02 október 2025

/

Nr. 772/2025 Úrskurður

 

Hinn 2. október 2025 er kveðinn upp svohljóðandi

úrskurður nr. 772/2025

í stjórnsýslumáli nr. KNU24100200

Kæra   […]

1        Kröfur, kærufrestir og kæruheimild

Hinn 30. október 2024 kærði […], fd.  […], ríkisborgari Indlands (hér eftir kærandi), ákvörðun Útlendingastofnunar, dags. 16. október 2024, um að synja honum um vegabréfsáritun til Íslands.

Af kæru má ráða að krafist sé þess að ákvörðun Útlendingastofnunar verði felld úr gildi og að fallist verði á beiðni kæranda um vegabréfsáritun til Íslands.

Fyrrgreind ákvörðun er kærð á grundvelli 7. gr. laga um útlendinga nr. 80/2016 og barst kæran fyrir lok kærufrests.

2          Málsmeðferð

Kærandi lagði fram umsókn um vegabréfsáritun til Íslands og Schengen-svæðisins 27. september 2024, fyrir 11 daga dvöl sem ferðamaður frá 23. desember 2024 til 2. janúar 2025. Umsókn kæranda var lögð fram á Indlandi.

3        Málsástæður og rök kæranda

Í kæru vísar kærandi til ástæðu fyrir synjun umsóknar hans, nánar tiltekið að rökstudd ástæða hafi verið til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð hafi verið fram, þ.e. hvort þau hafi verið ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Kærandi vilji bæta úr því og lagði fram viðbótarupplýsingar og gögn samhliða kæru, sem voru þó þau sömu og hann lagði fram með umsókn sinni,  að undanskildu uppfærðu bréfi frá atvinnuveitanda.

4        Vegabréfsáritun

4.1       Lagagrundvöllur

Í máli þessu gilda einkum ákvæði laga um útlendinga, reglugerð um útlendinga nr. 540/2017, ákvæði stjórnsýslulaga nr. 37/1993, reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 795/2022, Schengen-samningurinn og verklagsreglur þess samnings.

Samkvæmt 1. mgr. 20. gr. laga um útlendinga þurfa útlendingar að hafa vegabréfsáritun til að koma hingað til lands, nema annað sé ákveðið í reglum sem ráðherra setur. Í reglugerð um vegabréfsáritanir er kveðið á um verklagsreglur og skilyrði fyrir útgáfu vegabréfsáritana af Íslands hálfu til gegnumferðar um eða fyrirhugaðrar dvalar, einnar eða fleiri, á yfirráðasvæði Schengen-samstarfsins í allt að 90 daga á hverju 180 daga tímabili, sem og heimild Útlendingastofnunar til útgáfu vegabréfsáritana til lengri dvalar á Íslandi á grundvelli dvalar- og/eða atvinnuleyfis, sbr. 1. mgr. 1. gr. reglugerðarinnar. Ríkisborgarar Indlands þurfa vegabréfsáritun til Íslands, sbr. viðauka 8 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í 6. mgr. 20. gr. laga um útlendinga koma fram skilyrði til útgáfu vegabréfsáritunar og í 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er tilgreint hvenær synja skuli um vegabréfsáritun. Heimilt er samkvæmt fyrrgreindri 6. mgr. 20. gr. að veita útlendingi vegabréfsáritun sem gildir á öllu Schengen-svæðinu ef grunnskilyrðum a - h liða sömu greinar er fullnægt, nánar tiltekið að umsækjandi; hafi gilt vegabréf eða annað kennivottorð sem viðurkennt er sem ferðaskilríki við komu til Íslands og annarra Schengen-ríkja og við brottför er gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir þann tíma sem vegabréfsáritunin sem sótt er um tekur til; hafi heimild til að ferðast til baka til heimalandsins eða annars ríkis sem gildir a.m.k. þrjá mánuði fram yfir gildistíma áritunarinnar; hafi nægileg fjárráð sér til framfærslu meðan á fyrirhugaðri dvöl stendur og til að greiða fyrir ferð til baka til heimalandsins eða annars lands þar sem honum hefur verið tryggður aðgangur eða hann getur framfleytt sér á löglegan hátt; geti sýnt fram á tilgang dvalar; ekki liggi fyrir ástæða til brottvísunar eða frávísunar hans skv. 98., 99. eða 106. gr. laga um útlendinga; sé ekki skráður í Schengen-upplýsingakerfið í því skyni að honum verði meinuð koma til landsins; teljist ekki ógn við allsherjarreglu, þjóðaröryggi eða alþjóðasamskipti ríkisins eða annars ríkis sem tekur þátt í Schengen-samstarfinu; hafi gilda sjúkrakostnaðar- og heimferðartryggingu.

Samkvæmt 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga skal vegabréfsáritun ekki veitt ef ástæða er til að vefengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða réttmæti upplýsinga sem hann hefur veitt. Er þessi regla áréttuð í 8. mgr. ákvæðisins en þar kemur fram að við mat á umsókn um vegabréfsáritun skuli auk þjóðernis taka tillit til félagslegrar stöðu og hættu á að útlendingur dvelji lengur á Schengen-svæðinu en honum er heimilt. Í 8. mgr. 20. gr. er ráðherra jafnframt veitt heimild til setningar reglna um vegabréfsáritanir, þar á meðal skilyrði fyrir því að veita þær. Umsækjendur um samræmda vegabréfsáritun skulu framvísa skjölum sem gera kleift að meta ásetning umsækjanda um að fara frá yfirráðasvæði aðildarríkjanna áður en vegabréfsáritunin, sem sótt er um, rennur út, sbr. d-lið 1. mgr. 14. gr. og 2. viðauka reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Í 8. mgr. 20. gr. kemur fram að heimilt er að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja við mat á umsókn um vegabréfsáritun. Með aðild að Schengen-samstarfinu tókust íslensk stjórnvöld á hendur skyldu til að fylgja samræmdum reglum um útgáfu vegabréfsáritana. Hafa stjórnvöld sem annast afgreiðslu umsókna um vegabréfsáritanir mótað tilteknar verklagsreglur til að styðjast við, byggðar á efnisreglum Schengen-samningsins. Í athugasemdum með frumvarpi til laga um útlendinga kemur fram að við mat á einstökum atriðum sé nauðsynlegt að taka tillit til reynslu og framkvæmdar annarra Schengen-ríkja. Leiði það af eðli samstarfsins að mikilvægt sé að samræmis sé gætt á þessu sviði svo sömu skilyrði gildi um vegabréfsáritanir á Schengen-svæðinu.

Samkvæmt 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir skal með fyrirvara um 1. mgr. 25. gr. hennar synjað um vegabréfsáritun í þeim tilvikum sem tilgreind eru í a. og b. lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðarinnar.

Í 21. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir er fjallað um könnun á því hvort komuskilyrði umsækjenda séu uppfyllt og áhættumat. Í 8. mgr. ákvæðisins kemur fram að á meðan á meðferð umsóknar stendur er sendiskrifstofum eða miðlægum yfirvöldum heimilt, þegar ástæða þykir til, að taka viðtal við umsækjanda og fara fram á að hann leggi fram viðbótargögn.

Meðferð umsóknar kæranda fór fram hjá utanríkisþjónustunni, sbr. 10. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Þyki skilyrði ekki fyrir hendi til útgáfu áritunar er mál lagt fyrir Útlendingastofnun til ákvörðunar.

4.2          Niðurstaða

Synjunarform Útlendingastofnunar er staðlað eyðublað sem öll þátttökuríki Schengen-samstarfsins notast við, sbr. viðauka 6 við reglugerð um vegabréfsáritanir. Í eyðublaðinu er hægt að merkja við reiti á bilinu 1-17 þar sem fram koma ástæður þess að umsókn er synjað. Í ákvörðun í máli kæranda er merkt í reit 12, þ.e. að rökstudd ástæða var til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau væru ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra. Ákvörðuninni fylgdu viðbótarathugasemdir, þar sem fram kemur að rökstudd ástæða hafi verið til þess að draga í efa áreiðanleika framlagðs skattframtals. Uppfyllti kærandi þar með ekki skilyrði 20. gr. laga um útlendinga sem og 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir.

Með vísan til 21. gr. stjórnsýslulaga var kæranda jafnframt leiðbeint um að hann gæti óskað eftir skriflegum rökstuðningi innan 14 daga frá tilkynningu ákvörðunar. Samkvæmt gögnum málsins liggur ekki fyrir skriflegur rökstuðningur vegna ákvörðunar í máli kæranda.

Gögn sem sýna fram á staðfestingu á skattframtali síðastliðin tvö ár eru meðal nauðsynlegra fylgigagna með umsókn um vegabréfsáritun, sbr. 14. gr. og viðauka 2 við reglugerð um vegabréfsáritanir, og koma fram í 8. tölul. gátlista með vegabréfsáritunarumsóknum sem lagðar eru fram hjá sendiráði Íslands á Indlandi. Samkvæmt dagbókarfærslu í málaskrá Útlendingastofnunar, dags. 30. september 2024, lagði kærandi fram falsað skattframtal fyrir árin 2024-2025, en dagsetning staðfestingar framtalsins annars vegar og skráningar þess hins vegar stemmdu ekki. Í annarri dagbókarfærslu, dags. 15. október 2024, kemur fram að kærandi hafi lagt fram tvö fölsuð skattframtöl, annars vegar fyrir árin 2024-2025 þar sem augljósir ágallar voru á strikamerki og hins vegar fyrir árin 2023-2024 þar sem sama ágalla var að finna á strikamerki auk þess sem dagsetning skráningar framtalsins var merkt efst á blaðsíðu sem 6. júlí 2023 sem er ekki mögulegt. Á kærustigi hefur kærandi ekki lagt fram nýtt skattframtal, sjónarmið um meinbugi á framlögðu skattframtali eða önnur þau gögn sem leitt geti til þess að úr þeim ágalla verði bætt á kærustigi. Af þeim sökum verður ákvörðun Útlendingastofnunar staðfest.

Að framangreindu virtu er rökstudd ástæða til að draga í efa áreiðanleika fylgiskjala sem lögð voru fram, þ.e. hvort þau séu ósvikin eða sannleiksgildi efnis þeirra, sbr. b-lið 1. mgr. 33. gr. reglugerðar um vegabréfsáritanir. Er þannig ástæða til að vefengja réttmæti upplýsinga sem kærandi hefur veitt, sbr. 2. málsl. 7. mgr. 20. gr. laga um útlendinga. Verður hin kærða ákvörðun staðfest.


Úrskurðarorð:

Ákvörðun Útlendingastofnunar er staðfest.

The decision of the Directorate of Immigration is affirmed.

Fyrir hönd kærunefndar útlendingamála,

 

Valgerður María Sigurðardóttir, varaformaður