02 október 2025
/
Mál nr. 427/2025-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 427/2025
Fimmtudaginn 2. október 2025
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 5. júlí 2025, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. júlí 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar á bið.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 19. maí 2025. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 1. júlí 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hún ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 5. júlí 2025. Með bréfi, dags. 8. júlí 2025, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 7. ágúst 2025 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. ágúst 2025. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi óskar eftir endurskoðun á máli sínu og kærir þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að hún skuli sæta óteknum biðtíma í þrjá mánuði. Vinnumálastofnun byggi ákvörðun sína á því að kærandi hafi hafnað atvinnutilboði frá fyrirtækinu B. Kærandi heldur því hins vegar fram að hún hafi aldrei fengið slíkt tilboð, hvorki með tölvupósti né símtali og hafi því ekki fengið tækifæri til að samþykkja né hafna því. Að mati kæranda hafi upprunaleg ákvörðun Vinnumálastofnunar því byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum. Kærandi hafi beðið um endurupptöku málsins árið 2023 án árangurs en Vinnumálastofnun hafi þá staðfest fyrri ákvörðun sína um biðtíma.
Kærandi greinir frá því að hún hafi sjálf tryggt sér starf án aðstoðar Vinnumálastofnunar, sem sýni vilja hennar til að vinna og að hún sé ekki að forðast vinnumarkaðinn. Frá þeim tíma, eða í tvö ár, hafi hún unnið, greitt skatta og öll skylduframlög án þess að þiggja atvinnuleysisbætur eða annan fjárhagslegan stuðning. Vinnumálastofnun hafi því ekki orðið fyrir neinum kostnað vegna hennar sem atvinnuleitanda.
Kærandi greinir frá því að hún hafi nú misst vinnuna vegna niðurskurðar á vinnustaðnum. Við endurnýjaða umsókn um atvinnuleysisbætur hafi kæranda verið tilkynnt að fyrri viðurlög frá tveimur árum séu enn í gildi og að hún þurfi að sæta þriggja mánaða biðtíma. Kærandi sé ekki sammála þeirri ákvörðun. Ákvörðun um að neita henni um fjárhagslegan stuðning setji hana í erfiða fjárhagslega og félagslega stöðu, sér í lagi vegna hás framfærslukostnaðar á Íslandi.
Að lokum vísar kærandi til meginreglunnar um meðalhóf og telur að viðurlög frá tveimur árum ættu ekki að koma í veg fyrir fjárhagslegan stuðning þar sem þau endurspegli ekki lengur stöðu hennar, hvorki persónulega né á vinnumarkaði. Viðurlögin ættu að vera felld úr gildi eða fyrnd, sérstaklega í ljósi þess að hún hafi ekki verið byrði á velferðarkerfinu í þessi tvö ár.
Kærandi undirstrikar jafnframt að hlutverk Vinnumálastofnunar sé að styðja einstaklinga sem lendi í erfiðleikum á vinnumarkaði en ekki að skapa óþarfar hindranir sem geri fjárhagslega og félagslega stöðu borgaranna enn verri. Kærandi lýsir yfir von um jákvæða og sanngjarna endurskoðun á málinu og óskar eftir einstaklingsbundnu mati á því.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 9. september 2022 og 31. júlí 2023. Með ákvörðunum stofnunarinnar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og síðar á grundvelli 1. mgr. 57. gr sömu laga. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Kærandi hafi síðast sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 19. maí 2025. Með erindi, dags. 1. júlí 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 83%. Með vísan til ótekinna viðurlaga yrðu bætur til hennar hins vegar ekki greiddar fyrr en að 2,95 mánuðum liðnum.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. júlí 2025, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 5. júlí 2025. Í kæru greini kærandi frá því að viðurlög sem henni hafi verið gert að sæta vegna höfnunar á starfi eigi ekki rétt á sér. Kærandi kannist ekki við að hafa hafnað atvinnutilboði. Kærandi óski því eftir að eftirstöðvar biðtíma verði teknar til skoðunar.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eins og rakið hafi verið hér að framan hafi kæranda þann 9. september 2022 verið gert að sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar þar sem starfslok hennar hjá B hafi ekki verið metin gild. Fyrir liggi að kærandi hafi sjálf sagt upp umræddu starfi. Þá hafi kæranda þann 31. júlí 2023 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga, þar sem hún hefði hafnaði atvinnutilboði hjá C í mars 2023. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé nú liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála. Eftir standi þá ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hún hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 19. maí 2025.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hennar samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hún hafi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um hvernig ítrekuð viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem ekki sé hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlög niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður en hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur. Ekki sé sambærileg heimild í lögum um að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í 5. mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Eins og áður segi hafi kærandi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils. Þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur hafi tæpir þrír mánuðir verið útistandandi af biðtíma hennar. Því hafi hún fyrst getað átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta þegar sá biðtími hafi verið liðinn. Því sé ljóst að skilyrði þess að viðurlagatími verði felldur niður séu ekki uppfyllt í máli þessu.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar viðurlagatíma skuli halda áfram að líða frá síðasta umsóknardegi kæranda, dags. 19. maí 2025.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.
Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 9. september 2022 og 31. júlí 2023 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 54. gr. og síðar 1. mgr. 57. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 19. maí 2025. Umsókn hennar var samþykkt 1. júlí 2025 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn.
Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hennar barst Vinnumálastofnun þann 19. maí 2025, starfað í 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hún fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 31. júlí 2023, áfram að líða þegar hún skráði sig atvinnulausa að nýju 19. maí 2025.
Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 1. júlí 2025, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir