðurkenningu á stöðu sem flóttamenn hér á landi, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga um útlendinga.
5.7 Alþjóðleg vernd á grundvelli 40. gr. laga um útlendinga
Þar sem kærendur og barnið B eru ekki flóttamenn samkvæmt 37. gr. laga um útlendinga eiga þau ekki rétt á alþjóðlegri vernd hér á landi, sbr. 40. gr. laga um útlendinga.
6 Dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða
Í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga kemur fram að heimilt sé að veita útlendingi sem sótt hefur um alþjóðlega vernd og ekki fengið niðurstöðu í máli sínu á stjórnsýslustigi innan 18 mánaða eftir að hann sótti fyrst um alþjóðlega vernd hér á landi dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða samkvæmt ákvæðinu að því tilskildu að skorið hafi verið úr um að hann uppfylli ekki skilyrði 37. og 39. gr. Ef um er að ræða barn skal miðað við 16 mánuði. Frekari skilyrði fyrir veitingu dvalarleyfis í þeim tilvikum koma fram í a- til d-liðum 2. mgr. 74. gr. laganna en þau eru að tekin hafi verið skýrsla af umsækjanda um alþjóðlega vernd, ekki leiki vafi á því hver umsækjandi sé, ekki liggi fyrir ástæður sem geta leitt til brottvísunar umsækjanda og að útlendingur hafi veitt upplýsingar og aðstoð við úrlausn máls.
Kærendur sóttu um alþjóðlega vernd fyrir sig og B 14. febrúar 2023. Kærendur og B hafa því ekki fengið niðurstöðu í málum sínum innan þeirra tímamarka sem getið er í 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Er því heimilt að veita þeim dvalarleyfi á grundvelli ákvæðisins að uppfylltum öðrum skilyrðum 2. mgr. 74. gr. laganna.
Að mati kærunefndar uppfylla kærendur og B skilyrði a- til d-liðar 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga. Við meðferð mála sinna hjá Útlendingastofnun lögðu kærendur fram vegabréf fyrir sig og B. Verður því ekki talið að vafi leiki á því hverjir kærendur og B séu, sbr. b-lið 2. mgr. 74. gr. laganna. Þá er það mat kærunefndar að ákvæði a- til d-liðar 3. mgr. 74. gr. laga um útlendinga standi ekki í vegi fyrir veitingu dvalarleyfis samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða kærunefndar að veita beri kærendum og B dvalarleyfi á grundvelli mannúðarsjónarmiða, sbr. 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Í ljósi framangreindrar niðurstöðu er ekki þörf á að fjalla um kröfur kærenda samkvæmt 1. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
7 Athugasemdir, samantekt og leiðbeiningar
Með vísan til alls þess sem að framan er rakið og forsendna hinna kærðu ákvarðana eru þær staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og barnsins B um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir Útlendingastofnun að veita kærendum og barninu B dvalarleyfi samkvæmt 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
Úrskurðarorð:
Ákvarðanir Útlendingastofnunar eru staðfestar hvað varðar umsóknir kærenda og B um alþjóðlega vernd. Lagt er fyrir stofnunina að veita kærendum og B dvalarleyfi á grundvelli 2. mgr. 74. gr. laga um útlendinga.
The decisions of the Directorate of Immigration regarding the appellants´ and the child’s applications for international protection are affirmed. The Directorate is instructed to issue the appellants and the child residence permits based on Article 74(2) of the Act on Foreigners.
F.h. kærunefndar útlendingamála, skv. 3. mgr. 8. gr. laga um útlendinga,
Vera Dögg Guðmundsdóttir